Morgunblaðið - 03.07.2021, Síða 34
34 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. JÚLÍ 2021
✝
Stefanía Guð-
rún Andrés-
dóttir fæddist 13.
febrúar 1930 á
Drangsnesi í
Strandasýslu. Hún
lést á Heilbrigð-
isstofnun Vest-
urlands í Hólma-
vík 19. júní 2021.
Foreldrar hennar
voru: Andrés Guð-
björn Magnússon,
f. 8.9. 1906, d. 12.12. 1979, og
Guðmundína Arndís Guð-
mundsdóttir, f. 20.9. 1911, d.
28.9. 1976. Systkinin voru 15.
Látin eru Anna Guðmunda,
Hulda, Haraldur Vignir, Frið-
rik og Marel. Eftirlifandi eru:
Magnús, Anna Guðmunda,
Guðrún, Ingólfur, Herdís Ól-
ína, Efemía Guðbjörg, Bjarni,
Ríkey og Hrefna. Eftirlifandi
maki Stefaníu er Jón Loftsson,
f. 17.12. 1927. Þau gengu í
hjónaband 31.12. 1954. Börn
Stefaníu og Jóns eru: 1)
Hrafnhildur Guðbjörnsdóttir.
Börn þeirra eru: a) Harpa
Hlín, dóttir hennar er: Diljá
Hörn. b) Guðmundína Arndís,
maki hennar er Hlynur Gunn-
arsson, börn þeirra eru: Arn-
dís Írena og Haraldur Örn. c)
Árný Huld, maki hennar er
Baldvin Smárason, börn
þeirra eru: Hrafnhildur Sara,
Hafrún Magnea og Smári
Hlíðar. d) Jón Örn, maki hans
er Magnea Dröfn Hlynsdóttir,
sonur þeirra er: Haraldur
Orri. Stefanía ólst upp á
Drangsnesi en fluttist til
Hólmavíkur er hún og Jón
hófu búskap. Hún sótti barna-
skóla á Drangsnesi en fór í
Húsmæðraskólann á Löngu-
mýri 1947. Þau bjuggu allan
sinn búskap á Hólmavík. Hún
var heimavinnandi fyrstu bú-
skaparárin en vann svo í fisk-
vinnslu og rækjuvinnslu á
Hólmavík. Einnig vann hún
mörg haust í sláturhúsi Kaup-
félags Steingrímsfjarðar. Um
tíma var hún í stjórn Verka-
lýðsfélagsins á staðnum.
Útför fer fram frá Hólma-
víkurkirkju í dag, 3. júlí 2021,
kl. 14. Streymt verður frá út-
förinni á Facebook-síðu
Hrannar Jónsdóttur.
Hrönn, f. 5.11.
1952, maki Hall-
dór Sigurjónsson.
Börn þeirra
eru: a) Stefanía
Guðrún, maki
hennar er Snorri
Árnason, börn
þeirra eru: Hall-
dór Þór, Árni og
Katrín Aagot. b)
Halldór Hrannar,
maki hans er Inga
Rósa Sigurðardóttir, börn
þeirra eru: Sunneva Hrönn,
Sigurður Ingi og Hafdís Rut.
c) Svandís Helga, maki hennar
er Oliver Claxton, börn þeirra
eru: Hrönn, Dagur og Birkir.
2) Andrés Guðbjörn, f. 4.1.
1956, maki hans er Ester
Kristinsdóttir. Börn þeirra
eru: a) Íris Hrönn, maki Teit-
ur Þór Ingvarsson, börn
þeirra eru: Andrea Tinna og
Embla Hrönn. b) Andri Þór.
3) Haraldur Vignir Andr-
ésson, f. 12.3. 1961, maki
Amma fæddist á Drangsnesi
13. febrúar 1930. Hún sagði mér
að það hefði staðið tæpt þegar
hún fæddist, ljósmóðirin sem hét
Katrín hefði skírt hana skemmri
skírn þar sem óttast var að hún
myndi ekki hafa þetta af. Katrín
og Guðmundína, móðir ömmu,
skírðu hana eftir Guðrúnu Stef-
ánsdóttur, móðurömmu Guð-
mundínu. Nafnið var víst fundið í
flýti.
Þegar ég var skírð hélt amma
mér undir skírn og áður en hún
fór í kirkjuna sagði hún við afa að
það yrði nú verra ef hún myndi
ekki nafnið á barninu og segði sitt
eigið nafn. Afi andvarpaði því óg-
urlega þegar amma sagði „Stef-
anía Guðrún“ þegar presturinn
spurði hvað barnið ætti að heita.
