Morgunblaðið - 29.05.2021, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - 29.05.2021, Blaðsíða 49
ÍÞRÓTTIR 49 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. MAÍ 2021 Það hefur verið afar áhugavert að fylgjast með brotthvarfinu úr landsliðshóp íslenska karlalands- liðsins í knattspyrnu undanfarna daga. Það heyrði nánast sögunni til að leikmenn gæfu ekki kost á sér í verkefni með íslenska liðinu en nú virðist öldin önnur. Vissulega hefur kórónuveirufaraldurinn átt sinn þátt í ákvörðun bæði leik- manna og félaganna enda ekki hlaupið að því að ferðast á milli landa í dag, án þess að þurfa fórna einhverjum dögum og jafn- vel vikum í sóttkví. Fjölmargir leikmenn, sem hafa verið í lykilhlutverki með liðinu undanfarin ár, gáfu ekki kost á sér í verkefnið. Sumir af persónu- legum ástæðum og aðrir vegna meiðslasögu sinnar. Það er kannski auðvelt að skilja þá leik- menn sem hafa verið meiddir undanfarin ár, að þeir taki ákvörð- un um að gefa ekki kost á sér með félagslið sín til hliðsjónar. Hitt kemur meira á óvart. Það virðist líka hafa komið þjálfurum íslenska liðsins á óvart enda stóð aldrei til að velja leik- menn sem leika á Íslandi í lands- liðshópinn. Þremur leikjum efstu deildar, sem áttu að fara fram um helgina, var frestað til 7. júní. Þrír leikmenn drógu sig úr hópnum rétt áður en liðið hélt af stað til Bandaríkjanna á miðviku- daginn þar sem Ísland mætir Mexíkó. Ástæðurnar fyrir því voru misjafnar. Þá ákvað einn að draga sig úr hópnum eftir að komið var á leikstað í Texas. Afar áhugavert svo ekki sé meira sagt. Hvað veldur því að leikmenn sem hafa verið máttarstólpar í liðinu draga sig úr hópnum og gefa ekki kost á sér? Hefur trúverðugleiki þjálfarateymisins minnkað eftir óupptalin afrek ut- an vallar og á sjónvarpsskjám landsmanna síðustu mánuði? Hefðum við séð þetta mikla brottfall úr landsliðshópnum ef Lars Lägerback væri að þjálfa lið- ið? Maður spyr sig allavega. BAKVÖRÐUR Bjarni Helgason bjarnih@mbl.is KR lagði FH að velli í Kaplakrika í gærkvöld, 2:0, í uppgjöri liðanna tveggja sem féllu úr úrvalsdeild kvenna í fótbolta síðasta haust. Kathleen Pingel skoraði strax á 4. mínútu og Thelma Lóa Hermanns- dóttir bætti við marki snemma í seinni hálfleik. KR hefur þá unnið þrjá leiki í röð eftir að hafa tapað fyrir Augnabliki í fyrstu umferð. Afturelding er hinsvegar í efsta sæti eftir sigur á Haukum, 3:1. Augnablik og Grindavík skildu jöfn, 1:1, og sömuleiðis Víkingur og Grótta. KR sótti þrjú stig í Kaplakrika Morgunblaði/Arnþór Birkisson Skoraði Thelma Lóa Hermanns- dóttir skoraði seinna mark KR. Um það bil 12 þúsund stuðnings- menn ensku liðanna Chelsea og Manchester City og 16.500 manns í allt verða á úrslitaleik þeirra í Meistaradeildinni í fótbolta sem fram fer á Drekavöllum í Porto í kvöld. Leyft er að sitja í um þriðj- ungi sæta leikvangsins. Manchester City er níunda enska félagið sem kemst í úrslitaleik keppninnar frá upphafi og yrði það sjötta til að vinna hana á eftir Liv- erpool, Manchester United, Nott- ingham Forest, Chelsea og Aston Villa. Leikurinn hefst kl. 19. Tólf þúsund enskir í Porto AFP Fyrirliðar Cesar Azpilicueta og Raheem Sterling mætast í kvöld. MEXÍKÓ Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Íslenska karlalandsliðið í fótbolta sem mætir Mexíkó í vináttulandsleik í Arlington í Texas í nótt er blanda af reyndum leikmönnum og óreyndum og ljóst