Morgunblaðið - 09.06.2021, Qupperneq 18
18 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. JÚNÍ 2021
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
.Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
.Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
.Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
.Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
.Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Fundir/Mannfagnaðir
Aðalfundur Kuldabola ehf., kt. 430285-0179,
Hafnarskeiði 12, 815 Þorlákshöfn, verður
haldinn miðvikudaginn 23. júní 2021
kl. 14:00 á kaffistofu félagsins.
Dagskrá
1. Stjórn félagsins skýrir frá hag félagsins og rekstri
þess á liðnu starfsári.
2. Staðfesting ársreiknings fyrir síðastliðið rekstrarár.
3. Kosning stjórnar félagsins.
4. Kosning endurskoðanda félagsins.
5. Ákvörðum um hvernig fara skal með hagnað eða
tap og um arð og framlög í varasjóð.
6. Ákvörðun um greiðslur til stjórnarmanna og
endurskoðenda fyrir störf þeirra á starfsárinu.
7. Heimild til stjórnar um kaup á eigin hlutum.
8. Umræður og atkvæðagreiðslur um önnur málefni
sem löglega eru upp borin.
Dagskrá, endanlegar tillögur, ársreikningur, skýrsla
stjórnar og skýrsla endurskoðanda verða hluthöfum til
sýnis í síðasta lagi sjö dögum fyrir aðalfund á skrifstofu
félagsins.
Afhending fundargagna fer fram að ósk skráðra hluthafa.
Vilji hluthafi koma dagskrárefni til umfjöllunar á aðalfundi
skal tilkynna stjórn félagsins skriflega um tillöguna eigi
síðar en sjö dögum fyrir aðalfund. Framboð til stjórnar
skal tilkynna skriflega eigi síðar en fimm dögum fyrir
dagsetningu aðalfundar.
Upplýsingar um frambjóðendur verða aðgengilegar
til skoðunar á skrifstofu félagsins tveimur dögum fyrir
aðalfund.
Þorlákshöfn, 8. júní 2021
Stjórn Kuldaboli ehf.
Hluthafafundur Síldarvinnslunnar hf.
Verður haldinn miðvikudaginn 30. júní 2021 í Safnahúsinu, Neskaupstað, kl. 14:00.
Fundurinn verður einnig haldinn með rafrænum hætti og verður hluthöfum þannig jafnframt boðið upp á fullgilda
rafræna þátttöku á fundinum í gegnum Lumi AGM án þess að hluthafar séu viðstaddir á fundarstað.
Dagskrá fundarins er með eftirfarandi hætti:
1. Stjórnarkjör
2. Önnur mál, löglega fram borin
Framboð til stjórnar:
Hluthöfum er bent á að skv. 63. gr. hlutafélagalaga skal tilkynna skriflega um framboð til stjórnar minnst fimm
dögum fyrir hluthafafund, eða í síðasta lagi fyrir kl. 16:00 þann 25. júní 2021. Framboðum skal skila á skrifstofu
Síldarvinnslunnar hf., Hafnarbraut 6 eða á netfangið fjarfestir@svn.is Tilkynnt verður um framkomin framboð
tveimur dögum fyrir hluthafafundinn.
Stjórnarkjör fer fram samkvæmt meirihlutakosningu á milli einstaklinga, nema réttmæt krafa um hlutfalls- eða
margfeldiskosningu komi fram frá hluthöfum er ráða minnst 1/10 hlutafjárins. Krafa þess efnis skal hafa borist stjórn
félagsins fyrir kl. 16:00 föstudaginn 25. júní 2021 á tölvupóstfangið fjarfestir@svn.is.
Nánari upplýsingar um fundarsókn og atkvæðagreiðslu:
Hægt verður að fylgjast með fundinum í gegnum vefstreymi auk þess sem hluthafar geta kosið rafrænt og borið
upp skriflegar spurningar í gegnum Lumi snjallforritið eða vefsíðu Lumi. Rafræn þátttaka jafngildir mætingu á fund-
inn og veitir rétt til þátttöku í honum að öðru leyti. Allir hluthafar, hvort sem þeir mæta til fundarins í Safnahúsinu eða
taka þátt með rafrænum hætti, eru hvattir til að hlaða niður smáforriti Lumi AGM í eigin snjalltæki, en jafnframt geta
þeir greitt atkvæði í gegnum vefslóð Lumi AGM eða á fundinum sjálfum.
