Morgunblaðið - 09.06.2021, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 09.06.2021, Blaðsíða 11
FRÉTTIR 11Erlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. JÚNÍ 2021 Lögregluyfirvöld í þremur heimsálf- um hafa afhjúpað umfangsmikla að- gerð undir stjórn FBI sem seldi glæpasamtökum dulkóðaða farsíma í þúsundatali og hleraði skilaboð þeirra um árabil. Aðgerðin ber heitið „Operation Trojan“. Verkefnið var í mörg ár í mótun samkvæmt lögregluskýrslum og bandarískum dómsskjölum, að því er segir í frétt AFP. Farsímarnir voru kynntir sem öruggir dulkóðaðir sím- ar, sem áttu að lofa notendum al- gjörri leynd. Í meginatriðum var það símtól sem notaði breytt stýrikerfi og fjarlægði allar GPS-upplýsingar not- enda. Í símanum var síðan app sem opn- að var með því að slá inn dulkóða á reiknivél símans. Appið var notað til að senda „örugg“ skilaboð um skipu- lagða glæpi. Á yfirborðinu leit tækið út eins og venjulegur farsími en var í raun tæki sem glæpamenn notuðu fyrir samskipti sín á milli. Tækinu var dreift í „undirheimum“ og fyrst notað af háttsettum einstaklingum þar áður en aðrir fengu traust á því og fóru einnig að nota það. Fræðilega séð er síminn starfræktur á lokuðu neti, einungis þeir sem áttu slíka síma, eða „Anom“-síma eins og þeir voru kallaðir, gátu átt samskipti sín á milli. Að sögn lögregluyfirvalda sem tóku þátt í aðgerðinni var aðeins hægt að nálgast umrædda síma hjá öðrum glæpamönnum og símarnir voru eingöngu keyptir í þeim tilgangi að nota forritið Anom. Lögreglu- menn gátu þá lesið skilaboðin sem voru send í gegnum Anom í yfir 100 löndum, þar sem skipulagðir voru eit- urlyfjasamningar, vopnaflutningar og önnur skipulögð glæpastarfsemi. „Upplýsingarnar sem náðust með farsímaforritinu leiddu í ljós marg- víslega glæpastarfsemi á alþjóðavísu, með áhrifamiklum árangri aðgerða lögregluyfirvalda,“ sagði Jean-Phil- ippe Lecouffe, aðstoðarrekstrarstjóri hjá Europol. Þá hafa verið yfir 800 handtökur og ríflega 700 húsleitir verið framkvæmdar. Lögreglan hef- ur lagt hald á yfir 8 tonn af kókaíni, 22 tonn af kannabisefnum, 2 tonn af amfetamíni og 48 milljónir dollara af stolnu fé, andvirði um 5,8 milljarða króna. Aðgerðin virðist hafa verið afhjúp- uð í mars 2021 þegar bloggari greindi frá öryggisgöllum í forritinu og hélt því fram að það væri tengt við Ástr- alíu og Bandaríkin. Þeirri færslu var síðar eytt. Þessi umfangsmikla að- gerð er talin marka tímamót hjá lög- reglu í baráttunni við glæpagengi. AFP Europol Alríkislögreglustjóri Ástralíu, Jennifer Hurst, kynnir aðgerðina. Umfangsmikil aðgerð FBI - Lögregluyfirvöld í þremur heimsálfum tóku þátt - Yfir 800 handteknir - Dulkóðaðir farsímar Trójuskjöldurinn Heimildir: Ástralska alríkislögreglan/ Europol//VICE ANOM Dulkóðaðir símar sem veittu lögreglu leynilegan aðgang að smáskilaboðum Dreift á svörtummarkaði og kostuðu um 2 þúsund dali Hvorki tölvupóstur né símtöl Um 12.000 tækjum var dreift í yfir 100 löndum Flest tækin voru notuð í Ástralíu, á Spáni, í Þýskalandi og Hollandi Lögregla las um 20 milljón skilaboð frá glæpahópum Þriggja ára aðgerð undir stjórn FBI gegn skipulagðri glæpastarfsemi Buðu aðeins upp á skilaboða- tengingu við aðra ANOM-síma Hver sími krafðist aðgangskóða frá öðrum notanda Emmanuel Macron Frakklandsfor- seti var