Morgunblaðið - 29.05.2021, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 29.05.2021, Blaðsíða 36
36 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. MAÍ 2021 Elsku bróðir minn er fallinn frá langt um aldur fram. Við söknum brossins og hlýj- unnar sem alltaf stafaði frá hon- um. Allra góðu stundanna sem við áttum saman heima og er- lendis því án Hrafnkels hefðum við systkinin og makar ekki farið með mömmu til Slóvakíu og Króatíu þar sem hann skipulagði og var driffjöðrin í hópnum. Ég þakka þau ár sem ég átti, þá auðnu að hafa þig hér, og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer, þó þú sért horfinn úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir) Kæra fjölskylda, Kristín, börn, tengdabörn og barnabörn, megi Guð vera með ykkur. Magnea og Jón. Elsku afi nú þegar það er komið að kveðjustund langar mig að segja nokkur orð. Mér þótti alltaf svo ofboðslega vænt um þig og er ég svo gríðarlega þakklát fyrir að hafa fengið að kalla þig afa minn. Þú varst ein- stakur, skemmtilegur, lífsglaður og svo dásamlega hress karakter og það var alltaf svo stutt í grín- ið. Ég elskaði að fara með þér og ömmu út á sólbekk í Flórída að tana enda virkilega öflugir sól- bekkjarfélagar! Afi var ekki að halda sér í skugganum eins og pabbi gerði, heldur sagði hann við mig að bera bara nóg af olíu! Enda hataði ég ekki að fá lit. Þú og amma voru alltaf svo dugleg að kíkja yfir til okkar, nýkomin úr “stuttum hjólatúrum eða göngutúrum sem voru ekki nema margir kílómetrar. Það má segja að vantaði alls ekki upp á hreyfinguna hjá ykkur ömmu. Því ef það voru ekki hjólatúrarn- ir, þá voru það göngutúrarnir eða ræktin niðri og ekki var það verra ef þú gast fengið ömmu í smá kapp eins og ferskur ung- lingur. Ég man alltaf eftir þér sem svakalega virkum alltaf að brasa eitthvað eða dunda ef þið Hrafnkell Gunnarsson ✝ Hrafnkell Gunnarsson fæddist 12. nóv- ember 1957. Hann lést 11. maí 2021. Útför hans fór fram 20. maí 2021. amma voruð ekki að undirbúa næsta ferðalag. Þú beiðst ekki með það að gera það sem þú vildir og það við- horf ætla ég að reyna að tileinka mér í lífinu. Ég þekki engan afa sem var jafn hress og þú og saman mynduð þið amma frábært teymi(nema í bíl) sem við barnabörnin elskuðum að vera nálægt enda var hvergi dásamlegra að vera en með þér og ömmu. Ég vona svo innilega að þegar ég verð gömul að ég verði jafn hress og þú varst en aldrei man ég eftir því að hafa séð þig öðruvísi en með bros á vör. Ég mun aldrei gleyma þér afi, sakna þín og elska þig. Þangað til næst. Karen. Fallinn er frá, langt um aldur fram, kær frændi minn og jafn- aldri, Hrafnkell Gunnarsson. Rabbi, eins og hann var kallaður á okkar yngri árum, var að vísu hálfu ári yngri en ég en við vor- um yngstir af 28 börnum systk- inanna frá Hrafnkelsstöðum á Mýrum. Æskuárin okkar voru samofin en mæður okkar voru afar samrýmdar. Þær, ásamt bróður sínum, giftu sig á gull- brúðkaupsdegi foreldra sinna og nánast daglega ræddu þær sam- an. Eflaust hafa margar ákvarð- anir verið teknar í þeim símtöl- um um æskuárin okkar því gjarnan fengum við samskonar gjafir. Sumrin voru skipulögð fyrir okkur á allskonar nám- skeiðum saman og vorum við einmitt nýlega að rifja upp þeg- ar við vorum sendir á námskeið í kartöflurækt 13 ára