Morgunblaðið - 03.07.2021, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 03.07.2021, Blaðsíða 42
42 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. JÚLÍ 2021 VIÐTAL Ragnheiður Birgisdóttir ragnheidurb@mbl.is Minning Jóhanns Jóhannssonar tónskálds, sem lést í ársbyrjun 2018, lifir um allan heim enda hefur hann snert marga og ferillinn aðdáunar- verður. Orri Jónsson, ljósmyndari og tónlistarmaður, og Davíð Hörg- dal Stefánsson rithöfundur hafa ráð- ist í umfangsmikið verkefni, sem ber heitið The Creative Space of Jó- hann Jóhannsson, til þess að gera starfi hans sem listamanns skil, með gerð heimildar- myndar og um- fangsmikils bók- verks. Þeir stefna á að komin verði mynd á verkin tvö undir lok næsta árs. Hugmyndin kviknaði í árs- byrjun 2019. Þá hafði Kristín Björk Kristjánsdóttir, Kira Kira, samband við Orra og stakk upp á því að þau myndu gera heimild- armynd um Jóhann, en þau voru bæði lengi vinir hans og samstarfs- félagar. „Þessi hugmynd þurfti að setjast aðeins í kollinn á mér. Það var frekar stutt liðið frá því hann lést og ég var hikandi við að ráðast í þetta,“ segir Orri og heldur áfram: „Svo ég benti henni á að tala við Davíð vin minn, sem hafði lengi fylgst með Jóa og hans ferli, og í rauninni með markvissari hætti heldur en ég. Við Kristín vorum inn- anbúðarfólk en Davíð þekkti hann ekki og hans nálgun var í gegnum tónlistina hans. Þau tvö hittust og ákváðu að fara af stað með verk- efnið og króuðu mig svo af og fengu mig aftur með sér í þetta.“ Orri segir þau hafa lengi velt fyrir sér hvort, og þá hvernig, best væri að gera þetta. „Við byrjuðum á að tala við fjölskyldu hans, vini og sam- starfsfólk upp á hvernig fólki litist á þetta. Og það var eftir svona um það bil ár af þreifingum og ótal samtöl við fólk sem við endanlega fundum leið til þess að nálgast þetta og dýfð- um okkur alveg á bólakaf í þessa rannsóknarvinnu. Á þeim tíma- punkti ákveður Kristín að stíga út úr verkefninu, henni fannst hún standa óþægilega nærri viðfangs- efninu, þannig að við Davíð héldum áfram.“ Þeir Orri og Davíð hafa því tveir haldið áfram með verkefnið en segj- ast þó njóta stuðnings úr ýmsum áttum. „Við lítum svolítið á það sem svo að við séum að vinna þetta með samfélagi Jóhanns, vegna þess að við erum í mjög miklu samstarfi við fjölskyldu hans, nánasta samstarfs- fólk og vini.“ Afkastamikill og fjölhæfur Rannsóknarvinnan fyrir heimild- armyndina reyndist gríðarlega um- fangsmikil. „Við áttuðum okkur smám saman á því að þrátt fyrir að Jóhann hefði látist langt fyrir aldur fram var ferill hans óvenjulangur, hann byrjaði mjög snemma að gera tónlist og var ótrúlega afkastamikill og fjölhæfur, angar hans og sam- starfsnet liggja því um allan heim og yfir þessi rúmlega þrjátíu ár,“ segir Orri. „Hann byrjaði mjög snemma, í kringum 1985, að þreifa sig inn í músík hér heima með indí- rokki en svo fór hann mjög fljótt að stækka hljóðheiminn og vann í öllu mögulegu; í diskói, stofnaði fönk- hljómsveitir, samdi pönklög, var í þungarokkhljómsveit, gerði leik- hústónlist og kenndi sjálfum sér orkestrasjón.“ Sumar af þeim heimildum sem þeir Davíð rákust á voru að þeirra mati mjög mikilvægar en þess eðlis að þær hentuðu ekki vel í kvik- myndaformið. Þá fór að hvarfla að þeim að gera bókverk. „Sumir myndu lýsa Jóhanni sem feimnum eða hlédrægum, jafnvel lokuðum, en það er mikil einföldun, hann bara hleypti ekki öllum að sér og hann átti sér ákveðin tjáningarform sem voru honum eðlislæg og það var kannski ekki að tala mikið. Hann tjáði sig alveg gríðarlega mikið og vel í gegnum texta, m.a. í bréfa- samskiptum við vini og samstarfs- fólk og alls konar textum sem hann skrifaði í sinni rannsóknarvinnu. Það er dæmi um efni sem hentar miklu betur í bók en í mynd. Þegar hann var að vinna að tón- list þá sökkti hann sér gjarnan í margra mánaða, og stundum margra ára, rannsóknarvinnu. Hann skrifaði gríðarlega mikið af textum í stílabækur fyrir sjálfan sig en líka hálfgerð manifestó eða gróf handrit að því sem hann var að gera og þessir textar eru svo lýsandi fyrir hans sköpunarferli. Sumir af vinum hans og samstarfsfólki hafa auk þess deilt með okkur tölvupóstsamskiptum og öðru slíku. Þetta segir alveg gríðarlega mikið um það hvernig hann nálgaðist hluti, sem var á margan hátt óvenju- legt. Þetta er mjög spennandi efni og lýsandi fyrir sköpunarkraftinn sem bjó í honum, og það væri algjör synd að skilja það eftir.