Morgunblaðið - 24.07.2021, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 24.07.2021, Blaðsíða 33
ÓLYMPÍULEIKAR Gunnar Egill Daníelsson gunnaregill@mbl.is Sundkonan Snæfríður Sól Jórunnardóttir mun taka þátt á sínum fyrstu Ólympíuleikum þegar hún keppir í tveimur greinum, 100 metra skriðsundi og 200 metra skriðsundi, á leikunum í Tókýó í Japan. Hún fór beint í stórt hlutverk á setningarathöfn leikanna á Ólympíu- leikvanginum í gær, en hún og Anton Sveinn McKee voru fánaberar Íslands á athöfninni glæsilegu. Íslensku keppendurnir voru þriðja sveitin sem gekk inn á leikvanginn, þar sem Ísland er fremst allra þjóða heims í japanska stafrófinu. Grikkir voru að vanda fyrstir og síðan kom sveit flóttamanna en þar á eftir all- ar hinar þátttökuþjóðirnar í japanskri stafrófsröð. Snæfríður Sól er tvítug og flutti til Danmerkur með fjölskyldu sinni fyrir um áratug, þegar hún var 11 ára gömul og hefur búið þar í landi allar götur síðan. Snæfríður Sól hefur tvisvar verið valin sundkona árs- ins hér á landi, árin 2018 og 2020, og á Íslandsmetin í 200 metra skriðsundi í bæði 25 metra og 50 metra laug. Hefur hún tekið stöðugum framförum á undanförnum árum enda reglulega slegið sín eigin Íslandsmet. Afrakstur þeirra bætinga er þátt- taka á Ólympíuleikum í fyrsta skipti á ferlinum og kveðst Snæfríður Sól spennt fyrir því að fá að upplifa sína fyrstu leika. „Þetta leggst bara mjög vel í mig, ég hlakka mikið til,“ sagði hún í samtali við Morgunblaðið. Þátttaka hennar var ekki endanlega staðfest fyrr en í byrjun þessa mánaðar. Hún synti undir svokölluðu B-Ólympíulágmarki í 200 metra skriðsundi á móti í Vejle í mars, sem dugði þó ekki eitt og sér. Ísland átti kvótasæti sem kvað á um að geta sent sund- konu á leikana og þar sem Snæfríður Sól stóð langbest að vígi þegar kom að íslenskum sundkonum var sætið hennar. Flutti til að einblína á sundið „Það má segja að hlutirnir hafi þróast í þessa átt, maður vissi aldrei hvernig þetta myndi fara á Covid-tímum. Ég flutti með þjálfaranum mínum til Álaborgar síð- asta haust til þess að einbeita mér að sund- inu. Það hefur skilað sér í góðum bætingum á þessu tímabili, þar sem ég synti undir lágmörk- um í mars,“ sagði Snæfríður Sól og bætti því við að undirbúningur hennar fyrir leikana hafi verið hefðbundinn og allt gengið vel hvað hann varðar. Beðin um að meta möguleika sína í undanrásum greinanna tveggja sem Snæfríður tekur þátt í sagð- ist hún ekki mikið vera að einblína á þá. „Þetta verða mínir fyrstu leikar, þar sem mikilvægast verður að fá góða reynslu og upplifun fyrir framtíðina,“ sagði hún. Markmið Snæfríðar Sólar á leikunum væru því einföld: „Markmiðin eru að synda gott sund og njóta þess að vera með.“ Einbeitti sér að sundinu frá áramótum Spurð um hvað hún fáist við þegar hún er ekki að æfa og keppa í sundi sagði Snæfríður Sól: „Ég varð stúdent fyrir ári. Þetta ár hef ég svo notað til að einbeita mér að sundinu og vinna með. Ég vann fram að áramótum í hlutastarfi fyrir vefverslun sem sérhæfir sig í barnavörum en frá áramótum hef ég ein- beitt mér að sundinu,“ sagði Snæfríður Sól við Morg- unblaðið. Snæfríður verður annar keppandi Íslands til að taka þátt í leikunum í Tókýó þegar hún keppir í 200 metra skriðsundinu á mánudaginn. Undanúrslit í þeirri grein fara fram á þriðjudag. Hún verður síðan aftur á ferð á miðvikudaginn, 28. júlí, þegar keppt er í 100 metra skriðsundi en undan- úrslitin eru degi síðar. Ljósmynd/Simone Castrovillari Njóta þess að vera með Tókýó Snæfríður Sól Jórunnar- dóttir og Anton Sveinn McKee með íslenska fánann á setningar- athöfn Ólympíuleikanna í gær. - Snæfríður Sól Jórunnardóttir tekur þátt á sínum fyrstu Ólympíuleikum - Hefur bætt sig stöðugt undanfarið - Markmiðin á leikunum eru einföld ÍÞRÓTTIR 33 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. JÚLÍ 2021 Ólympíuleikarnir í Tókýó voru formlega settir í gær við há- tíðlega athöfn. Anton