Morgunblaðið - 09.06.2021, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 09.06.2021, Blaðsíða 22
22 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. JÚNÍ 2021 Vináttulandsleikir karla Pólland – Ísland........................................ 2:2 Ungverjaland – Írland ............................. 0:0 Tékkland – Albanía .................................. 3:1 Frakkland – Búlgaría .............................. 3:0 Vináttulandsleikur kvenna Hvíta-Rússland – Íran ............................. 6:0 >;(//24)3;( Úrslitakeppni karla Undanúrslit, fyrri leikir: ÍBV – Valur........................................... 25:28 Stjarnan – Haukar ............................... 23:28 _ Seinni leikir á föstudag, sigurvegari sam- anlagt fer í úrslitaeinvígið. Danmörk Annar úrslitaleikur: Bjerringbro/Silkeborg – Aalborg .... 30:29 - Arnór Atlason er aðstoðarþjálfari Aal- borg. _ Staðan er 1:1 og liðin mætast í oddaleik um titilinn í Álaborg 16. júní. Þýskaland Magdeburg – Kiel................................ 34:33 - Ómar Ingi Magnússon skoraði átta mörk fyrir Magdeburg en Gísli Þorgeir Krist- jánsson er frá keppni. _ Efstu lið: Flensburg 60, Kiel 59, Magde- burg 46, RN Löwen 43, Füchse Berlín 42, Melsungen 38, Göppingen 38. E(;R&:=/D Umspil karla Þriðji úrslitaleikur: Hamar – Vestri ..................................... 85:94 _ Staðan er 2:1 fyrir Vestra og fjórði leikur á Ísafirði á föstudagskvöld. Spánn Undanúrslit, annar leikur: Valencia – Real Madrid ...................... 85:67 - Martin Hermannsson skoraði níu stig, átti fimm stoðsendingar og tók eitt frákast fyrir Valencia á 19 mínútum. _ Staðan er 1:1 og liðin mætast í oddaleik í Madríd á fimmtudagskvöldið. Úrslitakeppni NBA Austurdeild, undanúrslit. Brooklyn – Milwaukee ....................... 125:86 _ Staðan er 2:0 fyrir Brooklyn. Vesturdeild, undanúrslit: Phoenix – Denver ............................. 122:105 _ Staðan er 1:0 fyrir Phoenix. >73G,&:=/D Ómar Ingi Magn- ússon er kominn af alvöru í bar- áttuna um markakóngs- titilinn í þýsku 1. deildinni í hand- knattleik eftir að hann skoraði átta mörk í sigri Magdeburg á stórliði Kiel í gærkvöld, 34:33. Ómar Ingi hefur raðað inn mörk- um fyrir Magdeburg á undan- förnum vikum og er nú kominn með 234 mörk í öðru sæti listans yfir markahæstu menn. Marcel Schiller hjá Göppingen hefur skorað 240 mörk en þeir tveir skera sig nú úr í deildinni. Fimm umferðum er ólok- ið. Magdeburg gerði jafnframt Kiel mikla skráveifu með sigrinum en hann þýðir að Kiel náði ekki að fara uppfyrir Flensburg í einvígi lið- anna um þýska meistaratitilinn. Magdeburg styrkti hinsvegar stöðu sína í þriðja sætinu. vs@mbl.is Ómar berst um marka- kóngstitilinn Ómar Ingi Magnússon KÖRFUKNATTLEIKUR Undanúrslit karla, fjórði leikur: MG-höllin: Stjarnan – Þór Þ. (1:2) ...... 20.15 Umspil kvenna, fjórði úrslitaleikur: HS Orkuhöll: Grindav. – Njarðv. (1:2) 19.15 KNATTSPYRNA 3. deild karla: Vopnafjörður: Einherji – Dalvík/Reynir. 