Aðilar sem eru eignaskráðir hluthafar í hlutaskrá skv. hluthafakerfi félagsins þegar aðalfundur fer fram geta beitt
réttindum sínum á aðalfundi. Uppgjör viðskipta hjá Nasdaq verðbréfamiðstöð fer fram tveimur dögum eftir viðskiptin
og því er mælst til þess að síðasti viðskiptadagur sé þann 25. júní, vilji hluthafi beita réttindum sínum á fundinum.
Hluthafar geta látið umboðsmann sækja fundinn fyrir sína hönd. Umboðsmaður skal leggja fram skriflegt og dagsett
umboð, en form að umboði er aðgengilegt á vefsíðu félagsins. Tekið skal fram að umboð getur aldrei gilt lengur en í
eitt ár frá dagsetningu þess.
Hluthafar eða umboðsmenn hluthafa sem hafa hug á því að sækja fundinn, hvort sem er rafrænt eða á staðnum,
eru beðnir um að skrá sig tímanlega á vefsíðunni www.smartagm.com og eigi síðar en kl. 16.00 þann 29. júní,
eða degi fyrir fundardag. Með innskráningu þarf að fylgja mynd af skilríkjum og umboð, ef við á. Á hluthafafundum
fylgir eitt atkvæði hverri einni krónu í hlutafé. Eigin bréf félagsins njóta ekki atkvæðisréttar.
Hluthafar eiga rétt á að fá mál sett á dagskrá fundarins og leggja fram ályktunartillögur ef gerð hefur verið skrifleg
eða rafræn krafa um það eigi síðar en 10 dögum fyrir fund, þ.e. fyrir kl. 16:00 þann 20. júní 2021. Slík erindi
skulu send á tölvupóstfangið fjarfestir@svn.is og munu þau verða birt á vefsíðu félagsins. Hafi hluthafi krafist þess
að fá mál tekið til meðferðar á fundinum eða lagt fram ályktunartillögu fyrir þann tíma verður endanleg dagskrá og
tillögur uppfærðar á vefsíðu félagsins eigi síðar en þremur dögum fyrir fundinn. Mál sem ekki hafa verið tilgreind í
dagskrá hluthafafundar er ekki unnt að taka til endanlegrar úrlausnar á fundinum nema með samþykki allra hluthafa
félagsins.
Allar nánari upplýsingar um hluthafafundinn má finna á vefsíðu félagsins https://svn.is/fjarfestar/
Stjórn Síldarvinnslunnar hf.
Félagsstarf eldri borgara
Árskógar Smíðastofa með leiðb. kl. 9-14. Opin vinnustofa kl. 9 - 12.
Námskeið í skyndihjálp kl. 9.30. Bónusbíllinn, fer frá Árskógum 6-8
kl. 12.55. Dansleikfimi kl. 13.30. Hádegismatur kl. 11.40-12.50. Kaffisala
kl. 14:30-15.30. Heitt á könnunni, Allir velkomnir.
Grímuskylda og það þarf að skrá sig í viðburði eða hópa: 411-2600.
Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Kaffisopi og spjall kl. 8:10-11:00.
Opin Listasmiðja kl. 9-12. Línudans kl. 10:00-11:00. Hádegismatur kl.
11:30-12:30. Opin Listasmiðja kl. 13-15:30. Síðdegiskaffi kl.14:30-15:30.
Garðabæ Hægt er að panta hádegismat með dagsfyrirvara. Meðlæti
með síðdegiskaffinu er selt frá 13:45 -15:15. Poolhópur í Jónshúsi kl.
9:00. Gönguhópur fer frá Jónshúsi kl. 10:00. Gönguhópur fer frá Smiðju
kl. 13:00. Stólajóga í Jónshúsi kl. 11:00. Bridge í Jónshúsi kl. 13:00.
Korpúlfar Útvarpsleikfimi kl. 9:45 í Borgum. Gönguhópar Korpúlfa
leggja af stað í göngu frá Borgum kl. 10:00 þrír styrkleikahópar. Hádegis-
verður 11:30 til 12:30. Félagsvist hefst á ný kl. 13:00 í dag allir velkomnir
og spilað verður alla miðvikudaga í sumar. Kaffiveitingar 14:30 til 15:30.