gamlir. Þau voru nokkur árin sem við vorum á siglinganámskeiðum í Naut- hólsvík og svo fengum við að fara í sveit á Brúarlandi á Mýr- um þar sem systir þeirra bjó. Að vísu vorum við aldrei saman þar enda hafa þær systur talið of erfitt að hafa okkur tvo baldna Reykjavíkurdrengina á sama tíma þar. Eitt sinn þegar Rabbi var á Brúarlandi bauðst honum að gerast kaupamaður á bæ þar í sveitinni en ég hafði þá hafnað því boði. Hann tók boðinu enda hafði hann ekki komið á bæinn áður líkt og ég hafði gert. Eftir viku sneri hann aftur og áttum við eftir að gantast með þessa kaupavinnu hans allt fram á síð- asta dag. Að sjálfsögðu var fermingarveislan okkar sameig- inleg, ásamt tveimur systkina- börnum hans í föðurætt, en við áttum einmitt 50 ára ferming- arafmæli í síðasta mánuði. Þann dag ræddum við frændur saman í síma þar sem við rifjuðum upp þessa skemmtilegu stórveislu. Það fækkaði samverstundum okkar þegar við fórum út á vinnumarkaðinn og við tók lífs- kapphlaupið að eignast börn og buru. Við hittumst öðru hvoru en það var alltaf eins og það hefði verið í gær þegar það gerð- ist. Fyrir nokkrum árum ákváðu systur okkar og fleiri frændsyst- ur að nú væri komið að okkur tveimur að skipuleggja ættar- mót móðurfjölskyldu okkar. Við vorum duglegir að humma það fram af okkur en hvar sem við hittumst minntumst við á þessa kvöð sem á okkur hvíldi. Við hittumst í verslun í byrjun þessa árs og tókum þá ákvörðun um að hefjast handa. Það voru því ótal símtölin sem við áttum nú síð- ustu mánuðina sem og að hittast fyrir tilviljun og vegna ættar- mótsins. Fyrir þær stundir er ég óumræðilega þakklátur. Nú verða samtölin ekki fleiri, elsku frændi, en í október mun ættin koma saman eins og við höfðum ákveðið. Þín er og verður sárt saknað. Elsku Kiddý, börnum, tengdabörnum og barnabörnum sendi ég mínar innilegustu sam- úðarkveðjur á þessum erfiðu tímum. Hilmar Snorrason. Það kom okkur sannarlega á óvart að frétta af því að sam- starfsmaður okkar og vinur til margra ára, Hrafnkell Gunnars- son, væri fallinn frá langt um aldur fram. Maður sem var enn þá virkur þátttakandi í atvinnu- lífinu og alla jafnan glaður og reifur enda vegnaði honum vel í öllu sem hann kom að. Engin al- varleg sjúkrasaga, bara skyndi- legur dauði eins kaldur og hann er. Þetta sýnir enn einu sinni hversu hverfult lífið er og aldrei hægt að geta sér þess til hvað bíður næsta dags. Frá fyrstu stundu þegar Hrafnkell kom að verkum hjá RARIK og Orkusölunni í gegn- um fyrirtæki sitt Skaftá ehf. bar hann það með sér að þar færi heiðarlegur og grandvar maður. Hann sannaði það í verkum sín- um og aðkomu við afhendingu á véla- og rafbúnaði við endurnýj- un og stækkun á Lagarfossvirkj- un sem við unnum að á árunum 2004-7. Öll samskipti við Hrafn- kel voru til fyrirmyndar og hann ávallt reiðubúinn til þess að leysa öll vandamál og ágreining á besta veg þannig að allir aðilar fóru sáttir frá borði. Sama sagan var ávallt uppi við öll önnur verkefni sem Hrafnkell kom síðar að og voru þau fjöl- mörg allt fram á þennan dag. Eitt af þeim fyrirtækjum sem Hrafnkell var umboðsmaður fyr- ir var króatíska fyrirtækið Koncar sem framleiðir raf- og stjórnbúnað m.a. fyrir virkjanir og orkuveitur. Það er dæmigert fyrir orðstír Hrafnkels að einn færasti fjármála- og