Morgunblaðið - 03.07.2021, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 03.07.2021, Blaðsíða 45
Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is „Orgelsumarið er svolítið persónu- legt í þetta sinn, því ég verð sextug- ur í haust og mig langaði til að hampa nemendum mínum á þessu afmælisári og leyfa þeim að spila,“ segir Björn Steinar Sólbergsson, organisti í Hallgrímskirkju, en hann er listrænn stjórnandi Orgelsumars í kirkjunni sem verður haldið hátíð- legt frá og með deginum í dag, 3. júlí til 22. ágúst. Átta íslenskir organistar sem starfa við kirkjur víða um land leyfa Klais-orgeli Hallgrímskirkju að hljóma á hádeg- istónleikum daglega til 14. ágúst. „Ég hef útskrifað nítján nem- endur frá Tónskóla þjóðkirkjunnar, ýmist sem kantora eða fólk sem er í háskólanámi erlendis, en næst á eft- ir börnum og barnabörnum þá eru nemendurnir mínir þau sem ég er hvað mest hreykinn af. Þau eru framtíðartónlistarfólkið í kirkjunni og mörg eru þegar starfandi sem organistar út um allt land,“ segir Björn Steinar og bætir við að í orgelmaraþoninu sem verður í Hall- grímskirkju á Menningarnótt muni sautján af hans útskrifuðu nem- endum taka þátt. „Í orgelmaraþoninu verður leikið á orgelið sleitulaust í kirkjunni frá því upp úr hádegi til klukkan sex síðdegis. Þau skiptast þá á að spila, allt frá fimm mínútum upp í tuttugu mínútur hvert. Ýmislegt annað verður í gangi þennan dag í kirkj- unni, æskulýðsfulltrúinn Kristín Rós Gústafsdóttir er að skipuleggja dagskrá fyrir börnin, svo það verð- ur mikið um að vera á þessum menningarnæturdegi.“ Björn Steinar segist hafa gefið fyrrverandi nemendum sínum býsna frjálsar hendur með hvaða verk þau flytja á Orgelsumrinu. „Þau spila það sem þau langar til að spila og þau hafa flest spilað á orgelið áður og þekkja það vel, í ljósi þess að þau hafa verið í námi hjá mér í Hallgrímskirkju. Þessi orgelhátíð hefur verið öll sumur frá Drottning hljóðfæranna - Orgelið í Hallgrímskirkju hefur skipað stóran sess í tónleika- og helgihaldi kirkjunnar allt frá vígslu þess 1992 - Hátíðin Orgelsumar fer af stað í dag Morgunblaðið/Unnur Karen Björn Steinar „Það er gleði á hverjum einasta degi að koma að þessu hljóðfæri, bæði í helgihaldi og á tónleikum.“ því orgelið var vígt árið 1992, og flytjendur hafa verið bæði íslenskir organistar og erlendir. Vegna covid verða einvörðungu íslenskir organ- istar þetta árið, rétt eins og í fyrra.“ Eins og krakki í dótabúð Björn Steinar segir að Orgel- sumrinu ljúki með dagskrá í Hall- grímskirkju sem kallast Finnlands- farar. „Þá verður flutt úrval úr framlagi Félags íslenskra orgelleikara til norræns kirkjutónlistarmóts sem verður í Finnlandi í lok ágúst,“ seg- ir Björn Steinar sem hefur ferðast mjög víða og spilað tónleika um all- an heim, svo hann þekkir mörg ólík orgel. „Orgelið okkar allra í Hallgríms- kirkju er ótrúlega glæsilegt hljóð- færi en hvert orgel hefur sinn sjarma. Ég hef til dæmis leikið á orgel frá átjándu öld í ýmsum kirkjum, en mér finnst orgelið vera drottning hljóðfæranna. Í hvert skipti sem maður spilar á nýtt orgel þá er maður að kynnast nýrri drottningu. Hvert hljóðfæri er algerlega einstakt, það er hannað fyrir hverja kirkju, stærð, raddval og slíkir hlutir. Fyrir vikið er alltaf spennandi að hitta nýja drottningu. Auðvitað eru orgel misjöfn og það er áberandi þegar erlendir konsertorganistar koma að spila í Hallgrímskirkju að þá er það eins og krakki sem kemst í dótabúð, því það er mikil upplifun, enda spannar orgelið allt frá því veikasta yfir í það sterkasta. Ég lít alltaf á orgel eins og heila hljómsveit. Fyrir mig sem organista í Hallgrímskirkju er það gleði á hverjum einasta degi að koma að þessu hljóðfæri, bæði í helgihaldi og á tónleikum,“ segir Björn Steinar og bætir við að nú séu ferðamenn byrjaðir að streyma í kirkjuna, sem ekki hefur verið undanfarna fjórtán mánuði, og það gleðji þau sem starfa við kirkjuna. Tómas Guðni Eggertsson, tónlist- arstjóri og organisti Seljakirkju, hefur tónleikaröðina í dag, 3. júlí, klukkan 12. Efnisskrá hans verður eftirfarandi: 1. J.S. Bach: Pièce d’orgue BWV 572, 2. J.S. Bach: O Mensch, bewein’ dein’ Sünde groß BWV 622 3. César Franck: Kórall nr. 3 í a- moll. Miðasala fer fram á tix.is en einn- ig má fá miða við innganginn á tónleikadegi. MENNING 45 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. JÚLÍ 2021 Rokksveitin HAM mætir á Tónaflug í Egilsbúð í Neskaupstað í dag, 3. júlí, kl. 21 og særir sóttina burt með áhorfendum. „Sveitin hyggst fram- halda