Morgunblaðið - 24.07.2021, Side 4
4 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. JÚLÍ 2021
Logi Sigurðarson
logis@mbl.is
Ferðaþjónustan hefur verið á mikilli
siglingu að undanförnu og rekstrar-
aðilar í greininni almennt bjartsýnir
fyrir komandi mánuði og ár. Nú virð-
ist sem Delta-afbrigði kórónuveir-
unnar sé að setja strik í reikninginn,
smittölur háar og auknar aðgerðir
verið kynntar bæði á landamærunum
og innanlands.
Davíð Torfi Ólafsson, fram-
kvæmdastjóri Íslandshótela, segist
ekki hafa séð fækkun á bókunum til
þessa né aukningu á afbókunum þrátt
fyrir yfirvofandi takmarkanir.
„Það er litakóðinn sem þetta allt
snýst um í raun og veru, ef við hætt-
um að vera „græn“ þá er fólk frá viss-
um löndum sem má ekki ferðast hing-
að. Við höfum heyrt það í spjalli við
ferðamenn á okkar hótelum að þeir
eru ekki að kippa sér upp við það að
framvísa PCR-vottorði. Þeir eru al-
vanir því svo það er ekki stórmál,“
segir Davíð.
Á leið í sama far
Hann segir að erfitt sé spá fyrir
næstu mánuðum en bókunarstaðan
hjá honum sé hægt og rólega að fara í
sama far og fyrir faraldurinn.
„Við vonum að bókanir inn í haustið
og veturinn fari að líta vel út. Við er-
um að krossa fingur um að ef það
verður bakslag, að það verði ekki
svona svakalegt og verið hefur. Von-
andi á næstu tveimur til þremur árum
náum við okkar besta ári.“
Davíð segir að innanlandsaðgerðir
gætu haft áhrif á bókanir Grand hót-
eli.
„Við rekum stærsta ráðstefnuhótel
landsins og varðandi allar samkomu-
takmarkanir þá hefur það áhrif.“
Steingrímur Birgisson, forstjóri
Bílaleigu Akureyrar og Hölds, segir
erfitt að meta áhrif yfirvofandi að-
gerða vegna þess hve stutt sé frá til-
kynningu þeirra.
Áhyggjur af litakóðakorti
„Þær hafa ekki haft teljandi áhrif á
okkur enn. Það er of stutt liðið frá því
til þess að sjá eitthvað marktækt. Ég
tel þessar aðgerðir íþyngjandi en ekki
eitthvað sem er að stoppa ferðamenn.
Ég skil alveg af hverju þessar aðgerð-
ir voru settar á,“ segir Steingrímur.
Hann tekur undir með Davíð og
segist hafa mun meiri áhyggjur af
stöðu Íslands í litakóðakortinu.
„Við höfum miklu meiri áhyggjur
af litakóðakortinu. Það fælir ekki
marga ferðamenn frá Íslandi að þurfa
að framvísa PCR-vottorði. En ef Ís-
land verður allt í einu rautt og talið
vera hááhættusvæði þá myndi það
hafa miklar afleiðingar. Það stoppar
frekar fólk að koma.“
Steingrímur bætir við að bókunar-
staða fyrirtækisins sé framar vonum
og hann er bjartsýnn fyrir haustið svo
lengi sem Ísland er ekki rautt á lita-
kóðakortinu. Ef faraldurinn heldur
áfram að geisa
næstu ár kallar
Steingrímur eftir
áætlun frá stjórn-
völdum.
„Við getum
varla haft landið
hálflokað alltaf
reglulega á mán-
aða fresti. Menn
þurfa að koma sér
saman um leiðir til
að tryggja með
einhverjum hætti almennt ferðafrelsi
um heiminn. Hvorki íslenskt samfélag
né önnur þola þriggja til fimm ára
frystingu.“
Snorri Pétur Eggertsson, fram-
kvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs
KEA hótela, segist ekki hafa séð
fækkun á bókunum eða fjölgun afbók-
ana í kjölfar yfirvofandi takmarkana.
„Síðasta mánudag voru engin
merki um það að bókanir væru að
minnka. Samt sem áður gæti það ver-
ið vegna þess við erum vel bókuð bæði
í júlí og ágúst og jafnvel inn í sept-
ember.“
Snorri, líkt og Steingrímur og Dav-
íð, hefur mun meiri áhyggjur af stöðu
faraldursins innanlands og hvort Ís-
land breyti um lit á litakóðunarkorti
Sóttvarnastofnunar Evrópu.
