Morgunblaðið - 29.05.2021, Page 14
14 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. MAÍ 2021
Svanhildur Eiríksdóttir
svei@simnet.is
T
veggja ára afmæli Jazz-
fjelags Suðurnesjabæjar
verður senn fagnað en
fyrstu tónleikar þess voru
haldnir í júní 2019. Aðsókn að tón-
leikum félagsins hefur vaxið jafnt og
þétt og hróður félagsins borist víða.
„Það er mikil ásókn í að spila á
tónleikum hjá okkur, meira að segja
frá Ítalíu og Svíþjóð. Þar voru er-
lendir djasstónlistarmenn sem
spiluðu með kvartett Sigurðar
Flosasonar saxófónleikara og með
Andrési Þór Gunnlaugssyni gítar-
leikara. Þetta spurðist út. Við erum
að verða þekkt stærð í íslenskum
djassheimi. Ég hef margoft þurft að
segja að því miður sé árið full-
bókað,“ segir Halldór Lárusson, for-
svarsmaður Jazzfjelagsins, tromm-
ari og skólastjóri Tónlistarskóla
Sandgerðis.
Róið á styrkjamiðin
Halldór á hugmyndina að stofn-
un félagsins, sem er rekið sem
áhugafélag svo hægt sé að sækja
um styrki. Hugmyndin var frá upp-
hafi að hafa ókeypis inn á alla tón-
leika, sem hefur tekist. Helstu
styrktaraðilar eru Sóknaráætlun
Suðurnesja, Suðurnesjabær og Fé-
lag íslenskra hljómlistarmanna. Þá
er félagið í samstarfi við Bókasafn
Sandgerðis um aðstöðu til tónleika-
haldsins.
Tónleikar hafa verið skipulagð-
ir fram á haust eða svo lengi sem
fjármagn endist en Halldór hefur
fulla trú á að félagið muni lifa
áfram, en róa þurfi áfram á styrkja-
miðin. Félagið hefur eignast merki
sem Björgvin Guðjónsson hannaði
svo þá má segja að það sé orðið al-
vörufélag.
Alltaf fiktað við djassinn
Sjálfur er Halldór ekki djass-
tónlistarmaður í þeim skilningi en
kom þó nýverið fram á tónleikum fé-
lagsins með hljómsveitinni Golu.
Hann er þó alæta á tónlist og segir
djasstónlistarmenn í dag vera nokk-
urs konar pönkara nútímans. Tón-
listarferill Halldórs byrjaði einmitt í
pönki, svo hann er kominn í hring
svo að segja. Kveðst alltaf hafa
„fiktað“ við djassinn, því þar sé
nálgunin allt önnur og mikil áskorun
sem honum líki vel.
„Bæði djasstónlistarmenn og
pönkarar eru í tónlist af hugsjón.
Það hefst lítið sem ekkert upp úr
þessu og þetta er erfiður bransi.
Tónlistarfólkið heldur þó alltaf
áfram. Mér finnst það aðdáunar-
vert.“
Margt á dagskránni
Rjómi tónlistarmanna hefur
spilað á tónleikum Jazzfjelagsins og
þannig verður það áfram. Síðastlið-
inn miðvikudag spilaði DJÄSS-
tríóið sem er skipað Karli Olgeirs-
syni píanóleikara, Kristni Snæ Agn-
arssyni trommuleikara og Jóni
Rafnssyni bassaleikara. Í júní kem-
ur hljómsveitin Move fram á tón-
leikum félagsins en í þeirri sveit eru
Óskar Guðjónsson saxófónleikari,
Eyþór Gunnarsson píanóleikari,
Matthías Hemstock trommuleikari
og Valdimar Kolbeinn Sigurjónsson
bassaleikari.
Kristjana Stefánsdóttir söng-
kona verður með tónleika í júlí.
Sunna Gunnlaugsdóttir djasspían-
isti heldur svo tónleika í júlí ásamt
Oddrúnu Lilju Jónsdóttur sem verð-
ur hér á landi að spila á Jazzhátíð.
