Morgunblaðið - 29.05.2021, Qupperneq 29

Morgunblaðið - 29.05.2021, Qupperneq 29
UMRÆÐAN 29 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. MAÍ 2021 D avíð Kjartansson sigraði á glæsilegu minningar- móti um Gylfa Þórhalls- son sem fór fram í menningarhúsinu Hofi á Akureyri hvítasunnuhelgina. Keppnisdag- arnir voru fjórir talsins og mættu 58 keppendur til leiks og voru tefldar 12 umferðir eftir sviss- neska kerfinu. Snemma móts náði Jón Viktor Gunnarsson forystunni en í 9. umferð tapaði hann fyrir heimamanninum Símoni Þórhalls- syni og við það náði Davíð foryst- unni sem hann lét ekki af hendi. Hann var taplaus í mótinu. Efstu menn urðu: 1. Davíð Kjartansson 10 v. (af 12) 2. Þröstur Þórhallsson 9 v. 3. Jón Viktor Gunnarsson 8½ v. 4.-7. Jóhann Hjartarson, Jón Kristinn Þorgeirsson, Rúnar Sig- urpálsson og Símon Þórhallsson 7½ v. Kvennaverðlaun komu í hlut Elsu Maríu Kristínardóttur, Áskell Örn Kárason hlaut öldungaverð- launin, Mikhael Jóhann Karlsson varð hlutskarpastur þeirra sem voru undir 2.000 elo-stigum og Benedikt Þórisson náði bestum árangri keppenda undir 1.600 elo- stigum. Innsæi og aðrar næmar tilfinningar Undir lok síðustu aldar varð mönnum ljóst að þróun skákforrita væri svo hröð að fyrirsjáanlegt var að innan fárra ára ættu bestu skákmenn veraldar litla möguleika í keppni við bestu forritin. Einvígi Kasparovs við Deep Blue árið 1997 leiddi þetta eiginlega strax í ljós. En getur maðurinn lært eitthvað nýtt af nútímahugbúnaði? Í grein sem birtist í hollenska tímaritinu New in chess veltir Noam nokkur Manella þessari spurningu fyrir sér. Hann telur réttilega að tölv- urnar hafi víkkað út sjóndeildar- hringinn með því að furðulegir leikir spretta sýknt og heilagt upp við útreikninga tölvunnar. Mann- leg nálgun sem byggist á þekk- ingu, innsæi og hugmyndaflugi og ýmsum góðum kostum öðrum má sín samt lítils gagnvart reiknigetu tölvunnar. Hann líkir leit „vél- anna“ að besta leiknum við leik- aðferð sem hollenska knattspyrnu- liðið Ajax, með Johann Cruyff í broddi fylkingar, notaðist við á ár- unum í kringum 1970 og var kölluð „total football“. Leikmenn skiptu sífellt um hlutverk á vellinum og stundum dró Cruyff sig svo aftar- lega á völlinn eða út á vænginn að mótherjarnir vissu ekki hvaðan á sig stóð veðrið. „Vélarnar“ skilja ekkert svæði eftir – en maðurinn er alltaf að vinsa úr skynsamleg- ustu valkostina: Opið mót í Nýju-Delhí 2012: Mark Paragua – Das Debashis Hver er besti leikur svarts? Nokkrir öflugir skákmenn fengu að spreyta sig á þessu dæmi og einhverjir stórmeistarar stungu upp uppá 23. … He1+ sem er því miður svarað með 24. Bd1 mát! Það er hægt að vera sammála þeirri niðurstöðu greinarhöfundar að í kappskák með takmarkaðan tíma og undir mikill pressu kemur besti leikurinn varla til nokkurs manns í einum grænum en þó vil ég ekki alveg útiloka það. Besti leikurinn er 23. … Dg4!! Drottninguna má taka á fjóra vegu og verst er 24. Hxg4 vegna 24. … He1+ 25. Kd2 Bb4 mát! 24. Dxg4 má svara með 24. … Hg8! og 24. Df6+ strandar á 24. … Dg6! og svartur á vinningsstöðu. Eftir 24. hxg4 kemur 24. … Bf4+ 25. Kd1 Bg5 26. Dg3 Hd8! og svartur vinn- ur. Best er 24. Bxg4+ en svartur varist með 24. … Kg7 25. Bf5+ Bg6 26. Bxg6 fxg6 27. Dg4 Kh8! 28. Dxg6 Bf4+ 29. Kb1 Hf8! og hefur þá hrók og tvo létta fyrir drottninguna. Skák Helgi Ólafsson helol@simnet.is Skattheimta á Ís- landi er ein hin mesta sem þekkist á byggðu bóli og er talið að skattbyrði landsmanna sé hin næstmesta með- al OECD-ríkja. Þrátt fyrir þessa stöðu eru hugkvæmni sumra stjórnmálamanna lítil takmörk sett þegar kemur að nýjum hug- myndum um alls konar verkefni, sem skattpíndur almenningur er síð- an látinn greiða fyrir. Eitt slíkra verkefna er svokölluð borgarlína. Margt er á huldu um verkefnið en þó ljóst að það verður geipidýrt ef af verður. Til að afla verkefninu fylgis hafa verið settar fram undarlegar forsendur og tölur, sem einkennast af mikilli óskhyggju varðandi fjárfestingarkostnað, rekstrarkostnað og áætlaða notkun kerfisins. Það hefur svo sem oft gerst áður að eyðslusamir stjórn- málamenn veifa lágum kostnaðar- áætlunum til að fá hugðarefni