Morgunblaðið - 24.07.2021, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 24.07.2021, Blaðsíða 36
36 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. JÚLÍ 2021 s/fo sa Þverflautuleik- arinn Sæbjörg Eva Hlynsdóttir kemur fram ásamt hljómsveit á tónleikum í úti- tónleikaröðinni Náttúrutónar á morgun, sunnu- dag, kl. 15. Tón- leikarnir eru haldnir í Tungu- skógi í Fljótshlíð og er aðgangur ókeypis. Ásamt Sæbjörgu Evu og gestasöngvurum skipa hljómsveit- ina þeir Sveinn Pálsson á gítar, Sig- urgeir Skafti Flosason á bassa og Stefán Ingimar Þórhallsson á trommur. „Markmið tónleikanna er að skapa vettvang fyrir ungt tónlistar- fólk til þess að flytja saman tónlist og koma sér á framfæri sem og að hvetja fjölskyldur og vini til þess að njóta saman útiveru og tónlistar sem er innblásin af náttúrunni, ýta undir umhverfisvitund og efla menningarlíf,“ segir í tilkynningu. Náttúrutónar í Tunguskógi á morgun Sæbjörg Eva Hlynsdóttir Hólmfríður María Ragnhildardóttir hmr@mbl.is „Ég er að leggjast í víking, kem að norðan með myndlistarsýningu. Suðrið andar þegar Norðlending- urinn mætir á svæðið,“ segir Akur- eyringurinn Ragnar Hólm Ragnars- son sem opnar málverkasýninguna Suðrið andar í dag, laugardag, í Listhúsi Ófeigs á Skólavörðustíg. Eins og glöggir taka eftir er heitið á sýningunni tilvísun í kvæði Jón- asar Hallgrímssonar, „Ég bið að heilsa“. Nafnið er þó hægt að túlka á marga vegu að sögn Ragnars og má þá helst nefna suðrænu áhrifin sem finna má í verkum hans. Fegurð íslenskrar náttúru Á sýningunni eru ýmist vatnslita- eða olíumálverk. Eru þau að mestu óhlutbundin eða abstrakt express- jónísk. Blandar Ragnar saman íslenskum jarðlitum og heitum suð- rænum litum en hann hefur dvalið í þó nokkurn tíma í Suður-Evrópu þar sem hann hefur meðal annars setið námskeið í meðferð lita. Aðspurður segist Ragnar vera mikið náttúrubarn og sækja mestan innblástur í íslenska náttúru. „Það er náttúrulega bara íslensk náttúra, fegurð hennar, veðrabrigði, skýfall og því um líkt. Innblástur er nátt- úrulega ekkert annað en það sem hefur áhrif á mann eða er svona að einhverju leyti stórfenglegt eða hér um bil yfirnáttúrulegt.“ Ragnar hefur lengst af unnið með vatnsliti í verkunum sínum. Segir hann þetta vandmeðfarinn miðil enda þurfi ekki mikið að koma upp á til að málverkið eyðileggist og í raun þurfi ekki nema ein mistök. Undan- farið hefur hann þó sótt meira í olíu- litina og eru þeir áberandi í nýju sýningunni. Vinnur með ólíka miðla „Þetta eru tveir mjög ólíkir miðl- ar. Það er mjög gaman að vinna með vatnslitina en maður verður að æfa sig mikið. Ég segi stundum að vatns- litirnir séu eins og ballettdans en olíulitirnir eru meira eins og hnefa- leikar. Vatnslitamyndirnar eru líka yfirleitt tiltölulega hlutbundnar landslags- eða náttúrumyndir en olían er miklu meira abstrakt og þar koma kannski þessi spænsku áhrif í gegn. Það eru meiri læti í þeim.“ Keyrir áfram á góðum snúningi Auk þess að mála starfar Ragnar einnig hjá Akureyrarbæ. Hefur hann verið í kynningar- og markaðs- málum hjá bænum í tæplega 20 ár en nú undanfarið hefur hann einnig verið í afleysingum sem aðstoðar- maður bæjarstjóra. Spurður hvernig gangi að sam- ræma vinnu og listmálun segir Ragnar það ekkert mál. „Það fer lít- ill tími hjá mér til spillis, ég horfi til dæmis aldrei á sjónvarp. Ég sinni starfi mínu þegar þarf og þegar ég á lausa stund þá mála ég.