Morgunblaðið - 29.05.2021, Síða 16

Morgunblaðið - 29.05.2021, Síða 16
16 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. MAÍ 2021 Smiðjuvegur 68, Kópavogi | S. 587 1350 | bifreidaverkstaedi.is Höfum sérhæft okkur í Toyota viðgerðum síðan 1995 Fljót, örugg og persónuleg þjónusta Allar almennar bílaviðgerðir Skólavörðustíg 22 / www.agustav.is / s.8230014 Handgerð íslensk húsgögn Opið 12-16 í dag, laugardag. Hlökkum til að taka á móti þér. Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Viðræður eru hafnar milli fjár- málaráðuneytisins og Reykjavík- urborgar um að ríkið kaupi lóð við Kleppsspítala undir nýja löggæslu- og björgunarmiðstöð Íslands, sem hlotið hefur heitið Löggarðar. Ekki liggur fyrir hvenær vænta má niðurstöðu í þeim viðræðum, samkvæmt upplýsingum úr fjár- málaráðuneytinu. Umrædd lóð er skammt ofan Sundahafnar, milli Klepps og verslunarmiðstöðvarinnar Holta- garða, og var í eigu Faxaflóahafna. Ekki var hægt að ráðstafa lóðinni fyrr en skýrðist hver yrði endan- leg lega Sundabrautar, en þessi leið var ein af þeim staðsetningum sem komu til greina. En nú hefur óvissunni verið eytt og Sunda- brautin verður lögð á Holtavegi, sunnan við Holtagarða. Tillaga þess efnis að Faxaflóa- hafnir úthluti lóð á Kleppssvæðinu undir Löggarða til Reykjavíkur- borgar var samþykkt á fundi stjórnar hafnanna 19. febrúar sl. Jafnframt var borginni heimilað að framselja lóðarréttindi sín til rík- isins, og eru þær viðræður hafnar eins og fyrr segir. Stjórnvöld áforma að byggja sameiginlega björgunarmiðstöð fyrir allt landið og yrði hún stað- sett á höfuðborgarsvæðinu. Nið- urstaða frumathugunar Fram- kvæmdasýslu ríkisins á valkostum fyrir sameiginlega björgunar- miðstöð var sú að allir viðbragðs- aðilar verði saman í einu húsnæði með lögreglustöð. Þessi kostur er talinn uppfylla best þau markmið sem hafa verið sett fyrir verkefnið. Hin nýja miðstöð fyrir allt Ísland hefur fengið skammstöfunina HVH, húsnæði viðbragðsaðila á höfuðborgarsvæðinu. Húsnæðis- þörf var talin um 25 þúsund fer- metrar. Framkvæmdasýsla ríkisins aug- lýsti í lok júní í fyrra eftir upplýs- ingum um 30 þúsund fermetra lóð eða húsnæði fyrir sameiginlega að- stöðu löggæslu- og viðbragðsaðila landsins. Þetta eru: Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu, ríkislög- reglustjóri, Landhelgisgæslan, Slysavarnafélagið Landsbjörg, toll- gæslan (Skatturinn), Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins og Neyð- arlínan 112. Flestar þessar stofn- anir eru nú að hluta til með aðset- ur í björgunarmiðstöðinni í Skógarhlíð, en ekki á einu gólfi. Viðbragðsaðilar eru í dag með hús- næði víða á höfuðborgarsvæðinu, samtals 36.300 fermetra, og 1.273 starfsmenn. Sú krafa var gerð að lögregla komist á innan við átta mínútum frá HVH að Alþingisreit, miðbæ og Stjórnarráði, og ljóst er að þessi lóð við Klepp uppfyllir þau skilyrði. Stjórnendur fyrrgreindra viðbragðsaðila eru byrjaðir að funda með sérfræðingum til und- irbúnings björgunarmiðstöðinni. Morgunblaðið/Árni Sæberg Lóðin sem um ræðir Hún er milli Kleppsspítala og Holtagarða, sem sjást neðst á myndinni. Sundahöfn er þar fyrir neðan. Stutt verður upp á Sæbraut, þaðan sem leiðir liggja til beggja átta. Ræða lóðakaup fyrir Löggarða

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.