að nokkrir munu fá tækifæri til að spila sinn fyrsta A-landsleik gegn mjög sterkum andstæðingum. Aron Einar Gunnarsson, Birkir Bjarnason, Birkir Már Sævarsson, Kolbeinn Sigþórsson, Jón Daði Böðvarsson, Hjörtur Hermannsson og markverðirnir Ögmundur Krist- insson og Rúnar Alex Rúnarsson hafa allir verið í landsliðinu um ára- bil og verða eflaust allir í byrjunar- liði, nema annar markvarðanna að sjálfsögðu. Eftir að Kári Árnason og Ragnar Sigurðsson drógu sig út úr hópnum er hinsvegar ljóst að nýliðar verða í vörninni með þeim Birki Má og Hirti. Hinir í hópnum eru eftirtaldir, landsleikir í svigum: Mark: Elías Rafn Ólafsson (0). Vörn: Brynjar Ingi Bjarnason (0), Ísak Óli Ólafsson (0), Hörður Ingi Gunnarsson (0), Kolbeinn Þórðarson (0), Rúnar Þór Sigurgeirsson (0). Miðja: Aron Elís Þrándarson (5), Ísak Bergmann Jóhannesson (2), Stefán Teitur Þórðarson (2), Andri Fannar Baldursson (1), Gísli Eyjólfs- son (0), Þórir Jóhann Helgason (0). Sókn: Sveinn Aron Guðjohnsen. (1). Firnasterkt lið Mexíkó Ljóst er að við ramman reip verð- ur að draga í Texas því Mexíkóar mæta til leiks með sitt sterkasta lið. Mexíkó er í dag í 11. sæti á heims- lista FIFA, 41 sæti fyrir ofan Ísland. Níu af þeim ellefu sem voru í byrj- unarliði í sigri gegn Hollendingum í Amsterdam í október, 1:0, eru í hópnum gegn Íslandi. Einungis vantar Raúl Jiménez, framherja Wolves, sem er að jafna sig eftir al- varlega höfuðáverka, og Rodolfo Piz- arro, leikmann Inter Miami á Flór- ída. Átta leikmenn spila með sterkum liðum í Evrópu. Framherjinn Jesús Corona hjá Porto var kjörinn besti leikmaður portúgölsku deildarinnar 2019-20, fyrirliðinn Andrés Guard- ado, sem á 165 landsleiki að baki, leikur með Real Betis á Spáni, miðjumaðurinn Héctor Herrera er nýkrýndur Spánarmeistari með Atlético Madrid, miðjumaðurinn Ed- son Álvarez er hollenskur meistari með Ajax, varnarmaðurinn Nestor Araujo leikur með Celta Vigo á Spáni og framherinn öflugi Hirving Lozano leikur með Napoli á Ítalíu. Þetta er í fimmta sinn sem Ísland fer til Bandaríkjanna og leikur þar vináttulandsleik gegn Mexíkó. Ís- lenska liðið á enn eftir að skora mark gegn Mexíkóum. Liðin gerðu 0:0 jafntefli í San Francisco í nóvember 2003, aftur 0:0 jafntefli í Charlotte í Bandaríkjunum frammi fyrir 63 þús- und áhorfendum árið 2010, Mexíkó vann 1:0 í Las Vegas í febrúar 2017 og svo 3:0 í Santa Clara í Kaliforníu í mars 2018 þar sem áhorfendur voru tæplega 70 þúsund. _ Leikurinn hefst á leikvangi Dall- as Cowboys í Arlington klukkan eitt í nótt að íslenskum tíma og fylgst verður með honum á mbl.is. Erfitt verkefni í Arlington - Margir nýliðar gegn reyndu liði Mexíkó sem er í 11. sæti FIFA-listans AFP Mexíkó Aron Elís Þrándarson í baráttu í leik Íslands og Mexíkó í Las Vegas árið 2017. Aron er á ný í íslenska landsliðinu sem er statt í Texas. Agla María Albertsdóttir, kantmaður úr Breiðabliki, er besti leikmaður fimmtu umferðar Pepsi Max-deildar kvenna að mati Morgunblaðsins. Agla María fékk hæstu einkunn, þrjú M, fyrir frammistöðu sína í stórsigri meist- aranna gegn Val, 7:3, á Hlíðarenda og hún er fyrsti leikmaðurinn sem er tvívegis valinn besti leikmaður umferðar á þessu keppnistímabili. Þór/KA vann Tindastól 2:1 í lokaleiknum í fyrrakvöld en honum var ekki lokið þegar blaðið fór í prentun. Sandra Nabweteme kom inn á sem vara- maður og skoraði bæði mörk Akureyrarliðsins. Hún fékk 2 M