Morgunblaðið - 03.07.2021, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 03.07.2021, Qupperneq 36
✝ Gísli Sumar- liðason fæddist á Bjargi í Borg- arnesi 15. maí 1939. Hann lést á Sjúkrahúsi Akra- ness 21. júní 2021. Foreldrar Gísla voru Guðríður Halldórsdóttir frá Kjalvararstöðum, f. 12.12. 1899, d. 24.2. 1990, og Sumarliði Sigmundsson frá Gróf í Reyk- holtsdal, f. 26.10. 1904, d. 9.7. 1982. Bræður Gísla: Aðalsteinn Björnsson, f. 26.12. 1925, d. 31.7. 1984, og Sigfús Sum- arliðason, f. 24.10. 1932, d. 23.10. 2001. Gísli ólst upp í Borgarnesi á Borgarbraut 63. Hinn 14.7. 1962 kvæntist Gísli Elsu Fríðu Arnbergsdóttur, f. 8.1. 1936. Foreldrar hennar voru Arnbergur Stefánsson, f. 9.10. 1897, d. 19.12. 1992, og Þorgerður Hallmundardóttir, f. 13.10. 1899, d. 9.4. 1990. Gísli og Elsa eignuðust tvo syni, Garðar Þór, f. 1.10. 1959, eiginkona Theodóra Gunn- arsdóttir, f. 10.7. 1960, börn þeirra eru: Edda, f. 15.9. 1984, eigin- maður hennar er Sigurbjörn Þórsson, börn þeirra eru Una Dögg og Freyja María. Ari, f. 7.4. 1994. Arnar Már, f. 26.3. 1963, eigin- kona Sigurbjörg Sigmundsdóttir, f. 27.8. 1966, börn þeirra eru: Gísli Már, f. 21.3. 1986, sambýliskona hans er Sigríður Dóra Sigur- geirsdóttir, börn þeirra, Emilía Ýr, Embla Björg og Dagrún Birta. Þórdís Sif, f. 2.7. 1992, sam- býlismaður hennar er Sveinn Ólafur Melsted, börn Bríet Líf og Óliver Aron. Gísli útskrifaðist frá Grunn- skóla Borgarness 14.5. 1954 og hóf störf hjá Kaupfélagi Borg- firðinga í matvöruverslun í Eng- lendingavík, en var síðan versl- unarstjóri í búsáhalda-, leik- fanga- og raftækjadeild kaup- félagsins við Egilsgötu í Borgar- nesi frá 1962 til 1988. Eftir það hjá Byggingarfélaginu Borg í Borgarnesi, Áferð ehf. í Kópa- vogi og Geirabakaríi í Borg- arnesi. Gísli var alla tíð virkur félagi í Lionsklúbbi Borgarness. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Elsku Gísli, ég vil fá að þakka þér fyrir öll árin sem við áttum saman, en þau eru orðin 64 árin síðan við kynntumst fyrst, og 14. júlí næstkomandi höfum við verið gift í 59 ár. Með þessum orðum vil ég kveðja þig hinstu kveðju. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaður viðkvæm stund. Vinirnir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. Grátnir til grafar göngum vér nú héðan, fylgjum þér, vinur. Far vel á braut. Guð oss það gefi, glaðir vér megum þér síðar fylgja‘ í friðarskaut. (Valdimar Briem) Með ást og virðingu, hafðu þökk fyrir allt og allt. Guð blessi þig og varðveiti. Þín Elsa. Gísli Sumarliðason 36 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. JÚLÍ 2021 Það var engin tilviljun að Guðjón Guðmundsson var ætíð nálægur þeg- ar lagt var upp með miklvæg verkefni á sviði fræðslumála á Suðurnesjum. Hvort það var viðbygging við Fjölbrautaskól- ann, stofnun Miðstöðvar sí- menntunar á Suðurnesjum eða Fisktækniskólans í Grindavík – þá var gott að hafa Guðjón með í ráðum. Það var ekki bara af því að hann var framkvæmda- stjóri Sambands sveitarfélaga og sum málin að einhverju leyti tengd hans verksviði – það var vegna þess að Guðjón var ein- lægur áhugamaður um eflingu menntunar og þegar hann tjáði sig um málefnið – var það af einlægni og vel ígrunduðu máli. Hann naut trausts. Það var styrkur í hans málflutningi og það var styrkur í hans liðsinni. Þannig var Guðjón. Guðjón var á fyrsta kynning- arfundi í Þorbirninum í Grinda- Guðjón Guðmundsson ✝ Guðjón Guð- mundsson fæddist 8. ágúst 1949. Hann lést 18. júní 