Amma var nefnilega mikill húm-
oristi og við hlógum saman að
allskonar útúrsnúningum og sög-
um. Þegar við svo hættum að
hlæja horfðumst við stundum í
augu og þá sagði hún „horfast í
augu grámyglur tvær“. Amma las
mikið og við ræddum oft bækur
og greinar, svo lásum við alltaf
Strandapóstinn saman. Hún
mundi allt og gat sagt manni ýms-
ar sögur, bæði frá því áður og af
líðandi stundu.
Ég hafði líka gaman af því að
heyra hvernig ævi hennar hafði
verið. Hún ólst upp á Drangsnesi
og gekk svo í Húsmæðraskólann
á Löngumýri. Þær voru fjórar
stúlkur sem fóru frá Drangsnesi
með strandferðaskipi í september
1947 til Sauðárkróks og svo var
farið með bíl fram á Löngumýri.
Hún hafði tekið sjálf ákvörðun
um að fara í húsmæðraskólann,
en hún hafði heyrt að þetta væri
góður skóli. Hún hafði áhuga á
matseld og heimilishaldi. Á
Löngumýri voru 34 stúlkur í skól-
anum og var þeim skipt í 3 flokka
sem skiptust á að fara í sauma,
vefnað og eldhús. Í eldhúshópn-
um fylgdi maturinn, baksturinn
og þvottarnir. Þær fóru með
þvottana upp að Varmahlíð og
þvoðu þar í heitri laug inni í smá
kofa en ráðsmaður keyrði þvott-
inn í kerru með hesta á undan.
Eitthvað var brasað í eldhúsinu
og skipst á uppskriftum.
Þegar amma kom til baka til
Drangsness kynntist hún afa,
hann hafði tekið Gullfoss frá
Hólmavík á Drangsnes og þau
hittust. Hún kom svo til Hólma-
víkur til að passa börn hjá frænku
sinni og þá byrjuðu þau saman.
Amma var fyrirmyndarhúsmóðir
alla tíð, með þrjár fullar frysti-
kistur og margar sortir í hverjum
kaffitíma.
Ég var mikið hjá ömmu og afa,
bæði sem krakki og unglingur og
líka eftir að ég varð fullorðin og
komin með mín eigin börn. Við
fjölskyldan vorum oft á Hólma-
vík, sátum í eldhúsinu hjá ömmu
að borða kökur og spjalla, hún tók
líka þátt í stóru viðburðunum í lífi
okkar, var vottur þegar við Snorri
giftum okkur. Á afmælisdögum
bakaði hún pönnukökur. Ég gerði
líka tilraunir til að læra af henni
listina að baka kökur, brúnkökur,
tertur, vatnsdeigsbollur og klein-
ur. Hún prjónaði líka fallegustu
peysurnar og gaf krökkunum. Ég
er heppin að hafa fengið að eiga
hana ömmu svona stóran hluta af
minni ævi og að hafa fengið að
eiga vinkonu eins og hana. Ég er
þakklát fyrir allan tímann sem við
fengum, fyrir allt spjallið, fyrir að
við skildum alltaf hvor aðra.
Minningin um ömmu lifir áfram.
Elsku amma, hvíl í friði.
Stefanía Guðrún
Halldórsdóttir.
Stefanía systir okkar er látin
eftir skammvinn veikindi. Hún
var elst okkar og má segja að eftir
andlát móður okkar árið 1978 höf-
um við systkinin litið á Stebbu
sem móður okkar. Alltaf þegar
við heyrðumst spurðum við fyrst:
„Hefurðu heyrt í Stebbu?“ Hún
var alla tíð til staðar fyrir okkur
öll.
Stebba var ákveðin og skoð-
anaföst og gat látið í sér heyra ef
því var að skipta, eins og fleiri í
fjölskyldunni, en var með hlýtt og
gott hjarta. Hún stóð vaktina í
eldhúsinu og þar var ætíð veislu-
borð opið öllum, sem leið áttu um
og þeir voru margir. Það verður
skrýtið að koma á Strandirnar
þegar Stebba systir tekur ekki
lengur á móti okkur með opinn
faðminn.
Að leiðarlokum þökkum við
langa og góða samfylgd og biðjum
guð að blessa minningu Stebbu
systur. Við vottum Jóni og börn-
unum okkar dýpstu samúð.
Aðalsmerkið: elska og fórna
yfir þínum sporum skín.
Hlý og björt í hugum okkar
hjartkær lifir minning þín.
(Ingibjörg Sigurðardóttir)
Fyrir hönd systkinanna frá
Háafelli,
Bjarni Andrésson.