boðun ófagnaðarerindis síns og útdeila sínum djúpfögru og hug- hreystandi tónum og hljómum sem aldrei fyrr. Rokkhöllin Egilsbúð í Neskaupstað varð fyrir valinu sem vettvangur upprisunnar. Það mun enginn ósnortin verða sem dýft hef- ir sér í beljandi hreinsunarbál rokksveitarinnar geðþekku,“ segir um viðburðinn á Facebook og að vænta megi að uppsafnað rokk HAM úr egypsku myrkri sóttar- innar eigi eftir að springa eftir- minnilega út í rokkhöll Austfirð- inga í Egilsbúð. Rokksveitin Blóð- mör mun hita upp en hún sigraði í Músíktilraunum 2019. HAM særir sóttina burt í Egilsbúð Ljósmynd/Marinó Thorlacius Rokk HAM boðar ófagnaðarerindið í kvöld. This Rain Will Never Stop eftir úkraínsku kvik- myndagerð- arkonuna Alinu Gorlova hlaut aðalverðlaun Ice- Docs-heimild- armyndahátíð- arinnar sem haldin var á Akranesi 23.-27. júní. Sérstaka um- sögn fékk To Calm the Pig Inside eftir Joönnu Vasquez Arong og SPACES eftir Nora Štrbová var valin besta stuttmyndin. Um mynd Gorlova segir á vef IceDocs að hún sé „magnþrungin sjónræn ferð um endalausa hringrás mannkynsins í gegnum stríð og frið“. This Rain Will Nev- er Stop sú besta Alina Gorlova Myndlistarkonan Hrafnhildur Arnardóttir, betur þekkt undir listamannsnafninu Shoplifter, mun í dag kl. 14 opna sýningu á nýju útilistaverki sínu í Hrútey í Blöndu við Blönduós. Er þetta fyrsta útilistaverk Hrafnhildar og stillir hún náttúruperlunni Hrútey og gervináttúruverkum sínum upp sem hliðstæðum sem einnig má skoða sem andstæður, sam- stæður eða gagnstæðar spegil- myndir, eins og því er lýst í til- kynningu. Hrafnhildur er búsett í New York og var fulltrúi Íslands á Feneyjatvíæringnum 2019. Þar vakti innsetning hennar, Chromo Sapiens, mikla athygli og hlaut að sama skapi mikið lof. Við opnun lék hljómsveitin Ham og samdi auk þess tónverk við sýningu Hrafnhildar sem vakti ekki minni athygli en myndlistin. Sýningin í Hrútey ber heitið Boðflenna og verður hún opin all- an sólarhringinn til 28. ágúst og aðgangur ókeypis. Á vef Sam- bands íslenskra myndlistarmanna má finna kort sem sýnir leiðina að útilistaverkinu, á slóðinni sim.is/ hrutey-blonduosi-bodflenna- shoplifter/. Litadýrð Shoplifter er þekkt fyrir litrík verk sín úr hári sem hún tvinnar nú saman við náttúru Hrúteyjar. Hér má sjá hluta verksins í Hrútey. Fyrsta úti- listaverk Shoplifter Leynilögga, kvikmynd Hann- esar Þórs Hall- dórssonar, hefur verið valin í aðal- keppni kvik- myndahátíð- arinnar í Loc- arno í Sviss sem hefst 4. ágúst og stendur yfir í viku. Í tilkynn- ingu frá Kvikmyndamiðstöð Íslands segir að myndin verði sýnd í aðal- keppni hátíðarinnar sem nefnist Concorso internacionale og muni því keppa um Gyllta hlébarðann eða Pardo d‘Oro. Eru þau verðlaun sögð ein þau virtustu sem veitt eru ár hvert. Leynilögga fjallar um „grjótharða ofurlöggu sem er í bar- áttu við sjálfan sig á sama tíma og hann berst við hættulegustu glæpa- menn landsins“, eins og því er lýst í tilkynningu og er myndin fyrsta kvikmynd Hannesar í fullri lengd. Hún verður frumsýnd í Sambíó- unum 27. ágúst. „Ég er enn að átta mig á að myndin hafi verið valin inn á hátíðina og hlakka til að sýna hana þar. Er samt enn spenntari fyrir því að sýna hana hér heima sem verður núna í lok ágúst,“ er haft eftir Hannesi. Með aðalhlut- verk í myndinni fara Auðunn Blön- dal, Egill Einarsson, Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir, Vivian Ólafsdóttir, Sverrir Þór Sverrisson og Björn Hlynur Haraldsson. Leynilögga í aðal- keppni Locarno Hannes Þór Halldórsson Listakonurnar og æskuvinkonurn- ar Kristín Aldís Markúsdóttir og Jóhanna Björk Kolbrúnardóttir opna sína fyrstu sýningu saman í dag, 3. júlí, í Aðalstræti 2 og er hún hluti af dagskrá Reykjavík Fringe. Sýningin stendur yfir til 10. júlí og sýna vinkonurnar akrýlmálverk á striga. Þær sækja báðar innblástur í heim fantasíunnar, hið andlega og yfirnáttúrulega. Jóhanna kallar sinn hluta sýning- arinnar The Magical Corner og er allra fyrsta listasýning hennar. Kristín nefnir sinn hluta Seasonal Elements þar sem hún tekur fyrir frumöfl jarðar. Í tilkynningu segir að Kristín hafi fæðst með þykk ský á báðum augasteinum og hafi verið nær blind við fæðingu. Þriggja mánaða fór hún í aðgerð þar sem báðir augasteinar voru teknir og smám saman varð annað augað betra. Kristín er nær blind á hinu auganu en er þó næm fyrir formum og litum í listsköpun sinni. Fallegt Green Grape Leaves eftir Kristínu. Vinkonur sýna saman á Fringe

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.