Morgunblaðið - 29.05.2021, Page 32

Morgunblaðið - 29.05.2021, Page 32
32 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. MAÍ 2021 ✝ Guðrún Sig- urjónsdóttir fæddist 16. júlí 1922 á Rútsstöðum í Svínadal. Hún lést á Heilbrigð- isstofnun Norður- lands 6. maí 2021. Foreldrar henn- ar voru Guðrún Jó- hannsdóttir, f. 23.7. 1898, d. 12.5. 1966 og Sigurjón Odds- son, f. 7.6. 1891, d. 10.9. 1989. Systkini Guðrúnar voru Sig- urbjörg, f. 1917, d. 2010, Þor- steinn, f. 1919, d. 1971, Ólafur, f. 1920, d. 2014, Kári, f. 1923, d. 2018, Ástríður, f. 1925, d. 1996, Haukur, f. 1926, d. 2013, Stein- unn, f. 1929, d. 1973, Sigvaldi, f. 1930, Guðmundur, f. 1933, Kjartan, f. 1935 og Árni, f. 1937. Hálfsystkini Guðrúnar sam- feðra voru Herbert, f. 1909, d. 1927, Oddur, f. 1911, d. 1983, Þorbjörg, f. 1912, d. 1991, Ás- geir, f. 1913, d. 1995. Eiginmaður Guðrúnar var Guðmundur Þorsteinsson, bóndi á Grund í Svínadal, f. 11.10. 1910, d. 6.11. 2000. Þau gengu í hjónaband 1. apríl 1944. Börn: 1) drengur andvana snemma að vinna og voru henni falin ábyrgðarstörf á bænum. Hún var ráðin í vist og var eft- irsóttur vinnukraftur. Skóla- ganga Guðrúnar var stutt eins og tíðkaðist þá. Hún fór á saum- anámskeið á Blönduósi sem hún bjó að alla tíð og eitt ár starfaði hún í Reykjavík. Guðrún og Guðmundur bjuggu fyrstu búskaparárin á Grund; jörðinni var svo skipt og stofnuðu þau nýbýlið Syðri- Grund. Árið 1953 var bæjarlæk- urinn virkjaður og var það mik- il framför. Þá komu rafmagns- tæki til sögunnar sem breyttu miklu við bústörfin. Búið stækkaði og Guðrún gekk að störfum jafnt úti sem inni. Hún tók virkan þátt í fé- lagslífi sveitarinnar og á Blönduósi eftir að hún flutti þangað 1994. Hún tók þátt í starfsemi á vegum Heimilisiðn- aðarsafnsins, hún sýndi þar hvernig ull var unnin, kembd og spunnin hér áður fyrr. Eins prjónaði hún mikið, bæði á prjónavél og í höndum alla tíð, þar á meðal vinsæla nafnavettlinga. Útför Guðrúnar fer fram frá Blönduóskirkju 29. maí 2021 og hefst athöfnin kl. 14. Streymt verður frá útförinni af facebook-síðu Blönduós- kirkju: https://youtu.be/rXRQQyEzAmw Streymishlekk má einnig nálgast á: https://www.mbl.is/andlat fæddur 12.6. 1944. 2) Valgerður, f. 18.12. 1945. 3) Sig- rún, f. 18.9. 1947, maki Einar Sig- urðsson. Börn Sig- rúnar með fyrrver- andi maka, Finni Eiríkssyni: a) Guð- rún Birna, maki Snorri Sturluson. Börn: Sif, Baldur og Bragi. b) Þórir, maki Jóhanna Kristín Guð- mundsdóttir. Börn: Arndís Þóra og Finnur Arnór. c) Una Eydís, maki Helgi Sigurðarson. Barn: Sigurður Logi. d) Ragnhildur Lára, maki Sigurgeir Þór Helgason. Börn: Hugi Frey- steinn og Una Elínóra. 4) Þor- steinn, f. 27.11. 1952, maki Sig- rún Jónsdóttir. Barn: Máni Sveinn. 5) Sveinn Helgi, f. 17.1. 