verkefnis- stjóri Koncar segir á virtum opinberum vettvangi að hann sé einn af bestu umboðsmönnum fyrirtækisins. Hjá honum sé að finna mikla þekkingu og yfirveg- un sem geri hann að góðum liðs- manni. Hann er áreiðanlegur, vandvirkur, skipulagður og dug- legur skrifar viðkomandi aðili. Þessi starfsmaður Koncar endar á því að segja að hann sé hreykinn af því að vinna með slíkum toppmanni sem Hrafnkell var. Við sem höfum unnið með Hrafnkatli undanfarin ár getum heilshugar tekið undir þessi orð. Hrafnkell var þannig þenkj- andi að hann fylgdi sínum verk- efnum eftir af miklum áhuga og festu. Hann var duglegur, heið- arlegur, sanngjarn, skemmtileg- ur og einnig góður félagi. Það er mikill söknuður að sjá á eftir slíkum öndvegismanni sem var enn í blóma lífsins. Mest er þó eftirsjá og söknuður hjá eigin- konu og fjölskyldu hans sem sér á bak góðum og traustum eig- inmanni og fjölskylduföður. Um leið og við kveðjum góðan félaga og vin með söknuði send- um við eiginkonu hans, börnum, tengdabörnum, barnabörnum sem og öðrum nánum ættingjum okkar innilegustu samúðarkveðj- ur. Steinar Friðgeirsson, Þórhallur Halldórsson, Tryggvi Þór Haralds- son. Það er sárt að setjast niður og skrifa kveðjuorð um góðan vin sem snögglega er kippt burtu frá þessari jarðvist. Hrafnkell Gunnarsson var ungur piltur og í raun óharðn- aður unglingur þegar hann hóf störf í Heklu. Varahlutadeildin var hans fyrsta stoppistöð innan fyrirtækisins. Þar starfaði hann undir einstakri verkstjórn Finn- boga Eyjólfssonar. Finnbogi sá strax hversu efnilegur drengur- inn var. Hann var fljótur að læra, harðduglegur, samvisku- samur og greinilegt að dreng- urinn ungi ætlaði sér að standa sig í stykkinu. Sú varð og raun- in. Leiðin lá úr varahlutadeild- inni í tolladeildina og þaðan lá leiðin í stól fjármálastjóra Heklu. Því starfi gegndi Hrafn- kell til margra ára. Hrafnkell, eða Rabbi eins og ég kallaði hann alltaf, var mín hægri hönd og fjármálastjóri all- an minn forstjóraferil í Heklu. Það var mín gæfa að hafa sam- starfsmann eins og Rabba. Hann var glöggur, farsæll og úrræða- góður. Hann bar hag fyrirtækis- ins fyrir brjósti og naut trausts innan Heklu sem utan; hérlendis og erlendis. Samstarf okkar var einstakt og aldrei bar þar skugga á. Fyrir það hef ég alla tíð verið þakklátur og veit að Rabbi lagði allt í sín störf. Mér þykir afar vænt um að geta kallað Rabba trúnaðarvin minn. Á Hekluárunum voru samskipti okkar og snertifletir mjög margir. Símtöl á öllum tím- um sólarhrings og aldrei var sofnað á verðinum. Ég minnist með hlýju bíltúranna sem við fórum í saman. Það var gott að fá smá næði til að geta ráðið ráð- um okkar og þá stukkum við út í bíl. Við kíktum gjarnan í toll- vöruportin hjá skipafélögunum og á þessum tíma gátum við keyrt innan um alla bílana og þungavinnuvélarnar sem átti eft- ir að tollaafgreiða. Með þessu fengum við ágæta tilfinningu fyrir innflutningi keppinautanna og markaðnum í okkar bransa. Vinur minn hann Rabbi var líka góður ferðafélagi. Hann var brosmildur, dagfarsprúður, hátt- vís og mikið snyrtimenni. Lífsförunautur Rabba og hans besti vinur var konan hans, hún Kristín. Leiðir þeirra lágu sam- an þegar bæði voru kornung. Það fór aldrei fram hjá mér hversu Rabba var annt um fjöl- skylduna sína. Hann var