Morgunblaðið - 24.07.2021, Blaðsíða 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. JÚLÍ 2021
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
S
íðdegis á fimmtudag luku
Magnús Orri Schram fram-
kvæmdastjóri, Haukur Óm-
arsson fjármálastjóri, og
Rúnar Gíslason matreiðslumeistari
ferð sinni á reiðhjólum umhverfis
Vatnajökul þegar þeir komu til Hafn-
ar í Hornafirði, eftir þrettán daga
leiðangur. Þá höfðu þeir lagt að baki
alls 800 kílómetra, hvar þeir fóru um
vegi, slóða, göngustíga og fjárgötur.
Viðmið ferðalagsins var að fara sem
næst sporði og útlínum Vatnajökuls,
en leiðin sú er þó misgreiðfær.
Óðu ár og báru hjólin
„Óhætt er að segja að á leiðinni
hafi verið ýmsar hindranir sem við
þurfum að komast yfir,“ sagði Magn-
ús Orri í samtali við Morgunblaðið í
gær.
„Nokkrar ár þurfum við að vaða
og bera hjólin þar yfir. Slíkt gerðum
við einnig í Vonarskarði við vestan-
verðan Vatnajökul, en á þeim slóðum
má enginn fara öðruvísi en fótgang-
andi. Suður um Lónsöræfi fórum við
hins vegar á hjólum og vitum ekki
um neina aðra sem slíkt hafa gert
hingað til. Það kemur reyndar ekki á
óvart, enda eru þau illfær fjallahjól-
um. Má segja að okkur þyki svo vænt
um hjólin okkar, að við höfum farið
með þau í tveggja daga ferð um
Lónsöræfi og haldið á þeim allan tím-
ann.“
Þeir Magnús Orri, Haukur og
Rúnar eru æskufélagar af Álftanesi
og hafa gert margt skemmtilegt
saman í gegnum tíðina. Sem strákar
voru þeir duglegir í skátastarfi og
nefndu skátaflokkinn sinn Fjalla-
lömbin, og undir því merki hafa
jöklaferðir þeirra síðustu árin verið.
Þannig ákváðu þeir árið 2018 að fara
á reiðhjólum umhverfis 13 af stærstu
jöklum landsins; þeirra sem mynda
rösklega 99% flatarmál allra jökla á
landinu.
Fyrsta árið fóru félagarnir um-
hverfis Snæfellsjökul og Langjökul
og Þórisjökul árið eftir. Svona hafa
þremenningarnir bætt við hverjum
jöklinum á fætur öðrum – og nú eftir
leiðangurinn í kringum Vatnajökul,
eiga þeir aðeins eftir Drangajökul og
Þrándarjökul eystra. Koma tímar og
koma ráð.
Sterkur strengur
„Milli okkar félaga er einlæg
vinátta og sterkur strengur. Ferðir
eins og við höfum farið að undan-
förnu hafa þjappað okkur saman og
eru í raun mikið ævintýri. Ævintýri
ferðalagsins felst ekki síst í að upp-
lifa þetta saman, takast á við þessa
áskorun og ljúka henni enn meiri vin-
ir,“ segir Magnús Orri.
Fjallalömbin lögðu upp frá
Hornafirði 9. júlí og náðu á þeim degi
að Hofi í Öræfum. Á öðrum degi í
Kirkjubæjarklaustur og í Hólaskjól í
Skaftártungum þann næsta. Fóru
þaðan um Nyrða-Fjallabak í Land-
mannalaugar og svo í Jökulheima.
Eftir það um Bárðargötu norður á
bóginn; fóru meðfram Tungnaár-,
Sylgju- og Köldukvíslarjöklum, aust-
ur fyrir Hágöngur að Svarthöfða við
Vonarskarð. Að ferðast þessa 60 kíló-
metra tók ellefu tíma, og var þetta
einn af erfiðari dögum ferðarinnar.
Jökulárnar Sylgja, Sveðja og Kalda-
kvísl voru ekki væðar, og því voru
þremenningarnir ferjaðir yfir af
bræðrunum Ólafi, föður Magnúsar
Orra, og Ellerti B. Schram. Mæðg-
urnar Helga Finnsdóttir, kona
Hauks, og Hugrún, dóttir þeirra,
trússuðu farangur hjólagarpanna og
voru bakland þeirra á öllum þeim
leggjum ferðarinnar sem bílfærir
voru.
Töffarar í tjaldi
Frá Svarthöfða fóru félagarnir
svo áfram um Gæsavatnaleið og þar
norðan Vatnajökuls um vikur, flæður
og eyðisanda. Í Öskju og þar suður
öræfin, yfir Kárahnjúkastíflu í Laug-
arfell og loks suður Lónsöræfi. Til
Hafnar í Hornafirði komu þeir, sem
fyrr segir, síðdegis nú á fimmtudag.