sín samþykkt en síðan margfaldast kostnaðurinn þegar til framkvæmda kemur. Flest bendir til að borgar- línan verði óarðbær með öllu og muni í raun hafa verulega neikvætt núvirði eins og dr. Ragnar Árnason prófessor hefur m.a. bent á. Útlit er fyrir að methalli verði á rekstri ríkissjóðs í ár og eins og menn vita er Reykjavíkurborg í afar slæmri stöðu vegna viðvarandi skuldasöfnunar og óráðsíu. Ætla mætti að við slíkar aðstæður myndu eyðslusamir stjórnmálamenn rifa seglin og leggja áherslu á að ná jafn- vægi í opinberum rekstri en það virðist öðru nær. Verkefnin um borgarlínu og Hvassahraunsflugvöll eru dæmi um það. Viðbótarskattur á Reykvíkinga? Hugmyndir eru uppi um að fjár- magna framkvæmdir við borgarlínu með sérstökum veggjöldum á Reyk- víkinga, sem væntanlega kæmu til viðbótar hinum háu bensínsköttum og bifreiðagjöldum, sem þegar eru inn- heimt. Rætt er um að slík gjöld yrðu aðallega innheimt á stofn- brautum höfuðborgar- svæðisins. Slík viðbót- arskattheimta væri líkleg til að koma sér- staklega hart niður á íbúum í eystri hverfum borgarinnar, sem nota stofnbrautir hlutfalls- lega meira en ökumenn vestan megin. Í almenningssamgöngum er mikilvægt að gæta að góðri nýtingu fjármuna með raunsæi og skyn- samlegar lausnir að leiðarljósi. Það hefur því miður ekki verið gert varð- andi draumana um borgarlínu. Sjálfstæðisflokkurinn á ekki að styðja að slíku verkefni upp á a.m.k. hundrað milljarða króna sé hleypt af stokkunum þegar allar forsendur þess varðandi ávinning, fjárfestingu og rekstur eru svo veikar. Nær er að styðja betur við núverandi strætis- vagnakerfi, sem er stórlega vannýtt, en má svo sannarlega bæta. Skoða þarf í fullri alvöru tillögur sérfræð- inga um svokallaða létta lausn, sem myndi ná flestum markmiðum borg- arlínuverkefnisins fyrir aðeins hluta þess kostnaðar sem rætt hefur verið um. Sjálfstæðisflokkurinn á að vera brjóstvörn skattgreiðenda í þessu máli sem öðrum. Flokkurinn á því að hafna viðbótarskatti á Reykvíkinga í formi nýs veggjalds, sem mun þar að auki líklega leggjast misjafnlega þungt á íbúa eftir því hvar þeir búa í borginni. Borgarlínuskatt – nei takk. Borgarlínuskatt – nei takk! Eftir Kjartan Magnússon » Sjálfstæðisflokk- urinn á að hafna við- bótarskatti á Reykvík- inga í formi nýs veg- gjalds. Kjartan Magnússon Höfundur óskar eftir 3.-4. sæti í próf- kjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykja- vík, sem fram fer 4.-5. júní. Ólafur Johnson fæddist 29. maí 1881 í Reykjavík. For- eldrar hans voru hjónin Þor- lákur Ólafsson Johnson, f. 1838, d. 1917, kaupmaður, og Ingibjörg Bjarnadóttir, f. 1850, d. 1920, kaupmaður. Ólafur gekk í verslunarskóla í Edinborg og starfaði eftir það við Edinborgarverslun í Reykjavík. Árið 1906 stofnaði hann innlent heildsölufyrir- tæki, sem enginn hafði gert áð- ur, Ó. Johnson og Kaaber, en það var í fyrstu sameignarfélag hans og Ludvigs Kaabers. Ólafur var einn af stofn- endum Eimskipafélags Ís- lands, var stofnandi fyrsta ís- lenska kvikmyndafélagsins, Ó. Johnson og Co., en hann flutti inn ásamt fleirum fyrstu tækin til kvikmyndasýninga. Ólafur gegndi ýmsum trúnaðar- störfum og var m.a. annar stjórnandi Innkaupanefndar ríkisins og annar formaður Við- skiptaráðs. Hann var ræðis- maður Rússlands fram að bylt- ingunni 1917 og síðar ræðis- maður Spánar. Fyrri kona Ólafs var Helga Pétursdóttir Thorsteinsson, f. 1884, d. 1918, og seinni kona hans var Guðrún Árnadóttir Johnson, f. 1902, d. 1973. Ólaf- ur og Helga áttu fjóra syni og Ólafur og Guðrún áttu þrjú börn. Ólafur lést 9.11. 1958. Merkir Íslendingar Ólafur Johnson Sími 557 8866 | www.kjotsmidjan.is | Fossháls 27, 110 Reykjavík Opnunartími 8:00-16:30 Úrvals hamborgarar og grillkjöt Krydd, sósur og ýmsar grillvörur Davíð Kjartansson efst- ur á minningarmótinu um Gylfa Þórhallsson Morgunblaðið/Ómar Óskarsson Íslandsmeistarar Nokkrir úr skáksveit Víkingaklúbbsins tefldu á Akureyri um helgina. F.v. Jóhann Hjartarson, Jón Viktor Gunnarsson, Björn Þor- finnsson, Tapani Sammalvuo, Davíð Kjartansson og Haraldur Baldursson. Allt um sjávarútveg

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.