Seltjarnarnes Nú er sumardagskráin í undirbúningi. Hvetjum ykkur
til að fylgjast með bæði hér og á facebook síðunni eldri borgarar á
Seltjarnarnesi. Kaffikrókurinn á Skólabraut er opinn alla morgna frá
kl. 9. Í dag kl. 10.00 verður botsía í salnum á Skólabraut.
Skráningarblöð liggja frammi í ferðina í Grasagarðinn og ferðina á
Langjökul. Einnig er skráning og allar upp. í síma 8939800.
með
morgun-
!$#"nu
Smá- og raðauglýsingar
sem þeim datt í hug hjá langafa.
Að verki loknu bauð afi upp á ný-
mjólk og kex á kaffistofunni og
naut þess að spjalla um daginn og
veginn. Á okkar yngri árum báðu
foreldrar okkar afa oft um að líta
til með unglingunum sem voru
einir heima þegar þau skruppu út
úr bænum. Þá stóð það eins og
stafur á bók að afi hringdi dyra-
bjöllunni á hverjum einasta degi,
okkur til mismikillar gleði, og oft-
ar en ekki fylgdi í kjölfarið dýrind-
isboð á Múlakaffi þar sem afa
fannst vera borinn fram alvöru-
matur. Afi fylgdist vel með öllu
sem á daga okkar dreif og var af-
bragðsfréttaveita fyrir önnum
kafið nútímafólk um líf og störf
annarra í fjölskyldunni. Hann var
gríðarlega stoltur af sínu fólki og
þá sérstaklega langafabörnunum.
Afi var mikil veiðikló og undi sér
best fyrir norðan í Laxárdalnum
þar sem hann sagði að huldufólkið
hvíslaði að sér hvar bestu veiði-
staðina væri að finna. Hann var
listasmiður og við barnabörnin er-
um svo heppin að eiga marga fal-
lega muni sem hann smíðaði, eins
og stóla, skákborð, náttborð og
barnahúsgögn, sem við munum
varðveita til minningar um hann.
Afi Svanur fór á verkstæðið allt
fram til síðasta dags og erfitt að
sjá hann fyrir sér án þess að vera
með sag í fötunum og bæsi undir
nöglunum. Nýlega lagði læknirinn
til að hann hætti að fara þangað.
Þær fregnir hafa eflaust reynst
honum þungbærar enda smíðarn-
ar og sá félagsskapur sem þeim
fylgdi órjúfanlegur þáttur í hans
lífi. Okkur finnst ekki ólíklegt að
þá hafi afa fundist lífið hafa runnið
sitt skeið og verið tilbúinn til að
kveðja. Hvíldu í friði elsku afi
Svanur.
Þín barnabörn,
Áslaug, Björg og Páll Ásgeir.
Afi Svanur var besti afi í heimi
af því að hann gaf okkur alltaf
nammi, ís, kex og fór í bakaríið og
keypti sykursnúða og kókómjólk.
Við gátum lesið fyrir hann og
hann kenndi mér að lesa erfið orð.
Mér fannst líka gaman þegar afi
sagði mér að ég væri dýravinur,
því afi var það líka. Honum fannst
hamsturinn Trítli nr. 5. vera skrít-
ið dýr. Afi átti stundum sag fyrir
hann. Afi Svanur var ánægður
þegar ég fór á hestbak og sagði að
ég og Jói ættum að fara á hest-
anámskeið. Svo var hann líka
glaður því ég er að byrja á smíða-
námskeiði til þess að læra að
smíða. Ég get ekki sýnt honum
kofann sem ég ætla að smíða.
Ég mun sakna afa Svans.
Guð passar hann.
Kveðja,
Kristján Daníel.
Ég mun sakna afa.
Ég, mamma og Kristján bróðir
minn fórum mjög oft til afa Svans í
heimsókn þegar hann hætti að
geta komið í mat. Hjá afa var allt-
af til fullt af góðgæti sem hann
bauð okkur upp á.
Afi var alltaf mjög áhugasamur
um okkur systkinin og við lærðum
oft fyrir og með honum. Stundum
svæfði ég afa með lestrinum mín-
um. Honum þótti svo notalegt að
hlusta á mig. Seinasta bókin sem
við lásum saman var Robinson
Krúsó sem afi keypti sér sem ung-
ur maður. Hann gaf mér svo bók-
ina og ég mun lesa hana fyrir
börnin mín, eða kannski börnin
mín fyrir afa sinn og ömmu. Afi
bauð mér líka oft þegar ég var
yngri að smíða með sér á verk-
stæðinu og það þótti mér gaman.
