Morgunblaðið - 29.05.2021, Qupperneq 31
MESSUR 31á morgun
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. MAÍ 2021
SÍMI 587 2000 · KLETTHÁLSI 2, 110 REYKJAVÍK · WWW.TOPPBILAR.IS
VOLVO XC60
MOMENTUM
Raðnúmer 280238
Nýskráður 7/2018
Akstur 42 þ.km.
Dísel
Fjórhjóladrif
Sjálfskipting
191 hestöfl
5 manna
Næsta skoðun 2022
Aðgerðahnappar í stýri
Bakkmyndavél
Bluetooth
Dráttarkrókur (aftengjanlegur)
Fjarlægðarskynjarar aftan
Glerþak
Heilsársdekk
Hiti í fram- og aftursætum
Hraðastillir
Hraðatakmarkari
ISOFIX festingar í aftursætum
Leðuráklæði
Loftkæling
Lykillaus ræsing
Rafdrifin framsæti
Rafdrifin handbremsa
Regnskynjari
Reyklaust ökutæki
Stafrænt mælaborð
Start/stop búnaður
Tveggja svæða miðstöð
USB tengi
Verð 7.790.000 kr.
ÁRBÆJARKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11. Kór
Árbæjarkirkju syngur undir stjórn Krisztinu Kalló
Szklenár. Sr. Þór Hauksson prédikar og þjónar
fyrir altari.
ÁSKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 14. Séra Hjalti
Jón Sverrisson, prestur í Laugardalsprestakalli,
prédikar og þjónar fyrir altari. Félagar úr Kór Ás-
kirkju syngja. Organisti er Bjartur Logi Guðna-
son. Kaffisopi í Ási að guðsþjónustu lokinni.
ÁSTJARNARKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 17.
Davíð Sigurgeirsson annast undirleik og aðra
tónlist. Prestur er Arnór Bjarki Blomsterberg.
BESSASTAÐASÓKN | Vorhátíð í safnaðar-
heimilinu Brekkuskógum 1 kl. 11. Sunnudaga-
skóli, grillaðar pylsur, hoppukastali, andlitsmál-
un og leikir. Íhugunarganga kl. 17. Genginn
verður 5 km hringur frá Bessastaðakirkju.
Bænastund og kynning við upphaf stundarinnar.
BREIÐHOLTSKIRKJA | Sameiginleg göngu-
messa þjóðkirkjusafnaðanna í Breiðholti. Geng-
ið frá Seljakirkju kl. 10 að Fella- og Hólakirkju þar
sem messa hefst kl. 11. Alþjóðlegi söfnuðurinn í
Breiðholtskirkju: Messa á farsi kl. 14.
BÚSTAÐAKIRKJA | Kvöldmessa sunnudag kl.
20.
Létt og sumarleg tónlist flutt af félögum úr Kór
Bústaðakirkju og kantor Jónasi Þóri. Messuþjón-
ar og sr. Pálmi þjóna.
DÓMKIRKJAN | Messa kl. 11. Prestur er Elín-
borg Sturludóttir, Kristján Hrannar Pálsson er
organisti og Dómkórinn syngur.
FELLA- og Hólakirkja | Göngumessa kl. 11.
Gengið frá Seljakirkju kl. 10 að Fella- og Hóla-
kirkju. Sr. Guðmundur Karl Ágústsson og Kristín
Kristjándóttir djákni þjóna og flytja hugvekju.
Veitingar eftir stundina. Sellónemendur frá Tón-
skóla Sigursveins leika. Kór kirkjunnar syngur
undir stjórn Arnhildar Valgarðsdóttur organista.
Meðhjálpari Helga Björg Gunnarsdóttir.
GARÐAKIRKJA | Laugardagur: Ferming kl. 13.
Sunnudagur: Ferming kl. 10.30.
GRAFARVOGSKIRKJA | Sunnudaginn 30. maí
hefjast kaffihúsamessurnar á ný. Messan
hefst kl. 11. Sr. Sigurður Grétar Halldórsson
þjónar.
Organisti er Hákon Leifsson. Kór Grafarvogs-
kirkju leiðir söng. Heitt á könnunni.
GRENSÁSKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11. Sr.
María G. Ágústsdóttir þjónar ásamt Ástu Har-
aldsdóttur kantor, Kirkjukór Grensáskirkju og
messuþjónum. Þriðjudagur 1. júní: Kyrrðar-
stund kl. 12.
GUÐRÍÐARKIRKJA í Grafarholti | Ferming-
arguðsþjónusta sunnudaginn 30. maí kl.
10.30.
Prestur er Pétur Ragnhildarson. Organisti er
Hrönn Helgadóttir og kór Guðríðarkirkju syngur.
Kirkjuvörður er Lovísa Guðmundsdóttir, með-
hjálpari er Guðný Aradóttir.
HALLGRÍMSKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11.
Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir prédikar og þjónar
fyrir altari. Hópur messuþjóna aðstoðar.
Organisti er Erla Rut Káradóttir. Forsöngvarar
leiða söng. Ensk guðsþjónusta kl. 14 í umsjá
sr. Bjarna Þórs Bjarnasonar.
HÁTEIGSKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11. Sr.
Jón Ásgeir Sigurvinsson héraðsprestur prédik-
ar og þjónar fyrir altari. Kordía, kór Háteigs-
kirkju, syngur. Organisti er Guðný Einarsdóttir.
HJALLAKIRKJA Kópavogi | Sunnudaginn
30. maí kl. 11 er fermingarmessa í Digranes-
kirkju.
KEFLAVÍKURKIRKJA | Sunnudaginn 30. maí
verður kvöldmessa kl. 20. Séra Fritz Már þjón-
ar fyrir altari. Arnór Vilbergsson er organsiti og
félagar úr kór Keflavíkurkirkju færa okkur ljúfa
tóna.
KÓPAVOGSKIRKJA | Helgistund kl. 11 í safn-
aðarheimilinu Borgum. Sr. Sigurður Arnarson
prédikar og þjónar fyrir altari. Félagar úr Kór
Kópavogskirkju syngja undir stjórn Lenku Má-
téová kantors.
LANGHOLTSKIRKJA | Fjölskyldumessa 30.
maí kl. 11. Prestur er Aldís Rut Gísladóttir og
organisti er Magnús Ragnarsson. Liberi kórinn
syngur undir stjórn Sunnu Karenar Einars-
dóttur.
LINDAKIRKJA í Kópavogi |
Sunnudagaskóli kl. 11. Guðsþjónusta kl. 20.
Óskar Einarsson leiðir lofgjörðina ásamt kór
Lindakirkju.
Sr. Guðni Már Harðarson þjónar.
NJARÐVÍKURKIRKJA Innri-Njarðvík |
Guðsþjónusta kl. 11 hinn 30. maí. Sr. Baldur
Rafn þjónar til altaris og félagar úr kirkjukórn-
um leiða söng undir stjórn Stefáns H. Krist-
inssonar.
SELJAKIRKJA | Gönguguðsþjónusta Breið-
holtssafnaðanna, gengið verður frá Seljakirkju
kl. 10 til guðsþjónustu í Fella- og Hólakirkju kl.
11. Ath. það verður því ekki guðsþjónusta í
Seljakirkju en allir hvattir til þátttöku í göngu-
guðsþjónustunni sem er árleg hefð í sumar-
byrjun í Breiðholtinu. Boðið verður upp á akstur
að Seljakirkju að guðsþjónustu lokinni.
SELTJARNARNESKIRKJA | Guðsþjónusta
kl. 11. Þrenningarhátíð. Sóknarprestur þjónar.
Organisti kirkjunnar leikur á orgelið. Þorsteinn
Þorsteinsson leiðir almennan safnaðarsöng.
Þórleifur Jónsson les ritningarlestra. Kaffiveit-
ingar, samfélag eftir athöfn í safnaðarheim-
ilinu.
SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA | Messa sunnu-
dag kl. 11. Sr. Egill Hallgrímsson annast
prestsþjónustuna. Organisti er Jón Bjarnason.
VÍDALÍNSKIRKJA | Laugardagur: Ferming kl.
10:30.
Sunnudagur: Ferming kl. 13.
VÍÐISTAÐAKIRKJA í Hafnarfirði | Dægur-
lagamessa kl. 20 sunnudag. Kór Víðistaða-
sóknar syngur undir stjórn Helgu Þórdísar org-
anista og sr. Bragi J. Ingibergsson
sóknarprestur þjónar. Aðalsafnaðarfundur
verður sama dag kl. 18 í safnaðarheimilinu á
undan guðsþjónustunni. Á dagskrá verða
venjuleg aðalfundarstörf.
Morgunblaðið/Sigurður Ægisson
Stóradalskirkja
Á vettvangi stjórn-
málanna bíða mörg
verkefni sem varða
hag landsmanna
allra. Við þurfum að
hvetja einstaklinga til
dáða og virkja þannig
einkaframtakið í
meira mæli um leið
og við bætum hag
fólks, styrkjum inn-
viði landsins, hugum
að umhverfinu og eflum heilbrigð-
isþjónustu. Fyrst og fremst þarf
að sækja tækifærin og þar eiga
stjórnvöld að ryðja hindrunum úr
vegi.
Endurnýjum forystuna
Ég gaf kost á mér eftir áskor-
anir sjálfstæðismanna í Suður-
kjördæmi sem töldu að það þyrfti
að efla forystu flokksins í kjör-
dæminu og vildu fá öfluga konu í
framboð. Þeirri áskorun tók ég
enda vil ég vinna fólkinu í Suður-
kjördæmi gagn sem og öðrum
landsmönnum. Undanfarnar vikur
hef ég ferðast vítt og breitt um
Suðurkjördæmi og notið þess að
hitta fólk og kynnast fjölbreyttri
atvinnustarfsemi í kjördæminu.
Ég er þakklát fyrir góðar viðtökur
hvert sem ég kem, góð samtöl,
ábendingar og hvatningu. Það er
gott veganesti inn í framtíðina.
