Morgunblaðið - 29.05.2021, Page 53
MENNING 53
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. MAÍ 2021
John Rogers opnar sýninguna Found Ways í galleríinu
Flæði, Vesturgötu 17, á morgun, laugardag.
Rogers sýnir veðraðar stikur sem hann hefur safnað á
göngum sínum um landið undanfarin fimm ár og skoðar
í innsetningu sinni tilgang, minni og umbreytingu, eins
og það er orðað í tilkynningu. Stikur þessar mörkuðu
gönguleiðir en var skipt út fyrir aðrar og nýrri. Nú hafa
þær fengið nýtt hlutverk og tilgang.
Rogers hefur komið víða við og m.a. starfað sem
blaðamaður, rithöfundur, listamaður og plötusnúður og
hefur m.a. gegnt stöðu ritstjóra Grapevine.
Stikur fá nýtt hlutverk í Flæði
John Rogers
Sinfóníuhljómsveit áhugamanna
heldur tónleika í dag, laugardag, í
Seltjarnarneskirkju klukkan 16. Á
efnisskránni verða Brandenborg-
arkonsert nr. 6 eftir Johann Seb-
astian Bach og Sinfónía nr. 1 eftir
Ludwig van Beethoven og stjórn-
andi verður Oliver Kentish.
Sinfóníuhljómsveit áhugamanna
var stofnuð árið 1990 og var hug-
myndin að halda veglega afmælis-
tónleika á síðasta ári en þeim var
frestað vegna Covid-19. Hljóm-
sveitin stefnir að því að endur-
vekja hugmyndina á næsta starfs-
ári og bjóða til sín kórum og
öðrum fyrrverandi samstarfs-
hópum til tónlistarhátíðar í Eld-
borg í Hörpu, að því er fram kem-
ur í tilkynningu en þangað til
verði rifjuð upp kynni við verk
gömlu meistaranna Bachs og
Beethovens. Aðgangur er ókeypis
en gestum boðið að styrkja starf
sveitarinnar með frjálsum fram-
lögum.
Á æfingu Nokkrir liðsmenn Sinfóníu-
hljómsveitar áhugamanna á æfingu í vik-
unni. Hljómsveitin var stofnuð árið 1990
og ætlaði að halda afmælistónleika í fyrra
en þá kom Covid-19.
Leika verk Bachs
og Beethovens
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Óperetta valsakóngsins Jóhanns
Strauss, Nótt í Feneyjum, er verk-
efni óperudeildar Söngskóla Sig-
urðar Demetz í ár og leiðbeinandi og
leikstjóri deildarinnar Þorsteinn
Bachmann. Óperettan verður sýnd
tvisvar í Vonarsal SÁÁ í Efstaleiti 7 í
Reykjavík á
sunnudaginn, 30.
maí, kl. 17 og
19.30. Antonía
Hevesi er tónlist-
arstjóri deildar-
innar í vetur og
leikur með
söngvurunum á
píanóið á sýning-
unum og Hrafn-
hildur Eva Guð-
mundsdóttir
leiðbeinir í dansatriðum og svið-
hreyfingum. Verkefnastjórn var í
höndum skólastjórans Gunnars Guð-
björnssonar og fara miðapantanir
fram með tölvupósti á netfangið
gunnar@songskoli.is.
Verkið hefur verið aðlagað að nú-
tímanum, að sögn Gunnars og tekið
er mið af þörfum nemenda við upp-
setningu þess. Skólinn frumsýnir
líka söngleik í næstu viku og því mik-
ið líf og fjör í skólanum þessa dag-
ana. Óperudeildirnar eru tvær, önn-
ur fyrir yngri nemendur og hin fyrir
framhaldsstigið og eru það nem-
endur þeirrar síðarnefndu sem sýna
verk Strauss, 12 talsins.
Gunnar er spurður út í hlutföll
kynjanna í þessum hópi nemenda og
segir hann þau nokkuð jöfn. „Það er
nokkuð svipað yfirleitt hjá okkur í
þessum skóla,“ segir Gunnar en í
söngnámi almennt séu þó oftast
fleiri konur en karlar. Bendir hann á
að líkamlegur þroski raddarinnar sé
líka seinna á ferðinni hjá körlum.
Vaxandi kröfur um leik
Gunnar segir að upp úr áramótum
sé farið í að finna verk sem hæfi
nemendum og segir hann Nótt í
Feneyjum mjög heppilega óperettu
fyrir hópinn. „Það eru líka mörg
samtöl, talaður texti þannig að það
er hægt að leika sér meira með það
sem við erum að gera,“ segir Gunn-
ar. Þorsteinn hafi lagað verkið að
samtímanum og sett í nútímasam-
hengi. „Sem er mjög gott fyrir þau
líka því það að geta tengt við verkið
er svolítið háð því,“ segir Gunnar um
þá aðlögun og samtímatengingu.
Krafan verði sífellt meiri til söngv-
ara á heimssviðinu að þeir séu meira
eins og leikarar og því mikilvægt að
byrja þá þjálfun snemma.