Pönk var dauðsynd
Halldór hóf tónlistarnám ung-
ur, en þurfti frá að hverfa um tíma,
enda bannað að vera pönkari í tón-
listarnámi, „Eiginlega dauðasynd,“
segir Halldór. Blessunarlega varð
pönktímabilið stutt, því það tók líka
á að hlusta á djass og Abba í laumi,
sem þótti ekki smart meðal pönk-
ara, að sögn Halldórs. „Ég var að
verða 12 ára þegar ég fór að læra á
trommur, móður minni til mikillar
mæðu. Ég varð bara heltekinn þeg-
ar ég heyrði ákveðna tegund af tón-
list, nánar tiltekið plötuna Red með
King Crimson. Ég vissi þá strax
hvað ég yrði þegar ég yrði stór. Bú-
ið að vera einstefna síðan.“
Svo tóku við sveitaböll, einnig
Sinfóníuhljómsveit æskunnar en síð-
ar spilamennska með ýmsum tón-
listarmönnum, m.a. Bubba Mort-
hens og Rúnari Júlíussyni og í
hljómsveitinni Júpiters, sem einmitt
var að gefa nýtt lag. Halldór reyndi
líka fyrir sér sem tónlistarmaður er-
lendis og starfaði í Hollandi í fimm
ár. Kom svo heim, settist að í
Grindavík og var bæjarlistamaður
Grindavíkur árið 2014. Var sá fyrsti
til að hljóta þann titil. Kenndi einnig
í Sandgerði og svo þróuðust mál
þannig að hann tók við stjórn tón-
listarskólans þar í bæ.
Skólastjórn er skapandi
„Ég hef aldrei ætlað mér, hafði
í raun engan sérstakan áhuga á að
verða skólastjóri. Eftir að hafa
starfað sem slíkur í forföllum fannst
mér starfið mjög spennandi, enda
skapandi, krefjandi og gefandi,“
segir Halldór sem nú býr í Sand-
gerði í Suðurnesjabæ. Stjórnar tón-
listarlífinu þar með miklum mynd-
arbrag, bæði gegnum tónlistar-
skólann og Jazzfjelagið, sem hann
og við djassunnendur vonum að eigi
farsæla framtíð.
Morgunblaðið/Svanhildur Eiríksdóttir.
Forsprakki Í Jazzfjelagi Suðurnesjabæjar er fremstur Halldór Lárusson sem er tónlistarskólastjóri í Sandgerði.
List Jazztríó Marínu Óskars á tónleikum. Auk Maríönnu skipa tríóið Mikael
Máni Ásmundsson gítarleikari og Andri Ólafsson kontrabassaleikari.
Pönkarar
nútímans
Hróður Jazzfjelags Suðurnesjabæjar hefur borist út
fyrir landsteinana. Erlendir djasstónlistarmenn
áhugasamir um að spila á tónleikum félagsins. Rjómi
íslenskra djasstónlistarmanna kemur þar fram.
Á morgun, sunnudaginn 30. maí,
verður efnt til stuttrar athafnar í
gamla kirkjugarðinum við Suðurgötu
í Reykjavík, Hólavallagarði, í tilefni af
því að nýfundið er leiði Páls Ólafs-
sonar (1827-1995) skálds og Ragn-
hildar Björnsdóttur (1843-1918) konu
hans. Leiði þeirra hjóna var týnt um
langan aldur, en með jarðsjá tókst
nýlega að finna það, þar sem Páll var
jarðsettur í kassalaga kistu.
Bautasteinn hefur nú verið reistur
á leiði þeirra og verður hann afhjúp-
aður með nokkurri viðhöfn. Nokkur
lög verða leikin og sungin, sagt stutt-
lega frá lífi og starfi hjónanna og
greint frá leitinni
að leiðinu, sem er
í norðausturparti
garðsins. Athöfn-
in hefst klukkan
14. Allir velunn-
arar skáldsins eru
hjartanlega vel-
komnir.
Austfirðing-
urinn Páll Ólafs-
son var eitt af höfuðskáldum 19. ald-
ar og einkum þekktur fyrir ástarljóð
og hestavísur. Meðal þekktustu ljóða
hans eru Lóan er komin og Ó blessuð
vertu sumarsól.
Athöfn í gamla kirkjugarðinum við Suðurgötu
Bautasteinn nú reistur á leiði
þjóðskáldsins Páls Ólafssonar
Morgunblaðið/Kristinn
Kirkjugarður Minningarreitir, menningarstaðir hvar hvílir ómissandi fólk.
Páll Ólafsson
Hægindastóll
model 7227
Leður – Stærðir XS-XL
Verð frá 389.000,-
NJÓTTU
ÞESS AÐ SLAKA Á
Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is
CASA býður upp á vaxtalausar raðgreiðslur (með Visa / Euro) í allt að 6 mánuði.