Morgunblaðið - 29.05.2021, Blaðsíða 51
TÓNLIST
Arnar Eggert Thoroddsen
arnareggert@arnareggert.is
Þó að titillinn vísi vissulega ífyrrgreind ástandsár (ca.1940-1945), heiti sem haft er
yfir þau áhrif sem íslenskir karlmenn
töldu að herseta Breta og Banda-
ríkjamanna á Íslandi í seinni heims-
styrjöldinni hefðu haft á íslenskt
kvenfólk, er verk-
ið ekki svo þröngt
skilgreint að sögn
höfundar. „Verkið
fjallar þó ekki um
„ástandið“,“ segir
hún mér í tölvu-
pósti. „Fremur er það samtal um
samtímann með tungumáli fortíðar-
innar þar sem hið viðvarandi ástand
snýst ekki um ástarlíf kvenna heldur
orðin sem við notum um þær. Efni-
viður verksins er þannig setningar
teknar úr greinaskrifum Íslendinga
frá árunum 1940 til 1945 sem undir-
strika sýn samfélagsins á „ástandið“.
Úr greinaskrifunum bjó ég til setn-
ingasafn sem ég nýtti við gerð bók-
verksins, í tónsmíðunum og vídeó-
verkunum sem fylgja innsetning-
unni.“
Verkefnið er þrískipt eins og áð-
ur segir og virðir illa mörk og mæri
hefðbundinna listgeira. Innsetning
var á Listahátíð í Reykjavík í fyrra
en bæði plötuumslagið og bókverkið
innihalda einnig sýndarveruleika sem
hægt er að nálgast með snjallsímum.
Bókin er einnig með NFC-örflögu
sem vísar inn á Spotify-reikning Inki.
Verkið er því rammpólitískt,
Þetta er nú meira ástandið …
sannarlega, og í formlegri frétta-
tilkynningu segir að verkið eigi að
tala beint inn í jafnréttisumræðuna.
Tónsmíðaferlið og upptökurnar hóf-
ust t.a.m. í gamalli herstöð í Banda-
ríkjunum og á plötunni leika átta tón-
listarkonur, en Inki sá sjálf um
upptökur og hljóðblöndun með að-
stoð Kjartans Kjartanssonar. Hljóð-
færaleikarar voru þær Honor Mon-
aco, Kristina Dutton og Sigrún
Harðardóttir (fiðla), Marissa Deitz
og Þórdís Gerður Jónsdóttir (selló),
Hafdís Bjarnadóttir (gítar), Ingi-
björg Elsa Turchi (bassi) og svo Inki
sjálf (rafhljóð). Ingibjörg er með MA-
gráðu frá hinum virta Mills-skóla í
Oakland þar sem hin framsækna
miðstöð samtímatónlistar er til húsa
og hefur tónlist hennar verið flutt um
veröld víða.
Platan er án söngs en lagatitlar
vísa manni á hvað er undir. „A root-
less litle girl“, „Just great to have
these devils here“ og „Branded a
whore“ segja sitt. Platan opnar með
titillaginu, „Quite the situation“, sem
er strengjum bundin samtímaklassík
og nokk kvikmyndatónlistarleg. Kall-
ar fram fólk eins og t.d. Atla Örvars-
son sem sigldi um svipuð mið á nýj-
ustu sólólplötu sinni. Dramatískt og
fallegt. Á milli heilla verka eru
stemmur sem brúa mann yfir. „Rel-
ationships with foreign strangers“
færir mann þannig yfir í „A rootless
little girl“ sem er einslags eyðimerk-
ur-„Americana“ og ekki að undra
enda landslag það skammt frá lær-
dómssetri Ingibjargar. Einnig má
draga þá ályktun að þessi Ameríku-
keimur sé til að merkja umfjöllunar-
efnið. Smá Ry Cooder í gangi líka.
