Morgunblaðið - 29.05.2021, Blaðsíða 52
52 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. MAÍ 2021
sem birtust í dagblöðum landsins á
síðustu öld. Hér er horft með sak-
leysislegum augum út í hinn stóra
heim. Diskótekin heita Broadway,
Hollywood eða Evrópa. Þegar
„Topplausa go-go dansmærin dans-
ar í kvöld“, eins og stendur auglýst á
einum stað, er hægt að gleyma
áhyggjum hversdagsins um stund.
Hér birtist okkur kunnuglegt stef.
Það er mikil stemning, en á sama
tíma er öllum ljóst að partíið sé að
verða búið, að endalokin séu nú þeg-
ar í augsýn,“ segir í tilkynningu.
Sýningarstjóri er Heiðar Kári
Rannversson, sýningarstjóri við
Nordatlantens Brygge í Kaup-
mannahöfn.
Myndlistarmaðurinn Arnfinnur
Amazeen opnar sýninguna Diskótek
í dag kl. 12 til 17 í Sverrissal Hafn-
arborgar. Mun forstöðumaður Hafn-
arborgar, Aldís Arnardóttir, ávarpa
gesti kl. 14.
Arnfinnur er fæddur 1977, stund-
aði nám við Listaháskóla Íslands og
lauk framhaldsnámi frá Glasgow
School of Art. Hann hefur búið og
starfað í Kaupmannahöfn frá árinu
2006. Á sýningunni í Hafnarborg má
sjá ný verk eftir Arnfinn sem sækir
innblástur í óræðan myndheim ís-
lenskrar skemmtistaðamenningar
frá áttunda og níunda áratug síð-
ustu aldar, að því er fram kemur í
tilkynningu og segir þar að þrátt
fyrir að titillinn vísi í gleðskap sé
þetta heldur draugalegt diskótek
sem listamaðurinn hafi sett upp.
Enginn glaumur og ekkert glys
heldur óljós ummerki um eitthvað
sem hafi átt sér stað, ómur af hávaða
sem löngu sé þagnaður.
„Samtíminn er sífellt að minna
okkur á að hætta stafi af öllum sköp-
uðum hlutum. Sú tilfinning, að ein-
hver ógn vofir yfir, hefur verið leið-
arstef í verkum Arnfinns um
nokkurt skeið. Að þessu sinni leitar
listamaðurinn í myndheim íslenskr-
ar skemmtistaðamenningar og skoð-
ar auglýsingar óþekktra höfunda
Heldur draugalegt diskótek Arnfinns
Amazeen í Sverrissal Hafnarborgar
Blýantsteikning Eitt verka Arnfinns í
Sverrissal, þolinmæðisverk mikið unnið
með mjúkum blýanti á pappír.
Einnig segir að Hugform sé not-
að af Annie Besant og C.W. Lead-
beater í bókinni Thoughtform 1901
og að í tíbetskum búddisma geti
hugform lifað sjálfstæðu lífi sem
„Tulba“. „Fæðing abstrakt mynd-
listar á sér rætur meðal annars í
slikum tilraunum í samhengi við
(guðspeki) Theosophy. Þess má
geta að Wassily Kandinsky var fé-
lagi í Guðspekifélaginu (Theosophi-
cal Society),“ segir ennfremur um
Hugform sem má skoða á slóðinni
multis.is/product/hugform-
thoughtform/.
Fyrirtækið MULTIS, sem sérhæfir
sig í útgáfu á fjölfeldum og er í
samstarfi við myndlistarmenn sem
eiga verk á vefsíðu fyrirtækisins,
heldur í dag útgáfuhóf vegna nýrr-
ar útgáfu verks eftir Steingrím Ey-
fjörð sem nefnist „Hugform“. Hófið
fer fram á Snorrabraut 54 þar sem
MULTIS er með skrifstofu og sýn-
ingarrými og hefst kl. 14.
Verkið á sér uppruna í tilraunum
Robert Hanham Collyer í bókinni
Psychography, or the Embodiment
of Thought frá árinu 1845, að því er
fram kemur á vef MULTIS. Á hon-
um segir um verk Steingríms sem
er í formi tvívíðs verks í ramma og
skúlptúrs eða vasa: „Á 19. öld voru
fyrstu skrefin í sálfræði óaðskiljan-
leg við spíritisma og mesmerisma.
