Morgunblaðið - 19.07.2021, Page 2
2 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. JÚLÍ 2021
TENERIFE
21. - 30. JÚLÍ | 9 DAGAR
FLUG OG GISTING
VERÐ FRÁ:
68.500 KR.
*Á MANN M.V. 2 FULLORÐNA
OG 2 BÖRN. INNIFALIÐ Í VERÐI
FLUG, GISTING, INNRITAÐUR
FARANGUR OG HANDFARANGUR
INNIFALIÐ Í VERÐI
FLUGSÆTI BÁÐAR LEIÐIR
FLUG OG HANDFARANGUR
FLUG
VERÐ FRÁ:
49.900 KR.*
WWW.UU.IS | HLÍÐASMÁRI 19, 201 KÓP. | 585 40000 | INFO@UU.IS
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson
menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Steinar Ingi Kolbeins
steinar@mbl.is
Veiði á hreindýrstörfum hófst sl.
fimmtudag. Meðal þeirra sem lögðu
leið sína austur um helgina voru
hjónin Ólafur Vigfússon og María
Anna Clausen. Veiði á hreindýrs-
kúm hefst 1. ágúst nk. og stendur til
20. september. Veiði á törfum lýkur
fimm dögum fyrr.
Í samtali við blaðamann var Ólaf-
ur hinn sáttasti með þennan fyrsta
túr tímabilsins en þau hjónin skutu
tvo tarfa.
„Við vorum heppin að ná tveimur
törfum á svæði 2,“ segir Ólafur en
Austurlandinu er skipt niður í níu
mismunandi veiðisvæði fyrir
hreindýraveiðar. Spurður hvort það
sé rétt metið hjá blaðamanni að þau
hjónin séu reynsluboltar í brans-
anum segir Ólafur léttur: „Jú, rétt
metið hjá þér,“ en þau hjónin eiga og
reka Veiðihornið, eina stærstu veiði-
búð landsins. Ólafur segir ferðina
hafa tekist vel, en þó hafi þetta tekið
sinn tíma og mikið þolinmæðisverk
að elta dýrin uppi.
Fjórtán tíma eltingaleikur
Þau hjónin lögðu af stað klukkan
átta um morgun og voru ekki komin
niður til byggða fyrr en að verða tíu
um kvöldið. Það er mat Ólafs að sök-
um mikilla hlýinda á Austurlandi
síðustu daga og vikur séu dýrin
hærra uppi í fjöllunum en venjulega.
Því þurfi að hafa mikið fyrir því að
elta þau uppi og finna. „Svo loks
þegar við fundum dýrin þá voru þau
mjög kvik og gjörn á að hlaupa á
brott, þetta var því mikið
þolinmæðisverk.“ Úr verður því
hálfgerður eltingaleikur en ekkert
ógurlegur æsingur þó.
„Maður er náttúrlega svona í
fjarska til að styggja ekki dýrin, en
tarfarnir eru gjarnan í nokkuð
stórum hópum,“ segir Ólafur. Þau
hjónin fylgdu því törfunum lengi vel
til þess að komast í gott skotfæri.
„Það verður að tryggja að maður
fái gott færi til þess að ná að fella
dýrið.“ Að endingu skutu hjónin tvo
tarfa og því ánægð með afrakstur
ferðarinnar.
Ljósmynd/Aðsend
Fyrsta veiði tímabilsins Ólafur og María ánægð á svip eftir langan eltingaleik við tarfinn.
Fjórtán tíma eltinga-
leikur á Austurlandi
- Náðu tveimur törfum - Veiðar leyfðar í tvo mánuði
Gunnhildur Sif Oddsdóttir
gunnhildursif@mbl.is
Samtals greindist 21 með kórónu-
veiruna innanlands á föstudag og
laugardag og 19 á landamærunum,
alls 40. Á föstudaginn greindust 12
með veiruna innanlands og þar af
voru fimm í sóttkví. Í fyrradag
greindust níu og var enginn þeirra í
sóttkví. Smit gærdagsins verða ljós í
dag. Í tilkynningu almannavarna um
helgina kom fram að meirihluti smit-
aðra væri bólusettur.
Einn einstaklingur var lagður inn
á Landspítalann í fyrradag með kór-
ónuveirusmit. Þetta staðfesti Run-
ólfur Pálsson, yfirmaður Covid-
göngudeildar, í samtali við Morgun-
blaðið og mbl.is í gær.
Að sögn Runólfs var einstakling-
urinn bólusettur og er ekki alvarlega
veikur. Þá var innlögnin í fyrradag
sú fyrsta í nokkrar vikur.
Að sögn Runólfs er enginn alvar-
lega veikur með kórónuveirusmit.
Annaðhvort er fólk með væg ein-
kenni eða nánast einkennalaust. Þá
eru þeir sem hafa smitast nýverið
meira og minna bólusettir einstak-
lingar.
Runólfur býst ekki við því að Co-
vid-göngudeildin fari að fyllast.
„Þetta er langt frá því sem áður var.
Sú staðreynd að samfélagið er að
mestu bólusett hjálpar náttúrlega
mikið, en samt sem áður er veira
þarna úti í samfélaginu og einn og
einn er að smitast en sem betur fer
eru einkennin yfirleitt mjög væg,“
segir Runólfur.
