Morgunblaðið - 19.07.2021, Blaðsíða 1
M Á N U D A G U R 1 9. J Ú L Í 2 0 2 1
.Stofnað 1913 . 167. tölublað . 109. árgangur .
Bókaðu borgarferð í haust og byrjaðu að telja niður dagana.
GLÖTUÐU
TÆKIFÆRI Í
TOPPBARÁTTUNNI
FURÐUMYND
UM CÉLINE
DION Í CANNES
MORIKAWA
SLÓ Í GEGN
Á THE OPEN
GAGNRÝNENDUR HISSA 29 ÍÞRÓTTIR 27JAFNT Í VESTURBÆNUM 26
_ Alls greindust 40 einstaklingar
með kórónuveirusmit um helgina,
21 innanlands og 19 á landamær-
unum. Einn hinna smituðu liggur á
Landspítalanum. Enginn er alvar-
lega veikur og einkennin eru ýmist
væg eða engin, að sögn Runólfs
Pálssonar, yfirmanns Covid-
göngudeildar.
Samkvæmt tilkynningu Almanna-
varna eru flestir hinna smituðu
bólusettir. Gylfi Þór Þorsteinsson,
forstöðumaður farsóttarhúsa Rauða
krossins, segir að flestir sem þar
dvelji í einangrun séu bólusettir
ferðamenn á leiðinni úr landi og hafi
þess vegna farið í sýnatöku. »2
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Sýnataka Flestir sem dvelja í farsótt-
arhúsi eru ferðamenn á leið úr landi.
Einkennin ýmist
væg eða engin
_ Skafti Harðar-
son, formaður
Samtaka skatt-
greiðenda, bend-
ir á að hinn al-
menni launþegi
virðist ekki skilja
að gjöld sem lögð
eru á vinnuveit-
endur skerða í
reynd hlut laun-
þegans. Af kostn-
aði vinnuveitanda við starfsmann á
meðallaunum rata aðeins 56% í
vasa starfsmannsins.
Skafti gagnrýnir hugmyndir
stjórnvalda um að lögfesta hækkað
mótframlag launagreiðenda í líf-
eyrissjóð og hann grunar Reykja-
víkurborg um að stýra lóðafram-
boði vísvitandi með þeim hætti að
skattstofn fasteignagjalda hækkar
ár frá ári. »12
Skafti
Harðarson
Átta sig ekki á áhrif-
um gjalda á launakjör
Ekkert lát virðist vera á hitabylgjunni sem geis-
að hefur á Fljótsdalshéraði síðustu daga. Í gær
fór hitinn hæst í 26,7 gráður á Hallormsstað.
Fólk hefur notið veðursins og margir hafa kælt
sig í ám og vötnum, m.a. í Atlavík. Árbakkarnir í
raun farnir að minna á sólarstrendur á suðrænni
slóðum. Þá hafa sumir tekið upp á því að stökkva
í Eyvindará hjá Egilsstöðum, eftir að minnka tók
í ánni í kjölfar leysinga.
Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson
Hitabylgja á
Austurlandi
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
Ársreikningar 63 af 69 sveitarfélög-
um sýna að nærri níu milljarða
króna tap varð af rekstri A-hluta
sveitarfélaganna á síðasta ári, borið
saman við nærri 15 milljarða hagnað
þeirra árið 2019. Í þessum 63 sveit-
arfélögum búa yfir 99% landsmanna.
Þetta sýnir samantekt Sambands
íslenskra sveitarfélaga á ársreikn-
ingunum. Formaður sambandsins,
Aldís Hafsteinsdóttir, bæjarstjóri í
Hveragerði, segir lakari afkomu
sveitarfélaganna mikið áhyggjuefni.
Er svo komið að útvarstekjurnar
duga ekki fyrir heildarlaunakostn-
aði.
„Það er alveg ljóst að sveitar-
stjórnarmönnum er vandi á höndum
þar sem reglulegar tekjur duga í
mörgum tilfellum ekki fyrir útgjöld-
um. Þungi lífeyrissjóðakerfisins á
bara eftir að aukast á næstu árum
með breyttri aldurssamsetningu
þjóðarinnar og það verður glíma til
framtíðar að ná endum saman í því
kerfi,“ segir Aldís, en lífeyrisskuld-
bindingar sveitarfélaga halda áfram
að aukast.
Stytting vinnutímans hefur líka
bitnað á bókhaldi þeirra. Aldís segir
að styttingin eigi eftir að reynast
þungur baggi, nokkuð sem ekki hafi
verið samið um þegar ákveðið var að
breyta vinnutímanum.
„Þetta er áhyggjuefni enda gerir
tekjumódel sveitarfélaga ekki ráð
fyrir þessum gríðarlega aukna
kostnaði. Ljóst er að til lengri tíma
litið lendir þessi kostnaður með
auknum þunga á íbúum enda ekki
öðrum til að dreifa til að greiða auk-
inn rekstrarkostnað,“ segir Aldís.
Hún segir sveitarfélögin þrátt fyr-
ir allt sjá fram á bjartari tíma. Kosn-
ingar verða á næsta ári og viðbúið sé
að framkvæmdagleði sveitarfélaga
aukist.
MSveitarfélögin hafa … »14
Styttingin þungur baggi
- Lakari afkoma sveitarfélaganna - Útsvarið dugar ekki fyrir launakostnaði