“ Kveðst Ragnar reyna að gefa sér tíma til að mála að minnsta kosti eina vatnslitamynd á dag og tekur hann vatnslitina nær undantekning- arlaust með sér þegar hann ferðast um landið. Vinnur hann málverkin jafnt og þétt yfir árið og vill helst ekki taka löng hlé. Ragnar getur þó tekið undir þann sálm að stuttar pásur af og til séu nauðsynlegar. „Það er um að gera að hafa alltaf nóg fyrir stafni. Ef ég hefði ekkert að gera þá þyrfti ég að horfast í augu við sjálfan mig og kæmist kannski að því að ég væri leið- inlegur. Ég vil keyra lífið áfram á góðum snúningi.“ Sækir námskeið í fríum Undanfarin ár hefur Ragnar verið duglegur að ferðast og sækja sér þekkingu víðs vegar um Evrópu. Í ferðalögunum hefur hann gert það að vana sínum að sækja námskeið hjá flinkum listamönnum meðal ann- ars í Skandinavíu, á Ítalíu og Spáni. Telur hann það gefa ferðinni og frí- tímanum skýrara markmið og til- gang. Í kófinu hefur dregið úr ferðalög- unum en Akureyringurinn lætur það þó ekki stöðva sig. Þess í stað hefur hann nýtt sér tæknina og setið nokk- ur námskeið í gegnum fjarfunda- búnaðinn Zoom. Að sögn Ragnars er það vitaskuld ekki jafn skemmtilegt og að ferðast út fyrir landsteinana en engu að síður gagnlegt og gaman. Sýningin Suðrið andar stendur til 18. ágúst og er opin mánudaga til föstudaga milli kl. 10 og 18 sem og á laugardögum milli kl. 11 og 16. Svartfell Ragnar Hólm sækir sér mestan innblástur í íslenska náttúru. Að störfum Ragnar Hólm Ragnarsson segist nær undantekningarlaust taka vatnslitina með sér þegar hann ferðast um landið og grípa til þeirra. „Ég er að leggjast í víking“ - Ragnar Hólm Ragnarsson opnar í dag málverkasýninguna Suðrið andar í Listhúsi Ófeigs - Málar eina vatnslitamynd á dag - „Það fer lítill tími hjá mér til spillis,“ segir Ragnar Hólm Lambagras Tilbrigði við lambagras í túlkun Ragnars Hólm. „Hvíldu, hjarta, hvíldu“ er yfir- skrift tónleika í tónleikaröðinni Englar og menn í Strandarkirkju sem fram fara á morgun, sunnudag, kl. 14. Þar kemur fram Lovísa Elísabet Sigrúnardóttir, betur þekkt sem Lay Low. Yfirskrift tón- leikanna er ljóðlína úr ljóðinu „Aft- ansöngur“ eftir Huldu sem verður flutt á tónleikunum. „Flest lögin sem verða spiluð eiga það sameig- inlegt að vera samin af konum. Það má því segja að þetta verði tón- leikar þar sem kvenröddin og sköp- unarflæði fær að fljóta og njóta sín. Lay Low gaf út plötuna Brostinn strengur árið 2011 þar sem hún samdi lög við ljóð eftir aðrar konur. Tilraunakenndur og dreymandi hljóðheimurinn sem varð til á þeirri plötu fékk lof gagnrýnenda þegar hún kom út. Þær ætla að flytja mik- ið af þessum lögum í bland við önn- ur lög eftir aðrar konur,“ segir í til- kynningu, en Lay Low til halds og trausts eru Agnes Erna Estherar- dóttir og Anna Margrét Hraundal. Listrænn stjórnandi hátíðarinnar er sem fyrr Björg Þórhallsdóttir. Lay Low kemur fram í Strandarkirkju Konur Lög og textar eftir konur eru áberandi á tónleikum Lay Low á morgun.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.