Morgunblaðið - 29.05.2021, Side 22
22 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. MAÍ 2021
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Þorsteinn Már Baldvinsson,
stjórnarformaður Síldarvinnslunnar,
reiknar með að fleiri sjávarútvegs-
fyrirtæki muni feta í fótspor Síldar-
vinnslunnar og skrá sig á markað á
næstu misserum.
Síldarvinnslan var í fyrradag
hringd inn í kauphöllina við hátíðlega
athöfn um borð í togaranum Berki II
NK við frystihús félagsins í Nes-
kaupstað. Norðfjörður skartaði sínu
fegursta. Hægviðri var og heiður
himinn og töluðu heimamenn um að
sumarið væri loksins komið.
Mikil umframeftirspurn mynd-
aðist eftir bréfum í Síldarvinnslunni
og leyndi sér ekki að létt var yfir Þor-
steini Má eftir orrahríð í málefnum
Samherja síðustu mánuði.
Gleðidagur og mikill áhugi
„Ég var afskaplega ánægður með
þennan dag eins og marga aðra daga
sem tengjast Síldarvinnslunni. Það
var gott veður og þetta gekk vel og
það var ánægjulegt að sjá áhugann á
útboðinu. Hann sýnir að margir hafa
áhuga á sjávarútvegi. Eftir það mót-
læti sem við hjá Samherja höfum
orðið fyrir að undanförnu getum við
að sjálfsögðu glaðst yfir því hversu
vel þetta tókst. Þannig að verandi
hér í Neskaupstað get ég ekki annað
en leyft mér að vera stoltur af því
sem maður hefur áorkað með góðu
starfsfólki Síldarvinnslunnar og góð-
um stjórnarmönnum í gegnum árin,“
segir Þorsteinn Már og bendir á að
6.500 nýir hluthafar eigi nú hlut í
Síldarvinnslunni.
„Mér finnst það mjög ánægjulegt.
Það er víða áhugi á sjávarútveginum
og íslenskur sjávarútvegur er mjög
þróaður og tæknivæddur og hefur
verið óhræddur við að takast á við
breytingar. Allt byggist þetta á því
að eiga viðskiptavini erlendis sem
vilja borða fisk og stöðugt þarf að
þróa lausnir varðandi veiðar og
vinnsluna sem eru áhugaverðar fyrir
neytendur. Við þurfum gríðarlega
marga viðskiptavini og fyrirtækin
þurfa sífellt að vera að aðlaga sig
þessum breytingum á markaði, þróa
vörurnar, finna nýja viðskiptavini og
svo framvegis. Þetta tel ég að ís-
lenskum sjávarútvegi hafi tekist á
sama tíma og hann hefur átt veru-
legan þátt í að þróa íslenskan iðnað.“
Verða að vera á tánum
– Í fjárfestakynningu vegna út-
boðs Síldarvinnslunnar er vikið að
möguleikum til innri og ytri vaxtar.
Telurðu að fyrirtækið geti haldið
áfram að þróast jafn mikið og það
hefur gert síðan þú komst inn í stjórn
þess um aldamótin?
„Maður verður að hafa trú á því; ef
maður hefur ekki trú á því á maður
að hverfa af braut. Þetta er svo lif-
andi grein og neysluvenjur breytast
svo hratt. Fyrirtækin þurfa helst að
vera á undan markaðnum og bjóða
upp á eitthvað nýtt, því kröfur við-
skiptavina eru stöðugt að breytast.
Þannig að ég hef trú á því að við mun-
um ekki upplifa minni breytingar á
næstu árum en við höfum upplifað á
síðustu árum. Íslenskur sjávar-
útvegur mun áfram þurfa að þróa sig
og þróast með íslenskum iðnaði eins
og hann hefur gert síðustu ár.“
Mun þola sveiflurnar
– Telurðu að reksturinn verði
áfram jafn ábatasamur? Hagnaður-
inn var um fimm milljarðar í fyrra.
„Ég trúi því að hann verði ásætt-
anlegur. Félagið hefur yfir að ráða
góðu starfsfólki og góðum tækjakosti
og er með sterkan efnahag. Þannig
að það þolir sveiflurnar sem hafa allt-
af verið í sjávarútvegi og verða alltaf
í sjávarútvegi. Við munum alltaf upp-
lifa góð ár og léleg ár í sjávarútvegi.“
– Hvernig myndirðu staðsetja
Síldarvinnsluna meðal uppsjávar-
félaga? Hversu framarlega í heim-
inum er fyrirtækið?
