Morgunblaðið - 03.07.2021, Qupperneq 4
4 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. JÚLÍ 2021
Dalmatíuströndin í Króatíu
sp
ör
eh
f.
Haust 5
Glæsileg ferð um töfrandi svæðið við Dalmatíuströndina
í Króatíu þar sem menning forfeðra svífur yfir. Sögulegir
staðir frá tímum Rómverja, litríkar borgir og fagrar strendur
taka á móti okkur. Lengst af dveljum við í borginni Biograd
og förum þaðan í skoðunarferðir, m.a. til bæjarins Zadar
og sögufrægu borgarinnar Split. Ferðina endum við í
fæðingarborg Mozart, Salzburg í Austurríki.
22. september - 1. október
Fararstjóri: Íris Sveinsdóttir
Bókaðu núna á baendaferdir.is
Sími 570 2790 | bokun@baendaferdir.is | Síðumúla 2, 108 Reykjavík
Verð: 236.600 kr. á mann í tvíbýli.
Mjög mikið innifalið!
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
„Við lendum þyrlunni okkar við eld-
gosið þegar aðstæður leyfa,“ sagði
Þorlákur Runólfsson, framkvæmda-
stjóri Þyrluþjónustunnar-Helo.is.
Félagið á eina þyrlu en er í samstarfi
við Reykjavík Helicopters og leigir
þyrlur af þeim þegar þörf krefur.
Unnið er að sameiningu félaganna,
að sögn Þorláks.
„Við höfum verið í sambandi og
góðu samstarfi við landeigendurna á
Hrauni frá því stuttu eftir að eld-
gosið hófst,“ sagði Þorlákur.
Hann sagði að Þyrluþjónustan
hefði samið við landeigendur Hrauns
um heimild til að lenda við gosstöðv-
arnar. Þorlákur sagði að samning-
urinn sé trúnaðarmál og því geti
hann ekki upplýst um efni hans né
hvað lendingarleyfi kostar.
Eins og fram hefur komið settu
landeigendurnir lögbann á lendingar
Norðurflugs við gosstöðvarnar. Þor-
lákur sagði að Þyrluþjónustan hefði
ekki fengið formlega hótun um slíkt
lendingarbann.
Sætið í eldgosaflug með Þyrlu-
þjónustunni kostar 55.000 krónur.
Þorlákur sagði að verðið hefði ekki
verið hækkað vegna lendingargjalda
á gosstöðvunum. Hann sagði að
þetta væri bara hluti rekstrarkostn-
aðarins eins og lendingargjöld á
Reykjavíkurflugvelli, eldsneytis-
kostnaður, viðhald og laun.
Þorlákur sagði að ekki sé lent í
hverri ferð sem flogin er að eldstöðv-
unum í Geldingadölum. „Það eru
ekki alltaf aðstæður til að lenda
þarna. Stundum er of hvasst eða það
er hætta á gasmengun. Svo vilja ekki
allir farþegar lenda og fara út úr
þyrlunni, eru kannski fótafúnir og
eiga erfitt með það. Flestir farþeg-
arnir hafa þó áhuga á að lenda við
gosið,“ sagði Þorlákur. „Það er gríð-
arlega mikil eftirspurn eftir flugi að
gosinu. Nálægð eldgossins við höf-
uðborgarsvæðið olli því að Íslending-
ar þyrptust í þyrluflug að gosinu. Nú
eru erlendir ferðamenn farnir að
koma til viðbótar við Íslendingana.“
Sömdu við landeigendurna
um lendingargjald þyrlu
- Gjald ekki gefið
upp vegna trún-
aðar um samning
Ljósmynd/Þyrluþjónustan
Gosflug Þyrluþjónustan-Helo býður upp á flug í Geldingadali þegar veður
leyfir. Fyrirtækið samdi við landeigendur um að lenda við gosstöðvarnar.
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Lagnarör og tækjabrunnar hugsaðir
fyrir búnað sem sinnir sjálfkeyrandi
bílum eru meðal nýjunga í breikkun
hringvegarins milli Gljúfurholtsár í
Ölfusi og Selfoss. Góður gangur er í
framkvæmdum og smám saman er
hin endanlega mynd á verkefninu að
koma í ljós.