Við afi vorum mjög náin og hann
ætlaði að koma í ferminguna
mína. Hann var að reyna að ná
heilsu svo hann gæti komið í kirkj-
una og vildi gefa mér fyrir kjóln-
um. Það var svona ekta afi að
fylgjast með öllu, spá í hvort hann
ætti sálmabók fyrir mig og svona.
Afi var alltaf að hrósa mér og var
svo stoltur af skólagöngunni
minni og hjá okkur krökkunum
öllum. Hann var ánægður hvað
öllum gekk vel, en hann var líka
orðinn þreyttur.
Einu sinni prentaði ég út og
rammaði inn textann: „Guð getur
ekki verið alls staðar og þess
vegna skapaði hann afa minn“ og
gaf honum í gjöf. Mér fannst text-
inn eiga svo vel við afa því hann
var alltaf að passa upp á okkur.
Ég veit að hann er hjá Guði
núna, en hann afi Svanur verður
alltaf hjá mér, bróður mínum,
Pjakki, Jóa, Melkorku, Björk Von
og öllum hinum krökkunum sín-
um. Hann elskaði okkur krakkana
alla mjög mikið, eins og við hann.
Ég og Kristján ætlum að passa
Pjakk fyrir hann.
Elska þig, afi minn, meir enn
þig grunaði. Þú átt alltaf stóran
stað í hjarta mínu.
Kveðja,
Viktoría.
Laugardag einn fyrir rúmum
þremur áratugum stóð Svanur
inni á eldhúsgólfi hjá okkur hjón-
um og spurði: Hvenær eigum við
að byrja? Við erum tilbúin, sögð-
um við. Þá kem ég á mánudaginn!
Við það stóð hann og næstu sjö
vikur mætti hann alla daga vik-
unnar rétt fyrir klukkan átta og
fór ekki fyrr en tími var til að
tygja sig í kvöldmat. Einn daginn
mætti hann ekki – varð fimmtug-
ur og bauð okkur í afmæliskaffi.
Vináttu okkar Svans má rekja til
þessara daga þegar hann tók að
sér að gera upp gamalt timburhús
sem við bjuggum í. Þvílíkur hval-
reki sem hann var fyrir okkur blá-
eyga húseigendur sem ætluðu að
gera upp húsið, sem sannarlega
þurfti á andlitslyftingu að halda.
Svanur fór ekki frá verkinu fyrr
en síðasti naglinn var kominn á
sinn stað. Aldrei lét hann hugfall-
ast þótt verkið væri nokkuð flókið
og handtökin óteljandi. Fyrir það
er ég honum eilíflega þakklátur.
Húsið fékk síðar viðurkenningu
Reykjavíkurborgar fyrir vel
heppnaðar endurbætur. Það sem
stendur upp úr er að ég hafði eign-
ast vin sem átti eftir að reynast
mér vel allt fram á síðasta dag.
Vin sem sá um að sporjárnin mín
og heflar bitu. Velunnara sem gaf
góð ráð þegar ég réðst í að byggja
hús úti á landi, félaga sem smíðaði
hurðir og glugga, lánaði verkfæri
og kenndi mér að nota þau. Svan-
ur var traustur, vandvirkur og
þolinmóður. Stundum dálítið ön-
ugur og hvass en ég lærði fljótt að
taka það ekki alvarlega.
Nú er hann farinn og ekki leng-
ur hægt að leita ráða og ræða
brýn þjóðfélagsmál. Ekki lengur
hægt að sníkja afganga í eldinn.
Eftir situr minning um vináttu
sem mun lifa um ókomna tíð.
Svanur skilur eftir sig flugbeitta
arfleifð sem skipti sköpum fyrir
mig og mína.
Sævar Guðbjörnsson.
Þorsteinn Svanur
Jónsson
- Fleiri minningargreinar
um Þorstein Svan Jóns-
son bíða birtingar og munu
birtast í blaðinu næstu daga.
HINSTA KVEÐJA
Gulli og perlum að safna sér
sumir endalaust reyna.
Vita ekki að vináttan er
verðmætust eðalsteina.
Gull á ég ekki að gefa þér
og gimsteina ekki neina.
En viltu muna að vináttan er
verðmætust eðalsteina.
(Hjálmar Freysteinsson)
Hvíldu í friði elsku klett-
ur, elsku afi og elsku hjart-
ans vinur minn.
Þín
Kolfinna Von.