1956, maki Karin Roland. Börn: a) Silja. b) Guðrún, maki Brend- on ÓReilly. Börn: Lincoln Ell- iott og Talia Rose. c) Ingunn Valdís, maki Lars-Ole Enoksen. Börn: Jonathan Halfdan, Eva Björk og Isak Pareli. d) Gunnar Arvid. Guðrún ólst upp á Rúts- stöðum í stórum barnahópi við leik og störf. Hún byrjaði Alla okkar æsku fórum við norður í sveitina til ömmu og afa á sumrin. Þar tók á móti okkur hlýr og alltumvefjandi faðmur ömmu og íslenskt sveitalíf sem með tímanum hefur orðið æ verðmætara að hafa upplifað. Amma hélt úti stóru sveita- heimili og bakaði kleinur og parta, ástarpunga, Guðrúnar- kökur og ömmubrauð sem er besta brauð í heimi. Stundum þurfti hún meira að segja að halda lífi í lömbum með því að halda á þeim hita í bakaraofn- inum sínum. Í eldhúsinu hjá ömmu lærðum við að skilja mjólk í skilvindu, strokka smjör, snúa kleinum og fleiri eldhúsverk. En þar lærðum við líka að spila. Eftir veðurfrétt- ir söfnuðumst við saman og spil- uðum manna og kana og drukk- um kvöldkaffið. Ef maður var einn með ömmu var það rommý og kasína. Amma var lunkin í spilum og vann yfirleitt, sem okkur þótti alveg óþolandi. Hún stundaði spilamennskuna stíft og spilaði alveg fram á síðasta dag. Því vorum við afkomendur hennar allir sammála um að það væri viðeigandi að láta spila- stokk fylgja með í hennar hinstu för. Amma sá til þess að okkur væri aldrei kalt. Sokkar og vett- lingar, rósavettlingar með nafn- inu okkar, nærbolir, treflar, húf- ur í hundraðatali í gegnum áratugina, amma prjónaði allt til æviloka, bæði á prjóna og prjónavélar. Framleiðslan var gríðarleg og alltaf var hægt að finna fallegt sokkapar í kassa. Ósjaldan laumaði hún sokkapari að manni þegar við kvöddumst, er ekki einhver sem getur notað þetta? spurði hún. Amma var svo hlý og hún hlýjaði okkur. Amma upplifði miklar tækni- byltingar á þeim tæpu 99 árum sem hún lifði. Hún vann alltaf hörðum höndum en tók nýjung- um vel. Hún fæddist í húsi með moldargólfi en í lokin var hún fullfær á spjaldtölvur og farsíma, eldaði hafragrautinn sinn í ör- bylgjunni og hélt sambandi við ættingja í gegnum Facebook. Þegar amma og afi fluttu á Hnitbjörg á Blönduósi tók hún að sér óformlegt hlutverk hús- varðar og passaði upp á „gamla fólkið“ í húsinu. Hún sá um að opna og læsa húsinu, skipta um ljósaperur og elda graut fyrir fólk. Þegar brunakerfið fór í gang þá hringdi slökkviliðið í ömmu til að spyrja hver væri að elda. Hún hélt áfram að hugsa um „gamla fólkið“ löngu eftir að hún var orðin elst í húsinu. Amma var mjög félagslynd manneskja, gestrisin og hún elskaði að dansa og spila. Hún las alla tíð mjög mikið og fylgdist vel með öllum afkomendum sín- um. Í gegnum árin höfum við fylgt ömmu í flug til Noregs í til- efni ferminga og brúðkaups frændfólks okkar og á þeim ferðalögum var alltaf brýnt fyrir okkur „ekki týna ömmu“. Amma var glaðlynd og skemmtileg og full af kímni. Hún sagði stundum að hún væri löt seinni árin. Já amma mín, þú ert svo löt kona svöruðum við, alltaf svo agalega löt. Þá hló hún. Þetta fannst henni fyndið. Sí- starfandi til 98 ára aldurs var hún ólatasta kona sem við höfum kynnst. Við minnumst elsku ömmu með hlýju og þakklæti fyrir ör- lætið, gæskuna, gestrisnina og erum ótrúlega heppin að hafa fengið að hafa hana í okkar lífi svo lengi sem raun bar vitni. Hvíl í friði, elsku amma. Guðrún, Þórir, Una og Ragnhildur. Nú er blessunin hún Gunna frænka fallin frá á 99. aldursári. Hún var þeirrar gerðar að manni fannst að hún gæti orðið eilíf, alltaf kát og hress, sívinnandi við