Morgunblaðið - 29.05.2021, Page 10
STANGVEIÐI
Einar Falur Ingólfsson
efi@mbl.is
„Laxinn er mættur við Urr-
iðafoss, þegar við vorum þar um
daginn sáust tveir laxar stökkva,“
segir Harpa Hlín Þórðardóttir
hjá Iceland Outfitters, leigutaka
þess veiðisvæðis í Þjórsá, en lax-
veiðisumarið hér á landi hefst
þegar tekið verður að veiða þar á
þriðjudaginn kemur, 1. júní.
Stangveiði við Urriðafoss hófst
sumarið 2017 og hefur frá fyrsta
degi notið mikilla vinsælda. Hefur
netum síðan verið fækkað við
jarðir í ánni og veiðar á stöng
teknar upp á sífellt fleiri svæðum.
Nú er veitt á fjórar dagstangir á
Urriðafosssvæðinu og fær hver
kaupandi aðeins einn dag í senn.
Harpa Hlín segir að uppselt sé
þar fram í miðjan júlí.
„Við erum mjög spennt að
byrja. Það hefur verið mjög lítið
vatn í ánni síðustu vikur, það er
betra að veiða þegar það er meira
en nú hefur rennslið verið að
aukast síðustu tvo daga. Það lítur
því út fyrir að opnunin verði við
góðar aðstæður.“
990 laxar veiddust við Urriða-
foss í fyrrasumar. Í kjölfar hinnar
góðu veiði við fossinn undanfarin
ár hafa Iceland Outfitters tekið
að selja leyfi á fleiri svæði í
Þjórsá. Harpa Hlín segir að með
hverju sumrinu aukist veiði-
reynslan á þessum svæðum og
veiðimenn finni betur út úr því
hvar laxinn liggi og taki helst. Þá
er veiðin í Þjórsá nær eingöngu
stunduð af íslenskum veiði-
mönnum.
„Við höfum aldrei lent í öðrum
eins áhuga og var á Urriðafoss-
svæðinu frá fyrsta degi. Menn
hafa síðan haldið dögunum sínum
og það hefur ekki verið pláss fyrir
neina erlenda veiðimenn.“
Þegar Harpa Hlín er spurð
hvort hún sé komin með spá fyrir
laxveiðisumarið, þá hlær hún og
spyr á móti hvort veiðimenn séu
ekki alltaf bjartsýnir. „Það þýðir
ekkert annað,“ bætir hún við. „Við
höfum enga ástæðu til að ætla
annað en að það verði fínt.“
Rigningasumri lofað
Sjónir veiðimanna beinast ætíð
að opnun Norðurár í Borgarfirði,
sem verður á föstudaginn kemur,
en þar hefst veiðin fyrst í borg-
firsku ánum. Eftir gríðarlega snjó-
léttan vetur vestanlands hafa
margir áhyggjur að því að árnar
verði vatnslitlar. Einar Sigfússon,
staðarhaldari við Norðurá, þekkir
vel þá umræðu. „Já, heiðarnar eru
allar snjólausar. Það eina góða við
þetta kalda vor er að sá litli snjór
sem er í fjöllum er þar enn. Það
verður sæmilegt vatn fram eftir
miðjum júní en nú spáir líka rign-
ingu og við það lyftist á okkur
brúnin. Ég segi þeim sem spyrja
að það sé búið að lofa okkur rign-
ingasumri!
Þó árnar séu vatnslitlar á
göngutíma laxins þá gengur fisk-
urinn samt – en það getur orðið
erfiðara að fá hann til að taka
flugur þegar kemur fram á sum-
arið. En ég er ekkert svartsýnn –
það rigndi alltaf af og til áður og
það hlýtur að gerast líka þetta
sumarið,“ segir Einar.
Laxinn er mættur í Norðurá og
hefur sést. „Eins og vatnið er
núna þá halda Brotið og Konungs-
strengur ekki fiski svo það verður
veitt í byrjun við Eyrina. En ég
bind vonir við að rigningarnar skili
einhverju.“
Einar segir heimsfaraldur veir-
unnar hafa þau áhrif að erlendir
veiðimenn séu ekki að skila sér
jafn vel og þeir gerðu fyrir far-
aldur. „Það hefur fyrir vikið verið
meiri barningur en áður að selja
leyfi en það er enginn barlómur.
Júní, ágúst og september eru
uppseldir og stærsti hluti júlí.
Auðvitað gætir þess að við erum
að koma út úr tveimur mjög erf-
iðum sumrum, vatnslitlum og
fisklitlum í ofanálag.“ 979 laxar
veiddust á stangirnar 15 í fyrra.
Eftir fundi Einars með veiði-
réttarhöfum fyrir þremur árum
var ákveðið að ráðast í aðgerðir
til að hjálpa seiðabúskap Norður-
ár með markvissu ræktunarátaki.
„Við verðum að setja okkur
metnaðarfull markmið en Norð-
urá á að skila 3.000 löxum á
sumri. Við þurfum að ná því. Því
höfum við nú dregið á og farið
með 30 laxa í laxeldisstöðina á
Laxeyri, og við munum núna
sleppa miklu af sumaröldum seið-
um í uppána og lækina þar sem
búsvæðin eru ekki fullsetin. Við
ætlum svo líka að fá nið-
urgönguseiði sem við setjum í
sleppitjarnir næsta vor á tveimur,
þremur stöðum við ána. Við gröf-
um líka hrogn. Þessar ár þurfa
allar aðstoð, náttúran er sveiflu-
kennd.“
Lax mættur en áhyggjur af vatnsleysi
- Laxveiðitímabilið hefst á þriðjudag - Mikill áhugi á stangveiðileyfum við Urriðafoss í Þjórsá
- Ræktunarátak hafið í Norðurá, hyggjast sleppa bæði sumaröldum seiðum og niðurgönguseiðum
Morgunblaðið/Einar Falur
Draumastund Veiðimaður setti í fyrra í sterkan lax við Gömlu brú, einn margra góðra veiðistaða í Haffjarðará.
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. MAÍ 2021
LANDSBANKINN. IS
Komum
hlutunum
á hreyfingu
Við bjóðum hagstæðar leiðir
til að fjármagna ný og notuð
atvinnutæki og bíla sem henta
rekstrinum þínum.