Morgunblaðið - 29.05.2021, Síða 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. MAÍ 2021
Vefverslun: www.donna.is
Erum nú á Facebook: donna ehf
Sími 555 3100 www.donna.is
Honeywell
gæða lofthreinsitæki
Hreint loft - betri heilsa
Loftmengun er hættuleg heilsu
og lífsgæðum. Honeywell loft-
hreinsitæki eru góð viðmyglu-
gróum, bakteríum, frjókornum,
svifryki, lykt og fjarlægir allt
að 99,97% af ofnæmisvaldandi
efnum.
Verð kr.
37.560
Verð kr.
16.890
Verð kr.
59.100
Garðatorg 6 | s. 551 5021 | www.aprilskor.is
Audley mokkasíur
28.990 kr.
Ný sending frá
Skoðið // hjahrafnhildi.is
Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is
Vandaðar
mokkasíur frá
Skipholti 29b • S. 551 4422
Skoðið laxdal.is
Sumardressið
færðu í Laxdal
Esther Hallsdóttir
esther@mbl.is
Atli Rúnarsson, fornleifafræðingur
hjá Byggðasafni Hafnarfjarðar,
vinnur nú að því að skrá allar forn-
minjar í Hafnarfirði.
„Ég byrjaði á
þessu verkefni í
ágúst í fyrra. Það
var búið að skrá
einhverjar forn-
minjar áður en
ekki svona heild-
stætt,“ segir Atli.
Verkefnið er hluti
af aðalskipulagi
Hafnarfjarðar.
Þúsundustu
skráðu fornminjarnar voru skýli í
móbergshelli við gamla þjóðleið. Atli
segir að á svæðinu sé að finna allt frá
víkingaaldarminjum til vatnsveitu-
minja frá 20. öld. Stundum er um að
ræða heil bæjarstæði en í öðrum til-
fellum leynast smá hleðslur á milli
húsa.
Þá skrái hann einnig staði tengda
þjóðsögum. Einn slíkur er í Vala-
hnúkum, en sagan segir að tröllafjöl-
skylda hafi orðið að steini þar eftir að
hafa farið frá Kerlingahnúk til Hafn-
arfjarðar að sækja hval og tafist á
bakaleiðinni.
Skráði bæ langömmu sinnar
Atli hefur persónulega tengingu
við verkefnið því langamma hans ólst
upp á stað sem hann skráði, Óttars-
stöðum eystri. Húsið var byggt árið
1883 og stendur enn.
Hann segir mikilvægt að skrá
fornminjar. „Fornleifaskráning er
mjög mikilvægur partur í verndun
menningararfsins, við getum ekki
verndað það sem við vitum ekki um.
Samkvæmt lögum um menningar-
minjar verður fornleifaskráning að
fara fram áður en ráðist er í nokk-
urskonar framkvæmdir og það má
ekki hrófla við minjum nema með
leyfi Minjastofnunar Íslands.“
Gengur tugi kílómetra á dag
Aðspurður hvernig hann kortlegg-
ur og skráir fornminjarnar segir Atli
að hann byrji á að fara yfir heimildir
um byggð á svæðinu og skoði loft-
myndir. Svo fari hann einfaldlega á
vettvang og gangi.
„Við skiptum bæjarlandinu upp í
tólf svæði. Svæðið sem ég er að skrá
núna er 40 ferkílómetrar,“ segir Atli.
„Ég gekk 30 kílómetra í gær. Það
var í meira lagi. Þetta eru um 15-20
kílómetrar á dag.“
Atli segir að gögnin verði aðgengi-
leg á kortasjá bæjarins. Þá skrifi
hann skýrslur sem eru settar á
heimasíðu Byggðasafnsins. Gert er
ráð fyrir að verkefnið taki um það bil
ár og að því ljúki undir lok sumars.
Atli hefur gaman af verkefninu og
nýtur útiverunnar. „Ég er mikið einn
að þessu og nýt þess líka, að vera
einn úti í náttúrunni,“ segir hann.
Þúsundustu fornminjarnar
skráðar í landi Hafnarfjarðar
- Skýli í móbergshelli var númer þúsund - Verkefnið er á vegum Byggðasafnsins
Ljósmynd/Atli Rúnarsson
Óttarsstaðir eystri Atli skrásetti húsið sem langamma hans ólst upp í.
Ljósmynd/Atli Rúnarsson
Fornminjar Tröllafjölskyldan á Valahnúkum telst til fornminja.
Atli Rúnarsson
Margrét Þóra Þórsdóttir
Akureyri
„Fordæmið er gott og alfarið að
frumkvæði ríkisendurskoðanda,“
sagði Steingrímur J. Sigfússon for-
seti Alþingis við opnun skrifstofu
Ríkisendurskoðunar á Akureyri í
gær. Skrifstofan er til húsa á fjórðu
hæð við Glerárgötu 34 og þar munu
verða fjórir til fimm starfsmenn í
upphafi.
Undirbúningur embættisins varð-
andi opnun skrifstofu utan Reykja-
víkur hefur staðið yfir um skeið. Því
ferli lauk í gær með formlegri opnun
hennar. „Þetta er gleðidagur fyrir
Akureyringa,“ sagði Ásthildur
Sturludóttir bæjarstjóri á Akureyri
við það tækifæri.
Verkefni skrifstofunnar verða
fjárhagsendurskoðun á ríkisaðilum í
A-hluta ríkisreiknings, þ.e. stofnun-
um, sem hafa starfsstöðvar á Norð-
ur- og Austurlandi. Eru það m.a.
ýmsar heilbrigðisstofnanir, sýslu-
menn, menntastofnanir, löggæsla og
fleiri embætti. Eins munu starfs-
menn skrifstofunnar á Akureyri
sinna ákveðnum verkefnum fyrir
landið allt með rafrænum hætti.
Skúli Eggert Þórðarson ríkisend-
urskoðandi segir nú þegar unnið að
tilteknum stjórnsýsluúttektum norð-
an heiða sem varða verkefni á lands-
vísu. Búið er að ráða hluta starfs-
fólks og segir hann svigrúm til þess
að allt að átta manns vinni á starfs-
stöðinni á Akureyri. „Akureyringar
hafa tekið okkur vel. Það hefur sýnt
sig að verkefnin þurfa ekki öll að
vera unnin í Reykjavík,“ segir hann.
Vonandi er jarðvegurinn frjór
Steingrímur sagði að kórónuveiru-
faraldur hefði kennt mönnum það að
hægt væri að sinna fjölda starfa án
sérstakrar staðsetningar. „Það er
vonandi að jarðvegurinn sé frjór fyr-
ir því núna að störf á vegum ríkis-
stofnana dreifist meira um landið,“
segir hann.
Steingrímur lauk lofsorði á Skúla
Eggert Þórðarson sem hefði unnið
að flutningi starfanna án átaka og
láta, engin úlfúð hefði skapast um
flutninginn svo sem dæmi eru um áð-
ur við svipaðar aðstæður.
Morgunblaðið/Margrét Þóra
Opnun Eyjólfur Guðmundsson háskólarektor, Gunnar Karlsson skattstjóri,
Skúli Eggert Þórðarson ríkisendurskoðandi og Hilda Jana Gísladóttir bæj-
arfulltrúi við opnun skrifstofu Ríkisendurskoðunar á Akureyri í gær.
Opnar á Akureyri
- Verkefnin þurfa ekki öll að vera unn-
in í Reykjavík segir ríkisendurskoðandi
Atvinna