prjón og bakstur og fleira fram á síðasta dag. Gunna var samofin æsku okk- ar systkinanna og raunar öll full- orðinsárin líka, en þær voru systur, Ásta móðir okkar og Gunna. Þær voru afar samrýnd- ar og bar aldrei skugga á þeirra samband. Nú sitja þær saman í Sumarlandinu með prjónana sína og ræða gamla og nýja tíma, spá og spekúlera. Þegar við frændsystkinin, Ei- ríkur og Sigrún, vorum fermd, héldu þær sameiginlega ferm- ingarveislu á Syðri-Grund og þar voru alvöruhnallþórur á borðum, ásamt kleinum og pönnukökum. Og úr því minnst er á kleinur, þá var Gunna snillingur í kleinu- bakstri og gerði bestu kleinur sem hægt var að hugsa sér. Hún gerði sitt til að þessi hæfileiki hyrfi ekki með henni og hélt tveggja daga námskeið fyrir Önnu til að kenna henni kúnst- irnar. Stuttu fyrir andlát Gunnu töluðu þær saman í síma og sagði Anna henni að hún hefði verið að baka kleinur og væri montin yfir hvað þær hefðu tekist vel. „Ætti ég þá ekki að vera montin yfir að hafa kennt þér svona vel?“ sagði þá Gunna að bragði. Hún var ætíð skjót til svara og pakkaði ekki öllu sem hún sagði inn í bómull. Gunna ólst upp í stórum systkinahópi og eins og tíðkað- ist á þeim tíma fór hún að vinna nánast um leið og hún gat geng- ið upprétt. Hún var alla tíð vík- ingur til verka og féll aldrei verk úr hendi. Ef ekki var verið í heyskap, að mjólka kýr eða við sauðburð, þá var það prjóna- skapur eða bakstur eða önnur búverk. Eftir að hún flutti að Hnitbjörgum á Blönduósi, fylgdist hún vel með fólki sem þar bjó, færði því mat og fleira ef veikindi voru að hrjá það eða bara ellin. Sjálf var hún hörku- tól og kveinkaði sér ekki þótt hún fyndi eitthvað til. Reyndar var það um tíma fyrir nokkrum árum, að hún leið sárar kvalir í bakinu og lengi vel fannst ekki út úr því hvað olli. Loksins þeg- ar meinsemdin fannst, þurfti hún að fara í aðgerð til að láta fjarlægja meinið. Þegar átti að fara að svæfa hana sagði hún við læknana: „Ef þið getið ekki lagað þetta, þurfið þið ekkert að vekja mig aftur.“ Þarna var henni lifandi lýst. Það var ætíð hressandi og skemmtilegt að heimsækja Gunnu á Hnitbjörgum. Alltaf var um nóg að spjalla og ekki skorti veitingar. Hún fylgdist alltaf vel með því sem gerðist í okkar gömlu sveit og líka því sem var að gerast í ættinni. Má með sanni segja að hún hafi haldið okkur vel upplýstum um það helsta sem um var að vera á þeim vettvangi, enda er óhætt að segja að hún hafi verið mið- depill stórfjölskyldunnar. En núna er hún horfin af þessum heimi blessunin, en við sem eftir stöndum, söknum þess að heyra ekki lengur sögur frá gömlum tíma, hressilegan hláturinn og finna hlýjuna sem frá henni stafaði. Vonandi hitt- um við hana fyrir hressa og káta er við leggjum leið okkar í Sumarlandið. Börnum hennar, barnabörn- um, eftirlifandi systkinum og ættingjum færum við samúðar- kveðjur. Anna og Eiríkur frá Ljótshólum. Traustur og dyggur Húnvetn- ingur, Guðrún frá Syðri-Grund, verður kvödd í dag við Blönduós- kirkju. Hún Guðrún óx upp frammi í Svínadal og skilaði þar ævistarfi sínu og uppeldi fjög- urra barna en síðan átti hún ævi- kvöldið út við sæinn þar sem kvöldsólin