Morgunblaðið - 19.07.2021, Side 8

Morgunblaðið - 19.07.2021, Side 8
8 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. JÚLÍ 2021 malbikstodin.is | 864 1220 | Flugumýri 26 | Mosfellsbær VIÐ ERUMSÉRFRÆÐINGAR Í MALBIKUN Malbikunarframkvæmdir eru okkar sérsvið. Við tökum að okkur malbikun á bílastæðum, stígum, götum, vegum og hvar sem þarf að malbika. Við tryggjum fyrirtaks þjónustu sem svarar ýtrustu gæða- og öryggiskröfum. Hafðu samband. Landhelgisgæslan hefur mátt berjast við Reykjavíkurborg um tilveru sína á Reykjavíkur- flugvelli og alls óljóst hvernig sú rimma fer. Þetta hefur lengi verið ljóst með vinstri meirihlutann við stjórnvöl- inn í borg- inni en komst upp á yfirborðið nýlega þeg- ar Gæslan þurfti að bæta aðstöðu sína til að koma fyrir bættum þyrlukosti ásamt öðrum tækjabúnaði. Borgarfulltrúi Við- reisnar segir að afstaðan sé að Reykjavíkurflugvöllur fari og vill Gæsluna í Hvassahraun! - - - Nú hefur verið sótt um leyfi til að byggja nýtt flugskýli fyrir Landhelgisgæsluna á Reykjavíkur- flugvelli og verður fróðlegt að sjá hvernig þeirri umsókn reiðir af. - - - En það er ekki bara Landhelgis- gæslan sem meirihlutinn í borginni reynir að koma annað. Ey- þór Arnalds, oddviti sjálfstæðis- manna í borginni, benti á það á dög- unum að ástæðan fyrir því að Tækniskólinn væri að flytja til Hafnarfjarðar væri sú að borgin hefði ekki boðið raunhæfa lóð. - - - Eyþór nefndi fleiri dæmi: „Við höfum haft fréttir af því að borgin sé að skoða möguleika á að flytja malbikunarstöðina sem hún rekur í Hafnarfjörð því hún hefur átt í erfiðleikum með að finna henni stað í borginni. Mörg fyrirtæki eins og Björgun sem voru að sinna hús- næðismarkaðnum eru bara með enga lóð og enga starfsemi. Íslands- banki fór af Kirkjusandi yfir í Kópavoginn, Tryggingastofnun fór af Hlemmi sem átti að vera besti staðurinn fyrir almennings- samgöngur í Kópavoginn líka og svo sjáum við Tækniskólann núna fylgja á eftir. Þetta er of mikið.“ „Þetta er of mikið“ STAKSTEINAR Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Stjórn Miðflokksins í Reykjavík hefur tekið ákvörðun um að boða til oddvitakjörs í Reykja- víkurkjördæmi suður eftir að tillaga uppstilling- arnefndar að framboðslista flokksins í kjördæm- inu var felld á félagsfundi síðastliðinn fimmtudag. „Listinn sem uppstillingarnefnd leggur fram er felldur af félagsmönnum og þar með er þetta úr höndum nefndarinnar og stjórn Reykjavíkur suður þarf að taka ákvörðun um hvað við gerum,“ segir Anna Björg Hjartardóttir, formaður Mið- flokksfélags Reykjavíkur suður. Anna segir nokkrar leiðir færar en til þess að gera þetta sem „handhægast fyrir alla um há- sumar“ hafi verið tekin sú ákvörðun að fara í svo- kallað oddvitakjör, þar sem eingöngu er kosið um þá sem sóttust eftir fyrsta sætinu. Síðan verður á félagsfundi eftir viku, þegar niðurstaðan er feng- in, listinn lagður fram sem ein heild til sam- þykktar félagsmanna. „Þar sem það var enginn ágreiningur um listann í heild, aðeins oddvitasæt- ið, verður aðeins kosið um það,“ segir Anna en stuðningsmenn Þorsteins Sæmundssonar sættu sig ekki við að hann væri ekki í oddvitasætinu í tillögu uppstillingarnefndar. Tillaga var gerð um Fjólu Hrund Björnsdóttur. „Þó svo að það standi að þetta sé ráðgefandi kosning þá er það vegna þess að það er ekki nógu mikill lagastuðningur við það. Í lögum fé- lagsins er ekkert nákvæmlega um þetta og þá er þetta kallað ráðgefandi en að sjálfsögðu er uppstillingarnefndin að fara eftir vilja félags- manna um hvað þeir kjósa,“ segir Anna enn fremur. Boða oddvitakjör í borginni - Miðflokksmenn kjósa aðeins um oddvitasætið - Ráðgefandi kosningar Bandaríska herskipið USS Roose- velt kom hingað til lands í morgun og liggur nú við Skarfabakka. Ríkislögreglustjóri ákvað að setja bann á að fljúga dróna innan 400 metra radíuss frá skipinu, bæði meðan það er á sjó innan ís- lenskrar landhelgi og við höfnina. Bannið gildir til 22. júlí og má því ætla að skipið verði hér þangað til. Skipið er hluti af skipaflota bandaríska sjóhersins og var nefnt í höfuðið á Franklin D. Roosevelt, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, og konu hans, Eleanor. Skipið er tundurspillir og var það þrítugasta af sinni tegund þegar það var tek- ið í notkun árið 2000. „Það er ekki óvanalegt að er- lend herskip komi við hjá Íslandi á siglingu um Norður-Atlantshaf,“ segir Sveinn H. Guðmarsson, upp- lýsingafulltrúi utanríkisráðuneyt- isins. Þau komi oft til að taka vist- ir eða áhafnaskipti fari fram. Skipin komi alltaf hingað með leyfi íslenskra stjórnvalda. ari@mbl.is Roosevelt kominn til Reykjavíkurhafnar Morgunblaðið/Sigurður Unnar Forseti Skipið er nefnt eftir hjónunum Franklin D. og Eleanor Roosevelt.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.