19 Í KVÖLD! LANDSLEIKUR Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Karlalandsliðið í fótbolta lauk vin- áttuleikjatörninni með óvæntu jafn- tefli gegn Pólverjum í Poznan í gær, 2:2, í leik þar sem litlu munaði að Ís- landi tækist að vinna frækinn sigur á útivelli gegn liði sem er á leiðinni í lokakeppni EM. Albert Guðmundsson kom Íslandi yfir á 24. mínútu eftir hornspyrnu Guðmundar Þórarinssonar þar sem Aron Einar Gunnarsson fleytti bolt- anum áfram inn í markteiginn. Piotr Zelinzki jafnaði fyrir Pólverja á 34. mínútu eftir laglega sókn. Brynjar Ingi Bjarnason skoraði sitt fyrsta landsliðsmark á 47. mín- útu og kom Íslandi í 2:1 með hörku- skoti úr miðjum vítateig eftir send- ingu Guðmundar frá vinstri, sem Birkir Bjarnason fleytti áfrram. Það var svo Karol Swiderski sem náði að jafna fyrir Pólverja á 88. mínútu og tryggja jafnteflið, 2:2. Fjarvera fjölda af reyndustu landsliðsmönnum Íslands í þessu þriggja leikja verkefni, ekki síst varnarmanna, virtist vera uppskrift að stórum ósigrum, allavega gegn Mexíkó og Póllandi. Fimmtán leik- menn sem voru í landsliðshópnum í mars eða misstu af því verkefni vegna meiðsla voru fjarri góðu gamni. En það var öðru nær. Frammistaða miðvarðanna Hjartar Hermannssonar og nýliðans Brynj- ars Inga Bjarnasonar í leikjunum þremur er eitt af því sem stendur upp úr að þeim loknum. Hjörtur hef- ur lengi verið viðloðandi landsliðið án þess að fá tækifæri í sinni stöðu sem miðvörður og óhætt er að segja að hann hafi nýtt það til hins ýtrasta í ferðinni. Byrjun Brynjars með landsliðinu er ævintýri líkust og hann kórónaði frammistöðuna í þessum þremur leikjum með glæsi- legu marki í leiknum í Poznan í gær. Aron Einar Gunnarsson og Birkir Bjarnason hafa í þessari ferð staðið upp úr sem leiðtogar í íslenska liðinu og virðast vera að stíga fram sem þeir tveir leikmenn sem geta tengt saman tvær kynslóðir í landsliðinu. Vonandi með dyggri aðstoð Gylfa Þórs Sigurðssonar frá og með haust- inu. Birkir lék allan leikinn í gær og Aron Einar fram á 87. mínútu. Kannski dæmigert að Ísland skyldi fá á sig jöfnunarmarkið einni mínútu eftir að hann fór af velli! Guðmundur Þórarinsson, sem leikur með New York City í banda- rísku MLS-deildinni, hefur lítið fengið að spreyta sig með landslið- inu á undanförnum árum en hann lét vita af sér í Poznan. Hann stóð sig vel í stöðu vinstri bakvarðar og átti stóran þátt í báðum mörkum Ís- lands, enda spyrnumaður góður sem nýtist vel í föstum leikatriðum, og átti auk þess úrvalsfyrirgjöf þegar Brynjar Ingi skoraði. Þá sýndi Andri Fannar Baldurs- son lofandi tilþrif á miðjunni. Hann og Ísak B. Jóhannesson, sem ekki kom við sögu í gær, eru fæddir 2002 og 2003 en virðast algjörlega tilbúnir í átökin á stóra sviðinu. Arnar Þór Viðarsson landsliðs- þjálfari er með breiðari leikmanna- hóp til umráða eftir þessa þriggja leikja ferð en fyrir hana. Svo mikið er víst. Kynslóðaskiptin margumtöl- uðu eru farin af stað. Þau snúast um að ná upp réttu blöndunni af eldri og yngri leikmönnum. _ Birkir Bjarnason lék sinn 98. landsleik og jafnaði við Birki Má Sævarsson í öðru til þriðja sæti yfir þá landsleikjahæstu frá upphafi. _ Aron Einar Gunnarsson lék 97. landsleikinn og er nú jafn Ragnari Sigurðssyni í fjórða til fimmta sæti. _ Jón Daði Böðvarsson lék sinn 60. landsleik og Kolbeinn Þórðar- son, leikmaður Lommel í Belgíu, kom inn á í sínum fyrsta A-landsleik. Landsleikjatörn sem tengir saman kynslóðir - Góð frammistaða í Poznan og Ísland nálægt sigri en Pólland jafnaði, 2:2 AFP Poznan Nýliðinn Brynjar Ingi Bjarnason og fyrirliðinn Aron Einar Gunn- arsson í baráttu við Pólverjann Jakub Swierczok í leiknum í gær. Poznan, vináttulandsleikur karla, þriðjudag 8. júní 2021. Pólland: (4-4-2) Mark: Wojciech Szczesny. Vörn: Tomasz Kedziora, Kamil Glik, Pawel Dawidowicz, Tymo- teusz Puchacz (Maciej Rybus 80). Miðja: Przemyslaw Frankowski (Przemyslaw Placheta 64), Jakub Moder, Grzegorz Krychowiak (Karol Linetty 64), Piotr Zielinski (Kacper Kozlowski 46). Sókn: Robert