rennir sér með hafs- brúninni og geislar um bæinn við Blönduós. Hún hafði búið manna lengst í Hnitbjörgum þegar mig bar þangað, organista í viðlögum hjá Blönduósingum árin 2013-15 og einnig í gömlu kirkjunni hennar Guðrúnar, Auðkúlukirkju. Þar var sjaldnar messað, en þær mæðgur, Guðrún og Valgerður, voru kirkjuræknar og komu stundum til gömlu kirkjunnar sinnar. Já, það var gaman og fræð- andi að setjast inn í litlu íbúðina Guðrúnar, rabba við hana um æskuár hennar á Rútsstöðum og eins árafjöld hennar út við Ós- inn, hún var fróð og minnug, þessi duglega kona. Ég kveð Guðrúnu með ljóði skáldsins og bóndans úr Hvítár- síðu, hans Guðmundar á Kirkju- bóli, sem yrkir um gróðursetn- ingu: Og seinna þegar þú ert gamall maður og þetta vaxið tré í skjóli þess þú situr máske og minnist þess morguns er þú beygðir hér þín kné. Og blessað vorið yljar ástúð sinni þín ellivé. (GB) Ingi Heiðmar Jónsson. Látin er nú heiðurskonan Guðrún, fyrrverandi húsfreyja á Syðri-Grund í Svínadal. Hún hefði orðið 99 ára 16. júlí í sumar. Guðrún var úr stórum systk- inahópi frá Rútsstöðum. Þau voru tólf systkinin sem upp kom- ust. Sigurjón faðir þeirra var mikið þrekmenni og kjarkmað- ur, en harður við sig og sína. Hann náði 98 ára aldri. Það má nærri geta hvað lífsbaráttan hef- ur verið hörð, enda ræddi Guð- rún stundum um hvað mikils var af þeim krafist. Árið 1944 giftist hún Guð- mundi Þorsteinssyni frá Grund. Þeir Grundarbræður skiptu jörðinni í tvennt 1942 og hlutur Guðmundar nefndist Syðri- Grund. Aðeins bæjarlækurinn skildi jarðirnar að en hann virkj- uðu þeir bræður seinna. Grundarjarðirnar eru góðar bújarðir. Ræktunarskilyrði nær ótakmörkuð á uppþurrkuðum mýrum. Guðrún gerðist þarna húsfreyja sem eftir var tekið. Hún var manni sínum stoð og stytta allan þeirra búskap og einstaklega gestrisin. Þau bjuggu fyrst blönduðu búi en Guðmundur var fyrst og fremst fjárbóndi. Þau hjónin hættu að fullu búskap 1994. Þau höfðu þá búið í nokkur ár í félagi við Þor- stein son sinn. Einnig vann að búinu Valgerður dóttir þeirra. Þau settust að í Hnitbjörgum á Blönduósi og þar voru þau til æviloka. Guðmundur lést haust- ið 2000. Kynni okkar Guðrúnar hófust fyrir alvöru er við urðum spila- félagar í nokkra vetur inni í Hnitbjörgum. Guðrún hafði afar gaman af að spila og var það sem kallað er spilaheppin. Ég held að hún hafi ekki oft spilað félagsvist án þess að fá verðlaun. Hún kunni því líka betur að tapa ekki. Guðrún var kona fríð sýnum og bar með sér reisn og skör- ungsskap. Hún klæddist stund- um íslenska búningnum og bar hann afar vel. Hún var bæði vin- föst og vinmörg. Margir komu að heimsækja hana, öllum tók hún með alúð og gestrisni sem var henni í blóð borin. Hún var glað- sinna og félagslynd. Hlustaði mikið á útvarp og hafði mjög gaman af söng. Meðan kór eldri borgara starfaði söng hún í hon- um. Guðrún var einstök hannyrða- kona. Síprjónandi útprjónaða vettlinga og barnaföt sem marg- ir nutu góðs af. Ég undraðist stundum að sjá hjá henni það allra fínlegasta sem hún var að prjóna á kornabörnin. Þegar Ólafur Ragnar Grímsson fyrr- verandi forseti var hér í heim- sókn var Guðrún fengin