Sveinn McKee og Snæfríður Sól Jórunn- ardóttur voru glæsilegir fánaber- ar Íslands á setningarhátíðinni. Þriðju Ólympíuleikana í röð stal Pita Taufatofua hins veg- ar senunni. Taufatofua mætti ber að ofan, í ta’ovala (pils frá heimalandinu sem er bundið við mittið) og vel olíborinn sem fulltrúi Tonga. Rúmlega 100.000 manns búa á Tonga sem er eyja- klasi í Suður-Kyrrahafi. Taufatofua, sem er 37 ára gamall, keppir í taekwondo á leikunum, rétt eins og hann gerði á leikunum í Ríó árið 2016. Kapp- inn er fjölhæfur því hann keppti í skíðagöngu á vetrarólympíuleik- unum í Pjongjang árið 2018. Þar var hann að sjálfsögðu fánaberi sinnar þjóðar, ber að ofan og olíuborinn að vanda þrátt fyrir um sjö gráðu frost. Honum er margt til lista lagt því ásamt því að keppa á vetrar- og sumarólympíuleikum þá er hann verkfræðingur og sendiherra fyrir UNICEF. Hann keppir í 80 kg flokki og mætir til leiks næstkomandi föstudag í sextán manna úrslit- um taekwondo. Undirritaður hef- ur ekki kynnt sér það sérstak- lega, en ætla má að ekki sé leyfilegt að vera olíuborinn í tae- kwondokeppni á Ólympíuleikum, því miður fyrir Taufatofua og áhorfendur heima í stofu. Hingað til hefur Taufatofua ekki riðið feitum hesti frá keppni á leikunum. Hann tapaði 16:1 fyr- ir Írananum Sajjad Mardani í 1. umferð taekwondokeppninnar í Ríó og varð í 114. sæti af 119 keppendum í skíðagöngu í Pjongjang. Þar var hann eini keppandi Tonga. Þjóðin er ekki þekkt fyrir mikil afrek í vetrar- íþróttum, ekki frekar en Jam- aíka, þrátt fyrir hina mögnuðu Cool Runnings. BAKVÖRÐUR Jóhann Ingi Hafþórsson johanningi@mbl.is KNATTSPYRNA Úrvalsdeild kvenna, Pepsi Max-deildin: Kópavogsv.: Breiðablik – Selfoss.......... L16 SaltPay-völlur: Þór/KA – Valur ............ L16 Hásteinsvöllur: ÍBV – Tindastóll .......... S14 Úrvalsdeild karla, Pepsi Max-deildin: Norðurálsvöllur: ÍA – FH ...................... S17 Domusnovav.: Leiknir R. – KA.............. S17 HS Orkuv.: Keflavík – Breiðablik..... S19.15 Víkingsv.: Víkingur R. – Stjarnan .... S19.15 Kórinn: HK – Valur ........................... S19.15 1. deild karla, Lengjudeildin: Olísvöllur: Vestri – Selfoss..................... L14 2. deild karla: Fjarðabyggðarhöll: Leiknir F. – ÍR ..... L13 Grenivíkurvöllur: Magni – KV .............. L16 Ólafsfjarðarvöllur: KF – Kári ............... L16 3. deild karla: Vopnafjarðarvöllur: Einherji – KFS .... L11 Sauðárkrókur: Tindastóll – KFG.......... L14 Nesfiskvöllur: Víðir – Dalvík/Reynir.... L15 Vilhjálmsvöllur: Höttur/Huginn – KFS S13 Sindravellir: Sindri – Augnablik............ S16 2. deild kvenna: Valsvöllur: KH – Fjarðab/Hött/Leikn.. L14 KR-völlur: KM – Einherji...................... L14 Sindravellir: Sindri – Fjölnir................. L16 GOLF Íslandsmóti golfklúbba, keppni í efstu deildum karla og kvenna, lýkur í dag en keppt er á Hlíðavelli í Mosfellsbæ og Korp- úlfsstaðavelli. FRJÁLSÍÞRÓTTIR Meistaramót Íslands í fjölþrautum fer fram á Kópavogsvelli í dag og á morgun. Keppt er frá 9.30 til 13.40 í dag og 12 til 16.30 á morgun. Meistaramótið í 10 km hlaupi karla og kvenna fer fram samhliða. Karlarnir hlaupa kl. 12.30 á morgun og konurnar kl. 13.20. UM HELGINA! Snæfríður Sól Jórunnar- dóttir er tvítug sundkona sem ólst upp í Hveragerði og æfði sund þar en hefur búið í Danmörku frá ellefu ára aldri. Hún keppir í bæði 100 og 200 metra skriðsundi á Ólympíuleikunum í Tókýó. Hún æfir og keppir í Ála- borg og hefur náð góðum árangri þar sem hún hefur m.a. sigrað þrjú ár í röð í 200 metra skriðsundi á danska meistaramótinu í 25 metra laug og tvisvar á fjór- um árum í 50 metra laug. Snæfríður hefur keppt á Evrópumeistaramótum í 25 og 50 metra laug og keppti á heimsmeistaramótinu í 50 metra laug árið 2019. Snæfríður Sól Jórunnardóttir Ljósmynd/Hörður Oddfríðarson Tókýó Snæfríður Sól Jórunnardóttir keppir á leikunum á mánudaginn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.