Öflugt atvinnulíf, fleiri störf
Það má með sanni segja að
tækifærin séu víða og mun ég
sannarlega leggja mig fram um að
sækja þau. Suðurkjördæmi er
matarkista Íslands, til sjávar og
sveita. Með nýsköpun hafa orðið
til öflug fyrirtæki á svæðinu og
ferðaþjónustan hefur alla burði til
þess að verða aftur blómleg í kjör-
dæminu. Af mörgu er að taka. Ég
mun tala máli atvinnulífsins enda
verða verðmætin til þar svo hægt
sé að standa undir þeim lífsgæðum
sem við þekkjum og
viljum búa við. Með
öflugu atvinnulífi
verða líka til fleiri
störf sem við þurfum á
að halda núna.
Einkarekstur frá
fyrstu hendi
Þetta þekki ég vel
enda er ég alin upp
við einkaframtakið og
einkarekstur fjöl-
skyldunnar. Það veit
ég að verðmætin verða ekki til af
sjálfu sér. Því til viðbótar hef ég
setið í stjórnum margra fyrirtækja
og samtaka. Um árabil var ég í
forystu iðnaðar og atvinnulífs sem
formaður Samtaka iðnaðarins og
átti þá sæti í stjórn Samtaka at-
vinnulífsins. Ég sit í stjórn Há-
skólans í Reykjavík og Lífeyris-
sjóðs verzlunarmanna. Þá yfir-
gripsmiklu reynslu sem ég hef
öðlast í atvinnulífinu og af einka-
rekstri vil ég nýta til að styrkja
atvinnulíf í Suðurkjördæmi og
leggja mín lóð á vogarskálarnar til
að sækja þau fjölmörgu tækifæri
sem bjóðast.
Ég hvet sjálfstæðismenn í Suð-
urkjördæmi til að veita mér
brautargengi í prófkjörinu nk.
laugardag og velja mig sem odd-
vita listans. Það er mitt markmið
að efla mannlíf og atvinnulíf í kjör-
dæminu og byggja á víðtækri
reynslu minni úr atvinnulífinu. Að
lokum vil ég þakka fyrir stuðning-
inn og þá hvatningu sem ég hef
fengið.
Bjart yfir
Suðurkjördæmi
Eftir Guðrúnu
Hafsteinsdóttur
Guðrún Hafsteinsdóttir
»Með öflugu atvinnu-
lífi verða líka til
fleiri störf sem við þurf-
um á að halda núna.
Höfundur er frambjóðandi í fyrsta
sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í
Suðurkjördæmi.
Nú líður að því að
gengið verði til kosn-
inga í prófkjöri
sjálfstæðismanna í
Suðurkjördæmi, þar
sem flokksmeðlimir
ákveða hverjir þeirra
fulltrúar verða á þingi
næstu fjögur árin. Við
í Suðurkjördæmi
myndum afar sterka
og fjölbreytta heild. Í
þessu eina kjördæmi sem nær alla
leið frá Sandgerði til Hafnar er að
finna fólk á ýmsum aldri með mis-
munandi bakgrunn sem á hverjum
degi leggur sitt af mörkum og gerir
kjördæmið okkar einstakt. Það ligg-
ur í augum uppi að allar stéttir
samfélagsins mætist í okkar kjör-
dæmi.
Það má þó ekki gleymast að við
höfum öll þurft að upplifa erfiða
tíma á meðan Covid-19-veiran tröll-
reið samfélaginu og við höfum þurft
að þola allskyns skerðingar á
ákveðnum réttindum. En nú tökum
við stefnuna á bjartari tíma. Ferða-
menn eru farnir að koma aftur til
landsins og heilu atvinnugreinarnar
eru farnar að lifna við eftir langa og
erfiða lægð, sauðburði er lokið og
heyskapur er handan við hornið,
nemendur fá nú vonandi að hefja
eðlilega skólagöngu og sólin fer að
skína. Við erum að upplifa nýja
byrjun og í henni felst hið full-
komna sóknartækifæri.
Til þess að hið fyrr-
nefnda sóknartækifæri
sé nýtt til hins ýtrasta
þurfum við að tryggja
sterkan og fjölbreyttan
framboðslista. Við
verðum að ganga úr
skugga um það að
raddir allra stétta
heyrist og allir flokks-
menn eigi talsmann á
hinu háa Alþingi. En
eins og alltaf þá segja
gjörðir meira en orð. Ef við eigum
að fá lista sem við getum verið stolt
af verða flokksmenn að mæta á
kjörstað, nýta atkvæðisrétt sinn svo
hægt sé að stilla upp lista með þeim
frambjóðendum sem okkur finnst
að geti barist fyrir þeim málefnum
sem á okkur brenna.
Í sameiningu komum við Suður-
landi aftur upp á sitt besta.
Sóknartækifæri
Suðurkjördæmis
Eftir Ingveldi
Önnu
Ingveldur Anna
» Við verðum að ganga
úr skugga um það að
raddir allra stétta heyr-
ist og allir flokksmenn
eigi talsmann á hinu háa
Alþingi.
Höfundur er frambjóðandi í prófkjöri
Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi
fyrir alþingiskosningar 2021 og býður
sig fram í 4.-5. sæti.
Umræðan