Morgunblaðið - 09.06.2021, Page 24
24 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. JÚNÍ 2021
„Ég bjóst alls ekki við að verða fyrir
valinu þar sem ég var í góðum hópi
öflugra höfunda. Ég er hins vegar
mjög þakklát, enda er þetta mikill
heiður,“ segir Halla Þórlaug Óskars-
dóttir sem í gær hlaut Maístjörnuna
2020, ljóðabókaverðlaun Rithöf-
undasambands Íslands og Lands-
bókasafns Íslands – Háskólabóka-
safns, fyrir bók sína Þagnarbindindi.
Hlaut hún að launum 350 þús. kr.
Auk Þagnarbindindis voru til-
nefndar bækurnar Taugaboð á
háspennulínu eftir Arndísi Lóu
Magnúsdóttur; Draumstol eftir
Gyrði Elíasson; Kyrralífsmyndir
eftir Lindu Vilhjálmsdóttur og 1900
og eitthvað eftir Ragnheiði Lárus-
dóttur. Gjaldgengar voru allar út-
gefnar íslenskar ljóðabækur ársins
2020 sem skilað var í skylduskil til
Landsbókasafns Íslands – Háskóla-
bókasafns. Maístjarnan hefur verið
veitt árlega síðan 2017.
Hugleiðingar tosaðar upp
úr undirmeðvitundinni
Dómnefnd ársins skipuðu Sverrir
Norland og María Logn Kristínar-
dóttir Ólafsdóttir. Í umsögn þeirra
um verðlaunabókina segir: „Þagnar-
bindindi er áhrifarík ljóðsaga sem
sver sig í ætt við ýmis eftirtektar-
verð verk frá síðasta áratug, jafnt
innlend sem erlend, þar sem konur
skrifa á hugdjarfan og hispurslausan
hátt um sára og erfiða reynslu. Hér
tekst skáldið meðal annars á við ást-
arsorg, móðurmissi og móðurhlut-
verkið og nær að draga upp marg-
ræða mynd af reynsluheimi ungrar
konu sem er að stíga inn í fullorðins-
árin og takast á við áföll og sam-
skiptaerfiðleika. Útkoman er eftir-
minnileg bók sem sker sig úr, þökk
sé eftirminnilegu myndmáli, óvenju-
legri byggingu og frumlegum texta
sem rambar á mörkum dagbókar-
skrifa, brotakenndrar frásagnar,
ljóðtexta og ritgerðar.“
Halla Þórlaug segir það sér mikla
hvatningu að hljóta Maístjörnuna.
„Þetta er gott klapp á bakið og
hvatning til áframhaldandi rit-
starfa,“ segir Halla Þórlaug og tekur
fram að sér þyki einnig vænt um öll
þau jákvæðu skilaboð sem hún hafi
fengið frá lesendum bókarinnar.
„Það er ótrúlega dýrmætt að fá
viðbrögð frá lesendum,“ segir Halla
Þórlaug og rifjar upp að Þagnar-
bindindi hafi verið lengi í smíðum á
sínum tíma. „Lengi vel var textinn á
kantinum eins og skissubók þar sem
ég hripaði niður hugleiðingar mínar
á löngum tíma. Ég tosaði upp hug-
leiðingar úr undirmeðvitundinni,
sem við fyrstu sýn virtust hjákátleg-
ar og ómerkilegar einar og sér, en
mynduðu samhengi í heild. Bókin fór
í raun ekki að taka á sig mynd fyrr
en ég setti allan textann í eitt Google
doc-skjal,“ segir Halla Þórlaug sem
þegar er farin að leggja drög að
næsta verki. „Ég er sífellt að hripa
hjá mér hugleiðingar sem vonandi
verða að einhverju stærra,“ segir
Halla Þórlaug og tekur fram að of
snemmt sé að segja til um það í
hvaða form textinn ratar, en reiknar
þó með bók en ekki sviðsverki.
Halla Þórlaug lauk BA-prófi úr
myndlist við Listaháskóla Íslands
2012 og MA-prófi úr ritlist við
Háskóla Íslands árið 2014. Hún hef-
ur starfað sem dagskrárgerðar-
maður á Rás 1. Fyrir ljóðsögu sína
Þagnarbindindi hlaut Halla nýrækt-
arstyrk Miðstöðvar íslenskra bók-
mennta árið 2020. Halla Þórlaug
hefur samið verk fyrir leiksvið og
útvarp; Ertu hér? í samvinnu við
Ásrúnu Magnúsdóttur, sviðsverk á
dagskrá Borgarleikhússins 2021.
Hún pabbi, í samvinnu við Trigger
Warning, sviðsverk sýnt í Borgar-
leikhúsinu 2017 og Svefngrímur,
útvarpsleikrit flutt 2016 á Rás 1.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Heiður „Ég er mjög þakklát, enda er þetta mikill heiður,“ segir Halla Þór-
laug Óskarsdóttir sem í gær hlaut Maístjörnuna 2020 fyrir Þagnarbindindi.
„Dýrmætt að fá við-
brögð frá lesendum“
- Halla Þórlaug Óskarsdóttir hlýtur Maístjörnuna 2020
Kvikmyndin Skuggahverfið,
Shadowtown á ensku, er nú loksins
komin í bíó eftir endurteknar frest-
anir vegna heimsfaraldursins. Hún
er samvinnuverkefni leikstjóranna
Jóns Einarson Gústafssonar og
Karolinu Lewicka og fyrsta kvik-
myndin í fullri lengd sem þau vinna
að saman.
Meðal leikara í myndinni er hinn
þekkti John Rhys-Davies sem fór
m.a. með hlutverk í kvikmyndunum
um Hringadróttinssögu og Indiana
Jones-myndunum Raiders of the
Lost Ark og Temple of Doom. Aðal-
leikkona myndarinnar, Brittany
Bristow, er af vesturíslenskum ætt-
um og er sagan skrifuð í kringum
hennar persónu. Af íslenskum leik-
urum má nefna Eddu Björgvins-
dóttur, Ingu Maríu Eyjólfsdóttur og
Rúnar Frey Gíslason.
Skuggahverfið er dramatísk
mynd með hrollvekjandi ívafi og
sögusviðið Skuggahverfið í Reykja-
vík þegar húsnæðisbólan var í há-
marki og auð hús voru látin standa
opin fyrir þeim sem engan sama-
stað áttu og voru látin grotna nið-
ur. „Ung kona erfir hús ömmu sinn-
ar sem hún hitti aldrei, í borg sem
hún hefur aldrei séð. Í trássi við
vilja móður sinnar leggur hún í
ferðalag til að ná skilningi á sárs-
auka fortíðarinnar, en með þeirri
ákvörðun veldur hún uppnámi og
róti sem hún kemst ekki lifandi frá
nema með aðstoð látinna forfeðra
og -mæðra,“ segir um myndina á
Kvikmyndavefnum.
Myndin var frumsýnd á Alþjóð-
legri kvikmyndahátíð í Reykjavík í
fyrra og hefjast almennar sýningar
á henni í dag.
Skuggalegur John Rhys-Davies
brúnaþungur í Skuggahverfinu.
Sýningar hefjast
á Skuggahverfinu
Þorgerður Ingólfsdóttir kórstjóri
og Víkingur Heiðar Ólafsson píanó-
leikari eru tilnefnd fyrir Íslands
hönd til Tónlistarverðlauna Norð-
urlandaráðs. Þrettán listamenn og
hópar eru tilnefndir í heildina og
þykja hafa skapað einstakar tón-
listarupplifanir. Segir á vef nor-
ræns samstarfs, norden.org, að í
hópi hinna tilnefndu í ár séu meðal
annars söngvarar, þjóðlagatónlist-
arkona, trompetleikari, píanóleik-
ari, fjölhljóðfæraleikari og plötu-
snúðahópur og verðlaununum sé
ætlað að vekja athygli á tónlist-
arsköpun og tónlistarflutningi sem
teljist hafa mikið listrænt gildi.
Fyrir hönd Danmerkur eru tilefnd
Jakob Kullberg og Theatre of Voi-
ces, fyrir Finnland Finnland Anu
Komsi og Verneri Pohjola, fyrir
Færeyjar Eivør Pálsdóttir, fyrir
Grænland Gerth W. Lyberth, fyrir
Noreg Stian Carstensen og Lise
Davidsen, fyrir Svíþjóð Studio
Barnhus og Lena Willemark og
fyrir Álandseyjar Peter Häger-
strand.
Dómnefndir skipaðar fulltrúum
frá löndunum sáu um tilnefningar
og verða verðlaunin veitt 2. nóv-
ember. Verðlaunahafinn hlýtur
verðlaunagripinn Norðurljós og
300 þúsund danskar krónur.
Þorgerður
Ingólfsdóttir
Víkingur Heiðar
Ólafsson
Tilnefnd til Tón-
listarverðlauna
Norðurlandaráðs
Sýningar útskriftarnema á sviðs-
höfundabraut sviðslistadeildar
Listaháskóla Íslands verða sýndar
frá og með deginum í dag, 9. júní,
til 20. júní. Átta nemendur útskrif-
ast og spanna verkefni þeirra vítt
svið sviðslista og taka á fjöl-
breyttum málefnum, allt frá sjálfs-
ævisögulegri leikritun og biðstöðu
yfir í afleiðingar ofbeldis og kúg-
unar og leitar að manni sem spilar
á banjó, að því er segir á vef skól-
ans. Fjórir útskrifast með áherslu á
leikritun í samstarfi við Borgarleik-
húsið og markmiðið að efla nýsköp-
un í leikritun en öll eiga verkefnin
sameiginlegt að nálgast sviðslista-
miðilinn á tilraunakenndan og
gagnrýninn hátt með forvitni að
vopni, eins og því er lýst.
Útskriftarnemar eru Annalísa
Hermannsdóttir, Brynhildur Sig-
urðardóttir, Hákon Örn Helgason,
Assa Borg Snævarr Þórðardóttir,
Kolbrún Dögg Kristjánsdóttir,
Tumi Björnsson, Monika Kiburyte
og Hjalti Vigfússon. Frítt er inn á
sýningar og fara bókanir fram á
tix.is. Dagskrá má finna á slóðinni
lhi.is/vidburdur/utskriftarverk-
efni-svidshofunda-2021.
Útskriftarverk af
sviðshöfundabraut
Sviðshöfundar Útskriftarnemend-
urnir átta sem sýna verk sín.