til að prjóna á hann hnéháa sokka, sem honum voru færðir að gjöf. En nú eru prjónarnir hjá gömlu vinkonu minni hættir að tifa. Guðrún hafði lengst af góða heilsu. Það var helst síðasta árið sem ellin sótti að. Horfin er nú á braut kona sem skilaði löngu og farsælu lífsstarfi. Ég kveð hana með söknuði og jafnframt þökk fyrir allt. Afkomendum óska ég allrar blessunar. Sigurjón Guðmundsson frá Fossum. Minningar leita á hugann og draga upp mynd liðins tíma, lífs og starfs, sem nú virðist óra- fjarri, af annarri öld og tíð. Lítill drengur á ókunnum og framandi stað mætir hlýju og vináttu, góðsemd og velvilja frá fyrstu stundu, hjálpsemi og blíðu. Þannig birtist mér í hugskoti myndin af húsfreyjunni á Syðri- Grund, bjartan dag í ágúst 1956. Sumrin hjá þeim heiðurshjónum Guðrúnu og Guðmundi urðu sjö og er ég þeim ævinlega þakklát- ur fyrir atlætið og hlýjuna í minn garð. Guðrún – Gunna – var stór í andanum, geislaði af gleði og góðvild til alls og allra, hlátur- mild og brosandi. Upp koma augnabliksmyndir; góðgerðir á borðum, töðugjöld, kaffi á engjum í flösku í sokk, lummur og kleinur sem ekki gleymast. Útbreiddur faðmur, fagnandi gestum og vinum, alltaf tími fyrir alla. Dugnaður í dags- ins önn, skupla, stígvél og fata á leið í fjósið, hrífa í hendi í flekk- inn. Glaðleg og rösk. Fjölmargir vinir og ættingjar áttu leið um garð, skemmtistundir og gleði. Ég minnist bræðra hennar, Valda, Kára, Kjartans, Munda og Steina, og systra, Ástu og Sigurbjargar, og svo margra sem komu og gáfu lífinu á Syðri- Grund lit og gleði. Fjölskyldan, þær systur Nanna og Sigrún og bræðurnir Steini og Helgi sem mín eigin systkini. Guðmundur bóndi al- varlegur, en góðsemd og gæska í raun, vinnusemi og atorka sem kom fjölskyldunni svo vel til góða. Þau Guðrún voru samhent hjón og Guðrún glæsileg hús- freyja og góð móðir, góðvild og hlýja stafaði frá henni. Þessir dagar eru liðnir, koma ekki aftur, en lifa í hugskoti æv- inlega til lokadags. Ég kveð Guðrúnu Sigurjóns- dóttur með þakklæti í huga. Megi hún fara vel og lifa í minn- ingu þeirra sem nutu návista við hana fyrr og síðar. Uggi Agnarsson. Síminn hringir, ég fer og svara, nú þú ert þá þarna enn þá, ég hélt þú værir dauður. Ég þekkti rödd fyrrum grannkonu minnar Gunnu frá Syðri-Grund. Hún hringdi gjarnan ef henni fannst of langt um liðið frá því ég kom síðast í kaffisopa til hennar þar sem hún dvaldi að Hnit- björgum á Blönduósi. Talaði enga tæpitungu og bað mig að líta við í næstu ferð á Ósinn sem ég og síðan gerði. Þú ræður hvort þú skrifar um mig þegar ég hverf af sviðinu en þá hefur þú það stutt og svo mun verða. Gunna var fædd og uppalin að Rútsstöðum í Svínadal í stórum systkinahópi við hefðbundin sveitastörf. Ekki var alltaf mikið til en lifað af því sem landið gaf og vel nýtt. Aldrei var ég svöng sagði hún mér og er ég oft undr- andi hvernig tókst að metta allan hópinn er ég hugsa til þess ára- tugum síðar. Mest sakna ég þess að hafa ekki átt kost að læra eitthvað til tónlistar en þess var enginn kostur sagði hún og mátti finna trega í röddinni. Rúmlega tvítug giftist Gunna Guðmundi Þorsteinssyni frá Grund. Reistu