Erfitt að spá um framhaldið
„Það væri mun verra ef Ísland yrði
appelsínugult eða jafnvel rautt. Ég tel
að það sem gerir Ísland vænlegan
áfangastað, fyrir utan eldgosið, sé það
að það er grænt og búið að vera það í
langan tíma. Það er meira íþyngjandi
ef faraldurinn kemst á siglingu hér
innanlands en að skylda ferðamenn
að framvísa PCR-vottorði.“
Hann segir innanlandsaðgerðir
ekki hafa jafn mikil áhrif og í fyrra
þegar lítið var um ferðamenn en hótel
fyrirtækisins á Akureyri og í Vík
myndu finna fyrir því vegna þess að
margir Íslendingar sækja þau hótel
heim. Snorri segir erfitt sé að spá fyr-
ir næstu mánuði.
„Hefðirðu spurt mig áður en Delta-
afbrigðið kom, þá hefði ég verið rosa-
lega bjartsýnn og sagt að þetta væri
allt að fara í eðlilegt horf. Júlí og
ágúst eru miklu nær 2019 en ég þorði
að vona í upphafi sumars, bæði hvað
varðar fjölda gesta og það meðalverð
sem við erum að fá. En núna er rosa-
lega erfitt að spá fyrir framhaldinu.“
Snorri segir að það sem myndi vera
verst fyrir ferðaþjónustuna væri það
ef lönd í kringum Ísland byrji að setja
meiri takmarkanir á ferðalög og þá
sérstaklega ef fólk þyrfti að fara að
sæta sóttkví þegar það færi til síns
heimalands.
„Það sem bjargaði Íslandi var að
Bandaríkjamenn þurftu ekki að fara í
sóttkví við heimkomuna héðan. Það
að fylla flugvélar til landsins af tveim-
ur milljónum farþega ætti að vera
ekkert mál á næsta ári að því gefnu að
það komi ekki upp enn eitt afbrigðið.“
Hafa áhyggjur af stöðu Íslands
- Alvanir að sýna fram á PCR-vottorð - Innanlandsaðgerðir íþyngjandi - Bókunarstaða framar von-
um - Íslenskt samfélag þolir ekki 3-5 ára frystingu - Delta dregur úr bjartsýni - Framtíðin óljós
Ljósmynd/Ómar Óskarsson
Ferðamenn Ferðaþjónustan hefur verið á blússandi siglingu að undanförnu. Erlendir ferðamenn eru mættir aftur í hópum að Gullfossi.
Davíð Torfi
Ólafsson
Snorri Pétur
Eggertsson
Steingrímur
Birgisson
Einbýlishús í Vesturborginni óskast
STAÐGREIÐSLA Í BOÐI
Grensásvegi 11 108 Reykjavík | Sími 588-9090 | eignamidlun.is
Sverrir Kristinsson
Löggiltur fasteignasali
sverrir@eignamidlun.is
588 9090
Viðskiptavinur okkar leitar að 250-350 fm einbýlishúsi í
Vesturborginni. Staðgreiðsla í boði.
Vegagerðin hefur náð samkomulagi
við landeigendur Grafar í Þorskafirði
um veglagningu í landi þeirra. Mikl-
ar deilur hafa staðið um vegagerð á
svæðinu sem ætlað er að liggja í
gegnum hinn svokallaða Teigskóg í
landi Grafar. Hafa þær lotið að um-
hverfisáhrifum fyrirhugaðra fram-
kvæmda.
Lágmarka umhverfisáhrif
„Við endurupptöku málsins nú síð-
ustu ár hefur í allri hönnun verið lögð
höfuðáhersla á að leita leiða til þess
að lágmarka þau áhrif eins og nokk-
ur kostur er,“ segir í tilkynningu frá
Vegagerðinni.
Síðasta sumar hófust framkvæmd-
ir við endurbyggingu Vestfjarðaveg-
ar frá Skálanesi í Gufudal og lýkur
þeirri framkvæmd senn. Felur hún
m.a. í sér að 5 kílómetra kafli verður
lagður bundnu slitlagi. Í vor hófust
svo framkvæmdir við þverun
Þorskafjarðar frá Kinnarstöðum að
Þórisstöðum og felst hún m.a. í bygg-
ingu 260 metra langrar brúar. Eru
verklok við þverunina áætluð 2024.
Nýi samningurinn mun tryggja
framkvæmd sem tengja mun Djúpa-
dalsveg við nýjan Vestfjarðaveg og
er sú tenging 5 kílómetra löng.
Stefnt er að verklokum við þann
hluta framkvæmdanna sumarið
2022.
Öllum hindrunum við
Teigskóg rutt úr vegi
- Vegagerðin
semur um veg-
stæði í Þorskafirði
Ljósmynd/Vegagerðin
Þverun Brúin sem lögð verður yfir Þorskafjörð verður 260 metra löng.