Morgunblaðið - 29.05.2021, Síða 47

Morgunblaðið - 29.05.2021, Síða 47
DÆGRADVÖL 47 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. MAÍ 2021 GÓÐAR FRÉTTIR FYRIR MELTINGUNA svo gott í mannheimi, að ekki finnist leiðir til að misnota það. Það er verkefni nýrrar kynslóðar að koma skynsamlegum böndum á þessi undraverk, án þess að frelsi til notk- unar verði skert um of. Frelsi getur aldrei orðið varanlegt, nema spell- virkjum vondra manna séu takmörk sett. Fyrr en það er gert verður ekki ljóst hvernig traust fréttaþjónusta verður. Það duga engir fjölmiðla- styrkir til að halda við því fjölmiðla- kerfi sem þegar er í upplausn.“ Ólafur er þessa stundina að leita leiða ásamt systkinum sínum til að koma biblíusafni foreldra sinna fyrir almenningssjónir. Safnið inniheldur allar biblíuútgáfur sem hafa komið út frá 1584. „Ég vil það miklu frekar en að safnið sé læst í hirslum. Þetta er áhugamálið mitt núna.“ Fjölskylda Eiginkona Ólafs er Albína Thord- arson, f. 8.10. 1939, arkitekt í Reykjavík. Þau hafa verið gift frá 1981 og eru búsett í Garðabæ. Fyrri kona Ólafs er Margrét Björgvins- dóttir, f. 18.10. 1944. Börn Ólafs og Margrétar eru 1) Guðrún, f. 30.5. 1965, leirkerasmiður í Toronto, Kanada og 2) Brandur, f. 9.9. 1967, fjármálastjóri í Toronto. Börn Albínu eru Páll Ágúst Ásgeirs- son, f. 10.9. 1960, verkfræðingur í Garðabæ; Áslaug Ásgeirsdóttir, f. 3.6. 1966, prófessor í Maine, Banda- ríkjunum; Agni Ásgeirsson, f. 16.1. 1969, verkfræðingur í Garðabæ. Systkin Ólafs: Páll, f. 20.8. 1934; Ingibjörg, f. 22.4. 1940; Ingveldur, f. 10.8. 1942; Sigurður, f. 30.5. 1944, d. 25.11. 2010; Gissur, f. 7.12. 1947, d. 5.4. 2020; Agatha Sesselja, f. 29.9. 1953, d. 15.5. 2007. Fósturbróðir Ólafs var Rúnar Kristjánsson, f. 30.10. 1955, d. 31.12. 2000. Foreldrar Ólafs voru séra Sig- urður Pálsson, f. 8.7. 1901, d. 13.7. 1987, vígslubiskup í Skálholtsstifti, og kona hans Stefanía Gissurar- dóttir, f. 9.2. 1909, d. 13.9. 1989. Ólafur Sigurðsson Margrét Þorsteinsdóttir húsfreyja í Langholti Sigurður Sigurðsson bóndi í Langholti í Flóa Ingibjörg Sigurðardóttir húsfreyja í Byggðarhorni Gissur Gunnarsson bóndi í Byggðarhorni í Flóa Stefanía Gissurardóttir húsfreyja í Skálholti Margrét Gissurardóttir húsfreyja í Byggðarhorni Gunnar Bjarnason bóndi í Byggðarhorni Helga Jóhannsdóttir húsfreyja á Stóra-Hrauni Björn Gottskálksson bóndi á Stóra-Hrauni í Kolbeinsstaðahr. Jóhanna Guðríður Björnsdóttir húsfreyja í Haukatungu Páll Sigurðsson bóndi í Haukatungu í Hnappadal Valgerður Pálsdóttir ljósmóðir í Tröð Sigurður Brandsson bóndi og hreppstjóri í Tröð í Hnappadal Úr frændgarði Ólafs Sigurðssonar Sigurður Pálsson vígslubiskup í Skálholtsstifti Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „BORÐ FYRIR TVO … NAFNIÐ ER „KONG“.“ Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að ganga með sexí gleraugu. KLIKK KLIKK KLIKK KLIKK KLIKK KLIKK KLIKK KLIKK KLIKK KLIKK KLIKK KLIKK KLIKK KLIKK KLIKK KLIKK KLIKK KLIKK HVAÐ ERTU AÐ GERA MEÐ FJAR- STÝRINGUNA? HRAÐSPÓLA FRAM Á NÆSTA FÖSTUDAG ÉG SÉ ÞÍNAR FIMM PEPPERÓNÍ- SNEIÐAROG HÆKKA UM TÍU SNEIÐAR! SJÁ ÞESSA SPILAFÍKLA! „NÆST SKALTU SLÁ INN PNNIÐ. EF ÞÚ MANST ÞAÐ EKKI SKALTU BARA LÍTA NIÐUR Á SKYRTUNA ÞÍNA.“ Gátan er sem endranær eftirGuðmund Arnfinnsson: Löngum þessi bagga ber. Baggi reyndar sjálfur er. Finna má í vefstól víst. Á vanga kýstu að fá hann síst. Harpa Hjarðarfelli svarar: “Þá er sauðburði að mestu lokið, flestar kindur komnar út og hægt að gefa sér tíma í gáturáðningu“: Hestur löngum bagga bar. Baggar tveir, það hestur var. Hest má finna á vefstól víst. Vænan kinnhest fá vil síst. Eysteinn Pétursson á þessa lausn: Hestur sterkur bagga ber. Baggar tveir svo hestur er. Í vefstól hestinn víst má sjá. Vont er kinnhestinn að fá. Guðrún B. leysir gátuna þannig: Hestur Siggu bagga ber. Bölvað tréhross er’ún, refur. Í vefstól hestur hífir ver. Hönd á Siggu kinnhest gefur. „Hér er lausn,“ segir Helgi Þor- láksson: Löngum hestur bagga ber, baggi nefndur hestur er, hest í vefstól víst má sjá, vondan kinnhest slæmt að fá. Helgi R. Einarsson segir lausnina í þátíð að þessu sinni: Hestur bagga bar, hestburður reyndist þar. Í vefstól hestur var. Vondir kinnhestar. Sjálfur skýrir Guðmundur gát- una þannig: Á völlinn hestur bagga ber. Baggi hestur líka er. Hestur er í vefstól víst. Á vanga kinnhest þrjót ég lýst. Þá er limra: Hann Eyjólfur uppgjafaprestur er endemis hrossabrestur, sem orgar og snýst og andaður víst endurfæðist sem hestur. Síðan er ný gáta eftir Guðmund: Dagurinn birtu miðlar mér, mál er úr bóli að haska sér, sumar í garð nú gengið er og gáta til boða stendur hér: Brennandi kennd í brjósti þér. Bana það hefur í för með sér. Tilþrifamikið áhlaup er. Einlægt hún kisa þangað fer. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Svo er hestur sem hann er hafður

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.