þau þá nýbýlið Syðri-Grund er varð til er jörð- inni Grund var skipt í tvennt. Byggðu þau jörðina upp frá grunni, íbúðarhús og síðar úti- hús ásamt ræktun túna. Aldrei var búið stórt, kýr, kindur og fá- ein hross. Alltaf allar skepnur vel hirtar. Húsbóndinn hræddur um að verða heylaus á hverju hausti jafnvel þótt væri vel birg- ur af heyjum, brenndur af hey- leysi fyrri ára er lítið var til. Grunnhugsun hjá þeim hjónum var að eyða ekki meiru en efni voru til og passa vel upp á alla hluti. Margoft kom ég að Syðri- Grund, ýmist til að aðstoða við einhver verk eða kaffisopa, sem var þó ekki venjulegur kaffisopi heldur fjölmargar tegundir á borði, lummur, kleinur, kökur o.fl., of langt upp að telja. Því er vel við hæfi að segja „að þar var skammtað til leifanna“ en ekki öfugt. Og eftir kaffi vildi Gunna gjarna grípa í spil og spila vist, kasínu, hund o.fl. Hún hafði mjög gaman af að spila á spil. Prjónar og prjónavél voru snar þáttur í lífi Gunnu og mörg snilldarverkin til eftir hana m.a. hér á bæ. Vona að aðrir geri því betri skil. Rúmlega sjötug flutti Gunna ásamt Munda sínum á Blönduós í íbúð fyrir aldraða að Hnit- björgum og settust þar að. Höfðu þau þá selt jörðina Þor- steini syni sínum skömmu áður. Mundi féll frá fáum árum síðar og hefur Gunna búið þar ein síð- an. Þar leið henni vel og hér hef- ur mér aldrei leiðst sagði hún eitt sinn við mig. Þar kom ég margoft, Gunna rifjaði upp liðn- ar stundir, var minnug og sagð- ist vel frá. Hún var mjög fé- lagslynd og sótti starf eldri borgara afar vel, ekki síst í spil og lærði brids á efri árum. Þrjú grönd góð sögn er við spiluðum saman mót öðrum, jafnvel hnúar í borð ef við átti. Ríflega 98 ár að baki, þar af rúm 70 í Svínadalnum. Atvik lið- inna mánaða urðu til þess að við hittumst ekki síðasta eina og hálfa árið og er það miður. Sím- töl með hispurslausum athuga- semdum liðin, önnur tilvera tek- in við. Þannig er lífið, öllum afmörkuð stund. Við fjölskyldan í Holti 2 þökkum henni samferð- ina umliðna áratugi fyrir órofa tryggð og vináttu í okkar garð. Halldór Guðmundsson. Haustið 1958 kom ég, far- kennari, í Svínavatnshrepp. Þá lágu leiðir okkar saman því að þú varst hús- freyja á Syðri-Grund og stjórn- aðir þar myndarlegu búi ásamt manni þínum Guðmundi. Hjá ykkur var ég með eldri nemend- ur en á Snæringsstöðum með yngri börnin hjá þeim Auði og Steingrími. Heimili þitt var alltaf hreint og skínandi og annar aðbúnaður eftir því. Þú studdir þennan unga reynslulitla kennara og alltaf beið kaffi í frímínútum og ekki sjaldan nýbakað bakkelsi. Þið Auður fóruð með mér og nem- endunum í vorferðina sem var í Mývatnssveit, enda komu allir glaðir heim. Guðrún, umhyggja þín í minn garð entist ævina út. Símtöl 2-3 á ári og heimsóknir til þín á Hnitbjörg, þá var mikið spjallað og hlegið, rifjaðar upp góðar stundir. Síðast hittumst við á heimili Sigrúnar dóttur þinnar og eins og alltaf gægðust fram minningar langrar ævi, bestu þakkir til dóttur þinnar og eig- inmanns fyrir kveðjustund á yndislegu heimili. Dómhildur Sigurðar- dóttir kennari. Guðrún Sigurjónsdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.