Morgunblaðið - 29.05.2021, Síða 28

Morgunblaðið - 29.05.2021, Síða 28
28 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. MAÍ 2021 Njarðvíkurbraut 31, 260 Reykjanesbæ Nánari upplýsingar á skrifstofu s. 420 6070 eða eignasala@eignasala.is 4ra herbergja einbýlishús á einni hæð með bílskúr og sólpalli. 750 m2 eignarlóð með bakgarð í vestur og friðland. Grunnskóli og leikskóli í göngufæri. Jóhannes Ellertsson Löggiltur fasteignasali – s. 864 9677 Júlíus M Steinþórsson Löggiltur fasteignasali – s. 899 0555 Verð 44.500.000 Á tímum „ástarrannsókna“ er við hæfi að minnast Eyr- byggju og Þuríðar á Fróðá sem sögð var „hoppfögur“ og „öldrukkin ekkja“ eftir að fyrri eiginmaður hennar hafði verið drepinn. Hún var glysgjörn og „kurteis“ – og sá sem hún elskaði hefði sómt sér vel í riddarabókmenntum miðalda. Minnumst þess líka að riddaraleg ást leiddi sjaldnast til hamingju. Þuríður hafði flust til Fróðár og gifst ekklinum Þorbirni digra. En hann féll í kjölfar deilna við Geirríði í Mávahlíð sem hann hafði ranglega sakað um að væri „kveldriða“: hefði „riðið“ syni hans af fyrra hjónabandi og skilið eftir sturlaðan á hlaðinu á Fróðá. Í kjölfar þessara deilna lét Snorri goði hina hoppfögru hálf- systur sína koma til Helgafells því að sá orðrómur lék á að Björn í Breiðuvík vendi komur sínar til Fróðár „til glapa við hana“. Á Helgafelli kynntist Þuríður Þóroddi „skatt- kaupanda“ sem hafði með hæpnu athæfi auðgast við Írland. Úr varð að Þór- oddur fengi Þuríðar; þau settust að á Fróðá. Björn í Breiðuvík fór þá enn að venja þangað komur sínar. Við eina skilnaðarstund elskendanna varar Þuríður ástmann sinn við hugsanlegri fyrirsát eiginmanns síns. Björn yrkir vísu og segir að „í aftan“ hyggist hann drekka erfi horfinnar gleði sinnar. Grunur húsfreyju reyndist réttur: þeir sátu fyrir Birni og svo lauk að tveir frændur Þórodds féllu. Björn var dæmdur til þriggja ára útlegðar. En um sama leyti eignaðist Þuríður son- inn Kjartan. Björn hélt til Jómsborgar og gekk í lög Jómsvíkinga og þótti „inn hraustasti í öllum mannraunum“. Heim kominn fékk hann viðurnefnið Breiðvíkingakappi. Hann fór í litklæðum til manna- móts hjá Fróðárósi og varð þeim Þuríði „hjaldrjúgt“. Á heim- leið orti hann ástarvísur og sagðist enn vera „gjarn til hennar“. Um veturinn fékk Þóroddur skattkaupandi Þorgrímu galdra- kinn til að gera hríðviðri að Birni á Fróðárheiði; hann hírðist þar í helli í þrjú dægur og orti fagrar vísur til sinnar elskuðu. Nú fékk inn hrjáði eiginmaður á Fróðá mág sinn Snorra goða til að leysa sig undan þeirri skömm sem Björn hafði valdið hon- um. Snorri fór þá suður yfir Fróðárheiði við níunda mann með þeim ásetningi að drepa friðil systur sinnar. Það fór að vísu á annan veg. En Björn féllst á að yfirgefa landið. Ástarsögunni er þó ekki lokið: Íslendingar á leið frá Írlandi urðu skipreika og hrakti langt vestur í höf, tóku þar land og voru teknir höndum. En þá sáu þeir hvar flokkur manna kom, og sá sem „undir merkinu“ reið var „garplegur og var þá mjög á efra aldur og hvítur fyrir hærum“. Allir „hnigu þeim manni“, og máli sæfaranna var skotið til hans. Hann lét leysa þá úr böndum og bað þá að skilnaði fyrir tvær gjafir til Íslands: sverð, ætlað Kjartani á Fróðá, og gullhring til hoppfögru ekkj- unnar með þessum orðum: „Seg að sá sendi, er meiri vinur var húsfreyjunnar að Fróðá en goðans að Helgafelli, bróður henn- ar.