Morgunblaðið - 24.07.2021, Blaðsíða 17
FRÉTTIR 17Erlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. JÚLÍ 2021
Skoðið fleiri innréttingar á
innlifun.is
Suðurlandsbraut 26 Sími 587 2700
Opið 11-18 virka daga innlifun.is ALVÖRU ELDHÚS
24. júlí 2021
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 125.85
Sterlingspund 173.21
Kanadadalur 100.27
Dönsk króna 19.924
Norsk króna 14.278
Sænsk króna 14.494
Svissn. franki 136.85
Japanskt jen 1.1416
SDR 178.89
Evra 148.2
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 176.8231
Ólympíuleikarnir í Japan voru settir í Tókýó í
gær. Setningarathöfnin var glæsileg og lýstu
flugeldar upp himininn yfir borginni. Leikarnir
fara fram við sérstakar aðstæður, í miðjum kór-
ónuveirufaraldri en vegna hans voru engir
áhorfendur leyfðir á ólympíuleikvanginum.
Ólympíuleikarnir í Japan settir í gær fyrir tómu húsi
AFP
Flugeldar lýstu upp himin yfir Tókýó
Andrés Magnússon
andres@mbl.is
Evrópska lyfjastofnunin (EMA)
ákvað í gær að mæla með Spikevax,
bóluefni Moderna, fyrir börn og ung-
linga, 12 ára og eldri. Það er í hönd-
um framkvæmdastjórnar Evrópu-
sambandsins (ESB) að taka
lokaákvörðun, en það er formsatriði.
Lyfjastofnun Íslands hefur dyggi-
lega fylgt EMA eftir varðandi leyfi
bóluefna, svo gera má ráð fyrir því
að þessi ákvörðun gildi og hafi áhrif
hér á landi líka.
Spikevax, sem oft er nefnt Mod-
erna eftir framleiðandanum, verður
þá annað bóluefnið, sem mælt er með
fyrir börn og unglinga, en bóluefni
Pfizer/BioNTech hlaut leyfi til notk-
unar fyrir 12-17 ára í maí.
Litið er á bólusetningu barna og
unglinga sem mikilvægan þátt í að
ná hjarðónæmi þjóða gagnvart Co-
vid-19, en þrátt fyrir að langflest
börn fái aðeins væg einkenni kórónu-
veirunnar, ef nokkur, þá geta þau
verið smitandi og sum sem eru veik
fyrir, veikst alvarlega.
Sóttkví skólabarna óþörf
Í sama mund kom út rannsókn hjá
Oxford-háskóla, sem bendir til þess
að það hafi verið óþarfi að skikka
nemendur í sjálfskipaða sóttkví ef
skólasystkini greindist með Co-
vid-19. Sú leið var farin í mörgum
löndum með verulegri og viðvarandi
truflun fyrir skólastarf, nemendur
og fjölskyldur þeirra.
Samkvæmt rannsókninni hefði
dagleg skimun verið a.m.k. jafn-
gagnleg með tilliti til sóttvarna, en
gert mögulegt að halda skólum opn-
um með lágmarkstruflun.
Rannsóknin leiddi í ljós að 98,4%
barna, sem þannig voru send heim
úr skóla í Bretlandi, hefðu ekki
reynst vera með Covid-19, hvorki
verið í hættu né geta valdið henni, en
samt send heim að nauðsynjalausu.
Í þeim skólum þar sem þess í stað
var skimað daglega reyndust Covid-
tilfelli vera 4% færri.
Unglingar mega fá Moderna
- EMA mælir með Moderna fyrir 12-17 ára - Pfizer fékk sams konar leyfi í maí
- Bólusetning unglinga næst - Rannsókn segir sjálfskipaða sóttkví barna óþarfa
AFP
Bóluefni Nú má líka bólusetja ung-
linga með Spikevax frá Moderna.
Hollenskir sak-
sóknarar hafa
til rannsóknar
dauðsföll sex
manna sem
höfðu keypt
banvænt lyf
sem notað er til
sjálfsvíga.
Seljandi lyfs-
ins, 28 ára
karlmaður frá
borginni
Eindhoven í suðurhluta Hollands,
var handtekinn sl. þriðjudag grun-
aður um að hafa ólöglega aðstoðað
mennina við sjálfsvígin.
Samkvæmt frétt AFP er þetta
brot á hollenskum lyfjalögum og
peningaþvætti. Við rannsókn máls-
ins kom í ljós að um sex dauðsföll
væri að ræða í það minnsta vegna
lyfjanna.
Sá grunaði á að hafa selt efnið
frá nóvember 2018 til júní 2021 og
lifað af ágóðanum, að sögn sak-
sóknara. Líknardráp hefur verið
löglegt í Hollandi frá árinu 2002, en
aðeins samkvæmt ströngum lögum.
Þá þarf að koma fram að sjúkling-
ur, sem hefur upplifað mikla þján-
ingu, sé með fulla meðvitund og
skýr í kollinum er hann fer fram á
heimildina.
HOLLAND
Seldi lyf sem notað
var til sjálfsvíga
Rannsókn Í ljós
kom að um sex
dauðsföll er að ræða.
Frakkland gaf út
í gær að her-
sveitir þeirra
hefðu fellt tvo
háttsetta leið-
toga íslamska
ríkisins í Stór-
Sahara-
hryðjuverka-
hópnum (ISGS),
á Malí sem starf-
að hefur með Al-Qaida og fylgir
hugmyndafræði Salafi Jihadism.
Árásin var gerð í samráði við
Bandaríkin.
Franski varnarmálaráðherrann,
Florence Parly, sagði að árásin
hefði beinst að herbúðum á Me-
naka-svæðinu í Vestur-Afríku og
staðið yfir frá miðvikudegi til
fimmtudags. Issa al-Sahraoui,
skipuleggjandi og fjármálastjóri
hryðjuverkasamtakanna, og Abu
Abderahman al-Sahroui, sem sá um
að kveða upp dóma innan samtak-
anna, voru báðir drepnir. Varn-
armálaráðuneyti Frakklands hefur
gefið út að árásin sýni „ákveðni
þeirra í að halda áfram baráttunni
gegn vopnuðum hryðjuverkahóp-
um“.
FRAKKLAND
Tveir leiðtogar ISGS
felldir í aðgerðum
Florence Parly
Allt um
sjávarútveg