Morgunblaðið - 03.07.2021, Síða 12

Morgunblaðið - 03.07.2021, Síða 12
Tilboðsfrestur er 6. ágúst 2021 Sótt er um lóð á Mínum síðum á hafnarfjordur.is. Búið er að marka lágmarksverð í lóðina sem er kr. 98.000.670. Tilboð undir lágmarksverði teljast ógild. Tilboð í lóð ásamt öllum fylgigögnum þurfa að berast fyrir kl. 13 föstudaginn 6. ágúst. Sama dag á sama tíma verða tilboðin opnuð í bæjarráðssal í Ráðhúsi Hafnarfjarðar. Nánari upplýsingar á: hafnarfjordur.is H ja lla b ra u t 4 9 Einstök lóð fyrir tíu sérbýli á jaðri útivistarsvæðis viðVíðistaðatún Hafnarfjarðarbæ auglýsir eftir tilboðum í lóð á rótgrónum og fjölskylduvænum stað í norðurbæ Hafnarfjarðar. Á lóðinni er heimilt að byggja þrjú einbýlishús á einni hæð og tvö tveggja hæða raðhús, annað með þremur íbúðum og hitt með fjórum. Samtals tíu sérbýli í skjólsælli og aðlaðandi vistgötu. Stutt er í alla verslun, þjónustu og menningu. Staðsetningin er einstök, við norðvestur jaðarVíðistaðatúns sem er vinsælt svæði með fjölbreyttum möguleikum til útivistar. 12 FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. JÚLÍ 2021 Guðni Einarsson gudni@mbl.is Eigendur yfir 20 jarða í Kelduhverfi eiga í deilu við ríkið um eignarhald á mörgum hundruðum hektara lands sem þeir telja vera hluta jarða sinna. Nú rúmum þremur árum eftir að rík- ið stefndi bændunum er málið aftur komið á byrj- unarreit. Hjörleifur B. Kvaran er lög- maður hluta land- eigenda. Hann sagði að bændur í Kelduneshreppi hafi árið 1939 af- salað Sand- græðslu ríkisins, síðar Land- græðslu ríkisins, lítt grónu landi til uppgræðslu. Land- spildunum sem ríkið fékk var aldrei skipt út úr viðkomandi jörðum og hafa landeigendur greitt af þeim op- inber gjöld alla tíð. Uppgræðslan tókst ágætlega og árið 1967 afhenti landgræðslustjóri nokkrum jarðeigendum aftur alls 209 hektara fullgróins lands. Fjár- málaráðuneytið lét meta landið sem þá var afhent og var virði þess metið vera 1,5 milljónir króna. Deilt hefur verið um hvort landinu hafi verið skil- að eða það einungis afhent til afnota. Ríkið stefndi yfir 20 eigendum jarða í apríl 2018 og krafðist þess að staðfestur yrði eignarréttur ríkisins á landinu sem bændurnir afsöluðu Sandgræðslunni til uppræðslu. Nokkrir jarðeigendur gagnstefndu ríkinu til viðurkenningar á því að þeir ættu landið sem þeim var afhent eftir uppgræðsluna. Verulegt jarðsig varð á þessu svæði í jarðskjálftum 1975-1976. Stór hluti uppgræðslusvæðisins fór undir Skjáfltavatn og þar á meðal var 141 hektari sem hafði verið afhentur bændum 1967. „Ríkið krefst þess nú að vera eigandi vatnsins, sem til varð í náttúruhamförum, en vatnið gefur af sér smá tekjur í formi seldra veiði- leyfa,“ sagði Hjörleifur. Seinagangur í dómskerfinu Fyrsta aðalmeðferð málsins fyrir Héraðsdómi Norðurlands eystra hófst með vettvangsgöngu 1. sept- ember 2019. Næstu daga fóru fram skýrslutökur og málfutningur. Málið var þá dómtekið en dómarinn kvað ekki upp dóm innan tilskilins frests. Málið var því endurflutt 26. nóv- ember 2019. Dómarinn vísaði kröfu- gerð ríkisins frá dómi en sýknaði rík- ið í gagnsakarmálinu. Ríkið kærði frávísunarúrskurðinn til Landsréttar sem felldi hann úr gildi og lagði fyrir dóminn að taka málið til efnismeðferðar. Dómarinn var þá farinn í leyfi og nýr dómari fékk málið. Hann tók málið aldrei fyr- ir það ár sem það var í hans umsjá. Fyrri dómarinn kom úr leyfinu og var málið endurflutt 24. febrúar sl. Dóm- arinn kvað ekki upp dóm innan tilskil- ins frests og því hefði þurft að flytja málið í fjórða sinn fyrir sama dóm- aranum. Áður en til þess kom fór dómarinn aftur í leyfi. Nú hefur mál- inu verið úthlutað til nýs dómara sem boðar til nýrrar aðalmeðferðar í haust. Varakrafa jarðeigenda í gagnsak- armálinu var að viðurkenndur yrði kaupréttur þeirra á því landi sem var afhent ríkinu á sínum tíma. Kauprétt- urinn var staðfestur bæði í héraðs- dómi og Landsrétti. Undir rekstri málsins kom fram að í fjárlögum væri heimild fjármálaráðherra til að selja jarðeigendum aftur landið sem þeir höfðu látið til uppgræðslu. Nokkrir jarðeigendur óskuðu eftir að kaupa aftur landið sem þeim hafði verið af- hent 1967. Fjármálaráðuneytið aflaði þá fyrrnefndrar matsgerðar. Jarðeig- endurnir óskuðu eftir að gengið yrði frá kaupsamningi á grundvelli mats- ins. Þá tilkynnti fjármálaráðuneytið að af sölu gæti ekki orðið þar sem í lög- um sé lagt bann við sölu lands sé það að hluta til eða öllu leyti á náttúru- verndarsvæði. Lönd jarðeigenda eru nú á skilgreindu náttúruverndar- svæði og var sú ákvörðun tekin án nokkurs samráðs við jarðeigendur. „Ríkið neitar því að selja jarðeig- endum landið aftur þrátt fyrir að kaupréttarákvæði hafi verið í samn- ingi þeim sem var gerður 1939 þegar ríkinu var afhent landið til upp- græðslu,“ sagði Hjörleifur. Ríkið ásælist land í Kelduhverfi - Landeigendur afsöluðu landi til uppgræðslu 1939 - Landgræðslustjóri afhenti landeigendum 209 uppgróna hektara 1967 - Ríkið hefur stefnt jarðeigendum og krefst staðfestingar á eignarhaldi sínu Morgunblaðið/Einar Falur Skjálftavatn Hluti landsins sem um er deilt sökk í kaf þegar Skjálftavatn myndaðist og er nú vatnsbotn. Hjörleifur B. Kvaran

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.