Morgunblaðið - 03.07.2021, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 03.07.2021, Blaðsíða 21
– Nú hefur verið umræða í Banda- ríkjunum um að vegna breyttra neysluhátta, sem leiða af því að sam- félagið er að opnast á ný, verði mögu- lega samdráttur í vissum geirum sem hafa upplifað blómaskeið í faraldrinum en aukning í öðrum. Gæti það haft áhrif á verðlagsþróun í Bandaríkj- unum og vegið á móti þessum verð- bólguþrýstingi? „Þá vegna breytingar á samsetn- ingu eftirspurnar?“ – Já. „Það verður að hluta til um að ræða varanlegar breytingar á neyslu- mynstrinu. Menn læra inn á nýja tækni og venjast nýjum vinnubrögð- um. Zoom-fundir munu til dæmis ekki leggjast af. Svo má hugsa sér fundi er- lendis, sem bæði starfsfólk í einka- geira og hjá hinu opinbera sækir í út- löndum og dagpeningana sem því fylgja. Þar er mikið svigrúm til sparn- aðar.“ – Hvað með verðbólguþróunina hér á Íslandi? „Nú höfum við lítið líkan af Banda- ríkjunum hér á Íslandi. Hér eru svip- aðir kraftar að verki; ferðaþjónustan fór niður og innlenda verslunin fór upp. Sömuleiðis jukust ýmsar við- haldsframkvæmdir innanlands. Svo opnast hagkerfið og ferðaþjónustan fer í gang og eftirspurn Íslendinga færist að einhverju leyti til útlanda. Hvaða áhrif það hefur á verðbólgu og launaþróun á eftir að koma í ljós. Nú er misvægi í hagkerfinu. Það er at- vinnuleysi í sumum greinum og mikil eftirspurn í öðrum. Dregur úr misvæginu Þegar landamæri opnast þá skapast eftirspurn eftir fólki sem er án vinnu og þá dregur úr þessu misvægi. Þegar landið opnast má reikna með að Ís- lendingar beini eftirspurn sinni í meira mæli til útlanda og væntanlega verður dregið úr ríkisútgjöldum [enda minni þörf fyrir að örva hagkerfið] og skatt- tekjur ríkissjóðs aukast. Hvernig þetta misvægi þróast er ein stærsta spurningin sem við stöndum frammi fyrir í efnahagsmálum,“ segir Gylfi. Hann segir aðspurður að sökum þess að kórónukreppan muni að lík- indum vara skemur en útlit var fyrir muni langtímaáhrifin verða minni. „Það verður þá minna um að fyrirtæki séu varanlega löskuð vegna krepp- unnar og sömuleiðis eru þá minni líkur á að þeir sem misstu vinnuna verði fyrir heilsufarstjóni eða venjist því að vera ekki á vinnumarkaði.“ 2014 2015 2016 2017 2018 2019 2020 2021 80% 60% 40% 20% 0% Skuldir ríkissjóðs frá ársbyrjun 2014, ma.kr. 1.600 1.200 800 400 0 Hreinar skuldir Heildarskuldir Heildarskuldir sem% af VLF Hreinar skuldir sem% af VLF Maí 2021Feb. 2020 Heimild: Markaðsupplýsingar Lánamála ríkisins FRÉTTIR 21Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. JÚLÍ 2021 SÍMI 587 2000 · KLETTHÁLSI 2, 110 REYKJAVÍK · WWW.TOPPBILAR.IS OLVO XC90 T8 INSCRIPTION TWIN ENGINE Raðnúmer 396729 Árgerð 2018 Ekinn 45 Þ.KM Nýskráður 3/2018 Næsta skoðun 2022 Verð kr. 9.490.000 Aðfellanlegir hliðarspeglar Aðgerðahnappar í stýri Aksturstölva Álfelgur Bakkmyndavél Bluetooth hljóðtengi Filmur Fjarlægðarskynjarar Hiti í