sleginn utan undir af áhorf- anda í ferð sinni til Suðaustur- Frakk- lands í gær. Myndir og myndskeið sem birtust á samfélagsmiðlum sýndu forsetann ganga að girðingu þar sem fjölmargt fólk stóð og beið eftir Mac- ron. Þar tók viðstaddur maður sig til og slæmdi hendi sinni í andlit forsetans, sem hugðist heilsa fólkinu. Lífverðir Macrons gripu fljótt inn í og voru tveir menn handteknir. Atvikið átti sér stað í þorpinu Tain-l’Hermitage á Drome-svæðinu og olli töluverðu upp- námi. Þá er atvikið einnig talið hafa skyggt á upphaf ferðar Macrons, sem hann sagði hannaða til að „auka púls- inn í landinu“. „Stjórnmál eiga aldrei að þýða of- beldi, hvorki munnlegt né líkamlegt,“ sagði Jean Castex forsætisráðherra í þinginu á þriðjudag og bætti við að „í gegnum forsetann hafi það verið lýð- ræðið sem miðað var á“. Macron hélt ferð sinni áfram eftir atvikið að sögn aðstoðarmanns hans, sem lýsti atvik- inu sem „tilraun til löðrungs“ þrátt fyrir að myndbandsupptökur bentu til að maðurinn hefði náð að snerta andlit forsetans. Í lok myndbands- upptöku sem náðist af atvikinu má heyra einhvern kalla: „Niður með Macronisma!“ Búist er við að Macron muni sækj- ast eftir öðru kjörtímabili í forseta- kosningunum á næsta ári og hafa kannanir sýnt fram á að hann hefur naumt forskot á leiðtoga hægri- manna, Marine Le Pen. Macron stefnir að því að heim- sækja tugi viðkomustaða vítt og breitt um Frakkland á næstu tveimur mánuðum, þar sem hann hefur sagst vilja hitta fólk aftur eftir langt hlé. Macron sleginn utan undir - Tveir handteknir vegna atviksins AFP Áfall Macron Frakklandsforseti hélt ferð sinni áfram eftir atvikið. Ríkisstjórn Búrkína Fasó tilkynnti í gær að rúmlega 7.000 fjölskyldur hefðu flúið blóðug fjöldamorð um helgina í þorpinu Solhan, sem er í norðurhluta landsins, en þar hefur uppreisn íslamskra aðskilnaðar- sinna geisað undanfarin sex ár. Eru fjöldamorðin nú þau mann- skæðustu frá upphafi uppreisnar- innar. Christophe Dabire forsætisráð- herra sagði í samtali við AFP- fréttastofuna að þegar hefðu verið gerðar ráðstafanir til að veita fólk- inu gistingu og mat og hét hann því að árásinni yrði svarað. Sögðu stjórnvöld í Búrkína Fasó að rúmlega 7.600 manns hefðu ver- ið fluttir til borgarinnar Sebba, höf- uðborgar Yagha-héraðs, eftir árás- ina á laugardaginn, en þau áætla að rúmlega 160 manns hafi látið líf- ið eftir að aðskilnaðarsinnar réðust inn í þorpið. Babar Baloch, tals- maður flóttamannahjálpar Samein- uðu þjóðanna sagði hins vegar að rúmlega 3.300 manns hefðu flúið árásina, þar af yfir 2.000 börn og yfir 500 konur. Ousseni Tambora fjarskipta- málaráðherra sagði að þorpið hefði tæmst af öllu fólki. Að sögn heim- ildarmanns AFP höfðu flestir þeirra sem yfirgáfu Solhan þegar flúið ofbeldi íslamista annars stað- ar. Þá höfðu árásarmenn brennt nánast allt; hús, markaði, skóla og lyfjabúðir. Verið er að byggja skýli og veita flóttafólkinu aðstoð en auka þarf fjármagn. Á flótta eftir fjöldamorð - Rúmlega 7.000 manns á flótta, þar af yfir 2.000 börn - Mannskæðasta fjöldamorð í Búrkína Fasó frá árinu 2015 AFP Harmleikur Um 7.600 manns eru á flótta eftir skæða árás um helgina. Garðatorg 6 | s. 551 5021 | www.aprilskor.is Musse & Cloud Monki 13.990 kr. Ný sending frá

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.