Morgunblaðið - 24.07.2021, Síða 2

Morgunblaðið - 24.07.2021, Síða 2
ÁHRIF KÓRÓNUVEIRUNNAR Á ÍSLANDI2 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. JÚLÍ 2021 www.kofaroghus.is - Sími 553 1545 TIL Á LAGER Ítarlegarupplýsingarog teikningarásamtýmsumöðrumfróðleik máfinnaávefokkar STAPI - 14,98 fm Tilboðsverð 697.500kr. 25% afsláttur BREKKA34 - 9 fm Tilboðsverð 369.750kr. 25% afsláttur NAUST - 14,44 fm Tilboðsverð 449.400kr. 30% afsláttur VANTAR ÞIGPLÁSS? Afar einfalt er að reisa húsin okkar. Uppsetning tekur aðeins einndag TILBOÐÁGARÐHÚSUM! Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Stefán E. Stefánsson Esther Hallsdóttir 408 einstaklingar eru undir eftirliti Covid-göngudeildar Landspítalans. Már Kristjánsson, yfirlæknir smit- sjúkdómadeildar spítalans, staðfesti í samtali við Morgunblaðið í gær- kvöld að af þeim væru 18 gul- merktir en eng- inn rauðmerktur. Samkvæmt litakóða spítalans teljast þeir græn- merktir í kerfum hans sem hafa væg eða engin einkenni kórónu- veirunnar þrátt fyrir smit. Þeir sem eru gulmerktir hafa aukin einkenni og rauðmerktir eru með alvarlegri einkenni, s.s. mik- il andþyngsli og háan hita. Hafði staðan á listanum breyst talsvert þegar leið á kvöldið miðað við hádegið í gær. Þá voru 369 manns á listanum. Þar af voru 358 græn- merktir, 10 gulmerktir og 1 rauð- merktur. Auk þeirra 408 sem eru undir eftirliti göngudeildarinnar liggja þrír sjúklingar mikið veikir á Landspítalanum. Enginn í öndunarvél Aðspurður segir Már að enginn hinna þriggja hafi þurft á aðstoð öndunarvélar að halda. Þeir séu með lungnasýkingar og fái m.a. súrefni til þess að takast á við veikindi sín. Már segir spítalann í þröngri stöðu í að- stæðum eins og þeim sem nú hafi skapast. Þótt starfsmenn hans ráði við aðstæður á þessum tímapunkti séu þær fljótar að breytast. Veldis- vöxtur í greiningu smita geti breytt stöðunni mjög hratt og dregið úr getu spítalans til þess að sinna öðr- um aðkallandi verkefnum sem ekki hverfi á braut þótt faraldurinn nái sér á strik að nýju. Már segir að tíðni smita meðal bólusettra hafi verið meiri en búist hefði verið við. Bólusett starfsfólk geti til að mynda borið veiruna inn á spítalann. „Þá er það allt í einu orðin öryggisógn við okkar starfsemi, ef fólk er með smit inni á spítalanum. Ekki það að við höfum ekki miklar áhyggjur af ungu fólki í sjálfu sér, nema sem farartæki fyrir veiruna í þá sem eru veikir og lasburða. Það er í rauninni áskorunin,“ segir Már. Óvissa um fjölda smita Hann bendir þó á að enn sem stendur séu langflestir einkennalitlir af völdum veirunnar og talsvert sé um að fólk sé einkennalaust. „Flestir sem greinast eru að koma í einkennasýnatökur og sýna því ein- hver einkenni en svo er hópur sem er kallaður í sýnatöku vegna einhverra tengsla við sýkta einstaklinga og þar greinist fólk sem finnur ekki fyrir neinu.“ Már segir með öllu óljóst hversu útbreitt smitið er í samfélaginu. Það viti einfaldlega enginn. „Ný rannsókn frá Ísrael bendir til þess að 20% sýktra séu einkenna- lausir og ef það er reyndin þá erum við sennilega með talsvert af sýktum einstaklingum úti í samfélaginu.“ 49.200 lokið sóttkví Samkvæmt tölum sem birtar voru á vefsíðu Almannavarna í gær voru 1.043 í sóttkví í landinu og 1.234 í skimunarsóttkví. 371 sætti einangr- un og 76 höfðu greinst með kórónu- veiruna daginn áður. Nú hafa 7.054 smit verið staðfest hér á landi og 49.200 manns lokið sóttkví frá því að faraldurinn hóf innreið sína í íslenskt samfélag í febrúar 2020. Óttast holskeflu innlagna - Langflestir þeirra sem greinst hafa smitaðir af kórónuveirunni nú eru með væg eða engin einkenni - Yfirlæknir óttast að veldisvöxtur í smitum gæti leitt til margra sjúkrahúsinnlagna í kjölfarið 2 6 4 3 9 17 14 22 16 16 44 58 75 77Fjöldi smita frá 9. júlí Heimild: covid.is Heimild: LSH 23. júlí kl. 20 253.666 einstak- lingar eru fullbólusettir en alls 267.830 hafa fengið að minnsta kosti einn skammt 76 ný innanlands- smit greindust sl. sólarhring 1.234 einstaklingar eru í skimunarsóttkví 1.043 einstaklingar eru í sóttkvíInnanlandssmit Fullbólusettir Bólusetning hafin Óbólusettir Skimun á landamærum 9. júlí 