Morgunblaðið - 03.07.2021, Side 39
mennskunni og hrossaræktinni er að-
aláhugamálið að fara á sjó. „Við bræð-
urnir eigum saman bátinn Hrímni SH
714 og höfum gaman af því að skottast
þarna á sundunum heima á sjóstöng.
Ef veður leyfir mun ég fara á afmæl-
inu út á sjó.“ Einnig hefur Ágúst verið
í Karlakórnum Heimi í 32 ár og ferðast
með honum bæði innanlands og utan.
Fjölskylda
Eiginkona Ágústs er Bryndís
Bjarnadóttir hússtjórnarkennari, f.
27.12. 1953, og þau búa á Ytra-
Skörðugili III. Foreldar Bryndísar eru
Bjarni Fanndal Finnbogason ráðu-
nautur, f. 27.2. 1918, d. 11.1. 1975, og
Sigurlaug Indriðadóttir, verkakona í
Búðardal, f. 29.1. 1928, d. 26.4. 2014.
Dætur Ágústs og Bryndísar eru 1)
Alma, tölvunarfræðingur á Akureyri,
f. 12.5. 1975. Maki hennar er Benedikt
Sigurgeirsson, f. 1966, og eiga þau
börnin Jón Pétur, f. 1994, og Helgu, f.
1998. 2) Þórdís, gjörgæsluhjúkr-
unarfræðingur í Gautaborg, f. 23.3.
1989. Maki hennar er Óskar Bjarki
Helgason, f. 1989. Dætur Sigurlaug
Lilja, f. 2013, og Andrea Alda, f. 2016.
Systkini Ágústs eru Agnar Olsen
byggingaverkfræðingur, f. 9.3. 1943;
Kristín Sigurbjörg Jónsdóttir banka-
starfsmaður, f. 14.7. 1948; Níels Breið-
fjörð Jónsson efnafræðingur, f. 19.6.
1950; Svanhildur Jónsdóttir sjúkraliði,
f. 16.12. 1955, og Sigurður Jónsson,
vélfræðingur með skipstjóraréttindi
og vinnur í skipatryggingum hjá DM,
f. 9.3. 1958.
Foreldrar Ágústs eru hjónin Jón
Dalbú Ágústsson skipstjóri, f. 16.9.
1922, d. 7.2. 2002, og Laufey Sigurð-
ardóttir húsfreyja, f. 9.8. 1920, d. 13.2.
2003. Þau voru búsett í Stykkishólmi.
Ágúst
Jónsson
Petrúnella Pétursdóttir
húsfreyja í Torfum í Eyjafirði
Gunnar Pálsson
bóndi í Torfum í Eyjafirði
Kristín Gunnarsdóttir
húsfreyja á Fáskrúðsfirði
Sigurður Einarsson
smiður á Fáskrúðsfirði
Laufey Sigurðardóttir
húsfreyja í Stykkishólmi
Björg Jóhannsdóttir
húsfreyja á Djúpavogi
Einar Sigurðsson
bóndi á Djúpavogi
Dagbjört H. Jónsdóttir
húsfreyja í Sellátri á Breiðafirði
Níels Breiðfjörð Jónsson
bóndi og sjómaður í Sellátri á
Breiðafirði
Magðalena Níelsdóttir
húsfreyja í Stykkishólmi
Hannes Ágúst Pálsson
skipstjóri og útgerðarmaður
í Stykkishólmi
Ástríður Helga Jónasdóttir
húsfreyja í Höskuldsey á
Breiðafirði
Metúsalem Páll Guðmundsson
bóndi og formaður í Höskuldsey
á Breiðafirði
Úr frændgarði Ágústs Jónssonar
Jón Dalbú Ágústsson
skipstjóri í Stykkishólmi
DÆGRADVÖL 39
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. JÚLÍ 2021
fyrir heimilið
Sendum
um
land
allt
Tjarnargötu 2 | 230 Reykjanesbæ | Sími 421 3377 | bustod@bustod.is | www.bustod.is
Fallegar vörur
Stóll á snúningsfæti í ítölsku nautsleðri
75 cm á breidd
Verð frá 139.000 kr.