mikill fjölskyldumaður og þau Kristín samtaka í öllu sem sneri að heimilinu og börnunum. Sam- heldni þeirra og fallegt samband er aðdáunarvert. Samstarfi okkar Rabba lauk þegar ég seldi Heklu. Við tóku nýir tímar og ný störf. Samveru- stundunum fækkaði en þráður- inn á milli okkar slitnaði aldrei. Ég er þakklátur fyrir að hafa kynnst manni eins og Rabba. Hann var drengur góður. Í dag er hugur okkar Maríu Solveigar hjá Kristínu, börnun- um og fjölskyldunni allri. Missir þeirra er mikill. Megi allar góðu minningarnar styrkja þau og styðja. Guð blessi minningu míns kæra vinar. Sigfús R. Sigfússon. Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Óheimilt er að taka efni úr minningargreinum til birtingar í öðrum miðlum nema að fengnu samþykki. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/sendagrein Minningargreinar Stapahrauni 5, Hafnarfirði Sími: 565 9775 www.uth.is - uth@uth.is Frímann 897 2468 Hálfdán 898 5765 Ólöf 898 3075 Kristín 699 0512 HJARTAVERND Minningarkort 535 1800 www.hjarta.is Minningarkort á hjartaheill.is eða í síma 552 5744 Ástkær móðir okkar, ÞÓRA EYGLÓ ÞORLEIFSDÓTTIR hárgreiðslumeistari, lést fimmtudaginn 20. maí á hjúkrunar- heimilinu Ísafold, Garðabæ. Útför Þóru fer fram frá Garðakirkju fimmtudaginn 3. júní klukkan 15. Jón Vilhelm Pálsson Salome Kristín Jakobsdóttir Guðm. Þorleifur Pálsson Ásta Gísladóttir Anna Sigríður Pálsdóttir Karl Tómasson Matthildur Pálsdóttir Birgir Ragnarsson ömmu- og langömmubörn Okkar ástkæri eiginmaður, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, MAGNÚS BJARNASON rafvirkjameistari, Hjallavegi 13, Reykjanesbæ, verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju fimmtudaginn 3. júní klukkan 13. Jarðsett verður í Kópavogskirkjugarði. Ásgerður Ásgeirsdóttir Katrín M. Magnúsdóttir Steinar Jónsson Lárus Ingi Magnússon Sigþrúður Sigurðardóttir Bjarni Magnússon Hrafnhildur Ýr Kristjánsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, SVEINN STEINSSON frá Hrauni á Skaga, lést á Landakoti föstudaginn 21. maí. Útförin fer fram frá Bústaðakirkju föstudaginn 4. júni klukkan 13. Streymt verður frá athöfninni. Erla Hrönn Sveinsdóttir Steinn Leó Sveinsson Birgitta Sveinsdóttir og fjölskyldur Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, VALGEIR BACKMAN, Hörðalandi 14, lést í faðmi fjölskyldunnar 20. maí á Landspítalanum, Fossvogi. Útförin fer fram frá Bústaðakirkju 2. júní klukkan 13 og streymt frá https://www.facebook.com/groups/valgeirbackman Helga Sigríður Ágústsdóttir Hildur Salvör Backman Eiríkur Pétursson Valgeir Fridolf Backman Sigurborg Árný Ólafsdóttir Helga Margrét Backman Ingvar Haraldur Ágústsson Hjördís Hrönn Backman börn og barnabörn Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, HAFDÍS VIGNIR hárgreiðslumeistari, Sléttuvegi 25, Reykjavík, andaðist á Hrafnistu Sléttuvegi fimmtu- daginn 27. maí. Útför hennar verður gerð frá Bústaðakirkju þriðjudaginn 8. júní klukkan 13. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á að láta Blindrafélagið njóta þess. Reynir Vignir Þóra Sjöfn Guðmundsdóttir Anna Ragnheiður Vignir Pétur Stefánsson Hildur Elín Vignir Einar Rúnar Guðmundsson Sigurhans Vignir Margrét Gunnlaugsdóttir barnabörn og langömmubörn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.