Morgunblaðið - 03.07.2021, Side 27

Morgunblaðið - 03.07.2021, Side 27
UMRÆÐAN 27 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. JÚLÍ 2021 Hæ sæti – hvað vilt þú borða! Bragðgott, hollt og næringarríkt Smáralind, Kringlunni, Spönginni, Reykjanesbæ og Akranesi – dyrabaer.is ÚTSÖLUSTAÐIR: Byko, Selfossi | Garðheimar | Heimkaup |Dýrabær B ent Larsen var bjartsýnis- maður og hann hafði fulla ástæðu til að vera bjart- sýnn fyrir við upphaf ein- vígisins gegn Bobby Fischer í áskor- endakeppninni í júlí 1971. Hann hafði unnið sannfærandi sigur yfir Uhlmann í fyrstu umferð og árang- ur hans í einvígjum var almennt séð góður; sigur yfir Portisch 1968 og stórsigrar gegn Tal og Kavalek 1969 og 1970. Hann var sigursælasti mótaskákmaður heims og hafði unn- ið innbyrðis viðureign við Fischer á millisvæðamótinu í Palma 1970. Hann mætti til Denver ásamt Lizzie konu sinni. Sem fyrr stólaði Fischer á Ed Edmondson. Ég veit ekki hvaða skýringar Larsen gaf á hrak- förum Taimanovs en varla hefur honum vafist tunga um tönn. En sagan endurtók sig; Fischer vann aftur 6:0. Öll viðtöl við Larsen eftir einvígið snerust um þau áhrif sem hann taldi að hitabylgjan mikla sem gekk yfir Denver hefði haft á taflmennsku sína. Nú er það svo að loftkæling á vettvangi, hvort heldur á keppnis- stað eða hóteli, var með besta móti og fyrstu tvær skákirnar voru góðar baráttuskákir. Mér finnst eiginlega blasa við að Larsen hafi brotnað nið- ur þegar hann áttaði sig á því hvert stefndi. Bjartsýnin vék fyrir doða og drunga. Eftir fjórðu skákina fékk hann að læknisráði nokkurra daga frí. Um það leyti birti Berlingske tidende viðtal við kappann undir fyr- irsögninni: „Jeg vil hjem.“ Fyrsta skákin var hápunktur ein- vígisins. „Vélarnar“ leiða ýmislegt í ljós sem áður var hulið: „afleikirnir“ voru ekki afleikir en ónákvæmir kóngsleikir Larsens réðu mestu um það hvernig fór: Denver 1971; 1. einvígisskák: Bobby Fischer – Bent Larsen Frönsk vörn 1. e4 e6 Misheppnað leynivopn. Franska vörnin hafði aldrei áður komið fyrir í skákum Larsens. 2. d4 d5 3. Rc3 Bb4 4. e5 Re7 5. a3 Bxc3 6. bxc3 c5 7. a4 Rbc6 8. Rf3 Bd7 9. Bd3 Dc7 10. 0-0 c4 11. Be2 f6 12. He1! Fischer hafði áður leikið 12. Ba3. 12. … Rg6 13. Ba3 fxe5 14. dxe5 Rcxe5 15. Rxe5 Rxe5 16. Dd4 Rg6 17. Bh5 Kf7 18. f4 Hhe8 19. f5 exf5 20. Dxd5+ Kf6 Þessi staða kallaði fram miklar vangaveltur skákskýrenda. Niður- staða „vélanna“ er sú að 21. Bd6! sé best og vinnur þvingað. En Fischer lék … 21. Bf3 Re5! 22. Dd4 Kg6 23. Hxe5! Býður upp á ævintýralegar svipt- ingar. 23. … Dxe5 24. Dxd7 Had8 25. Dxb7 De3+ 26. Kf1 Hd2 27. Dc6+ He6 28. Bc5! Hindrar mátið en Larsen hafði séð þetta fyrir … 28. … Hf2+ 29. Kg1 Hxg2+! 30. Kxg2 Dd2+ 31. Kh1 Hxc6 32. Bxc6 Dxc3 Drottningin berst við hrók og tvo biskupa. Margir töldu þennan leik ónákvæman. 33. Hg1+ Kf6? Það er hvergi skjól! Best var 33. … Kh5 34. Bxa7 g5! og staðan er í jafnvægi. 34. Bxa7 f4 35. Bb6 Dxc2 36. a5 Db2 37. Bd8+ 36. leikur Fischers var ónákvæm- ur og hér gat Larsen haldið jafn- vægi með réttum kóngsleik, 37. … Kf5!, t.d. 38. a6 Dd4! sem stöðvar a- peðið. 37. … Ke6 38. a6 Da3 39. Bb7 Dc5 40. Hb1 c3 41. Bb6 – og Larsen gafst upp. „Kraftaverk hefur gerst“ var fyrirsögn „Sovetsky sport“. Fischer var nú búinn að vinna 19 kappskákir í röð. Í vissum skilningi var hann nú kominn upp á geigvæna brún. Þátt- taka hans í skákviðburðum hafði stundum hangið á bláþræði en hvern gat órað fyrir að ferli hans lyki ári síðar? Lokaeinvígi hans við Tigran Petrosjan var valinn staður í Buenos Aires í Argentínu. Fischer gegn Larsen, Denver Colorado, júlí 1971 Skák Helgi Ólafsson helol@simnet.is Morgunblaðið/USCF Kaflaskil Fischer og Larsen við taflið í