„Ég tel að það sé með þeim
fremstu í heiminum. Auðvitað eru
margir í fyrsta sætinu – þú setur ekki
einn í fyrsta sætið – en Síldar-
vinnslan er í efsta gæðaflokki. Það er
að sjálfsögðu líka áhugavert að hún
er eina fyrirtækið sem er skráð í
kauphöllina í dag sem er með höf-
uðstöðvar utan höfuðborgarsvæð-
isins.“
Hluti af því að skapa meiri sátt
– Er skráningin vísir að því sem
koma skal? Gæti skráning slíkra
sjávarútvegsfyrirtækja á markað, og
dreifðari eignaraðild í kjölfarið, verið
liður í að skapa meiri sátt um grein-
ina?
„Já, það er hluti af því. Íslendingar
eru mjög framarlega í sjávarútvegi
og hafa staðið sig vel í að þróa sig
sjálfir. Við erum þrátt fyrir allt eyja
úti í hafi og framleiðum ekki mikið
magn sjávarafurða miðað við margar
þjóðir. Þannig að okkur hefur tekist
að nýta sjávarfang okkar vel og von-
andi verður svo áfram. Ég held að út-
boð Síldarvinnslunnar verði svolítill
prófsteinn á það hvort fleiri fyrirtæki
í sjávarútvegi fylgja í kjölfarið. Ég
held að það gerist ekki næstu mán-
uðina en kannski innan næstu
tveggja ára,“ segir Þorsteinn Már.
Prófsteinn fyrir markaðinn
- Þorsteinn Már Baldvinsson, stjórnarformaður Síldarvinnslunnar, fagnar skráningu í kauphöll
- Útboðið sé prófsteinn á hvort fleiri fyrirtæki í sjávarútvegi fylgi í kjölfarið og leiti skráningar
Morgunblaðið/Baldur
Blíða Veðrið lék við heimamenn þegar Síldarvinnslan var hringd inn í kauphöllina um borð í Berki II í fyrradag.
Ljósmynd/Austurfrétt/Gunnar
Samherjar Þorsteinn Már og Gunnþór Ingvason um borð í Berki.
E60
Íslensk hönnun og
framleiðsla frá 1960
Mikið úrval lita bæði á áklæði
og grind.
Sérsmíðum allt eftir pöntunum.
Verð frá: 33.900 kr.
Sólóhúsgögn ehf. Gylfaf löt 16-18 112 Reykjavík 553-5200 solohusgogn. is
Fram kom í fjárfestakynningu vegna
útboðs Síldarvinnslunnar að fyrir
dyrum standi fjárfesting upp á 40
milljónir bandaríkjadala við fiski-
mjölsverksmiðjuna, eða fyrir sem
sem nemur um 4,8 milljörðum króna.
Framkvæmdatími sé um þrjú ár.
Markmiðið til lengri tíma er að
sækja meiri verðmæti í afurðirnar.
Fram kemur á vef Síldarvinnslunn-
ar að meðal annars hafi verið fjárfest í
tilraunabúnaði fyrir rannsóknar-
aðstöðu sem staðsett verður í fiski-
mjölsverksmiðjunni í Neskaupstað.
Sú tilraunastöð er sögð reist í sam-
starfi við Matís sem hafi undanfarið
verið að efla starfsemi sína úti á landi í
takt við áherslur atvinnu- og nýsköp-
unarráðuneytisins.
Skili verðmætari afurðum
„Þar er ætlunin að sinna rannsókn-
um, t.a.m. á sviði fiskimjölsiðnaðar og
taka skref í þá átt að vinna annars
konar og verðmætari afurðir úr hrá-
efni sem nú er nýtt til framleiðslu á
hefðbundnu fiskimjöli og lýsi.
Nú þegar hafa verið gerðar ýmsar
tilraunir í fiskimjölsverksmiðjunni í
Neskaupstað og hefur þá að hluta til
verið notast við litla verksmiðju í eigu
vélsmiðjunnar Héðins. Búnaður sá
sem Matís er að fjárfesta í kemur til
viðbótar þeirri verksmiðju og ætti að
auðvelda allar rannsóknir á þessu
sviði og færa menn skrefi nær mark-
miði sínu,“ segir meðal annars á vef
fyrirtækisins um þessa þróun.
Uppbygging hjá
Síldarvinnslunni
- Milljarðar í nýja vinnslutækni
Morgunblaðið/Baldur
Steypa grunn Framkvæmdir stóðu
yfir við verksmiðjuna í fyrradag.