Morgunblaðið - 03.07.2021, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 03.07.2021, Blaðsíða 38
á sumrin. „Við vorum á Hólum í Hjaltadal í 18 ár, en kaupum nýbýlið Ytra-Skörðugil III árið 1995, en þá var þar bara land en við byggðum svo íbúðarhús þar árið 2000 og höfum búið þar síðan.“ Eitt ár dvöldu hjónin í bænum Guelph í Ontario í Kanada. „Það var búið til samband milli bændaskólanna og háskólans í Guelph, að undirlagi Vestur-Íslendings, sem var prófessor í Kanada, og við Bryndís ásamt öðrum hjónum vorum þau fyrstu sem fórum út. Bryndís fór í háskólann á ferða- málabraut sem gestastúdent en ég ætlaði að vinna við rafvirkjun, en þá var atvinnuleysi í greininni. Svo frétti ég af Vestur-Íslendingum sem væru með 100 íslensk hross og vantaði tamningamann, svo ég tók það að mér, myndi lána mér hest til að fara með. Ég var svolítið áhrifagjarn á þessum árum og hlustaði kannski meira á fé- lagana, en það blundaði alltaf í mér þessi draumur. Þegar Jón Bjarnason, fv. ráðherra, flytur í Hóla 1981 og tek- ur við skólastjórastöðunni fór ég að hugsa um að kannski ætti ég að láta til skarar skríða. Þá voru líka breytingar yfirvofandi hjá Rarik, svo það lagðist allt á eitt. Ég þekkti náttúrulega Jón og við fórum heim á Hóla og þá vantaði hann akkúrat manneskju í eldhúsið, svo konan mín tók það að sér og síðar kenndi hún á ferðamálabraut skólans þegar hún var sett í gang.“ Eftir að Ágúst lauk við Bændaskólann, var hann í þrjá vetur við hirðingu og tamn- ingu á vetrum en vann hjá rafverktaka Á gúst Jónsson fæddist í Stykkishólmi 3. júlí 1951. „Það var gott að alast upp í Stykkishólmi og mikið fjör enda vorum við sex systkinin á heimilinu og móð- uramma mín bjó líka með okkur og hjálpaði mömmu. Æskuheimili mitt stendur við Maðkavík og það var mikill leikvöllur hjá manni og ég hef örugg- lega dottið 100 sinnum í sjóinn og var alltaf skammaður fyrir. Pabbi var skipstjóri og var með fiskibát þegar ég var ungur og maður var alinn upp á ýsu og lýsi og grjónagraut. Ágúst var í sveit á sumrin, fyrst í þrjú sumur á Staðarbakka í Helga- fellssveit og síðan á Ytri-Kóngsbakka í sömu sveit hjá frænda sínum. „Ég hef alltaf kallað það mitt annað heimili, því ég var svo mikið á Ytri-Kóngsbakka alla tíð. Þar byrja ég að fá áhuga á hestamennsku. Það var sem sagt ekki bara fólkið sem dró mig að bænum, heldur hrossin líka.“ Ágúst gekk í Grunnskólann í Stykk- ishólmi og eftir gagnfræðaprófið fór hann á sjó á línubátnum Arney. „Við fórum í útilegu við Austur-Grænland að veiða þorsk og svo um sumarið á grálúðu við Kolbeinsey. Maður var að- eins sjóveikur svona fyrst, en svo eltist það af manni. Það var sérstakt að vera við Grænland því við þurftum stundum að flýja undan rekís, svo þetta var mik- ið ævintýri.“ Sautján ára gamall kynntist hann Bryndísi eiginkonu sinni. „Við byrj- uðum saman ung, en hún er frá Búð- ardal þar sem pabbi hennar var hér- aðsráðunautur og við kynntumst þar á balli.“ Ágúst hafði ekki áhuga á því að gera sjómennskuna að ævistarfi og fannst rafvirkjanám spennandi og praktískt. Vorið 1975 fæddist dóttir þeirra, Alma, og þá um haustið fluttu þau til Reykjavíkur og hófu búskap. Ágúst hóf nám í rafvirkjun hjá Skipa- smíðastöðinni í Skipavík og rafmagns- iðnfræði í Tækniskóla Íslands í Reykjavík og útskrifaðist 1978. Þá fór hann að vinna hjá Rarík og var þar til ársins 1982. Þá ákvað fjölskyldan að breyta til og flytja norður í land. „Frændi minn á Ytri-Kóngsbakka var búinn að liggja svolítið í mér alla tíð að fara í Bændaskólann, og sagðist auk þess að temja íslenska hesta í Guelp. Þarna björguðu hrossin mér.“ Ágúst segir að dvölin í Kanada hafi verið góð, en borgin sé svipuð að stærð og Reykjavík, um 100 km austan við Toronto, en á vetrum er iðulega 24 gráðu frost og andvari. Hjónin notuðu tækifærið og skoðuðu Niagara-fossana auk þess að heimsækja stórborgina. Auk þess að temja hefur Ágúst starfað mest hjá Rarík, verið starfandi rafverktaki, unnið hjá öðrum rafverk- tökum og hjá Landsvirkjun, þar sem hann hefur unnið í virkjunum og spennistöðvum víða um land. „Ég hef verið lánsamur eftir að ég kom til Landsvirkjunar að fá skemmti- leg verkefni og svolítið frjálsar hend- ur.