Morgunblaðið - 29.05.2021, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 29.05.2021, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. MAÍ 2021 Ýmsar gerðir af heyrnar- tækjum í mismunandi litum og stærðum. Allir helstu varahlutir og aukahlutir fyrir heyrnartækin þín á vefverslun okkar heyrn.is HEYRNARÞJÓNUSTA 2007 HLÍÐASMÁRI 19, 2. HÆÐ • 201 KÓPAVOGI • SÍMI 534 9600 HEYRN@HEYRN.IS • HEYRN.IS Heyrðu umskiptin, fáðu heyrnartæki til reynslu Sigurður Hannesson, fram-kvæmdastjóri Samtaka iðnaðar- ins, benti á það í sam- tali við Ríkisútvarpið í vikunni að sum sveitarfélög hefðu sofið á verðinum hvað varðar framboð á lóð- um. Sveitarfélögin stæðu sig misvel að þessu leyti, en hann benti sérstaklega á „að í stærsta sveitar- félagi landsins, Reykjavík, þar hefur uppbyggingu verið beint á þéttingarreiti en að mjög litlu leyti á ný svæði“. - - - Þessari stefnu hefur svo fylgt aðsáralítið framboð er á lóðum undir sérbýli í borginni sem veldur því að verð á því þrýstist upp. Í sam- tali við Morgunblaðið í gær bendir Jón Bjarki Bentsson, aðalhagfræð- ingur Íslandsbanka, á að sérbýli hafi hækkað um 20% síðastliðið ár en fjölbýlið um 12%. - - - Þessi lóðaskortsstefna hefur ekkiaðeins afleiðingar fyrir þá sem eru að kaupa sér húsnæði og þurfa að greiða það hærra verði en ella. Hún hefur áhrif á allan almenning því að, eins og Jón Bjarki benti einnig á, spurður um verðbólgumælingu í apr- íl, þá er það fasteignaverðið sem „drífur verðbólguna áfram milli mán- aða. Rúmlega tveir þriðju hlutar þess- arar hækkunar eru af völdum íbúða- verðsins. Á móti vegur lítilsháttar lækkun á innflutningsverðinu.“ - - - Vissulega hefur fleira áhrif á fast-eignaverð en lóðaframboð, en lóðaframboðið er þó nokkuð sem hægur vandi er að auka og draga með því úr hækkunum fasteigna- verðs og verðbólgu. En meirihlutinn í borgarstjórn vill frekar keyra þéttingarstefnuna áfram af fullri hörku. Sigurður Hannesson Lóðaskortur og verðbólga STAKSTEINAR Jón Bjarki Bentsson Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Lokun Hannesarholts stendur enn til og verður menningarsetrinu lokað 20. júní. Margir hafa kallað eftir því að setrinu verði áfram haldið opnu og hafa birst greinar þar sem er biðlað til stjórnvalda að bjarga rekstrinum. Málið er nú komið á borð stjórnvalda og segist Ragnheiður Jóna Jónsdótt- ir, forstöðumaður Hannesarholts, vera bjartsýn á framtíð stofnunar- innar þrátt fyrir allt. „Við erum búin að segja upp starfsfólki og Hannesarholti verður lokað 20. júní. Við erum búin að heyra í stjórnvöldum en ekki búin að fá niðurstöðu, en erum bjartsýn þótt við höfum ekkert í hendi.“ Ragnheiður vonar að málið verði leyst og rekstur menningarsetursins geti haldið áfram í haust. „Ég vona að það verði bara lokað í sumar og opnað aftur í haust en það veltur allt á stjórnvöldum.“ Hannesarholt á sér langa og merka sögu. Það er byggt af fyrrver- andi ráðherra og þjóðskáldi, Hann- esi Hafstein, eins og nafnið gefur til kynna. Hannesarholt var opnað sem menningarsetur í febrúar 2013 og síðan hafa verið haldnir alls kyns menningarviðburðir þar. logis@mbl.is Hannesarholti verður lokað - Forstöðumaður stofnunarinnar segist þó líta framtíðina björtum augum Ljósmynd/Hannesarholt Lokað? Hannesarholt á Grundar- stíg 10 var opnað árið 2013. Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Aldagömul saga tilskipunar um hús- vitjanir presta er að öllum líkindum að renna sitt skeið á enda. Stjórnar- frumvarp dómsmálaráðherra til laga um þjóðkirkjuna sem er til með- ferðar á Alþingi fellir Tilskipun um húsvitjanir frá árinu 1746 úr gildi en í gær 27. maí voru liðin 275 ár frá því að hún var gefin út. Vakin er athygli á þessu í pistli á vef þjóðkirkjunnar, kirkjan.is, í gær og að næsta víst sé að frumvarpið verði samþykkt. Þá verði húsvitj- unartilskipunin ásamt öðrum göml- um lögum og tilskipunum felld úr gildi. Minnt er á að tilskipunin um húsvitjanir varð grunnur að miklum upplýsingabanka sem sagnfræð- ingar og aðrir hafa unnið úr og að þeir sem skráðu upplýsingarnar inn í þennan banka voru prestarnir. „Í húsvitjunum könnuðu prestar meðal annars kunnáttu fólks í kristnum fræðum og lestrarfærni barna, söfnuðu almennum upplýs- ingum um það; athuguðu heimilis- hagi alla; tóku manntal og ræddu við heimilisfólkið. Frá því að þessi tilskipun var sett hafa prestar húsvitjað hver með sín- um hætti allt til þessa dags enda þótt inntak heimsóknarinnar hafi breyst,“ segir á kirkjan.is Tilskipunin er sögð merkileg fyrir margra hluta sakir en auðvitað komi það ekki í veg fyrir að prestar heim- sæki sitt sóknarfólk þegar þeir kjósa og í samvinnu við það. Meðal annarra tilskipana frá tíð einvaldskonunga í Danmörku sem falla brott skv. frumvarpinu eru til- skipun um fardaga presta á Íslandi frá 1847, bréf kansellísins um til- högun á kirkjuhurðum frá 1828, til- skipun um heimaskírn barna frá 1771 og tilskipun um tilhlýðilegt helgihald sabbatsins og annarra helgra daga á Íslandi frá 1744. Endalok 275 ára sögu húsvitjana - Prestar könnuðu kunnáttu fólks og heimilishagi alla Danakonungur Tilskipunin var gef- in út á valdatíma Kristjáns sjötta.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.