Morgunblaðið - 03.07.2021, Qupperneq 41

Morgunblaðið - 03.07.2021, Qupperneq 41
ÍÞRÓTTIR 41 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. JÚLÍ 2021 Handknattleikskonan sigursæla Hanna Guðrún Stefánsdóttir hefur framlengt samning sinn við Stjörn- una um tvö ár, eða til vorsins 2023, en hún er 42 ára gömul og varð fyrst Íslandsmeistari með Haukum fyrir 25 árum, eða árið 1996. Hún hefur unnið fimm Íslandsmeist- aratitla og sex bikarmeistaratitla með Haukum og Stjörnunni, þrisv- ar verið leikmaður ársins í deild- inni og þrisvar markahæst. Þá er Hanna næstleikjahæst og næst- markahæst í íslenska landsliðinu frá upphafi. Hanna heldur áfram í tvö ár Morgunblaðið/Árni Sæberg Reynd Hanna Guðrún Stefánsdóttir varð fyrst meistari fyrir 25 árum. Flest efnilegasta frjálsíþróttafólk landsins verður saman komið á Sel- fossi um helgina en þar fer fram í dag og á morgun Meistaramót Ís- lands fyrir 15 til 22 ára. Þar keppir m.a. Erna Sóley Gunnarsdóttir, Ís- landsmeistari fullorðinna í kúlu- varpi kvenna, hlaupararnir Tiana Ósk Whitworth og Þórdís Eva Steinsdóttir og hin fjölhæfa Glódís Edda Þuríðardóttir sem er Íslands- methafi í sjöþraut og vann þrjár hlaupagreinar á Meistaramóti full- orðinna á Akureyri fyrr í sumar. Hún er skráð til leiks í sjö greinum. Þau efnilegustu keppa á Selfossi Ljósmynd/Þórir Tryggvason Fjölhæf Glódís Edda Þuríðardóttir keppir í sjö greinum um helgina. JÚNÍ Jóhann Ingi Hafþórsson johanningi@mbl.is „Ég er þokkalega sáttur. Það hefði verið sætt að enda þetta á sigri á móti ÍA en við náðum sjö stigum,“ sagði Magnús Þór Magnússon, fyr- irliði knattspyrnuliðs Keflavíkur, í samtali við Morgunblaðið. Magnús er leikmaður júnímánaðar í Pepsi Max-deild karla að mati Morg- unblaðsins. Magnús lék stórt hlutverk hjá ný- liðunum sem náðu í sjö stig af níu mögulegum og héldu tvisvar hreinu í júní. Keflavík fagnaði heimasigr- um á HK og Leikni frá Reykjavík, 1:0 og 2:0, og gerði svo 2:2-jafntefli við ÍA á útivelli eftir að Skagamenn komust í 2:0. Magnús tryggði Kefla- vík stig með skallamarki í upphafi seinni hálfleiks. Keflavík gerði góð- an júnímánuð svo enn betri með því að vinna 2:0-sigur á Breiðabliki í Mjólkurbikarnum. „Það er frábært að fara líka áfram í bikarnum. Sig- urinn á Breiðabliki gaf okkur meiri orku. Það er alls ekki hægt að kvarta yfir neinu,“ bætti Magnús við. Stressið í byrjun farið Keflavík fór illa af stað í deildinni og tapaði fimm af fyrstu sex leikj- unum. Liðið fékk mikið af mörkum á sig í leiðinni og leit ekki vel út. Magnús viðurkennir að það hafi tekið nýliðana tíma að aðlagast líf- inu í deild þeirra bestu. „Það var smá spenna í byrjun að koma í efstu deild en svo hefur okk- ur farið að líða betur inni á vell- inum. Við höldum boltanum betur og höfum lært inn á deildina. Við höfum þroskast og þekkjum okkur sjálfa betur þegar við spilum fót- bolta. Þetta stress sem var í byrjun er farið. Við horfum bara upp á við.