“ Þeir ákváðu því að skella í bók auk kvikmyndarinnar, en þó ekki fyrr en eftir miklar vangaveltur. Orri segir það að gera heimildar- mynd taka algerlega yfir líf manns, svo að bæta við bók hafi í fyrstu virkað afleit hugmynd. Það hafi þó verið ákveðinn léttir því það að vinna samhliða með tvo miðla auð- veldi vinnuna við hvorn fyrir sig. „Í bókinni gefst miklu meiri tími til þess að fara nákvæmar ofan í kons- epthugsun Jóa, rannsóknaraðferðir og nálgun hans á tónlist á meðan kvikmyndaformið býður upp á að sýna meira,“ segir Orri. Einstaklingur og samfélag „Útgangspunkturinn er listamað- urinn Jóhann og portrett af honum sem skapandi einstaklingi. Í fyrstu ætluðum við mjög markvisst að sneiða fram hjá öllum ævisöguleg- um atriðum en svo þegar maður fer að vinna þetta efni þá verður ekki hjá því komist að snerta stundum á tilteknum atriðum í lífi hans sem augljóslega höfðu mjög mótandi áhrif á hvernig hann skapaði, hugs- aði og vann.“ Orri segir að verkin tvö verði portrett af listamanninum en ekki síður samfélaginu sem hann óx úr, því það sé ekki sanngjarnt að fjalla um einstaklinginn Jóhann sem eitt- hvert eyland. „Það er ekki hægt að aftengja einstaklinginn því samfél- agi sem hann sprettur úr, því list- ræna samfélagi sem þrífst í kring- um hann og nærði hann. Rauður þráður hjá okkur er einmitt að fjalla um þennan tiltekna einstakling í samhengi við það samfélag sem hann óx úr, vegna þess að það er svo augljóst, í tilfelli allra sem standa upp úr og eru kallaðir snillingar, að þeir þrífast ekki í einhverju tóma- rúmi. Þeir nærast á því samfélagi sem þeir verða til í, en stór hluti af því samfélagi gleymist og fær aldrei kredit. Þetta skekkir mjög þá mynd sem almenningur kann að hafa af þessu listræna ferli og nærir þessa hæpnu hugmynd um „snillinginn“. Okkur langar svolítið að stinga á þetta og erum í mjög góðri aðstöðu til þess, vegna þess að bæði ég og Kristín Björk vorum vinir hans og við vitum hversu mikið hann og hans sköpun þreifst á samstarfi og samtali við annað skapandi fólk. Ef Jói var snillingur í einhverju þá var það einmitt í því að finna gott fólk til þess að vinna með og það hefur ver- ið ótrúlega skemmtileg hliðarafurð af þessari rannsóknarvinnu að finna það að allir sem við nálgumst, sem unnu með honum, eru alveg ótrú- lega miklir öðlingar, eldklárt, örlátt og hlýtt fólk og klárt og skapandi fólk. Okkur langar að teikna stærri mynd, setja Jóhann í forgrunn en inn í þetta samhengi.“ Á eigin forsendum Orri leggur áherslu á þá sérstöðu Jóhanns að vera að mestu leyti sjálfmenntaður listamaður. „Það er mjög áhugaverður vinkill á hans hugsun og sköpunarferli. Það hafði greinilega mjög mótandi áhrif á hvernig hann vann. Ég held að það hafi litað mikið hvernig hann náði að koma sér á óvenjulegan hátt inn í Hollywood, algjörlega á sínum eigin forsendum. Sköpunarferlið hans er heillandi og ótrúlega skemmtilegt að sjá hvaða leiðir hann fór.“ Heimildarvinnan sem liggur að baki er gríðarleg, að sögn Orra. „Í rúm tvö ár héldum við áfram að elta nýjar vísbendingar og endalaust hrösuðum við um nýja þræði þannig að þetta hefur verið reglulega yfir- þyrmandi verkefni á köflum. Allt þar til bara mjög nýlega, þá fannst okkur loksins eins og við sæjum til lands. Við teljum okkur hafa nokkuð góða yfirsýn núna.“ Auk þess að gera kvikmynd og bókverk er markmið Orra og Davíðs með þessari rannsóknarvinnu að safna saman gagnasafni um Jóhann og samfélagið í kringum hann. Efni sem verður flokkað og skrásett, af- hent dóttur Jóhanns til eignar, en einnig varðveitt hjá The Jóhann Jóhannsson Foundation og gert að- gengilegt fræðimönnum og listafólki framtíðarinnar. Draga fram heillandi sköpunarferli - Orri Jónsson og Davíð Hörgdal Stefánsson gera heimildarmynd og bókverk um starf Jóhanns Jóhannssonar tónskálds - Portrett af skapandi einstaklingi og því samfélagi sem hann óx úr Glaðbeittur Jóhann Jóhannsson á tónleikum KEXP-útvarpsstöðvarinnar árið 2014. Tónelskur Jóhann ungur með gítar. Snemma beygist krókurinn. Orri Jónsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.