Lew- andowski (Karol Swiderski 80), Ja- kub Swierczok (Kamil Józwiak 57). Ísland: (4-4-2) Mark: Rúnar Alex Rúnarsson ( Ögmundur Kristinsson PÓLLAND – ÍSLAND 2:2 46). Vörn: Alfons Sampsted, Hjörtur Hermannsson, Brynjar Ingi Bjarna- son, Guðmundur Þórarinsson. Miðja: Mikael Anderson (Gísli Eyj- ólfsson 74), Aron Einar Gunnarsson (Kolbeinn Þórðarson 87), Andri Fannar Baldursson ( Stefán Teitur Þórðarson 77), Birkir Bjarnason. Sókn: Jón Daði Böðvarsson (Sveinn Aron Guðjohnsen 83), Albert Guð- mundsson (Jón Dagur Þorsteinsson 90). Dómari: Balázs Berke, Ungverja- landi. Áhorfendur: 21.400. HANDBOLTINN Jóhann Ingi Hafþórsson johanningi@mbl.is Deildarmeistarar Hauka standa vel að vígi í einvígi sínu gegn Stjörnunni í undanúrslitum Íslandsmóts karla í handbolta eftir 28:23-útisigur í fyrri leik liðanna í Garðabænum í gær- kvöldi. Stjarnan komst í 4:1 snemma leiks en eftir það náðu Haukar undirtök- unum, komust í 8:6, og héldu foryst- unni út allan leikinn. Stjarnan átti fín áhlaup gegn sterku Haukaliði en að lokum voru gestirnir einfaldlega of góðir. Sigurinn er sá fimmtándi í röð hjá Haukum í öllum keppnum og ólíklegt að Stjarnan nái að snúa ein- víginu sér í vil á heimavelli Hauk- anna. Geir Guðmundsson og Darri Aronsson voru markahæstir í jöfnu Haukaliði með fjögur mörk hvor og Björgvin Páll Gústavsson varði þrettán skot í markinu, þar af tvö víti. Björgvin Hólmgeirsson var langmarkahæstur hjá Stjörnunni með tíu mörk. „Þrátt fyrir að Stjörnumenn hafi velgt Haukum vel undir uggum virð- ast deildarmeistararnir alltaf finna leiðir til þess að koma sér í forystu að nýju. Liðið býr enda svo vel að vera með gífurlega sterkan leikmanna- hóp; ef einhverjir leikmanna þess finna ekki taktinn er hægt að leita til varamannabekkjarins án þess að það missi taktinn og fæst því alltaf fram- lag frá nógu mörgum leikmönnum til að Haukaliðið sé ofan á að leiks- lokum,“ skrifaði Gunnar Egill Daní- elsson m.a. í umfjöllun um leikinn á mbl.is. Anton fór á kostum Valur er í fínum málum eftir þriggja marka sigur á ÍBV í Vest- mannaeyjum, 28:25. Staðan í hálfleik var jöfn, 14:14, en Valsmenn voru sterkari í seinni hálfleik og unnu að lokum verðskuldaðan sigur. Valur náði mest fimm marka forskoti í seinni hálfleik, en Eyjamenn neituðu að gefast upp. Þeim tókst hins vegar ekki að jafna, þrátt fyrir fín áhlaup. Anton Rúnarsson var markahæstur hjá Val með 10 mörk og Hákon Daði Styrmisson skoraði sjö fyrir ÍBV. Martin Nagy varði 15 skot í marki Vals. Seinni leikur liðanna fer fram í Origo-höllinni á Hlíðarenda næst- komandi föstudagskvöld. „Anton Rúnarsson lék ótrúlega vel með Valsmönnum, skoraði tíu mörk og lagði upp nokkur til viðbótar og var leiðtogi sinna manna. Þegar mest var undir og stemningin rafmögnuð í Vestmannaeyjum hélt Anton ró sinni og dró sína menn að landi. Hann full- komnaði góðan leik með mögnuðu marki í síðustu sókninni. Þetta er þó alls ekki búið. ÍBV er svo sannarlega eitt af fáum liðum landsins sem geta mætt á útivöll Valsmanna og unnið stóran sigur. Valur þarf að vera með kveikt á öll- um perum til að fara áfram, þótt staðan sé vissulega góð,“ skrifaði undirritaður m.a. um leikinn á mbl.is. Seinni leikir einvígjanna fara fram á föstudaginn kemur. Þau lið sem vinna samanlagt í tveimur leikjum mætast í úrslitum. Valur og Hauk- ar í kjörstöðu - Lið sr. Friðriks fögnuðu útisigrum Morgunblaðið/Eggert Harka Haukamaðurinn Ólafur Ægir Ólafsson í kröppum dansi í gær.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.