“ Keflavík er nú í tíunda sæti með tíu stig, fjórum stigum meira en HK og ÍA sem eru í fallsætunum. Kefl- víkingar eiga leik til góða á liðin fyrir ofan sig og geta því farið ofar í töfluna. „Okkur líður vel og ætlum að klifra upp töfluna,“ sagði fyrirlið- inn. Skoraði aftur á Skaganum Mark miðvarðarins gegn ÍA var annað markið í 40 leikjum í efstu deild og það fyrsta frá árinu 2013. Hann man vel eftir fyrra markinu sem kom einmitt á sama velli. „Það var 2013 á móti ÍA. Það var sig- urmarkið. Það er mjög gott að skora á Skaganum,“ sagði Magnús. Keflavík lék sex deildarleiki í maí, tapaði fimm þeirra og fékk á sig 15 mörk í leiðinni. Síðan þá hefur liðið haldið hreinu í tveimur af þremur deildarleikjum og safnað sjö stigum. „Við þéttuðum aðeins miðjuna. Í byrjun vorum við að tapa boltanum á hættulegum stöðum og fá mikið af skyndisóknum á okkur sem við höf- um lagað í seinustu leikjum. Við töpum boltanum ekki á þeim stöð- um sem við vorum að gera og við lítum betur út í vörninni. Menn eru öruggari á boltanum og ekki að gera sömu gloríur sem við gátum gert í 1. deildinni, en við getum ekki í efstu deild því þá er okkur refsað.“ Vill festa sig í sessi Keflvíkingurinn hefur leikið 149 leiki í deild og bikar hér á landi. Í efstu deild eru leikirnir 40, 47 í B- deild og 42 í C-deild. Hann stundaði nám við Embry-Riddle-háskólann í Flórída og var í knattspyrnuliði skólans á meðan hann lék með Njarðvík frá 2013 til 2017. Magnús fór síðan aftur í Keflavík að námi loknu. „Rétt eftir markið mitt 2013 fer ég út til Bandaríkjanna í skóla. Á meðan ég var í skólanum var ég í Njarðvík og spilaði slatta af leikjum á sumrin. Ég kom svo heim og var eitt ár hjá Njarðvík og fór svo aftur til Keflavíkur. Þetta eru Keflavík og Njarðvík sem ég hef spilað með. Vonandi festir maður sig í sessi í efstu deild núna með Keflavík,“ sagði hann. Lenti í erfiðum meiðslum Vegna meiðsla kom Magnús að- eins við sögu í fjórum deildar- leikjum síðasta sumar. Á meðan tryggðu liðsfélagar hans sér sigur í 1. deild og sætið í úrvalsdeildinni. Hann missti svo af fyrstu leikjum sumarsins í ár, einnig vegna meiðsla. Þrátt fyrir það er hann aft- ur kominn í byrjunarliðið og kominn með fyrirliðabandið í deild þeirra bestu. „Ég fékk beinmar í bikarleik rétt fyrir mót og náði bara fjórum leikj- um í fyrra og var ekki í góðu standi. Beinmarið er alveg farið en svo fékk ég í kálfann rétt fyrir mótið í sumar en núna er ég kominn á skrið og byrjaður að finna mitt gamla form sem ég sýndi 2019 þegar ég átti gott tímabil. Það er komið aftur og sjálfstraustið með því. Ég fann alltaf traustið. Eysteinn Húni þjálf- ari þekkir mig vel og ég er uppalinn í Keflavík. Ég hef alltaf fundið þetta traust og ég er þakklátur fyrir það,“ sagði Magnús Þór. Ekki hægt að kvarta yfir neinu - Magnús Þór heldur hreinu og skorar með Keflavík - Var að glíma við erfið meiðsli - Töpuðu ekki leik í júní eftir erfiða byrjun - Ætla sér upp töfluna Ljósmynd/Guðmundur Bjarki Halldórsson Fyrirliðinn Magnús Þór Magnússon hefur verið í stóru hlutverki hjá Kefl- víkingum að undanförnu og fékk fjögur M fyrir leiki liðsins í júní. Magnús Þór Magnússon, miðvörður og fyrirliði Keflvíkinga, var besti leik- maður júnímánaðar í Pepsi Max-deild karla í fótbolta að mati Morgun- blaðsins. Magnús Þór var einn af átta leikmönnum sem fengu fjögur M samtals í einkunn hjá blaðinu í júnímánuði en Keflvíkingar léku samt að- eins þrjá leiki í júní á meðan flest önnur lið léku fjóra eða jafnvel fimm leiki í mánuðinum. Þá skoraði Magnús mikilvægt jöfnunarmark gegn ÍA á Akranesi, 2:2, og sá til þess að Keflvíkingar væru ósigraðir í júní en þeir fengu sjö stig af níu mögulegum, lyftu sér upp af botni deildarinnar, og slógu auk þess Breiða- blik út í 32 liða úrslitum bikarkeppninnar. Hansen sá eini sem er aftur í liði mánaðarins Magnús er að sjálfsögðu í úrvalsliði Morgunblaðsins fyrir júnímánuði