„Sex in a car“ er meira afstrakt,
skrítnara og já, spennuþrungnara
eðlilega. Það er blámi yfir „Branded
a whore“ en þegar fram í sækir fer að
bera á einhvers konar von. Lokalag-
ið, „Who wouldn‘t desire her“, er
knýjandi, kallast að einhverju leyti á
við upphafið, hvar strengir mynda
ómstríða og átakamikla stemningu.
Flæðið er giska gott út í gegn
sem er dálítið merkilegt sé litið til
þess að hver og einn hljóðfæraleikari
var hljóðritaður einn og sér. Svo vann
Inki með framlag hvers og eins í
klippiherberginu þar sem hún óf
saman einn, heillegan þráð. Og það
listavel!
Það er INNI Music (Atli Örv-
arsson og fleiri) sem gefur tónlistina
út í efnislegu formi sem stafrænu og
frekar má fræðast um Inki á
www.inkimusic.com.
»
Platan opnar með
titillaginu, „Quite
the situation“, sem er
strengjum bundin sam-
tímaklassík og nokk
kvikmyndatónlistarleg
Quite the situation er
marglaga verk eftir
Inki, Ingibjörgu Frið-
riksdóttur, þar sem
m.a. ástandsárin á Ís-
landi eru tekin fyrir í
gegnum plötu, bók og
innsetningu.
Margþætt Ljós
og skuggar takast
á í tónlist Inki.
MENNING 51
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. MAÍ 2021
Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is
TRYGGÐU ÞÉR
MIÐA INNÁ
SÝND MEÐ
ÍSLENSKU TALI.
SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI
WASHINGTON POST
AUSTIN CHRONICLE
THE WASHINGTON POST
ROGEREBERT.COM
TOTAL FILM
USA TODAY
THE SEATTLE TIMES
THE GUARDIAN
GEGGJAÐ FRAMHALD AF EINUM ÓVÆNTASTA
SPENNUÞRILLER SÍÐUSTU ÁRA
ERLENDIR GAGNRÝNENDUR SEGJA:
“EMMA STONE AND EMMA THOMPSON,
THE TWO ARE A DELIGHT BOTH APART
AND TOGETHER…”
“THE BIGGEST SURPRISE OF 2021…”
“IT JUST EXCEEDED ALL OF MY
EXPECTATIONS…”
Úrslit Músíktilrauna fara fram í
dag í Norðurljósum í Hörpu og
hefst keppnin kl. 17 og hægt að
kaupa miða á vef Hörpu en einnig
verður bein útsending á RÚV 2.
Tólf keppa til úrslita en það eru
Æsa, Benedikt, Dóra og döðlurnar,
Eilíf sjálfsfróun, Fógeti, Grafnár,
Jengah, Keikó, Krownest, Lím-
bandið, Ólafur Kram og Piparkorn.
Helstu verðlaun eru hljóðvers-
tímar í ýmsum hljóðverum en sig-
ursveitin fær að auki gjafabréf frá
Icelandair og einnig er öllum sem
komast í úrslit boðin þátttaka í
Hitakassanum sem er tónlistar-
bransanámskeið. Auk fyrstu verð-
launa eru veitt verðlaun fyrir hljóð-
færaleik, söng og íslenska texta.
Úrslit ráðast í
Músíktilraunum
Ólafur Kram Keppir í úrslitum.
Ljósmynd/Brynjar Gunnarsson
Einkasýning Sig-
urðar Ámunda-
sonar, Landslag
með manneskju,
verður opnuð í
dag kl. 16 í gall-
eríinu Þulu á
Hjartatorginu í
miðbæ Reykja-
víkur og er
gengið inn á það
frá Laugavegi
21. „Með myndlist minni reyni ég að
takast á við takmörkun mannlegra
samskipta og þá angist sem hlýst af
óuppgerðum tilfinningum, mis-
skilningi og hégóma. Ég nota
gjarnan háfleygt myndmál til að
tákna mannlega kvilla hins daglega
lífs,“ segir Sigurður m.a. um list-
sköpun sína.
Landslag með
manneskju
Sigurður
Ámundason