2021. Útför Guðjóns fór fram 30. júní 2021. vík – um stofnun Fisktækniskóla Ís- lands. Hann kom að stofnun undir- búningsfélags að stofnun skólans og var fulltrúi SSS í stjórn frá upphafi. Eftir að Guðjón lét af störfum sem framkvæmdastjóri SSS árið 2015 og umsvif skólans fóru að aukast – varð það lán okkar að fá hann sem fjármála- stjóra við skólann. Þau hjónin – Guðjón og Agnes – voru virkir þátttakendur í félagsskap og ferðum starfsmanna. Það var mikil sorg þegar Agnes féll frá – en starfsfólk samgladdist Guðjóni þegar hann fann síðan ástina að nýju. Guðjón var traustur og góður starfsmaður. Hann var góður félagi. Öllum þótti afar vænt um Guðjón Guðmundsson – hans verður saknað. Við hjónin vottum ættingjum og vinum innilega samúð við fráfall Guðjóns – og megi minn- ing um góðan dreng og félaga vera huggun okkar allra. Skólameistari Fisktækni- skóla Íslands, Ólafur Jón Arnbjörnsson. Kæri Gunnar! Að leiðarlokum við ég þakka þér fyrir alla góðvild í minn garð og ekki síður í garð fósturföður míns, Hallgríms Ott- óssonar. Ég vil kveðja þig með Gunnar Þórðarson ✝ Gunnar Þórð- arson fæddist 9. ágúst 1922. Hann lést 12. maí 2021. Útför Gunnars fór fram 29. maí 2021. ljóði Herdísar Andrésdóttur frá Flatey á Breiðafirði: Lækkar lífdaga sól. Löng er orðin mín ferð. Fauk í faranda skjól, feginn hvíldinni verð. Guð minn, gefðu þinn frið, gleddu’ og blessaðu þá, sem að lögðu mér lið. Ljósið kveiktu mér hjá. Jón Kr. Ólafsson. Elsku mamma, það er ótrúlega skrítið að geta ekki tekið upp símann og bjallað á þig til að segja þér frá deginum eins og orðið var venjan hjá okkur. Ég hef oft tekið upp símann til að segja þér eitthvað sniðugt eða leyfa þér að fylgjast með fréttum af strákunum þeim Breka og Lu- cien eða bara lífinu og tilverunni hérna á Suðurgötunni. Oft byrj- uðu símtölin „Komdu sæl frú Sig- ríður, tilkynningarskyldan hér“. Alltaf varst þú tilbúin að hlusta, hversu innihaldslítið eða –mikið erindið var. Ég er svo þakklát fyrir að hafa átt þig fyrir mömmu og nú á seinni árum mína bestu vinkonu. Alltaf svo blíð, þolinmóð og tilbúin að hlusta og styðja í gegnum súrt og sætt. Síðasta sumar er ógleyman- legt og fullt af skemmtilegum Sigríður Sjöfn Guðbjartsdóttir ✝ Sigríður Sjöfn Guðbjarts- dóttir fæddist 25. september 1941. Hún lést 11. júní 2021. Útför Sigríðar fór fram 23. júní 2021. minningum sem við pabbi búum nú að. Ég hélt aldrei að ég mundi segja þetta, en ég þakka fyrir at- vinnuleysið á tímum Covid, því það gaf mér svo dýrmætan tíma með þér og pabba. Suður- ströndin þar sem ég dró ykkur á alla helstu túristastaði og svo hringferðin okkar með góðum stoppum í Mjóafirði og heima í firðinum okkar fagra, Norðfirði. Það var mikið áfall að fá fréttirnar um veikindin þín í endaðan febrúar og ég bjóst í raun við meiri tíma með þér. Þrátt fyrir það er ég þakklát fyrir þann tíma sem við fengum þó og við nýttum hann vel. Þú tókst á við þetta af æðruleysi, bjartsýni og jafnaðargeði eins og þín var von og vísa. Húmorinn þinn var heldur aldrei langt undan. Elsku mamma mín, ég elska þig og sakna, góða ferð og ég bið að heilsa Bjarti bróður. Strákarnir senda kveðju og við pössum pabba. Þín Bryndís. Elsku vinkona. Bifröst! Já, hver kynntist þér ekki á Bifröst sem á ann- að borð var þar? Lífsglöð, skemmtileg og sæt, smitandi hláturinn þinn, laðaði alla að sem hann heyrðu. Tala ekki um orkuna, kraftinn og fram- kvæmdagleðina sem þú hafðir með þér, alveg ótrúlega dugleg og flott