en 1 M fengu Amber Michel, Laufey Harpa Halldórsdóttir og Murielle Tiernan úr Tinda- stóli og Hulda Björg Hannesdóttir, Arna Sif Ásgrímsdóttir og María Gros úr Þór/KA. Gunnþór Steinar Jónsson dómari fékk 8 í einkunn. vs@mbl.is 5. umferð í Pepsi Max-deild kvenna 2021 Hversu oft leikmaður hefur verið valinn í lið umferðarinnar 23-4-3 Tiffany Sornpao Keflavík Hulda Hrund Arnarsdóttir Fylkir Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir Breiðablik Clara Sigurðardóttir ÍBV Andrea Rut Bjarnadóttir Þróttur R. Katherine Cousins Þróttur R. Sandra Nabweteme Þór/KA Laufey Harpa Halldórsdóttir Tindastóll Emma Checker Selfoss Agla María Albertsdóttir Breiðablik Hafrún Rakel Halldórsdóttir Breiðablik 4 4 2 2 2 Agla María best í 5. umferð KNATTSPYRNA Úrvalsdeild karla, Pepsi Max-deildin: Würth-völlur: Fylkir – Stjarnan....... S19.15 Kórinn: HK – Leiknir R .................... S19.15 Meistaravellir: KR – ÍA..................... S19.15 1. deild karla, Lengjudeildin: Domusnovav.: Kórdrengir – Þróttur R L13 Hásteinsvöllur: ÍBV – Víkingur Ó......... S14 Ísafjörður: Vestri – Grindavík .......... S16.30 2. deild karla: Fjarðab.höll: Leiknir F. – Reynir S...... L14 KR-völlur: KV – Fjarðabyggð............... L14 Boginn: Magni – ÍR........................... L18.30 Vogar: Þróttur V. – Haukar................... S16 3. deild karla: Týsvöllur: KFS – Höttur/Huginn ......... L13 Sindravellir: Sindri – Dalvík/Reynir..... L13 Vopnafjörður: Einherji – Elliði ............. L14 Sauðárkrókur: Tindastóll – Augnablik. L14 2. deild kvenna: Þróttarvöllur: SR – Sindri ..................... L14 KR-völlur: KM – Völsungur .................. L16 Vopnafjörður: Einherji – Hamar .......... S14 Valsvöllur: KH – Hamrarnir.................. S16 Mjólkurbikar kvenna, 16-liða úrslit: Fjarðab.höll: FHL – Þróttur R ........ S17.15 HANDKNATTLEIKUR Undanúrslit kvenna, oddaleikur: KA-heimilið: KA/Þór – ÍBV (1:1) ..... L13.30 Umspil karla, fyrsti úrslitaleikur: Víkin: Víkingur – Kría............................ L14 KÖRFUKNATTLEIKUR Annar úrslitaleikur kvenna: Ásvellir: Haukar – Valur ................... S20.15 KARATE Íslandsmót fullorðinna í kata fer fram í Íþróttahúsi HÍ við Háteigsveg í dag. Und- anúrslit hefjast kl. 10.30 og úrslit kl. 13. UM HELGINA! Framarar héldu sínu striki í 1. deild karla í fótbolta, Lengjudeildinni, í gærkvöld, þegar þeir lögðu Fjöln- ismenn að velli, 1:0, í uppgjöri tveggja efstu liðanna í rigningu og roki í Grafarvogi. Albert Haf- steinsson skoraði sigurmarkið á 22. mínútu og Framarar eru nú með 12 stig á toppi deildarinnar eftir fjóra leiki. Fjölnismenn höfðu líka unnið fyrstu þrjá leikina. _ Þór lagði Aftureldingu 2:1 á Akureyri þar sem Álvaro Montejo, úr vítaspyrnu, og Fannar Daði Gíslason komu Þórsurum tveimur mörkum yfir. Aron Elí Sævarsson minnkaði muninn fyrir Aftureld- ingu sem missti Ísak Atla Krist- jánsson af velli undir lokin með rautt spjald. _ Selfoss vann upp þriggja marka forskot Gróttu á tíu mín- útum í seinni hálfleik og leikurinn endaði 3:3. Pétur Theódór Árnason og Kjartan Kári Halldórsson (2) komu Gróttu í 3:0 en Hrvoje Tokic (2) og Valdimar Jóhannsson jöfn- uðu fyrir Selfoss. Ljósmynd/Þórir Tryggvason Akureyri Birgir Ómar Hlynsson úr Þór og Kristófer Óskar Óskarsson úr Aftureldingu í leik liðanna á Þórsvelli í gærkvöld. Fram með fullt hús
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.