10. júlí 11. júlí 12. júlí 13. júlí 14. júlí 15. júlí 16. júlí 17. júlí 18. júlí 19. júlí 20. júlí 21. júlí 22. júlí Einstaklingar undir eftirliti Covid-göngudeildar LSH 408 einstaklingar eru undir eftirliti Covid-göngudeildar LSH Væg eða engin einkenni Aukin einkenni Alvarlegri einkenni, s.s. mikil andþyngsli og hár hiti 10 7 6 7 9 9 24 11 43 18 52 22 54 Már Kristjánsson Ari Páll Karlsson Baldur Blöndal Gunnhildur Sif Oddsdóttir Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur fundaði á Hótel Valskjálf á Egils- stöðum síðdegis í gær um tillögur sóttvarnalæknis að sóttvarnaað- gerðum innanlands vegna kórónu- veirufaraldursins. Að loknum þriggja tíma fundi boðaði ríkis- stjórnin hertar aðgerðir innanlands. Þrír ráðherrar flugu með skrúfu- þotu frá Flugfélaginu Erni á fund- inn en kostnaðurinn við leigu vél- arinnar nam um 800 þúsund krónum. Katrín sagði allt áætlunarflug til Egilsstaða hafa verið uppbókað í gær og þess vegna hafi ríkisstjórnin leigt vélina undir ráðherrana þrjá svo þeir mættu komast til Egils- staða. Að sögn Katrínar er ótækt að halda fundi sem þessa í gegnum fjarfundarbúnað: „Við höfum ekki verið með fjarfundi í ríkisstjórninni, bæði út af netöryggisástæðum en auk þess er þetta meiri háttar stjórnarmálefni sem ber að ræða á ríkisstjórnarfundi.“ Ekki ósvipað takmörkunum á öðrum Norðurlöndum Katrín segir ríkisstjórnina hafa stigið til jarðar með varfærnum hætti með þessum aðgerðum. „Hér er verið að leggja til breyttan af- greiðslutíma á börum og veitinga- húsum. Sömuleiðis er verið að setja þessi 200 manna fjöldatakmörk sem er ekki ósvipað því sem sést á öðrum Norðurlöndum þar sem svipaðar takmarkanir eru í gildi,“ segir Katrín. „Fólk er að sjálfsögðu orðið lúið á þessu og vonaðist til að sjá ekki slíka fjölgun smita. Nálgun bæði okkar í ríkisstjórninni og almennings í land- inu er að taka skynsamlegar ákvarð- anir með því að lágmarka veikindi og hámarka frelsi og samfélagsleg gæði. Það er okkar hlutverk að finna leiðir að þeim markmiðum,“ segir Katrín sem viðurkennir þó að ein- hver hiti hafi verið á ríkisstjórnar- fundinum, en að algjör samstaða hafi verið um málið að lokum. Bjarni Benediktsson fjármála- ráðherra sagði í samtali við mbl.is að loknum fundi að þessar hertu að- gerðir væru mikil varúðarráðstöfun. „Við ætlum að nota tímann, þessar tvær til þrjár vikur, til að fá betri svör við því hver hættan er af út- breiðslu smita í bólusettu samfélagi og gögnin sem hafa komið fyrir mín- ar sjónir á undanförnum vikum sannfæra mig um að bólusetning- arnar hafi breytt leiknum, en að mati sóttvarnayfirvalda eru núna uppi einhverjar efasemdir og við teljum rétt að bregðast við því,“ sagði Bjarni. Ríkisstjórnin steig „með var- færnum hætti“ til jarðar - Algjör samstaða hjá ríkisstjórninni um sóttvarnaaðgerðir Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson Ríkisstjórnin Fundað á Egilsstöðum í gær um tillögur sóttvarnalæknis. Bjarnheiður Hallsdóttir, for- maður Samtaka ferðaþjónustunn- ar, segir boðaðar takmarkanir inn- anlands vægari en hefði mátt bú- ast við. „Við sjáum svo sem ekki fram á nein gríðarleg áhrif á ferðaþjónustuna nema helst veitingarekstur og náttúrlega við- burði og þess háttar sem eru plan- aðir á næstu vikum, en fyrst það var ekki farið í harðari takmarkanir á landamærum þá eru áhrifin á ferða- þjónustuna svona samtals í vægari kantinum,“ sagði Bjarnheiður í sam- tali við Morgunblaðið. Aðspurð segir Bjarnheiður að tak- markanirnar hefðu getað reynst erf- iðari fyrir ferðaþjónustuna, til dæm- is ef að fjöldatakmarkanir hefðu farið neðar. En frá og með miðnætti í kvöld mega einungis 200 manns koma saman. Bjarnheiður bendir þó á að hún viti ekki enn hvernig eins metra reglan verði útfærð og hvaða áhrif hún komi til með að hafa á hópferðir. Sóttvarnaaðgerðir í vægari kantinum - Sjá ekki fram á gríðarleg áhrif Bjarnheiður Hallsdóttir 200 Hámarksfjöldi þeirra sem mega koma saman verður 200. 100 Veitinga- og skemmtistaðir munu einungis mega taka á móti 100 manns í hverju rými. 1 Nálægðartakmörk miðist við einn metra. AÐGERÐIR STJÓRNVALDA »

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.