Morgunblaðið - 03.07.2021, Síða 8

Morgunblaðið - 03.07.2021, Síða 8
8 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. JÚLÍ 2021 Þóra Birna Ingvarsdóttir thorab@mbl.is Miklar og ítarlegar kröfur eru gerð- ar til rekstraraðila hoppukastala. Starfsemin er starfsleyfisskyld að sögn Herdísar Storgaard, verkefna- stjóra hjá Miðstöð slysavarna barna. „Skrímslið“ á Akureyri, þar sem slys varð á fimmtudag, ætti að starfa á grundvelli starfsleyfis frá Reykja- vík en rekstraraðilum hefur láðst að framvísa því starfsleyfi til Heilbrigð- iseftirlits Akureyrar. Herdís þekkir staðlana sem stuðst er við í tengslum við starfsleyfi hoppukastala. Hún hefur boðið lögreglunni á Akureyri aðstoð við rannsókn málsins. Herdís segir að kröfurnar sem gerðar eru til svona tækja séu mjög strangar. Þar komi fram hvers konar festingar eigi að nota og með hvaða hætti skuli reka þær niður. Einnig fylgir svona hoppuköstulum ákveð- inn vindmælisskali sem miðað er við en hann er mismunandi eftir stærð kastalans. Gerð er krafa um að ör- yggisfulltrúi sé á vakt sem fylgist vel með sviptingum í vindi. Staðlarnir endurskoðaðir Í staðlinum er, að hennar sögn, sérstaklega tekið fram hversu oft þessi öryggisfulltrúi eigi að taka stöðuna á vindinum. Þá ber hann einnig ábyrgð á að athuga festingar reglulega, athuga mótorinn og mæla loftþrýstinginn í hoppukastalanum. Þessar athuganir eigi að fram- kvæma oft yfir daginn. Viðbragðs- áætlun þurfi að vera tiltæk ef eitt- hvað er ekki eins og það á að vera. Ekki er langt síðan þessir staðlar voru endurskoðaðir og heilmiklu bætt við þá, einmitt í tengslum við festingar og vindmælingar. Herdís segir að það hafi verið gert í kjölfar dauðaslysa á börnum, sem urðu í Ástralíu og Bretlandi, vegna þess að hoppukastalar tókust á loft og steyptust til jarðar, eins og gerðist á Akureyri á fimmtudag. Öryggisfulltrúi skuli athuga vind Hólshraun 3 · 220Hafnarfjörður · Símar: 555-1810, 565-1810 · Netfang: veislulist@veislulist.is · www.veislulist.is Skútan Sjá verð og verðdæmi á heimasíðu okkar www.veislulist.is Fagnaðir Næst þegar þið þurfið pinnamat, smurt brauð eða tertur fyrir útskriftina eða annan mannfagnað, hafðu þá samband og fáðu tilboð í sal okkar og veitingarnar þínar. PINNAMATUR Veislur eru okkar list! Bjóðum uppá fjölda tegundapinnamats og tapasrétta Pinna- og tapasréttir eru afgreiddir á einnota fötum, klárt fyrir veisluborðið. Helgi Laxdal, vélfræðingur og fyrrverandi forseti Norræna vélstjórasambandsins, gerir að um- talsefni í grein í Morgunblaðinu í gær fréttaflutning af mannaráðningum og stólaskiptum í kaup- sýslu og stjórnkerfi á Íslandi og veltir fyrir sér hvers vegna sam- bærilegar fréttir séu ekki sagðar úr sjávarútvegi. - - - Þar fylgi ekki síður ábyrgð og rek- ur hann að það taki tíu ár að öðlast réttindi til þess að gegna starfi yfirvélstjóra á fullkomnustu skip- unum. Skiptist það í „fimm ára stíft bóknám sem komið er á háskólastig, m.a. í Danmörku, og um tveggja ára nám á viðurkenndu vélaverkstæði sem lýkur með sveinsprófi. Að þessu loknu tekur við þriggja ára sigl- ingatími á skipum með tilgreindum vélbúnaði.“ - - - Síðan spyr Helgi: „Hefur einhver rekist á frétt sem greinir frá því að þessi eða hinn skipstjórinn eða yf- irvélstjórinn hafi skipt um starf, ver- ið ráðinn af einu skipi yfir á annað? Ég minnist þess ekki þótt við séum að tala um skip/vinnustað sem kost- ar allt að sex milljörðum og dregur árlega að landi verðmæti sem geta numið allt að tveimur milljörðum króna. Vinnustað þar sem rafmagns- framleiðslan er um sex megawött til eigin þarfa sem svarar til orkunotk- unar um 3.000 manna byggðarlags hjá okkur.“ - - - Í þessu samhengi má benda á að á 200 mílum, undirvef mbl.is, er einmitt lögð áhersla á að segja fréttir af þessu tagi og sömuleiðis fer mark- viss fréttaflutningur af sjávarútvegi fram á síðum Morgunblaðsins. Ábending Helga um skekkju í frétta- flutningi og -mati er engu að síður þörf og réttmæt. Helgi Laxdal Réttmæt og þörf ábending STAKSTEINAR Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Hólmsteinn T. Hólm- steinsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri fé- lagsins Möl og sandur á Akureyri, lést á líknar- deild Landspítalans í Kópavogi 1. júlí síðast- liðinn, sjötugur að aldri. Hólmsteinn var fæddur á Akureyri 21. júní 1951, sonur hjónanna Hólmsteins Egilssonar (1915-1995), stofnanda Malar og sands, og Margrétar Sveinbjörnsdóttur (1919-2005) húsfreyju. Hólmsteinn átti þrjár systur, Erlu, Hugrúnu og Margréti. Hólmsteinn gekk í skóla á Akur- eyri og varð stúdent frá MA árið 1971. Þaðan lá leiðin í Tækniskóla Íslands og lauk hann prófi í bygg- ingatæknifræði. Námsárin starfaði hann í fyrirtæki föður síns og eftir nám tók hann við sem fram- kvæmdastjóri þess. Eftir sölu fyrir- tækisins til nýrra eigenda starfaði hann sem framkvæmdastjóri hjá BM Vallá í Reykjavík til nokkurra ára eða fram til 2013, en fjölskyldan flutti á höfuðborgarsvæðið frá Akur- eyri árið 2006. Hólmsteinn var virkur um tíma í bæj- arpólitík á Akureyri fyrir hönd Sjálfstæðis- flokksins og átti sæti í ýmsum ráðum á veg- um bæjarins. Hann sat jafnframt í stjórnum ýmissa fyrirtækja á Akureyri, svo sem Krossaness, Slipp- stöðvarinnar og Stapa lífeyrissjóðs. Hann var einn af stofnendum endurvinnslu- og at- hafnafélagsins Úrbóta- manna á Akureyri. Hann var mikill náttúrunnandi og laxveiðimaður. Hann sat í stjórn Laxárfélagsins ásamt því að vera gjaldkeri félagsins frá 1986. Hann var virkur iðkandi og þjálf- ari í Sundfélaginu Óðni á Akureyri og keppnismaður í sundi. Keppti síð- ar undir merki félagsins í blaki. Eft- irlifandi eiginkona Hólmsteins er Rut Ófeigsdóttir, fyrrverandi skrif- stofustjóri hjá sýslumanninum á Ak- ureyri. Synir þeirra eru Ófeigur Tómas og tvíburarnir Egill Orri og Einar Már. Útför hans fer fram frá Bústaða- kirkju föstudaginn 9. júlí kl. 10 ár- degis. Andlát Hólmsteinn T. Hólmsteinsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.