Morgunblaðið - 19.07.2021, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 19.07.2021, Qupperneq 6
6 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. JÚLÍ 2021 Framkvæmdir standa nú yfir ofan við íþróttamiðstöð Golf- klúbbs Garðabæjar og Kópavogs, GKG. Þar verða byggðar upp æfingaflatir með sandglompum sem eiga að koma í stað æfingasvæðisins sem klúbburinn missir vestan megin við Vetrarbrautina. Þar rís sem kunnugt er fjölnota íþrótta- spænska kylfingsins Josés Maria Olazábals, sem m.a. hefur unnið Masters-mótið í tvígang. Einnig hefur Snorri endur- hannað 18. flötina á Leirdalsvelli GKG og jarðvegsvinna er í gangi. Stefnt er að því að taka nýjar flatir í notkun næsta sumar. höll og gert ráð fyrir frekari byggð milli Vetrarbrautar og Reykjanesbrautar. GKG hefur fengið erlendan aðila, Tony Ristola, til að stýra vinnu við nýjar æfingaflatir. Þær eru hannaðar af Snorra Vilhjálmssyni golfvallaarkitekt en hann var nýverið ráðinn til Olazabal Design, fyrirtækis í eigu Morgunblaðið/Árni Sæberg Bæta við æfingaflötum við íþróttamiðstöðina Golfklúbbur Garðabæjar og Kópavogs í miklum framkvæmdahug Orkustofnun (OS) hefur sett flestar hleðslustöðvar á landinu sem opnar eru almenningi inn á kortavefsjá sína. Þar má finna bæði hraðhleðslustöðvar og minni stöðvar á landinu. Alls eru þetta um 350 stöðvar, eins og kortið lítur út, með um 670 tenglum. Það eru þó ekki tæmandi tölur um fjöldann. Þessi þjónusta ætti að nýtast ferða- löngum á rafbíl til að skipuleggja sín- ar ferðaáætlanir með tilliti til hleðslu- möguleika á hverju svæði fyrir sig, eins og segir á vef OS. Á kortinu má finna staðsetningar og aflgetu hleðslustöðva en auk þess eru þarna upplýsingar um rekstrar- aðila og lykilþjónustu, t.d. hvort er gisting, eða salernis- og veitinga- aðstaða á staðnum. Orkustofnun hefur ekki staðfestar upplýsingar um rekstraraðila allra stöðva en eins og skráningin er núna kemur ekki á óvart að Orka náttúr- unnar, ON, er skráð fyrir langflestum stöðvunum, með fjórar af hverjum tíu. Þar á eftir koma Ísorka og Orku- salan. Orkubú Vestfjarða rekur nokkrar, sem og Olís og N1. Afl flestra stöðvanna er undir 50 kílóvött- um en þá stærstu rekur Tesla í Stað- arskála, 250 kílóvött, með átta tengl- um. Nokkrir starfsmenn OS hafa unnið að þessu verkefni í sumar. Einn þeirra, Sigurður Elías Hjaltason, seg- ir við Morgunblaðið að kortið verði uppfært og lagað eftir því sem nýjar stöðvar rísa eða breytingar verða á þjónustu á þessum stöðvum. Ábendingar og leiðréttingar er hægt að senda á hledsla@os.is en kortavefsjáin er á eftirfarandi slóð: https://map.is/os. bjb@mbl.is Staðsetning hleðslustöðva um landið og á höfuðborgarsvæðinu Hleðslustöð Hraðhleðslustöð >50kW Heimild: Orkustofnun www.map.is/os Höfuðborgar- svæðið Hleðslustöðvum fjölgar um allt land - Staðsetningar komnar á kortavefsjá Orkustofnunar Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Hleðslustöðvar Orka náttúrunnar, ON, er með langflestar stöðvar. Mikill erill var hjá lögreglunni á höf- uðborgarsvæðinu aðfaranótt sunnu- dags og að morgni stóðu allir fanga- klefar fullir. Meðal annars voru tilkynnt tvenn slagsmál þar sem menn voru vopnaðir hnífum. Alla helgina var þá mikið um slagsmál í kringum miðbæinn og ölvunar- og hávaðatilkynningar tíðar. Rafn Hilmar Guðmundsson, aðalvarð- stjóri lögreglunnar í miðbænum, segir enga augljósa skýringu fyrir- finnast. „Það var bara mjög mikið að gera alla helgina og það sama var upp á teningnum þar síðustu helgi,“ segir Rafn í samtali við blaðamann. Hann segir ekki endilega algengt að menn séu vopnbúnir á djamminu en þó komi það fyrir. Þá séu það helst hnífar. Á fimmta tímanum í fyrrinótt bár- ust lögreglu tilkynningar um hóp- slagsmál, en þar voru tveir menn vopnaðir; annar með hníf og hinn með hamar. Rafn segir ólætin nær ávallt eiga sér stað á skemmtistöðum bæjarins eða fyrir utan staðina. Ekki hafi verið um að ræða fastakúnna lögreglunnar í ólátunum. „Það er bara allur gangur á því hverjir eiga í hlut í þessum málum.“ Mikið um ólæti í miðbæ Reykjavíkur - Allir fangaklefar fullir eftir nóttina Morgunblaðið/Eggert Lögreglan Fangaklefar voru full- setnir að morgni sunnudags.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.