Morgunblaðið - 09.06.2021, Qupperneq 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. JÚNÍ 2021
Parque Santiago Apartments
Ameríska ströndin
TENERIFE
23. - 30. júní
Flug og vinsæl fjölskyldu
íbúðagisting á besta stað
verð frá 77.650kr.
á mann miðað við 2 fullorðna og 2 börn
www.sumarferdir.is | info@sumarferdir.is | 514 1400
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson
menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Framkvæmdir sem miða að því að loka að hluta til fyrir
gatnamót Lágmúla og Háaleitisbrautar standa nú yfir.
Verður því ekki lengur mögulegt að taka vinstri beygju
úr Lágmúlanum yfir á Háaleitisbraut.
Tekin var ákvörðun um að loka þessari leið til að auka
umferðaröryggi að sögn Guðbjargar Lilju Erlends-
dóttur, yfirverkfræðings hjá umhverfis- og skipulags-
sviði Reykjavíkurborgar. Umferðaróhöpp eru tíð á þessu
svæði sem má meðal annars útskýra í ljósi þess að bílar
þurfa að þvera tvær akreinar til að komast yfir á Háa-
leitisbraut, að sögn Guðbjargar. Flokkast þá gatnamótin
undir svokallaða slysstaði. „Þegar við greinum slysstaði
skoðum við hvernig við getum komið í veg fyrir óhöppin
og með því að loka fyrir þessa vinstri beygju erum við að
gera það,“ segir Guðbjörg.
Ákvörðunin um að loka gatinu á gatnamótunum var
tekin á sama tíma og ákveðið var að setja upp göngu-
ljósin sem standa nú austan við gatið sem búið er að loka.
Mun þetta auðvelda gangandi vegfarendum að fara um
svæðið. hmr@mbl.is
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Varanleg lokun við gatnamót
Lágmúla og Háaleitisbrautar
Örtröð var í Laugardalshöllinni í gær
þegar um 11 þúsund manns voru
bólusettir með bóluefni frá Pfizer.
Voru meðal annars bólusettir árgang-
ar sem dregnir voru út af handahófi í
síðustu viku, sem og ungmenni sem
munu vinna með börnum í sumar.
Pfizer hefur verið einna eftirsótt-
asta bóluefnið og því mikið um að fólk
mæti óboðið í bólusetningu og reyni
jafnvel að skipta um það efni sem því
hefur verið úthlutað. Ragnheiður Ósk
Erlendsdóttir, framkvæmdastjóri
hjúkrunar hjá Heilsugæslu höfuð-
borgarsvæðisins, sagði í samtali við
mbl.is í gær að þeim væri öllum vísað
frá því ekki væri í boði að semja um
annað bóluefni en það sem manni
væri úthlutað. Óskaði hún eftir því að
fólk kæmi ekki til bólusetningar nema
það hefði verið boðað til hennar.
Þá mun hafa verið töluvert um að
fólk hafi haft samband og hafnað
bólusetningu með bóluefni Janssen á
morgun, fimmtudag, en það þýðir ein-
faldlega að viðkomandi færist aftast í
bólusetningarröðina.
Í dag er svo fyrirhuguð seinni bólu-
setning með AstraZeneca-efninu, en
auk þeirra sem hafa verið boðaðir
mega þeir einnig koma sem fengu
AstraZeneca fyrir fjórum vikum eða
meira ef nauðsynlegt er að flýta
seinni skammti.
Í þessari viku hafa verið boðaðir
fleiri aldurshópar en búist var við.
Sagði Ragnheiður að mikilvægt væri
því að fólk mætti á þeim tíma sem það
hefði fengið úthlutaðan svo að skipu-
lagið riðlaðist ekki enda er þessi vika
og þær næstu þéttsetnar í Laugar-
dalshöll.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Bólusetning Mikið var um að vera í höllinni í gær og 11 þúsund bólusettir.
Örtröð í Laugardalshöll
- Um 11.000 bólusettir í gær - Seinni skammtur AstraZeneca
í dag - Janssen á morgun - Þeir sem hafna fara aftast
Hellisheiði var lokað í báðar áttir
í gær frá klukkan níu og fram
undir kvöld. Verið var að mal-
bika 980 metra langan kafla
neðst í Kömbunum ofan Hvera-
gerðis. Á meðan var umferðinni
beint um Þrengslin, í átt til Þor-
lákshafnar.
Upphaflega stóð til að malbika
vegkaflann á mánudag. Veður
setti þó strik í reikninginn og
fresta þurfti framkvæmdunum
um einn dag.
Hafsteinn Elíasson, verkefna-
stjóri hjá Colas, sagði í gær að
allt hefði gengið vel og verkefnið
klárast um fjögurleytið, vel á
undan áætlun, því upphaflega
hafði verið stefnt að því að klára
það um kvöldmatarleytið.
Hafsteinn sagði að nú væri
nokkur gróska í malbikunar-
framkvæmdum enda hefði veðrið
verið gott að undanförnu. „Um
leið og þornar fer allt á fullt,“
sagði Hafsteinn.
Hringveginum um Hellisheiði lokað í gær vegna malbikunarframkvæmda
980 metrar
malbikaðir í
Kömbunum
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon