Morgunblaðið - 19.07.2021, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 19.07.2021, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. JÚLÍ 2021 Álnabær Allt fyrir gluggann… úrval, gæði og þjónusta. Síðumúla 32, Reykjavík. S. 588 5900 g Tjarnargötu 17, Keflavík. S. 421 2061g Glerárgötu 32, Akureyri. S. 462 5900 g alnabaer.is Við erum sérhæfð í gluggatjöldum TWIN LIGHT RÚLLUGARDÍNA alnabaer.is Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Viðbrögð fólks sem hefur komið hingað í nýja miðbæinn á Selfossi síðustu daga eru sterk og já- kvæð. Við lítum á þessa opnun sem eins konar generalprufu, eins og sagt er í leikhúsum. Hún heppnaðist vel. Ýmis frágangur á svæðinu er þó eftir og formleg opnun verður þegar nær dregur hausti,“ segir Vignir Guðjónsson, framkvæmdastjóri Sigtúns þró- unarfélags. Félagið stendur að uppbyggingu í nýjum miðbæ á Selfossi; þangað hafa þúsundir lagt leið sína eftir að svæðið með fjölda nýrra húsa var opnað á laugardegi fyrir rúmri viku. Í fyrsta áfanga miðbæjar- verkefnins eru þrettán hús, öll byggð samkvæmt fyrirmyndum frá fyrri tíð. Þar ber hæst nýja mathöll í húsi sem er reist eftir svipsterkri teikningu að bygg- ingu Mjólkurbús Flóamanna, sem var reist 1929 og rifin 1956. Þá hafa verið byggð þrjú timburhús, eftirlíkingar af byggingum sem forðum daga stóðu á Selfossi. Þetta eru timburhús með risþaki og kvistum; en mikill fjöldi slíkra bygginga var á fyrri hluta 20. aldarinnar reistur til dæmis í Flóanum. Slík mega teljast dæmi- gerð Suðurlandshús. Sömuleiðis er verið að leggja lokahönd á eft- irgerð Friðriksgáfu; amtmanns- hússins á Möðruvöllum í Hörg- árdal sem brann 1874. Fjölmargar verslanir Átta veitingastaðir, með ólíkar áherslur í matargerð, eru í nýja Mjólkurbúinu í miðbæ Sel- foss. Fimm verslanir hafa þegar verið opnaðar; Penninn – Ey- mundsson, Tiger, Listasel, 1905 Blómahús og Mistilteinn. Fleiri verslanir og veitingastaðir verða opnuð á næstu vikum, svo sem Motivo, Kjörís og Joe & the Juice. „Alveg frá því fyrstu hug- að tillaga að deiliskipulagi mið- bæjarins var samþykkt í kosn- ingum meðal Árborgarbúa síð- sumars 2018 kom ég inn í þetta verkefni af fullum krafti í aðal- starfi,“ segir Vignir. Fimmtungur fermetra Kostnaður við fyrsta áfanga framkvæmda í nýja miðbænum á Selfossi er áætlaður um 3,5 millj- arðar króna. Á næstu mánuðum hefjast svo framkvæmdir við annan áfanga, en kostnaður við verkefnið í heild er áætlaður 10- 12 milljarðar króna. „Byggðin sem nú er búið að reisa er um fimmtungur af heildarfjölda fer- metra á svæðinu,“ segir Vignir. Áætlað er að hefja framkvæmdir við næsta áfanga í haust. Sama fyrirkomulag verður þar og í fyrri áfanga. Verslunar- og þjón- usturými í eigu Sigtúns þróun- arfélags verða á jarðhæð bygg- inga, en íbúðir sem verða seldar á efri hæðum. Húsin sem til stendur að reisa á næstu misserum eru stærri og íburðarmeiri en þau sem nú eru komin. Þar má nefna Amtmannshúsið, eftir fyrirmynd byggingar sem stóð við Ingólfs- stræti í Reykjavík og var rifin 1972. Þá verður reist hús með svip Hótels Íslands, sem stóð við Aðalstræti, og Glasgow, sem var stærsta bygging á Íslandi þegar hún var reist árið 1862. Hressilegt áhlaup Vignir segir að það hafi ver- ið mikið afrek að ná að opna miðbæinn nýja á Selfossi aðra helgina í júlí. „Það þurfti hressi- legt áhlaup til að þetta gengi. En allir lögðust á eitt, jafnt iðnaðar- menn á okkar vegum, veitinga- fólk, kaupmenn og svo starfs- menn ýmissa stofnana sem unnu hratt og vel við að ljúka öllum úttektum og veita leyfi fyrir opn- un. Kunnum við þessu fólki öllu saman bestu þakkir fyrir,“ segir Vignir að endingu. myndir að þessu verkefni voru settar fram árið 2015 hefur al- menningur átt þess kost að kynna sér málin og koma með at- hugasemdir,“ segir Vignir. „Eftir föngum höfum við tekið tillit til slíkra sjónarmiða. Mörgu sem var á upphaflegu teikningunum eða fyrirkomulagi var breytt eft- ir að framkvæmdir hófst. Leið- arljósið var alltaf að hér við reisuleg húsin yrði hlýlegt um- hverfi sem tæki utan um gesti og gangandi og Brúartorg – mið- punktur svæðisins og mannlífsins – yrði vinsæll samkomustaður. Slíkt gekk eftir strax á fyrsta degi.“ Markaðsmál, ásýnd og stefna Stofnendur Sigtúns þróunar- félags eru Leó Árnason og Guð- jón Arngrímsson, lengi upplýs- ingafulltrúi Icelandair, og er Vignir sonur þess síðarnefnda. „Sjö eða átta ár eru síðan leiðir pabba og Leós lágu saman og fyrstu hugmyndir að verkefninu tóku að fæðast. Þá vorum við all- ir í öðrum störfum og unnum að framþróun þessa verkefnis í hjá- verkum. Ég fór fyrst að skipta mér af málum sem snúa að mark- aðsmálum, ásýnd og stefnu. Eftir Selfoss hefur öðlast nýjan svip með byggingum Sigtúns þróunarfélags sem ætlar að reisa enn fleiri í næsta áfanga Morgunblaðið/Sigurður Bogi Uppbygging Leiðarljósið að hér við húsin yrði hlýlegt umhverfi sem tæki utan um gesti. Vignir Guðjónsson stýrir Sigtúni þróunarfélagi. Miðpunktur bæjarins frá fyrsta degi - Vignir Guðjónsson fæddist árið 1982. Hann er með MS- gráðu í markaðsfræði og al- þjóðaviðskiptum frá Háskóla Ís- lands. Hefur starfað við mark- aðsmál í ferðaþjónustu lengst af, þar af í sex ár hjá Bláa lóninu eða þar til hann hóf störf hjá Sigtúni þróunarfélagi árið 2018. Framkvæmdastjóri þess félags frá 2019. - Vignir býr í Kópavogi, er kvæntur Steinunni Dúu Jóns- dóttur og eiga þau tvö börn. Hver er hann? Ljósmynd/Christopher Lund Selfoss Mikið fjölmenni og hátíð í bæ á opnunardeginum nýlega. Húnavaka var haldin nú um helgina, en dagskrá stóð yfir frá fimmtudegi og fram á sunnudag. Kristín Ingibjörg Lárusdóttir, skipuleggjandi hátíðarinnar, segir hana hafa heppnast afar vel. „Þetta gekk eiginlega vonum framar,“ segir hún. Færa þurfti viðburði föstudagsins inn sökum rigningar en Kristín segir það ekki hafa skipt sköpum. Veðrið tók heldur betur við sér á laugardeginum. „Laug- ardagurinn var frábær, við fengum bara bongóblíðu og svo náði hátíðin hápunkti í brekkusöngnum á laug- ardagskvöldinu,“ en Jónsi í Í svört- um fötum stýrði brekkusöngnum. Kristín hefur skipulagt hátíðina undanfarin ár og segir að slegið hafi verið fjöldamet í ár. Telur hún að á milli fjögur og fimm hundruð manns hafi sótt dansleikinn á laug- ardagskvöld. Kristín missti þó í raun af hátíðinni, en hún fékk upp- hringingu þess efnis á miðvikudag að hún þyrfti að fara í sjö daga sóttkví. Bróðir hennar stökk þá inn og stóð hennar vakt. Brekkusöngurinn hápunktur Húnavöku Morgunblaðið/Jón Sigurðsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.