Óperettan fjallar um sýndar-
mennsku og sjálfsdýrkun yfirstétt-
arinnar á kostnað hinna lægra settu,
ekkert er sem sýnist og allir hafa
eitthvað að fela, eins og segir í til-
kynningu. „Sem er eiginlega í hnot-
skurn það sem austurríska óper-
ettan fjallar um,“ bendir Gunnar
blaðamanni á eftir að vitnað hefur
verið í þessa lýsingu. „Karlmenn fá
nú yfirleitt svolítið á baukinn og það
er nú ekkert lítið í þessari óperettu.
Í umræðu nútímans í dag og sér-
staklega síðustu vikna þá er þetta
mjög aktúelt, alveg ótrúlega aktú-
elt,“ segir Gunnar. Óperettan hafi
fyrst og fremst verið dægrastytting
en um leið talsvert verið að gagn-
rýna karlmenn og líka konur. „Ef við
erum gagnrýnin og til í að sjá það
sjáum við ýmislegt í þessum verkum
sem segir heilmikið um okkur.“
Óperettan gerist nótt eina í Fen-
eyjum þar sem haldinn er grímu-
dansleikur og allt gengur kaupum og
sölum, meira að segja ástin og helg-
ustu tilfinningar manna og kvenna
virðast falar fyrir rétta upphæð, eins
og því er lýst. Aðeins sönn ást og
tryggð mun lifa af í háskalegum felu-
leik ástar og aðbrýðisemi áður en
grímurnar taka að falla, ein af ann-
arri.
Hljóðfærin ekki stillt
Gunnar er spurður að því hvernig
rekstur skólans gangi og segir hann
skólann hafa þurft að líða fyrir illa
skapað kerfi utan um sína fjármögn-
un. „Það er núna í sem allra verstu
standi, akkúrat þessa dagana. Það er
mjög alvarleg staða núna,“ segir
Gunnar.
– Er þá tvísýnt um áframhaldandi
rekstur skólans?
„Ef ekki verður eitthvað gert. Nú
er ég búinn að vera í sambandi við
menntamálaráðuneytið og það er
alltaf þessi sami dans milli Reykja-
víkurborgar og ríkis, í rauninni eng-
inn sem vill taka ábyrgð á þessum
efri stigum í náminu. Það hefur verið
þannig að sveitarfélögin hafa rekið
sína skóla og þar af leiðandi tekið
alltaf þennan reikning sem er milli
framlaga ríkisins og raunkostnaðar
af kennslunni en það er ekki gert í
Reykjavík þannig að þetta lendir á
reikningi nemandans og skólans.
Skólinn er alltaf með ákveðnu milli-
bili að skera niður og spara og við
höfum ekki stillt hljóðfæri í vetur, til
dæmis. Það er dálítið skrítið að reka
söngskóla og þurfa að vera með fölsk
hljóðfæri,“ segir Gunnar.
Þá hafi skólinn verið í hinu vonda
Covid-ástandi, ofan á allt annað.
„Núna sé ég fram á það að ekkert
annað getur hjálpað okkur en yfir-
dráttur í banka til að komast í gegn-
um sumarið, til að geta borgað mín-
um kennurum sumarlaunin. Við
fengum kauphækkun í haust, tónlist-
arkennarar eru oftast eins aftarlega
á merinni og hægt er að hafa þá og á
meðan aðrir voru að fá styttingu á
sinni vinnuviku vorum við að fá lífs-
kjarasamninga. Og þegar kemur að
efri stigum, þeim hluta kennslunnar
sem snýr að framhalds- og miðstigs-
nemendum í tilfelli söngs, erum við
ekki að fá neina leiðréttingu á fram-
lögum. Við fáum bara að borga kaup-
ið og samið um það fyrir okkur af
hinu opinbera, í rauninni, en við eig-
um bara að leysa málið. Framlögin
hækka ekkert, hækka bara fyrir
grunnstigið, það kemur frá Reykja-
víkurborg en þau hækka ekki á efri
stigum fyrr en hugsanlega um ára-
mótin 2021/22. Þá er okkur heitið því
að þetta verði lagað en þá verðum
við búin í 15 mánuði að borga 11%
hærri laun fyrir þessa kennslu. Þetta
er reikningur upp á tíu til tólf millj-
ónir og í svona litlum rekstri er það
bara mjög vont, það segir sig sjálft.“
Gunnar segir að koma verði í ljós í
haust hvernig þessi fjárhagsvandi
skólans verði leystur. „Maður vonast
til að menntamálaráðherra klári
þessi mál og komi til móts við okkur
því Reykjavíkurborg er greinilega
ekki að fara að gera það, hún er
ákveðin í því að þetta sé bara okkar
vandi. Þá eigum við ekki í önnur hús
að venda en hjá ríkinu.“
Feneyjafjör Hópurinn sem kemur að Nótt í Feneyjum í uppsetningu óperudeildar Söngskóla Sigurðar Demetz.
Sýndarmennska og sjálfsdýrkun
- Óperudeild Söngskóla Sigurðar Demetz sýnir óperettu Jóhanns Strauss, Nótt í Feneyjum
- Gamanóperetta með ádeilubroddi - Skólastjóri segir rekstrarstöðu skólans alvarlega
Gunnar
Guðbjörnsson