“ Hoppfagra ekkjan Tungutak Baldur Hafstað hafstad.baldur@gmail.com N ú fer að styttast í að kosningabaráttan hefj- ist af fullum krafti. Í dag hefjast fyrstu prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Suður- kjördæmi og Norðausturkjördæmi og í framhaldinu í öðrum kjördæmum. Framsóknarflokk- urinn er búinn að kynna framboðslista sína í Reykja- víkurkjördæmunum og aðrir flokkar eru komnir vel á veg. Það verður ekki annað sagt en að núverandi stjórn- arsamstarf hafi reynzt vel og mörgum finnst æskileg- ast að það haldi áfram. Eins og við mátti búast hefur þátttaka VG verið umdeild á vinstri kantinum en Katr- ín Jakobsdóttir orðið afar vinsæl sem forsætisráðherra, sem skapar flokki hennar góða vígstöðu í kosning- unum. Innan Sjálfstæðisflokksins er vilji til að þessu sam- starfi verði haldið áfram. Það hjálpar hins vegar ekki til andstaða innan þingflokksins við hálendisþjóðgarð og neikvæður tónn í garð Svandísar Svavarsdóttur heil- brigðisráðherra af því að hún hefur aðra afstöðu til heilbrigðismála en þingmennirnir í þeim þingflokki. Allt á þetta eftir að skýrast í kosningabaráttunni en óráðlegt fyrir Sjálfstæðisflokkinn að ganga út frá því sem vísu að Framsókn og VG vilji halda samstarfinu áfram. Svo er annað sem getur haft áhrif á kjósendur. Meðal þeirra er undirliggjandi gremja vegna þess hvernig nýtingu auð- lindarinnar í hafinu er háttað. Þótt ábyrgðin á því sé á vinstri kantinum, þar sem það var vinstristjórn sem gaf framsalið frjálst án annarra aðgerða, er Sjálfstæð- isflokknum kennt um þótt hann hafi haft forystu um að taka upp auðlindagjald. Verði ekkert að gert mun þessi djúpstæða gremja brjótast fram. Það eru meiri líkur en minni á að þessi reiði meðal kjósenda finni sér einhvern farveg í kosningabarátt- unni. Hvernig það gerist getur byggzt á öðrum um- ræðum, sem tengjast nýtingu auðlindanna. Geri ríkisstjórnin alvöru úr því að hefja sölu á hlut í Íslandsbanka getur það haft áhrif á kosningabaráttuna. Það má vel vera að þær fréttir hafi ekki borizt inn fyrir veggi Alþingis en veruleikinn er sá að fólk treystir stjórnmálamönnum ekki fyrir sölu bankanna eftir það sem á undan er gengið. Bankasala svo skömmu fyrir kosningar getur því haft örlagaríkar afleiðingar. Fleiri mál þvælast fyrir kjósendum. Eitt þeirra er sú skoðun Ásgeirs Jónssonar seðlabankastjóra að Íslandi sé í raun stjórnað af hagsmunasamtökum. Að almenn- um borgurum sækir sá grunur að of mikið sé til í þessu hjá seðlabankastjóra. Þeir sjá sjálfir hver háttsemi hagsmunasamtakanna er. Þeir sjá umsvif hagsmuna- varðanna og sjá þá koma sér fyrir innan flokkanna. Allt eru þetta vísbendingar um að seðlabankastjóri hafi rétt fyrir sér. Það þýðir ekki fyrir flokkana að reyna að þegja þetta mál í hel. Loks er enn eitt mál sem vefst fyrir mörgum kjós- endum, m.a. innan Sjálfstæðisflokksins, raunar svo mjög að stór hópur sjálfstæðismanna stofnaði sérstakt félag, sem nefnist Félag sjálfstæðismanna um fullveld- ismál, af þeim sökum, en það er tregða Alþingis til að segja nei við tilskipunum frá ESB sem við höfum fullan rétt til skv. EES-samningnum. Ein afleiðing þess er sú að það er óhugsandi að selja raforku til Evrópu þótt við vildum, vegna þess að þá værum við sjálfkrafa orðin hluti af orkukerfi ESB vegna þess að Alþingi nýtti sér ekki rétt sinn til að segja nei við orkupakka 3. Það væri sambærilegt við það að við hefðum hleypt Evrópuríkjunum inn í fisk- veiðilögsögu okkar en það mundi gerast næði stefna Samfylkingar og Viðreisnar um inngöngu í ESB fram að ganga. Tveir stjórnarmenn í fullveldisfélaginu eru í fram- boði í prófkjöri flokksins í Reykja- vík, þau Ingibjörg Sverrisdóttir og Birgir Örn Steingrímsson, og Arn- ar Þór Jónsson héraðsdómari, sem vakið hefur mikla athygli fyrir greinar sínar hér í blaðinu, í Suð- vesturkjördæmi. Aðild þeirra þriggja að þingflokknum mundi gjörbreyta stöðunni þar. Umsókn Íslands um aðild að ESB hefur aldrei verið dregin formlega til baka. Hún liggur í skúffu í Brussel. Það eru of mörg stór mál óútkljáð vegna þess að þeir flokkar sem á annað borð vilja klára þau skv. stefnu þeirra virðast ekki treysta sér til