Á fjórða hundrað í sóttkví
Hjördís Guðmundsdóttir, sam-
skiptastjóri almannavarna, sagði í
samtali við mbl.is að flest smitanna
sem greindust á laugardag tengdust
skemmtanalífinu.
Eftir tölur laugardagsins voru 370
manns í sóttkví og 111 í einangrun.
Þó var um að ræða bráðabirgðatölur
og má vænta þess að talsvert fleiri
hafi farið í sóttkví í gær þar sem það
átti eftir að rekja þau smit sem
greindust seint á laugardagskvöldið.
Gylfi Þór Þorsteinsson, forstöðu-
maður farsóttarhúsa Rauða kross-
ins, segir starfsemina í farsóttarhús-
inu á Rauðarárstíg ganga vel en þar
voru 44 í einangrun um þrjúleytið í
gær.
Þá sagði Gylfi að þröngt væri orðið
á einangrunarhæðunum og hugsan-
lega þyrfti því að bæta við einni hæð
til viðbótar.
Bæði Íslendingar og ferðamenn
dvelja nú í farsóttarhúsinu. Ferða-
mennirnir eru að sögn Gylfa aðallega
bólusettir einstaklingar sem hafa svo
greinst í skimun áður en þeir fara af
landi brott. „Það er allavega meiri-
hluti allra sem eru hjá okkur núna
bólusettur,“ segir Gylfi.
Að sögn Gylfa bera flestir gestir
farsóttarhússins sig vel. Þó séu ein-
hverjir mikið slappir, með mikla
hálsbólgu, niðurgang og höfuðverk.
Bólusettir finni einnig fyrir þessum
einkennum.
Um 130 einstaklingar dvelja á
sóttkvíarhótelunum og að sögn Gylfa
dvelur þar aðallega fólk sem kom
óbólusett til landsins og þarf því
að sæta fimm daga sóttkví.
„Það hafa mjög fáir sem
hafa dvalið á sóttkvíarhótel-
um greinst jákvæðir í seinni
skimun og í raun er það
þannig að það hafa mun fleiri
sem eru bólusettir
greinst jákvæðir
en þeir sem voru
það ekki en voru í
fimm daga
sóttkví,“ segir
Gylfi.
Tugir smita um helgina
- Meirihluti smitaðra bólusettur - Enginn alvarlega veikur - Einn liggur
á Landspítala með Covid - Fáir á sóttkvíarhótelum greinast í seinni skimun
Ljósmynd/Landspítalinn-Þorkell
Landspítali Starfsmenn Landspítalans í hlífðarbúnaði í október 2020.
„Þetta kemur okkur afar mikið á
óvart. Það er engin þolinmæði í
greininni fyrir þessum hug-
myndum á þessum tímapunkti,“
segir Jóhannes Þór Skúlason,
framkvæmdastjóri Samtaka
ferðaþjónustunnar, en sótt-
varnalæknir er með í smíðum
minnisblað um hertar aðgerðir
á landamærum.
Þá segir Jóhannes að það sé
allt annað að eiga við takmark-
anir núna þegar nokkur hundr-
uð manns eru búin að bóka ferð
til landsins en í vetur þegar
staðan var önnur. Þá hafi fólk
ekki verið bólusett og enginn á
ferðinni til landsins hvort eð
var. „Þannig að þetta er hrein-
lega alveg ótækt af okkar hálfu.
Við teljum að nú verði stjórn-
völd að horfa á það sem þau
lögðu upp í vor um að koma á
einhverju jafnvægi milli sótt-
varna og efnahagslegra þátta
vegna þess að það er stór-
mál og grafalvarlegt að setja
einhvers konar takmarkanir
núna,“ segir Jóhannes og
bætir við að fyrir hert-
um aðgerðum
þurfi afar sterk
og óyggjandi
rök sem hann
hafi ekki séð.
Vill sjá rök fyrir
aðgerðum
FERÐAÞJÓNUSTAN
Jóhannes Þór
Skúlason
Björgunarsveitir Landsbjargar
höfðu í nægu að snúast í gær og
fram á kvöld. Göngukona lenti í
vanda og tveir bátar þurftu aðstoð.
Senda þurfti þyrlu Gæslunnar á
vettvang þegar kona fótbrotnaði á
göngu í Jökultungum á gönguleið-
inni Laugavegi í gær. Konan var
flutt á Landspítalann til aðhlynn-
ingar. Á áttunda tímanum í gær
barst svo tilkynning um að björg-
unarskipið Húnabjörg frá Skaga-
strönd væri á leið til aðstoðar báti
sem orðið hefði vélarvana undan
Hornbjargi. Tveir menn voru um
borð og amaði ekkert að þeim. Síð-
ar um kvöldið barst enn ein tilkynn-
ingin, en annar bátur varð vélar-
vana, töluvert suðvestur af
Þorlákshöfn. Björgunarskip frá
Grindavík og björgunarbátur frá
Þorlákshöfn voru send til aðstoðar.
Áætlað var að björgunaraðgerðir
stæðu yfir fram eftir nóttu.
Göngugarpur í vanda og vélarvana bátar