„Jú, auðvitað erum við þreyttir
eftir leiðangurinn. En þetta gekk allt
upp – því fyrir leiðangurinn vorum
við búnir að skipuleggja allt og æfa.
Ferðir eins og þessar kalla á góðan
undirbúning og skipulag. Haukur á
mestan heiðurinn af því,“ segir
Magnús Orri um leiðangurinn og
ferðasöguna sem var skráð á raun-
tíma og birt á Facebook-síðunni
Þrettán jöklar. Þar segir á einum
stað í litríkri og skemmtilegri lýs-
ingu:
„Að ferðast um á fjallahjólum er
líklega ein allra besta leiðin til að
upplifa Ísland. Maður kemst hratt
yfir, en er samt í svo nánum
tengslum við náttúruna, þögnina,
fuglasönginn og árniðinn. Ekkert
mál að stoppa þegar mann langar og
spjalla við ferðafélagana eða taka inn
útsýnið.“
Í annarri færslunni var skrifað:
„Töfrarnir í ferðalaginu liggja
víða. Þeir felast í pælingunum um
ævintýri morgundagsins, og sprelli
við brú. Í því að hjóla um eyðisand og
yfir stóra stíflu. Þeir liggja líka í villi-
tjöldun, fallegri sólarupprás, og að
brosa með ástinni sinni að kveldi
dags.“
Fóru umhverfis ellefta jökulinn
Garpar! Hringur um
Vatnajökul tekinn á
þrettán dögum. Æsku-
félagar í ævintýrum á af-
skekktum slóðum.Yfir
fjöll, vikur, flæður og
eyðisanda. Upplifðu Ís-
land á hjóli.
Ljósmyndir/Úr einkasafni
Litadýrð Farið var um stórbrotna náttúru í Lónsöræfum. Á þeim slóðum eru engir stígar svo félagarnir urðu að bera reiðhjólin sín langar leiðir.
Fjallalömbin Félagarnir Rúnar, Magnús Orri
og Haukur í ferðinni sem lauk á fimmtudag.
Torfæra Á söndunum norðan Vatnajökuls nærri Jökulsá á Fjöll-
um var hjólað í bílförum. Herðubreið sést hér í fjarskanum.
Nú finnur
þú það sem
þú leitar að
á FINNA.is
Heiti plantna í íslensku flórunni eru
sem lykilorð í Flóruspilinu sem
Hespuhúsið gefur út. Þetta er
fræðsluspil sem er spilað eins og
veiðimaður en í stað þess að veiða
hefðbundin spil, svo sem ása og
drottningu, koma
íslensku jurtirnar,
sem þannig lærist
hvað heita. Á spil-
unum eru einnig
ýmsar upplýs-
ingar um grasnytj-
ar og þjóðtrú til að
vekja áhuga á teg-
undunum. Í stokk-
inum eru 13 teg-
undir, alls 52 spil
auk regluspjalds. Spilin eru stærri en
hefðbundin spil vegna fræðslunnar en
þau eru í A6 stærð (10,5 x 14,7 cm).
Spilin eru skreytt með listaverki eftir
listamanninn Eggert Pétursson og
þau koma í fallegri öskju.
Tilurð spilanna er sú að Guðrún
Bjarnadóttir, náttúrufræðingur og
eigandi Hespuhússins, var áður að
kenna plöntugreiningu og fór með
gesti í Mývatnssveit í fræðslugöngur
um gróðurinn. Þar segist hún hafa
áttað sig á því hver fjarlæg við erum
orðin náttúrunni enda búa flestir Ís-
lendingar nú í þéttbýli.
„Spilið hentar allri fjölskyldunni.
Börnin gætu þó þurft aðstoð við að
halda á spilunum og lesa nöfnin fyrst
í stað en eftir það eru þau eldsnögg
að læra nöfnin og þekkja tegundirnar
á spilunum,“ segir Guðrún. Hægt er
að kaupa Flóruspilið á www.hespa.is
og fá upplýsingar um sölustaði og
fleira.
Hespuhúsið er í Árbæjarhverfi í
Ölfusi, skammt frá Selfossi. Þar er
starfrækt jurtalitunarvinnustofa þar
sem gestir geta kíkt í litunarpottana
og fræðst um þetta gamla handverk.
Starfsemi Hespuhússins gengur ann-
ars út á fræðslu og spjall um grasnytj-
ar fyrri tíma og þar er til sölu jurtalit-
að band, jurtalitapúsluspil ásamt
fleiru. Allt sem framleitt er í Hespu-
húsinu inniheldur fræðslu um náttúr-
una og hvetur til virðingar við náttúr-
una og gamlar hefðir.
Flóruspilið er skemmtilegt og fyrir alla fjölskylduna
Íslensk plöntuheiti í stað ása og drottninga
Flóruspilið Fjör og fróðleikur.
Guðrún
Bjarnadóttir