Morgunblaðið - 09.06.2021, Page 1
M I Ð V I K U D A G U R 9. J Ú N Í 2 0 2 1
.Stofnað 1913 . 134. tölublað . 109. árgangur .
MIÐNÆTUR-
BRÚÐKAUP OG
FJALLASALIR SJÖ TILNEFNINGAR HVOR
ÞRÓA HUG-
BÚNAÐ FYRIR
SOTHEBY’S
GRÍMUVERÐLAUNIN 25 VIÐSKIPTI 12 SÍÐURFERÐALÖG 16 SÍÐUR
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
Hlutdeild íslenskrar tónlistar er nú
aðeins 21% af heildarsölunni hér á
landi. Sölutekjur innlendra tónlist-
arrétthafa vegna ársins 2020 eru að-
eins fjórðungur tekna þeirra árið
2006 að raunvirði. Þetta kemur fram
í markaðsskýrslu Félags hljóm-
plötuframleiðenda fyrir síðasta ár.
Heildarsala tónlistar hér á landi
fór í fyrsta sinn yfir milljarð króna
árið 2020. Að nafnvirði er þetta
stærsta árið frá upphafi en að raun-
virði það söluhæsta síðan árið 2007.
Um 91% af þeim verðmætum sem
skapast vegna einkaneyslu á hljóð-
ritaðri tónlist kemur frá streymi. Í
fyrra voru mældir 1,2 milljarðar
streyma hér á landi.
Tónlistarkonan Bríet naut mikilla
vinsælda hér á landi í fyrra. Plata
hennar, Kveðja, Bríet, var í öðru
sæti yfir þær plötur sem mest var
streymt og lagið Esjan var það ís-
lenska lag sem oftast var hlustað á í
streymi, 1,6 milljón sinnum. Næst-
vinsælasta íslenska lagið var Í kvöld
er gigg með Ingó veðurguði. »6
Íslensk tónlist að-
eins 21% sölunnar
- Tekjur af sölu tónlistar yfir milljarð
Morgunblaðið/Eggert
Vinsæl Tónlistarkonan Bríet átti
gott ár í fyrra og naut vinsælda.
Hafist var handa við niðurrif á Bræðraborgarstíg 1, sem
brann hinn 25. júní í fyrra, um eftirmiðdaginn í gær. Voru
stórvirkar vinnuvélar kallaðar til verksins.
Runólfur Ágústsson, þróunar- og verkefnastjóri Þorpsins –
vistfélags, sagði að vonir stæðu til að verkefninu yrði lokið á
næstu tveimur til þremur vikum, en félagið hefur athafnaleyfi
næstu átta vikur. Þorpið – vistfélag hyggst reisa íbúðir fyrir
eldri konur á reitnum þar sem húsið stóð áður, í anda svokall-
aðra Baba Yaga-systrahúsa.
Morgunblaðið/Eggert
Brunarústirnar á Bræðraborgarstíg rifnar niður
Þóroddur Bjarnason
tobj@mbl.is
Landsbankinn gerir ráð fyrir að
tekjur af ferðaþjónustunni aukist um
120 milljarða á þessu ári, meðal ann-
ars út af lengri dvalartíma ferða-
manna. Jafnframt telur bankinn að
ferðamönnum fjölgi um 67% frá síð-
asta ári. Ný spá bankans gerir ráð
fyrir 800 þúsund ferðamönnum til
landsins í ár, en bankinn spáði því í
þjóðhagsspá sinni í október á síðasta
ári að fjöldinn yrði mun minni eða
600 þúsund.
Gosið hefur áhrif
Eins og fram kemur í samtali
Viðskiptamoggans við Gústaf Stein-
grímsson, hagfræðing hjá bankan-
um, voru útflutningstekjur ferða-
þjónustunnar 117 milljarðar á
síðasta ári, en bankinn spáir 236
milljarða króna tekjum á þessu ári.
Ef svo fer að 650 þúsund ferðamenn
koma en ekki 800 þúsund yrðu tekj-
urnar 41 milljarði minni að sögn
Gústafs, eða 192 milljarðar króna.
„Það er auðvitað erfitt að spá
nákvæmlega um þetta, en við teljum
að gosið í Geldingadölum hafi tölu-
verð áhrif. Gosið hefur minnt
erlenda ferðalanga rækilega á Ísland
sem áfangastað og við teljum að það
verði töluverð umferð af fólki sem
vill koma og sjá gosið á meðan það
varir. Þetta er meginástæða þess að
við hækkuðum spá okkar upp í 800
þúsund.“
Spurður um helstu breytur sem
geta haft áhrif á endanlegar tekjur á
árinu nefnir Gústaf þróun faraldurs-
ins og hvernig gengur að koma
ferðaþjónustunni og leiðakerfi flug-
félaganna af stað á ný.
„Svo virðist sem farið sé að vanta
víða starfsfólk í ferðaþjónustuna og
meðan svo er mun það halda aftur af
tekjustreyminu.“
MViðskiptamogginn
Tekjur aukist um 120
milljarða milli ára
- Landsbankinn spáir 800 þúsund ferðamönnum til landsins
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Gosið Hefur minnt ferðalanga
rækilega á Ísland sem áfangastað.