þess. Verði þetta hik viðvarandi mun það hafa afleiðingar, hverjar sem þær verða. Hér hafa verið nefnd nokkur mál sem flestir flokk- arnir vilja forðast að ræða. Svo eru önnur stór mál sem eru að ná í gegn og víðtæk samstaða er um. Það eru ekki sízt þær róttæku umbætur í málefnum barna sem Ásmundur Einar Daðason félags- og barnamálaráð- herra hefur verið að vinna að allt kjörtímabilið. Þar er um að ræða einhverjar mestu breytingar á velferðar- kerfinu frá því að því var komið á á fjórða áratug síð- ustu aldar. Það mál skýrir sennilega að í síðustu könn- un um vinsældir ráðherra var Ásmundur Einar í öðru sæti næst á eftir Katrínu Jakobsdóttur. Og með sama hætti er það mál líklegt til að duga honum vel í kosn- ingabaráttunni í Reykjavík. Kosningabaráttan sjálf og frammistaða einstakra frambjóðenda mun hafa mikil áhrif á það hvaða stefnu kosningabaráttan tekur. Það hjálpar stjórnarflokk- unum að almennt talað er ríkisstjórnin vel liðin og eng- inn stjórnarandstöðuflokkanna er að ná sérstakri at- hygli. En Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, hefur sýnt hvað hægt er að gera á einni kvöldstund í sjónvarpssal. Yfirbragð Alþingis hefur breytzt á síðustu 60 árum eða svo. Það er ekki jafn mikið um sterka persónuleika á þingi nú og þá og það mótar þingið og umræður. Kosningabaráttan nálgast Meðal kjósenda er undir- liggjandi gremja vegna óafgreiddra mála. Af innlendum vettvangi … Styrmir Gunnarsson styrmir@styrmir.is Þegar ég las nýlega Íslands-dagbækur Kristjáns X., velti ég enn fyrir mér, hvers vegna Ís- lendingar afhrópuðu kónginn. Það var hvergi gert ráð fyrir því í sam- bandslagasáttmálanum frá 1918, að konungssambandið væri uppsegj- anlegt. Ég hef rakið ýmsar sögur um hranalega framkomu Kristjáns X. við Íslendinga. En setjum svo, að konungur hefði verið sami Íslands- vinurinn og faðir hans Friðrik VIII., heimsótt landið reglulega og orðið hvers manns hugljúfi. Ríkið hefði keypt Bessastaði fyrir kon- ungssetur og dönsku konungs- hjónin unað sér þar vel. Hefði kon- ungur þá verið afhrópaður? Nýja-Sjáland er enn í konungs- sambandi við Stóra-Bretland, þótt það sé hinum megin á hnettinum, og Elísabet II. er þjóðhöfðingi margra annarra samveldisríkja. Þetta dæmi geymir eitt svar. Þótt Nýja-Sjáland sé langt frá Bretlandseyjum, byggðist það það- an. Nýsjálendingar og Bretar tala sömu tungu og deila sömu menn- ingu. Ísland byggðist ekki frá Dan- mörku. Við tölum ekki dönsku, og menning okkar er ekki dönsk, þótt vissulega megi greina hér marg- vísleg menningaráhrif frá Dan- mörku, flest heldur til bóta. Annað ræður þó líklega úrslit- um. Nýja-Sjáland, Ástralía og Kan- ada hafa jafnan fylgt Stóra- Bretlandi í stríði og friði, þótt sjálfstæð séu. Í fyrri heimsstyrjöld kom hins vegar áþreifanlega í ljós, að Ísland var á valdsvæði Breta, þótt það teldist dönsk hjálenda. Bretar sendu hingað ræðismann, sem tók utanríkisviðskiptin í sínar hendur og ritskoðaði fréttir þrátt fyrir yfirlýst hlutleysi Danmerkur. Þetta varð enn skýrara í seinni heimsstyrjöld, þegar Danmörk var hernumin af Þjóðverjum og Ísland af Bretum. Danmörk gerðist jafn- vel 1941 aðili að sáttmála Þýska- lands, Japans, Ítalíu og Spánar gegn Alþjóðasambandi kommún- ista, Komintern. Þegar dró að lokum stríðsins, vildu Íslendingar skiljanlega vera óbundnir af því, sem kynni að verða í Danmörku. Öðru máli hefði gegnt, hefði ákvörðun um konungs- sambandið verið tekin, eftir að Danmörk og Ísland voru bæði orð- in aðilar að Atlantshafsbandalaginu og undir vernd Bandaríkjanna. Þá hefði það hugsanlega getað gengið upp. .Athugasemdir og leiðréttingar vel þegnar Hannes H. Gissurarson hannesgi@hi.is Fróðleiksmolar úr sögu og samtíð Afhrópun Kristjáns X.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.