Loksins fáanlegir aftur,
í mörgum litum
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„MÁTUNARKLEFARNIR ERU
UPPTEKNIR. KRJÚPTU BARA Á BAK VIÐ
BINDISREKKANN.“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... fyrsta stefnumótið
sem ekki er á netinu.
SENDIRÐU JÓLASVEIN-
INUM TÖLVUPÓSTINN?
JEBBS
LAUGSTU UM AÐ
VERA GÓÐUR?
„… OG SVO BJARGAÐI ÉG
HVOLPUM ÚT ÚR BRENNANDI
DÝRAATHVARFI …“
ÉG „ÝKTI“
BLESS, BLESS! BLESS, BLESS! ÞETTA ER EIGINKONA
HERTOGANS! ÉG RÆNDI
KASTALANN ÞEIRRA Í SÍÐUSTU
VIKU!
HÆ! HÆ!
BIRGIR?
LÍFSGÆÐAKAPPHLAUPIÐ.
JÁ, OG HÚN ER YNDISLEGASTA
MANNESKJA SEM ÉG HEF
NOKKURN TÍMANN HITT!
HÚN SAGÐI AÐ
KÁPAN FARI
MÉR MIKLU
BETUR EN
HÚN FÓR
HENNI
NOKKURN
TÍMANN!
Gátan er sem endranær eftir
Guðmund Arnfinnsson:
Í þeim geng ég alla daga.
Eru máski í skónum þínum.
Útslitnar ég í þær staga.
Á þeim ligg á beði mínum.
Hér er svar frá kennara sem alltaf
les Vísnahornið og þakkar fyrir
þessa daglegu skemmtun.
Hún tíndi af sér spjör fyrir spjör.
Spjör er í skónum þínum.
Hún stagar spjör úr sprungnum hör.
Spjör er á beði mínum.
Sjálfur skýrir Guðmundur gátuna
þannig:
Sperrtur ber ég spjarir fínar.
Spjarirnar í skónum hef ég.
Rifnar spjarir rimpa mínar.
Í rúminu á spjörum sef ég.
Þá er limra:
Konan var áfjáð og klúr,
uns karlinn í bragði súr
ei viðnám gat veitt,
því vífið harðskeytt
spurði hann spjörunum úr.
Síðan er ný gáta eftir Guðmund:
Sólin skín um sumardag,
syngur fuglinn kátur,
rammfalskur ég raula brag
og reyni að semja gátur:
Á nóttinni er þarfaþing,
Þroskamerki á strákaling.
Er þar margt af ýmsu skráð.
Efla hag í lengd og bráð.
Ingólfur Ómar lumaði að mér vísu
og sagði: „Þannig er mál með vexti
að ég skrapp alla leið norður í Þing-
eyjarsýslu, nánar tiltekið í Keldu-
hverfi á slóðir Kristjáns Fjallaskálds
en hann var fæddur í Krossdal í
Kelduhverfi 13. júní 1842 en þar
kom þessi vísa upp í hugann“:
Fann í æðum funa blóð
fannst mér þarft að ljóða.
Frjáls og glaður fór um slóð
fjallaskáldsins góða.
„Misskilningur“ minnisstætt smá-
ljóð eftir Kristján:
Misskilur heimur mig,
misskil ég einnig hann,
sig skilið síst hann fær,
sjálfan skil ég mig ei;
furða er því ei þótt okkar
hvorugur skilji skaparann.
Þórarinn Sveinsson í Kílakoti orti:
Minningar um æskuást
ævi langa geymast,
- einkanlega ef hún brást.
En æskubrekin gleymast.
Örðugan ég átti gang
yfir hraun og klungur,
Einatt lá mér fjall í fang
frá því ég var ungur.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Spaks manns spjarir