Stefanía Guðrún Andrésdóttir
mágkona mín er látin á nítugasta
og öðru aldursári. Hún var búin
að dvelja á Sjúkrahúsinu á
Hólmavík í rúma tvo mánuði er
hún lést. Margs er að minnast
þegar maður hugsar aftur í tím-
ann. Fjölskyldur okkar hafa átt
samleið í 70 ár. Ég man eftir því
þá þrettán ára gamall þegar ég
spurði Jón bróður minn hvað
hann væri að gera úti á Drangs-
nesi, ég er að heimsækja stúlku
þar, sagði hann. Árin liðu og okk-
ar samvinna var alltaf að aukast,
meðal annars rákum við saman
fjárbú, verslun og umboð fyrir
Olís. Þessi samvinna okkar varði í
tuttugu ár. Stefanía var dugleg
kona, starfaði í sláturhúsinu á
haustin og í frystihúsinu við
rækjuvinnslu og fiskverkun.
Fjölskyldur okkar áttu heima í
sama húsi, sem er nú Hafnar-
braut 37 og það var oft gest-
kvæmt hjá Jóni og Stefaníu, allt-
af veislumatur og veislukaffi á
borðum. Árið 1966 fluttu þau af
Hafnarbraut 37 og á Hafnar-
braut 35 og þar hefur verið þeirra
heimili síðan. Dugnaður hennar
Stefaníu við að baka og elda mat
hefur verið einstakur. Hún hefur
í mörg ár eldað fyrir smala á
Innra-Ósi á haustin, þá oftast tíu
til fimmtán manns, og síðast í
fyrrahaust. Ég minnist þess þeg-
ar við bræður vorum að heyja
fyrir bústofninum okkar hvað
konurnar okkar voru duglegar,
við sóttum heyskap upp í Steina-
dal, inn að Hólum og upp í Þið-
riksvalladal og á fleiri staði. Við
Valdís mín og okkar fjölskyldur
þökkum Stefaníu samfylgdina, og
vottum Jóni bróður, Hrönn og
fjölskyldu, Andrési og fjölskyldu
og Haraldi og fjölskyldu innileg-
ar samúðarkveðjur.
Karl E. Loftsson.
Í dag kveðjum við frábæra og
góða konu, Stebbu hans Nonna
frænda. Ég var svo heppin að fá
að alast upp í mikilli nálægð við
Stebbu og Nonna. Stebba er mág-
kona pabba. Þau bjuggu í næsta
húsi við okkur, það var margt sem
þessar tvær fjölskyldur gerðu og
störfuðu við í sameiningu. Þau
áttu fjárbú, ráku verslun og svo
var fjölskyldan mikið saman. Ef
það var ekki góður matur heima
hjá okkur gat ég athugað hvað
var í matinn hjá Stebbu. Ef það
var betra þar þá borðaði ég þar.
Stebba var snillingur í að baka
alls konar bakkelsi og dags dag-
lega alla tíð voru nokkrar sortir á
borðum hjá henni, kleinur, lag-
kaka og brúnkaka, jólakaka og
vínarbrauð. Ég tala nú ekki um
þegar tilefni var til að halda
veislu, þá voru borðin hlaðin af
öllum heimsins bestu kökum.
Þegar ég keypti mér uppskrifta-
bók sem ung kona, fór ég fyrst til
Stebbu til að fá hennar bestu upp-
skriftir til að skrifa í bókina.
Stebba var hörkustarfskraftur í
vinnu. Hún starfaði mörg ár í
frystihúsinu og sláturhúsinu og
oft vann hún þar karlmannsstörf.
Ég vann við hlið hennar í frysti-
húsinu nokkur sumur. Hún var
alltaf hvetjandi og til í að aðstoða
ef þörf var á. Stebba las mikið,
það var gott að spyrja hana hvaða
bækur væru skemmtilegar, hún
fékk alltaf margar bækur í jóla-
gjöf, þá man ég sérstaklega eftir
öllum Sögusafn heimilanna bók-
unum sem hún átti. Stebba var
líka mikil prjónakona og einnig
hafði hún mikinn áhuga á ætt-
fræði, að finna út hverra manna
fólk var sem hún hitti eða heyrði
um. Hún hafði líka mjög ákveðnar
skoðanir á ýmsum málefnum og
lét það í ljós þegar maður spjall-
aði við hana. Ég fór ekki til
Hólmavíkur án þess að heim-
sækja Stebbu til að spjalla og
smakka heimabakað bakkelsi og
svo hringdi ég alltaf í hana á af-
mælisdaginn hennar og þá spurði
hún um mína hagi. Hún var
áhugasöm um hvernig gengi hjá
mér og mínum, eins og öllum sem
tengdust henni nánum böndum.
Alveg til hins síðasta fylgdist hún
vel með öllu og öllum í hennar
umhverfi. Þegar ég heimsótti
hana stuttu áður en hún kvaddi,
þá mundi hún, 92 ára konan, það
sem ég gat ómögulega munað.
Það er dýrmætt fyrir mig að
eiga allar þessar góðu minningar
um Stebbu og það sem hún gaf
mér af visku og verkviti.