Denver. Ásta Kristín Árnadóttir fædd- ist árið 1883 í Ytri-Njarðvík, dóttir hjónanna Sigríðar Magn- úsdóttur og Árna Pálssonar barnakennara. Þegar faðir henn- ar lést fyrir aldur fram varð hún að finna vinnu. Hefðbundin kvennastörf gáfu lítt í aðra hönd, svo Ásta ákvað að reyna að kom- ast á samning í húsamálun. Held- ur gekk það illa þar til hún kom til hins danska Nikolaj Berthel- sen, sem ákvað að gefa henni tækifæri. Næstu árin vann Ásta með Nikolaj, en svo f’ór hún til Kaupmannahafnar til náms. Skóli danska Tæknifélagsins neitaði konum alfarið um inn- göngu en Ásta fékk leiðsögn hjá málurum og sótti tíma við Kon- unglega listaskólann. Árið 1907 lauk hún sveinsprófi í húsa- málun, fyrst kvenna í Danmörku, og þá fór hún til Hamborgar. Hún lauk meistaranámi í mál- araiðn árið 1910, fyrst allra Ís- lendinga, og einnig fyrsta konan í Þýskalandi með þessa nafnbót. Afrekið vakti mikla athygli en þrátt fyrir það gat Ásta ekki stofnað fyrirtæki í Þýskalandi, bæði vegna þess að hún var kona og erlend í þokkabót. Eftir stutt stopp í Danmörku fór hún til Ís- lands þar sem hún varð vinsæll málari í Reykjavík. Ásta fluttist til Bandaríkjanna 1920 og giftist Jakob Thoni og þau áttu tvö börn. Eftir að hann lést átti hún tvö börn með seinni manni sínum, Jóhanni Norman. Ásta lést 4. febrúar 1955. Merkir Íslendingar Ásta málari Ástin er svo dýr- mæt og þakkarverð gjöf. En vissulega vandmeðfarin. Hvað veist þú annars betra en vera umvafin ást, umvefjandi kærleika, umhyggju og hlýju. Jafnvel að fá að hvíla í örmum þess sem þú elskar. Í örmum þess sem þig elskar. Þú finnur þá fljótt hvað kærleikurinn og ástin eru stór, sterk og und- ursamleg öfl. Þú finnur að þú ert hluti af einhverju. Einhverju meira og dýpra en þú ert sjálf eða sjálfur. Það er bæði ljúft en getur líka verið sárt á stundum en svo óendanlega þakkarvert þegar allt kemur til alls. Þú ert gefandi og þú ert þiggjandi. Þú ert í hlut- verki sem þú kannt ekki og ræður ekki endilega mjög vel við en skalt samt endilega takast á við og láta eftir þér að njóta af ástríðu. Viðkvæm og vandmeðfarin Ástin er nefnilega ekki umbúðir eða útlit. Og alls ekki eingöngu bara einhver girnd eða losti. Held- ur bál sem kviknar. Því báli þarf stöðugt að halda við og leggja í það mikla, þroskandi og heilbrigða vinnu svo glóðin kulni ekki og slokkni. Ástinni má mögulega einnig líkja við ákveðinn galdur. Galdur sem við skiljum ekki en getum upplifað, meðtekið og þegið. Hvílt í, notið og gefið. Ástin er nefnilega allt í senn svo viðkvæm og vand- meðfarin, brothætt og sár. En jafnframt svo vermandi og falleg. Ljúf og sönn, djúp, gefandi og varanleg. Ástin er skjól, vígi og skjöldur. Hún um- ber, er þolinmóð, styður, uppörvar og hvetur. Sönn ást tekur samtalið, setur sig í spor, tekur tillit og breiðir yfir lesti og bresti. Hún er gegnheil og svíkur ekki. Hún gefst ekki upp og yfirgefur ekki. Því sönn ást fellur aldrei úr gildi. Hamingja ástarinnar er nefnilega líklega þegar allt kemur til alls fólgin í því að vera saman, standa saman og njóta uppskerunnar saman. Til hamingju með ástina. Stofn- um til hennar, ef við á annað borð finnum okkur í því. Ræktum hana svo vel. Hlúum að henni, vökvum og virðum svo hún virki eins og til var sáð sem best og lengst. Með vonarríkri sumar-, kær- leiks- og friðarkveðju. - Lifi lífið! Ástin er svo dýrmæt Eftir Sigurbjörn Þorkelsson »Hamingja ástarinnar er líklega þegar allt kemur til alls fólgin í því að vera saman, standa saman og njóta upp- skerunnar saman. Sigurbjörn Þorkelsson Höfundur er ljóðskáld og rithöfundur og aðdáandi lífsins. Hvar er næsta verkstæði? FINNA.is Atvinna

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.