alltaf. Bifröst hefur sam- einað marga og er ég þakklát fyrir að hafa fengið að kynnast þér og njóta nærveru þinnar. Strax og ég kynntist þér heill- aðist ég af því hversu opinská, hreinskilin og óhrædd þú varst, alltaf til í að upplifa og búa til skemmtilegar minningar. Alltaf til í að hoppa af stað og gera eitthvað hressandi, keyra af stað, labba og skoða það sem fyrir augu bar eða bara setjast í Sólveig Katrín Hallgrímsdóttir ✝ Sólveig Katrín Hallgríms- dóttir fæddist 21. júní 1977. Hún lést 17. júní 2021. Útför Sólveigar fór fram 1. júlí 2021. grasið og spjalla. Við ræddum fossas- íðuna þína, hvernig hún átti að vera, stráka, já það var tímafrekt umræðu- efni hjá okkur, vinnu, húsið þitt og Sölva, alls konar af öllu enda náðum við vel saman. Þegar ég hugsa til þín elsku vinkona þá eru það minningar um okkur hlæjandi, já það gerðum við svo sannarlega mikið af. Bílferðirn- ar, sumarbústaðarferðirnar og allar þær samkomur þar sem okkur var boðið í var alltaf stuð með þér Solla. Það er mjög þungbært að kveðja þig elsku Solla mín, erf- iðara en orð fá lýst. Hefði viljað seinka þessari kveðjustund verulega. Sorgin heltekur bæði líkama og sál og enginn skiln- ingur fyrir því hversu grimmur og óréttlátur þessi heimur getur verið. Þú varst búin að standast svo mörg próf og búin með svo mikið af verkefnum lífsins, varst komin á góðan stað. Með áræðni þinni vaktir þú aðdáun hjá öðr- um og skilur eftir stórt fótspor í hjörtum þeirra sem þér kynnt- ust. Árlegi hittingurinn minn verður snauður að ári vegna þinnar fjarveru. Þú hélst uppi fjörinu eins og þín var von og vísa. Elsku litríki stuðboltinn minn sem komst alltaf með góða skapið og hláturinn með þér eins og Ajax-stormsveipur, þannig minnist ég þín elsku Solla mín. Hvíl í friði, elska þig. Þín vinkona, Sandra Björk. Þökkum samúð og hlýhug við andlát og útför okkar ástkæru KRISTÍNAR RAGNHILDAR DANÍELSDÓTTUR, Öddu, frá Tirðilmýri, Hlíf 2, Ísafirði. Sérstakar þakkir til starfsfólks heimahjúkrunar og sjúkrahússins á Ísafirði fyrir einstaka umönnun. Engilbert Ingvarsson Kristina Karlsson Daníel Engilbertsson Ingvar Engilbertsson Hulda Steingrímsdóttir Jón Hallfreð Engilbertsson Helga S. Snorradóttir Ólafur J. Engilbertsson Gyða S. Björnsdóttir Atli Viðar Engilbertsson Salbjörg Engilbertsdóttir Sverrir Guðbrandsson og fjölskyldur Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð, stuðning og hlýju vegna andláts og útfarar ÞORVALDAR JÓHANNESAR ELBERGSSONAR, Grundarfirði. Sérstakar þakkir sendum við starfsfólki og íbúum á Dvalarheimilinu Stykkishólmi og starfsfólki Sjúkrahúss Stykkishólms fyrir einstaka alúð og vináttu. Fyrir hönd ættingja, Ragnar Elbergsson Matthildur S. Guðmundsdóttir Elberg Þorvaldsson Margrét H. Stefánsdóttir og börn Elskulegur faðir minn, tengdafaðir og afi, SVEINN BERGMANN STEINGRÍMSSON, Kaplaskjólsvegi 63, Reykjavík, lést á Hrafnistu 16. júní. Útförin fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík mánudaginn 5. júlí klukkan 13. Halldóra Sigríður Sveinsd. Stefán Ívar Ívarsson Halldór Ívar Stefánsson Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærs eiginmanns míns, föður okkar og tengdaföður, EGILS HALLGRÍMSSONAR, sóknarprests í Skálholtsprestakalli. Ólafía Sigurjónsdóttir Sóley Linda Egilsdóttir Viðar Stefánsson Hallgrímur Davíð Egilsson Minningarkort á hjartaheill.is eða í síma 552 5744 HJARTAVERND Minningarkort 535 1800 www.hjarta.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.