Vegur og fimm brýr
Alls er umræddur kafli 7,2 km
langur 2-1 vegur, auk þess sem fimm
steyptar brýr og undirgöng ásamt
tvennum reiðgöngum úr stáli eru
hluti verksins. Einnig bætast við
tengivegir, svo innáakstur af t.d. af-
leggjurum við sveitabæi með til-
heyrandi slysahættu leggst af.
Íslenskir aðal-
verktakar annast
framkvæmdir í
Ölfusinu og nú
eru um 50 menn
frá fyrirtækinu
við störf á svæð-
inu. „Verkinu
miðar vel og
gangurinn í þessu
er góður,“ segir
Ágúst Jakob
Ólafsson verkefnisstjóri. Til verka
eru notaðar fimm beltagröfur, þrjár
jarðýtur og jafn margar búkollur,
tveir valtarar, níu vöru- og malar-
flutningabílar, byggingarkranar og
fleira. Tækjamenn eru fjömennastir
í starfsmannahópnum, en tíu karlar
eru í brúarvinnuflokki. Nú er unnið
að smíði brúar á hringveginum yfir
Gljúfurholtsá, auk brúar á hliðarvegi
og undirganga á nærliggjandi stað.
Farg af veglínu
Þunginn í jarðvinnunni nú er að
verið er að moka fargi ofan af nýju
veglínunni undir Ingólfsfjalli, milli
afleggjarans að malarnámum í fjall-
inu að gatnamótum hringvegar og
Biskupstungnabrautar. Þau jarðefni
eru flutt í Hellismýri þarna skammt
frá, í vegstæði að nýrri brú yfir Ölf-
usá sem stendur til að reisa á næstu
árum. Að þessu loknu verður svo
hafist handa um endanlegan frágang
vegarins undir fjallinu, rúmlega eins
kílómetra langs kafla, sem Ágúst
væntir að verði tilbúinn í október
nk., um hálfu ári fyrr en ætlað var.
Einnig er nú verið að byggja upp
veginn vestan Ingólfsfjalls sem ligg-
ur að Gljúfurholtsá, vinna í teng-
ingum á gatnamótum, hliðarvegum
og hjólreiðastíg sem verður alla leið-
ina milli Selfoss og Hveragerðis.
Svona mætti áfram telja. Allt er eftir
bókinni en endanleg verklok sam-
kvæmt útboði eru í september 2023.
Við Gljúfurholtsá er umferð um
hringveginn nú beint um hjáleið og
einnig eru í Ölfusinu hindranir til að
halda niðri hraða. „Ökumenn hafa
virt merkingar um lækkaðan há-
markshraða. Nú finnst mér þó sem
bílstjórar séu farnir að aka hraðar
og taka framúrakstur við þessar erf-
iðu aðstæður,“ segir Ágúst.
Tækni morgundagsins
„Verið er að búa nýjustu vegi í
kringum höfuðborgarsvæðið með
ídráttarrörum fyrir tækni morgun-
dagsins, svo sem í framkvæmdum
nú á Kjalarnesi og Ölfusinu. Við er-
um að búa í haginn fyrir framtíðina,“
segir Guðmundur Valur Guðmunds-
son, framkvæmdastjóri þróunar-
sviðs Vegagerðarinnar, í samtali við
Morgunblaðið. Ídráttarrör fyrir
tækni morgundagsins eru í nokkrum
nýlegum vegum á landinu, svo sem á
Reykjanesbraut. Í Ölfusinu eru
tækjabrunnarnir á um það bil 500
metra millibili og lagnirnar eru í bili
milli vegreina.
„Nei, við í Vegagerðinni vitum
ekki frekar en aðrir hvenær sjálf-
keyrandi bílar, sem eru ein birting-
armynd fjórðu iðnbyltingarinnar,
komast í gagnið. En möguleikinn til
að geta svarað nýjum áskorunum
þarf að vera til staðar, eins og þarna
er gert,“ segir Guðmundur Valur.
Morgunblaðið/Unnur Karen
Vegavinna Um 50 manns vinna að framkvæmdum í Ölfusi og tækjaflotinn er fimm beltagröfur, þrjár jarðýtur og jafn margar búkollur, tveir valtarar og níu vöru- og malarflutningabílar.
Lagnir í vegi fyrir sjálfkeyrandi bíla
- Nýr Suðurlandsvegur í Ölfusi er tækjum hlaðinn - 2+1 og vinnan gengur vel - Svara áskorunum
Ágúst Jakob
Ólafsson