“ Þegar Ágúst er ekki að sinna hesta- Ágúst Jónsson rafmagnsiðnfræðingur og hestamaður – 70 ára Hjónin Prúðbúin og kát í stúdentsveislu Helgu dótturdóttur sinnar. Maður er alinn upp á ýsu og lýsi Árlegur reiðtúr Ágúst vestur í Döl- um í árlegum reiðtúr þeirra hjóna. Veiðikló Ágúst með fenginn úti á sundunum úti í Stykkishólmi. 38 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. JÚLÍ 2021 FC 7 Premium Skeifan 3 • 108 Reykjavík • Sími 581 2333 • rafver.is • rafver@rafver.is 50 ÁRA Rannveig fæddist á Land- spítalanum í Reykjavík 3. júlí 1971. „Ég ólst upp í Hafnarfirði og gekk í Lækjarskóla til 11 ára aldurs. Flutti þá til Gainesville í Flórída í Banda- ríkjunum þar sem pabbi stundaði nám við University of Florida.“ Árið 1988 flutti Rannveig heim og eftir Flensborg fór hún í lyfjafræði í Há- skóla Íslands og útskrifaðist 1996. Ég starfaði frá útskrift til 2000 sem lyfja- fræðingur í gæðatryggingadeild hjá Delta hf. í Hafnarfirði (síðar Actavis og nú Teva), en þurfti þá að láta af störfum vegna veikinda.“ Árin 2010- 2020 starfaði Rannveig sem verk- efnastjóri hjá Vottunarstofunni Túni á sviði lífrænnar vottunar. „Mitt helsta áhugamál er garð- yrkja og hef ég haldið úti vefsíðunni www.gardaflora.is frá árinu 2009. Í mars 2021 stofnaði ég félagið Garða- flóra slf. utan um starfsemina og hef- ur það verkefni átt hug minn allan síðan.“ FJÖLSKYLDA Rannveig er trúlof- uð Sigurjóni Ingvasyni, f. 18.7. 1964, og þau búa í Hafnarfirði. Sigurjón á tvö börn úr fyrra hjónabandi, Alex- ander Sigurjónsson, f. 28.10. 1995, og Evu Katrínu Sigurjónsdóttur, f. 28.9. 1997. Rannveig á tvær dætur úr fyrra hjónabandi, þær Selmu Rún Bjarna- dóttur, f. 28.9. 1998, og Hildi Evu Bjarnadóttur, f. 14.1. 2003. Foreldrar hennar eru dr. Guðleifur M. Kristmundsson, f. 29.3. 1949, og Hildur Baldursdóttir, f. 24.9. 1949. Rannveig Guðleifsdóttir Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl , Hrútur Ímyndunaraflið er af hinu góða ef menn kunna að hafa á því hemil og gera greinarmun á draumi og veruleika. Haltu einbeitingunni þótt þín sé ákaft freistað. 20. apríl - 20. maí + Naut Reiddu þig ekki um of á aðstoð ann- arra. Ekki taka fleiri verkefni að þér fyrr en borðið er tómt. Vertu óhrædd/ur við að leita aðstoðar á þeim sviðum, sem ekki eru á þínu áhugasviði. 21. maí - 20. júní 6 Tvíburar Bílamál geta tafið för þína í dag. Fjarlægðin gerir fjöllin blá. Þú sérð hlutina í nýju ljósi. 21. júní - 22. júlí 4 Krabbi Eitthvað óvænt og ánægjulegt gæti komið í þinn hlut. Haltu fast utan um budd- una. Þú lest ýmislegt á milli línanna. 23. júlí - 22. ágúst Z Ljón Það hefnir sín að slá slöku við í vinnunni og eyða þar tíma í vangaveltur um persónuleg mál. 23. ágúst - 22. sept. l Meyja Þér væri nær að líta í eigin barm í stað þess að reyna að skella skuldinni á aðra. Ekki stinga höfðinu í sandinn, horfstu í augu við það sem þú óttast. 23. sept. - 22. okt. k Vog Þú hefur hleypt einhverjum of nærri þér án þess að vita hvern mann viðkom- andi hefur að geyma. Þú gengur með skemmtilega hugmynd í maganum. 23. okt. - 21. nóv. j Sporðdreki Þið ættuð ekki að hika við að beita gömlum ráðum gegn nýjum vanda- málum. Óveðurský hrannast upp í ástamál- unum. 22. nóv. - 21. des. h Bogmaður Notaðu daginn til þess að sinna viðgerðum á heimilinu og lagaðu það sem er bilað. 22. des. - 19. janúar @ Steingeit Ekki hika við að hrinda hug- myndum í framkvæmd sem þig langar virkilega til að verði að veruleika. Þol- inmæði þín er af skornum skammti þessa dagana. 20. jan. - 18. febr. ? Vatnsberi Það er alltaf affarasælast að leita samkomulags um framkvæmd mála. Hvað getur þú gert til þess að auka á ánægju fjölskyldunnar? 19. feb. - 20. mars = Fiskar Gættu þess að leyndarmál þín liggi ekki á borðum þeirra sem kunna ekki með þau að fara. Spennandi möguleikar á ferða- lögum/námi gætu boðist. Til hamingju með daginn Þau leiðu mistök urðu í afmælisgrein um Rósamundu Kristínu Káradóttur frá Hrísey, þriðjudaginn 29. júní sl., að nafn eins sonar hennar datt út. Rósa á sex börn og þar vantaði Emil Örn, f. 27.1. 1972, tæknifræðing, sem var kvæntur Theo- dóru Torfadóttur og þeirra sonur er Magnús Ýmir, f. 22.8. 2007. Þau skildu. LEIÐRÉTT

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.