sem sjá má hér til hliðar. Danski framherjinn Nikolaj Hansen úr Víkingi, markahæsti leikmaður deildarinnar, er sá eini sem valinn hefur verið í ell- efu manna úrvalslið Morgunblaðsins tvo fyrstu mánuði mótsins en hann var einnig í úrvalsliðinu í maí. Kristinn Steindórsson, sóknarmaður úr Breiðabliki, og Steinþór Már Auðunsson markvörður KA sem báðir voru í byrjunarliðinu í maí eru í hópi sjö varamanna í júníliðinu. Orri Hrafn Kjartansson, miðjumaður Fylkis, var varamaður í maíliðinu en er í byrjunarliðinu í júní. Liðin í deildinni léku þrjá til fimm leiki í mánuðinum, Keflavík og KA að- eins þrjá leiki en Valur og Stjarnan fimm leiki. Stjarnan fékk flest M sam- anlagt, eða 27, en síðan komu Breiðablik með 25 og Valur með 21 M sam- anlagt. Fæst M í júní fengu KA og Leiknir, 15 hvort, og ÍA sem fékk aðeins 12 M í fjórum leikjum sínum í mánuðinum. vs@mbl.is Lið júnímánaðar hjá Morgunblaðinu í Pepsi Max-deild karla 2021 VARAMENN: Steinþór Már Auðunsson 2 1 KA HeiðarÆgisson 3 1 Stjarnan Orri Sveinn Stefánsson 3 1 Fylkir Gísli Eyjólfsson 3 1 Breiðablik Ísak Snær Þorvaldsson 3 1 ÍA Kristinn Steindórsson 3 1 Breiðablik Kristján Flóki Finnbogason 3 1 KR 4-3-3 Hversu oft leikmaður hefur verið valinn í lið umferðarinnar 2 Fjöldi sem leik- maður hefur fengið 2 Hannes Þór Halldórsson Valur Magnús Þór Magnússon Keflavík Sebastian Hedlund Valur Kennie Chopart KR Davíð Ingvarsson Breiðablik Eyjólfur Héðinsson Stjarnan Viktor Karl Einarsson Breiðablik Nikolaj Hansen Víkingur R. Orri Hrafn Kjartansson Fylkir Árni Vilhjálmsson Breiðablik Joey Gibbs Keflavík 1 1 1 1 1 1 1 1 3 4 3 4 4 4 4 4 3 4 3 Magnús Þór besti leikmaðurinn í júní Á þessum degi fyrir fimm ár- um, 3. júlí árið 2016, voru fimm þjóðir eftir í úrslitakeppni Evr- ópumóts karla í fótbolta í Frakk- landi. Þýskaland, Portúgal, Wales, Frakkland og Ísland voru þau fimm lið sem enn áttu mögu- leika á að vinna Evrópumeist- aratitilinn 2016. Kvöldið áður höfðu Þjóð- verjar lagt Ítali í vítakeppni, Wa- les hafði skellt Belgíu degi fyrr og Portúgal unnið Pólland í víta- keppni í fyrsta leik átta liða úr- slitanna. Áður höfðu sterkar þjóðir eins og Spánn, Króatía og Sviss helst úr lestinni. Ísland og Frakkland léku þetta kvöld á Stade de France og þar mætti íslenska liðið loks- ins ofjörlum sínum og tapaði verðskuldað 5:2 fyrir ógn- arsterkum gestgjöfunum. Sýndi samt karakter með því að vinna seinni hálfleikinn 2:1 og lauk með því keppni með sóma. Augu alheimsins voru á þessari 350 þúsund manna þjóð sem hafði sigrað England og Austurríki og gert jafntefli við Portúgal og Ungverjaland í fyrri fjórum leikjum sínum í keppn- inni. Nú standa yfir átta liða úr- slitin á EM og rétt eins og árið 2016 lýkur þeim 3. júlí. Sjáum við þar einhverja þjóð sem hef- ur sýnt eins ævintýralega fram- göngu og Ísland gerði fyrir fimm árum? Ég hélt ekki. Kannski Úkraína? Tja, þar búa 40 milljónir og Dynamo Kiev hefur tvisvar orðið Evrópumeist- ari bikarhafa. Norður-Makedónía var eina þjóðin á mótinu sem mögulega mátti á einhvern hátt setja í spor Íslands. En tapaði því miður öllum leikjum og féll fyrst allra úr keppni. Ég held að við eigum eftir að sjá afrek Íslands frá árinu 2016 í stöðugt áhugaverðara ljósi eftir því sem lengra líður á 21. öldina. Það var auðvitað gal- ið að við skyldum eiga lið í átta liða úrslitum á EM. BAKVÖRÐUR Víðir Sigurðsson vs@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.