Morgunblaðið - 29.05.2021, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 29.05.2021, Blaðsíða 18
18 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. MAÍ 2021 Hvað vil ég að augun mín segi? "Ég elska þig" — Keiko "Ég hef trú á mannkyninu" — Marion Hvað vilt þú að augun þín segi? Segðu okkur með #AUGUNMÍN K i 2 7 4 ww a sr nglan 4-1 | s. 5 7-70 0 | w.loccit ne.i Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Unnið er að undirbúningi lagningar nýs vegar að Brúarfossi og gerð bílastæðis þar. Leiðin verður vestan við ána í landi jarðanna Efsta-Dals og Hlauptungu og bílastæðið í landi síðarnefndu jarðarinnar. Vonast er til að aðstaðan verði tilbúin fyrir næsta vor. „Móðir mín, Jóna Bryndís Gests- dóttir, á Hlauptungu sem var skipt úr landi Efstadals 1. Hún hefur áformað að byggja þar hús yfir sig,“ segir Rúnar Gunnarsson, bóndi á Efri-Reykjum, sem stendur fyrir lagningu nýju leiðarinnar. Hann segir að það hafi þótt upplagt að leggja leiðina að fossinum samhliða þeim áformum. Birkiskógur skertur Efri-Reykir eru austan við Brúará og landeigendur þar létu gera bíla- stæði við þjóðveginn og lagfæra gönguleið upp með ánni að Brúar- fossi. Hefur hann verið mikið not- aður, jafnvel svo landeigendum ofar með ánni hefur þótt nóg um. Vonast Rúnar til þess að með nýrri leið vest- an við ána dragi úr umferðinni um göngustíginn. Rúnar hefur kynnt áform sín fyrir Skipulagsstofnun sem hefur fallist á að ekki þurfi að gera mat á umhverf- isáhrifum framkvæmdarinnar. Raunar tekur sú ákvörðun aðeins til þess hluta leiðarinnar sem fer um land Hlauptungu en þar þverar veg- slóðinn sem farið verður eftir Kóngsveginn svokallaða. Hann ligg- ur á milli Reykjavíkur og Gullfoss og var lagður fyrir Íslandsheimsókn Friðriks áttunda Danakonungs árið 1907. Nýtur vegurinn hverfis- verndar. Þannig háttar til á þessum stað að Kóngsvegurinn liggur um mel, er slitróttur og varla sýnilegur. Minjastofnun og Skipulagsstofnun gerðu ekki athugasemdir við að Kóngsvegurinn yrði þveraður þarna. Einnig verður um einum hektara birkiskógar raskað vegna fram- kvæmdarinnar en Skipulagsstofnun bendir á að það taki aðeins til um 1% af skóginum. Framkvæmt í sumar Rúnar segir að sækja þurfi um framkvæmdaleyfi til sveitar- félagsins og unnið sé að því. Einnig þurfi eigendur Efstadals 1 og Hlauptungu að sækja sameiginlega um lagningu hluta leiðarinnar þar sem hún liggi um sameiginlegt land. Það sé einfaldari framkvæmd og ætti ekki að vefjast fyrir yfirvöldum. Rúnar hyggst hefja framkvæmdir í sumar og vonast til að vegurinn verði tilbúinn fyrir næsta vor ásamt bílastæði, jafnvel fyrr. Hann reiknar með að tekið verði gjald fyrir notkun bílastæðisins til að standa undir kostnaði við framkvæmdina. „Þessi leið er hugsuð fyrir þá sem vilja fara í snögga heimsókn að Brú- arfossi og spara sér sporin. Þeir sem vilja nýta gönguleiðina austan við ána og bílastæðið þar geta gert það án endurgjalds. Menn munu hafa þetta val,“ segir Rúnar. Lagður nýr vegur að Brúarfossi - Leiðin verður vestan Brúarár og bílastæði í landi Hlauptungu - Fer um slóða sem þverar Kóngs- veginn - Reiknað með gjaldtöku til að fjármagna framkvæmdina - Gönguleiðin áfram opin Efstidalur Efstadals- fjall Brúarfoss Brekkuskógur Reykjaskógur Fyrirhugaður vegur að Brúarfossi Grunnkort/Loftmyndir ehf. Brú ará B rú ar á Nýr malarvegur frá Efstadal að Brúarfossi Bílastæði Kóngsvegurinn Laugarvatn Geysir Laugarvatnsvegur 37 Morgunblaðið/Sigurður Bogi Brúarfoss Margir vilja fara að Brúarfossi og skoða náttúruundrið. Sigurjón Árnason, fyrrverandi bankastjóri Landsbankans, var í gær dæmdur í Landsrétti til að greiða LBI ehf., slitastjórn gamla Landsbankans, 50 milljónir króna, auk 21 milljónar í máls- kostnað. Er um að ræða skaða- bætur sem slita- stjórnin hafði far- ið fram á vegna vanrækslu sem tengist ábyrgð vegna lánveit- ingar til félags í eigu Björgólfs Guðmundssonar, fyrrverandi stjórnarformanns Landsbankans. Dómurinn taldi hins vegar rétt að fella niður stjórnendaábyrgð sem tvö erlend tryggingafélög höfðu veitt þar sem sýnt þætti að Lands- bankinn hefði veitt ófullnægjandi eða rangar upplýsingar í umsókn um tryggingarvernd. Slitastjórnin krafðist þess í mál- inu að Sigurjón, auk þeirra Halldórs Jóns Kristjánssonar, fyrrverandi bankastjóra bankans, og Sigríðar Elínar Sigfúsdóttur, fyrrverandi yfirmanns fyrirtækjasviðs bankans, yrði dæmdur til að greiða 10,5 millj- arða auk vaxta vegna málsins. Taldi slitastjórnin að þau hefðu sýnt af sér vanrækslu við að inn- heimta bankaábyrgð sem Kaupþing í Lúxemborg hafði veitt í desember árið 2007 upp á samtals 18 milljarða. Ekki hefðu heldur verið gerðar aðr- ar ráðstafanir til þess að halda ábyrgðinni við, en hún stóð meðal annars til tryggingar á peningaláni Landsbankans til Fjárfestinga- félagsins Grettis hf., sem Björgólfur átti. Lánið var bæði í krónum og evr- um, en heildarupphæð þess nam upphaflega 18,4 milljörðum. Greiði LBI fimmtíu milljónir - Sigurjón Árnason dæmdur í Landsrétti Sigurjón Árnason
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.