Tilraunin er að sendandi sendir
mynd úr huga sínum af svörtu syk-
urþykkni (Molasis) í skál.
Viðtakandi sér í huga sínum
myndina sem sendandi sendi. Í
staðinn fyrir sykurþykkni (Molasis)
þá er myrkrið í krukkunni og vatn
notað til að byggja samskiptin, sem
eru skilgreind sem hugsanaflutn-
ingur. Aðgerðin á sér rætur í eldri
fyrirbærum.
Það að horfa á vatnsflöt eða eitt-
hvað sem nær tengingu við undir-
meðvitundina á sér langa sögu. Í
þessu verki bætist vatnið og myrkr-
ið í krukkunni við sem fyrirbæri til
að senda hugform.“
MULTIS fagnar útgáfu á „Hugformi“,
nýju verki eftir Steingrím Eyfjörð
Hugform Verkið eftir Steingrím Eyfjörð
sem MULTIS gefur út í fjölfeldi.
„… blístur, fiðrildi og fugla-
söngur!“ er yfirskrift tónleika í
15:15 tónleikasyrpunni sem fram
fara í Breiðholtskirkju í dag kl.
15.15. Þar flytur Aulos Flute
Ensemble fjölbreytta tónlist eftir
brasilískt og íslensk tónskáld sem
öll hafa sérstaklega verið samin
fyrir Aulos. Á tónleikunum verða
frumflutt … 4 Whistles …“ eftir
Luiz Casteloñes og „Butterfly
Effect“ eftir Sunnu Friðjónsdóttur.
Einnig eru á efnisskránni verkin
„Elegy“ eftir Harald V. Svein-
björnsson, „Tre pezzi per tre flauti“
eftir Kolbein Bjarnason, „Ís og Eld-
ur“ eftir Steingrím Þórhallsson og
„Divertimento“ eftir Oliver Kent-
ish. Flautuleikararnir Pamela De
Sensi, Petrea Óskarsdóttir, Karen
Karólínudóttir og Kristrún Helga
Björnsdóttir skipa Aulos Flute
Ensemble. „Hópurinn var stofnaður
árið 2019. Aulos hefur hlotið góðar
viðtökur og mikið lof gagnrýnenda
auk þess sem RÚV hefur hljóðritað
leik hópsins m.a. á Sumartónleikum
í Skálholti sumarið 2020,“ segir í
tilkynningu.
Aulos Flute Ensemble leikur ný verk
fyrir alla flautufjölskylduna á tónleikum
Flautuleikararnir Pamela De Sensi, Karen
Karólínudóttir, Petrea Óskarsdóttir og
Kristrún Helga Björnsdóttir skipa
tónlistarhópinn Aulos Flute Ensemble.
»Gamanmyndin
Saumaklúbburinn, í
leikstjórn Göggu Jóns-
dóttur, var forsýnd há-
tíðlega í fyrrakvöld í öll-
um sölum Laugarás-
bíós. Í myndinni segir af
vinkonum í saumaklúbbi
sem skella sér eina helgi
í sumarbústað með vin-
konu einnar og ætla sér
að njóta lífsins. En þeg-
ar vímugjafar eru ann-
ars vegar eiga hlutirnir
til að fara úr böndunum,
sem þeir vissulega gera.
Með hlutverk kvenn-
anna fara Helga Braga
Jónsdóttir, Edda Björg
Eyjólfsdóttir, Arndís
Hrönn Egilsdóttir,
Elma Lísa Gunnars-
dóttir og Jóhanna Vig-
dís Arnardóttir.
Gleði Edda Björg Eyjólfsdóttir, Ragga Gísla og Birkir Kristinsson.
Saumaklúbburinn var forsýndur í fyrrakvöld
Morgunblaðið/Elsa Katrín Ólafsdóttir
Kjarnakonur Leikkonurnar Helga Braga Jónsdóttir, Edda Björg Eyjólfsdóttir, Arndís Hrönn Egilsdóttir, Elma
Lísa Gunnarsdóttir og Jóhanna Vigdís Arnardóttir með leikstjóra myndarinnar, Göggu Jónsdóttur, fyrir miðju.
Sprell Gagga borin uppi af Ágústi Guðmundssyni, Jakobi Frímanni Magn-
ússyni og Arnari Jónssyni í anddyri Laugarásbíós fyrir forsýninguna.