framrúðu Hraðastillir Hraðatakmarkari Leðuráklæði Leðurklætt stýri Leiðsögukerfi Loftkæling Lykillaus ræsing Lykillaust aðgengi Minni í framsætum Nálægðarskynjarar Rafdrifið lok farangursrýmis Rafdrifin framsæti Rafdrifnir hliðarspeglar Stafrænt mælaborð Topplúga V Baldur Arnarson baldura@mbl.is Greint var frá því í fyrradag að fjár- tæknifélagið Rapyd hefði náð sam- komulagi við Arion banka um kaup á Valitor. Rapyd greiðir 100 milljónir bandaríkjadala fyrir Valitor en það samsvarar rúmlega 12,3 milljörðum króna á núverandi gengi. Rapyd hóf innreið sína með fjár- tækni á Íslandi í fyrra. Fram kom í tilkynningu að gert sé ráð fyrir að gengið verði frá kaup- unum í árslok en þau séu gerð með fyrirvara um samþykki eftirlitsaðila. Ítarlega var rætt við Herdísi Fjeldsted, forstjóra Valitors, í Við- skiptaMogganum 17. mars sl. Félagið endurskipulagt Þar kom meðal annars fram að við endurskipulagningu Valitors hefði starfsfólki fækkað úr ríflega 400 í ríflega 200. Það væri að miklu leyti tengt sölu fyrirtækja í Danmörku og Bretlandi. Þá var haft eftir Arik Shtilman, forstjóra og stofnanda Ra- pyd, í tilkynningu vegna kaupanna á Valitor í fyrradag að ætlunin sé að gera Ísland að miðstöð greiðslu- miðlunar samstæðunnar fyrir Evrópu. Þá stefni fyrirtækið á að verða einn stærsti alþjóðlegi vinnu- veitandi landsins. Spurð um þessi áform segir Herdís að með nýjum eigendum muni staða félagsins styrkjast enn frekar á Íslandi. „Við erum búin að endur- skipuleggja félagið sem gerði það áhugavert fyrir Rapyd að kaupa það. Ég sé fyrir mér að kaup Rapyd muni styrkja félagið enn frekar á Ís- landi og í Evrópu,“ segir Herdís. Varðandi fjölda starfsmanna segir Herdís að um 160 starfsmenn séu hjá Valitor á Íslandi en um 50 í Bret- landi, alls 210 starfsmenn. Starfsfólki mun ekki fækka „Áform nýrra eigenda eru að styrkja starfsemina á Íslandi. Starfsfólki mun ekki fækka,“ segir Herdís um fyrirhuguð umsvif Rapyd á Íslandi. Spurð hvernig starfsemin á Íslandi muni breytast með alþjóð- legum verkefnum hins alþjóðlega fjártæknifyrirtækis rifjar Herdís upp að salan sé háð samþykki eftir- litsaðila en markmiðin eru að auka við vöruframboðið og halda áfram að efla þjónustuna. Eftir atvikum sé því ekki hægt að ræða áformin að sinni. „Þar til kaupin ganga í gegn mun Valitor verða rekið eins og það er í dag. Þangað til er erfitt að svara slíkum spurningum,“ segir Herdís. Valitor var stofnað 1983 og er al- þjóðlegt greiðslulausnafyrirtæki. Macquarie Capital, Logos og Mörk- in voru Arion banka til ráðgjafar við söluna og Gornitzky, PwC, Jakob Ásmundsson og BBA/Fjeldco voru Rapyd til ráðgjafar við kaupin á Val- itor, að því er sagði í tilkynningu. Kaup Rapyd á Valitor muni styrkja félagið - Forstjóri Valitors segir nýja eigendur sjá tækifæri hér Morgunblaðið/Árni Sæberg Forstjóri Valitors Herdís Fjeldsted segir mikil tækifæri í fjártækni.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.