Hver minning dýrmæt perla að liðnum
lífsins degi,
hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka
hér.
Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem
gleymist eigi,
og gæfa var það öllum, er fengu að
kynnast þér.
(Ingibjörg Sigurðardóttir)
Elsku Nonni frændi, Hrönn,
Andrés, Haddi og fjölskyldur, ég
og Gunnar, Smári og Grímur
vottum ykkur innilega samúð.
Blessuð sé minning yndislegrar
kraftakonu sem Stebba var.
Minningin lifir sem ljós í hjarta
okkar.
Ragna Þóra
Karlsdóttir.
Stefanía Guðrún
Andrésdóttir
Stapahrauni 5, Hafnarfirði
Sími: 565 9775
www.uth.is - uth@uth.is
Frímann
897 2468
Hálfdán
898 5765
Ólöf
898 3075
Kristín
699 0512
Sálm. 86.5
biblian.is
Þú, Drottinn,
ert góður og fús
til að fyrirgefa,
gæskuríkur öllum
sem ákalla þig.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
RANNVEIG G. KRISTJÁNSDÓTTIR
frá Bolungarvík,
verður jarðsungin frá Laugarneskirkju
mánudaginn 5. júlí klukkan 11. Athöfninni
verður streymt á www.streyma.is/utfor.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Blindrafélagið.
Rannveig Stefánsdóttir Ögmundur Gunnarsson
Tryggvi Stefánsson
Sirrý Halla Stefánsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
MARSIBIL HÓLM AGNARSDÓTTIR,
Víðimýri 4,
Sauðárkróki,
lést föstudaginn 25. júní á
Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri.
Útförin fer fram frá Sauðárkrókskirkju mánudaginn 5. júlí
klukkan 14. Jarðsett verður í Hólakirkjugarði. Sérstakar þakkir
færum við fjölskyldan starfsfólki á skurðlækningadeild FSA fyrir
góða umönnun. Hlekkur á streymi er: Útför – Marsibil Hólm
Agnarsdóttir – You Tube.
Helga Sigríður Árnadóttir Þórður Grétar Andrésson
Agnar Ástmar Geirfinnsson Hafdís Alda Njálsdóttir
Ástvaldur Jóhannesson Stefanía Guðrún Guðjónsd.
Bjarni Friðrik Jóhannesson Bjarney Sigríður Snævarsd.
Sigfús Jóhannesson
Guðleif Sigrún Jóhannesd. Sturla Eiðsson
Ásta Agnes Jóhannesdóttir Páll Gíslason
Una Herdís Jóhannesdóttir Björn Guðsteinsson
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir,
afi og bróðir,
JÓN VALGARÐUR DANÍELSSON,
Hábæ 40, Reykjavík,
lést í faðmi fjölskyldunnar miðvikudaginn
30. júní. Jarðarför fer fram frá Árbæjar-
kirkju föstudaginn 9. júlí klukkan 13.
Blóm og kransar afþakkað en þeim sem vilja minnast hans er
bent á Ljósið.
Guðbjörg Ágústsdóttir
Ágúst Erling Gíslason Rósalind María Gunnarsdóttir
Daníel Gunnars Jónsson Guðrún Stefánsdóttir
Svavar Jónsson Erna Kristín Valdimarsdóttir
og barnabörn
Ástkær móðir okkar, tengdamamma, amma
og langamma,
MARGRÉT INGIBJÖRG
BJÖRNSDÓTTIR,
Víðigrund 6, Sauðárkróki,
lést á sjúkrahúsinu á Sauðárkróki
miðvikudaginn 23. júní. Útförin verður frá Sauðárkrókskirkju
þriðjudaginn 6. júlí klukkan 14 og jarðsett í Reykjakirkjugarði.
Athöfninni verður streymt á Facebook-síðu Sauðárkrókskirkju.
Sólborg Jóhanna Þórarinsd. Hávarður Sigurjónsson
Hörður Þórarinsson Hafdís Halldóra Steinarsdóttir
Hrefna Þórarinsdóttir Þorsteinn Kárason
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
SJÖFN BJARNADÓTTIR
húsmóðir,
lést sunnudaginn 13. júní á hjúkrunar-
og dvalarheimilinu Droplaugarstöðum í
Reykjavík. Útför fer fram frá Dómkirkjunni mánudaginn 5. júlí
klukkan 13. Sérstakar þakkir fá starfsmenn Droplaugarstaða
fyrir frábæra umönnun.
Sigríður Hermannsdóttir Árni Róbertsson
Guðmundur Hermannsson Guðrún Bjarnþórsdóttir
Sváfnir Hermannsson Katrín Jónsdóttir
Jón Ágúst Hermannsson Birna Björgvinsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn