Morgunblaðið - 24.07.2021, Page 30

Morgunblaðið - 24.07.2021, Page 30
30 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. JÚLÍ 2021 40 ÁRA Álfheiður Ágústsdóttir fæddist 24. júlí 1981 í Stykkishólmi en ólst upp í Grund- arfirði. „Það var dásam- legt að alast þar upp og ég var þar alla mína æsku. Hún fór í fjöl- brautaskóla á Selfossi og var í eitt ár og ákvað svo að fara að ferðast og bjó á Ítalíu og ferðaðist víðar um Evrópu. Svo kom hún heim að vinna og fór ekk- ert aftur í nám fyrr en hún eignaðist fyrsta barnið. Álfheiður byrjaði að vinna hjá Elkem um leið og hún byrjaði í námi við Háskólann á Bifröst. Hún lauk frumgreinadeild frá Bifröst og lauk BS-prófi í viðskiptafræðum árið 2010. Eftir það lá leiðin í meistaranámi í reikningsskilum og endur- skoðun við Háskóla Íslands. „Ég byrjaði sem sumarstarfsmaður á hjá Elkem á sama tíma og ég hóf nám á Bifröst og hóf svo störf inn á fjármálasviði að því loknu og tók við sem fjármálastjóri árið 2016. Síðan fór hún í meistaranám á Bifröst í for- ystu og stjórnun og í september 2020 tók hún við sem forstjóri fyrir- tækisins. „Þetta gerðist allt svolítið eðlilega, en var auðvitað breyting. En ég þekki fyrirtækið mjög vel og það er frábær hópur sem vinnur með mér. Álfheiður segir að áhugamálin mótist svolítið af starfinu því hún hafi svo gaman af vinnunni. En þegar hún er í fríi vill hún njóta tímans með fjöl- skyldunni og fólkinu sínu. FJÖLSKYLDA Eiginmaður Álfheiðar er Jóhann Steinar Guðmundsson rafvirki, f. 19.3. 1982, og þau eiga börnin Guðmund Má, f. 2003; Elísabetu Maríu, f. 2005, og Agnesi Önnu, f. 2014. Foreldrar Álfheiðar eru Anna María Reynisdóttir fjármálastjóri, f. 1965, og Ágúst Jónsson, útgerð- armaður og rafvirki, f. 1960. Þau búa í Grundarfirði. Álfheiður Ágústsdóttir Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl , Hrútur Passaðu þig á því að einblína ekki svo mikið á praktíska hluti, að þú missir sjónar á gleði þinni og sköpunargáfu. Mundu að ekki hafa allir sömu skoðanir á hlutunum og það ber líka að virða. 20. apríl - 20. maí + Naut Ef þú lokar á allt og alla mun lífið vera ein flatneskja. Leggðu áherslu á að þér líði sem best og þeim sem í kringum þig eru. 21. maí - 20. júní 6 Tvíburar Þér verður hrósað mikið fyrir ár- angur þinn í starfi og átt það svo fyllilega skilið. 21. júní - 22. júlí 4 Krabbi Þú þarft ekki að gera eitthvað áberandi eða meiri háttar til að falla í kram- ið. Njóttu jákvæðni þinnar meðan hún varir og reyndu að hitta alla sem þér er annt um í dag. 23. júlí - 22. ágúst Z Ljón Stundum verður bara að kýla á hlut- ina en ekki bíða þess að þeirra tími sé kom- inn. 23. ágúst - 22. sept. l Meyja Búðu þig undir eitthvað óvænt á heimilinu eða í fjölskyldunni. Heppni og já- kvæðar aðstæður virðast fyrir hendi. 23. sept. - 22. okt. k Vog Dagurinn hentar vel til fjármála- og samningaviðræðna. Líkast til ertu í svo miklu jafnvægi í dag að að þér er það lífsins ómögulegt að móðga einn né neinn. 23. okt. - 21. nóv. j Sporðdreki Ef þú ætlar að koma einhverju í verk í dag þarftu að forðast alla truflun. Farðu út og njóttu þess sem lífið hefur upp á að bjóða og einhvers sem gefur sanna lífsfyllingu. 22. nóv. - 21. des. h Bogmaður Einbeittu þér að því að reyna að sjá fyrir sem flesta hluti varðandi verk- efni þitt. Haltu þínu striki þrátt fyrir óþæg- indi, efasemdir og eigin takmarkanir. 22. des. - 19. janúar @ Steingeit Það þýðir ekkert að sitja með hendur í skauti og bíða þess að aðrir geri hlutina fyrir mann. Mörgu má nefnilega breyta með lítilli fyrirhöfn. 20. jan. - 18. febr. ? Vatnsberi Taktu ekki neinar meiri háttar ákvarðanir í fjármálum í dag; þær geta beð- ið til morguns. 19. feb. - 20. mars = Fiskar Þær hindranir sem verða á vegi þín- um eru til þess fallnar að sigrast á þeim en ekki til þess að stöðvast við. Kristinn Jón er trúaður maður og syngur ásamt Þorbjörgu konu sinni í kirkjukór Ingjaldshólskirkju og er í sóknarnefndinni. „Foreldrar mínir önnuðust alltaf kirkjuna sem er á Ingjaldshóli milli Hellissands og Rifs. Þetta er mjög gömul og falleg kirkja, stendur hátt og hún er okkar sóknarkirkja. Pabbi var sóknar- maður í fleiri ár og ég hef eflaust tekið þetta upp eftir honum.“ Þegar Jón á Hamri hætti á sjón- um 1994 stofnaði hann með fjöl- skyldunni fiskvinnsluna Sjávariðj- una Rif hf., sem er tæknivædd með 250 tonna bát sem heitir nú Hamar, og á ég þennan bát enn.“ Nonni hefur alltaf verið áhuga- maður um málefni sinnar byggðar. „Ég var í sveitarstjórn Neshrepps utan Ennis í 16 ár, en ég hef alltaf viljað gera eitthvað fyrir mína byggð.“ Síðan er hann félagi í Lions- klúbbi Nesþinga. „Ég var einn af stofnfélögum klúbbsins 1971. Nú eru 23 félagar og við höfum verið að gera góða hluti hérna fyrir samfélagið.“ Einnig var hann í stjórn Útvegs- mannafélags Snæfellsness og for- maður þess um tíma. K ristinn Jón Frið- þjófsson fæddist 24. júlí 1941 á Rifi á Snæ- fellsnesi. „Á þessum tíma var Rif af- skekktur sveitabær og í eina húsinu á Rifi fæddist ég.“ Kristinn Jón, sem oftast er kallaður Jón eða Nonni, ólst upp við almenn sveitastörf, en fjölskyldan var með kýr, kindur og hesta. „Hérna á Rifi var eitt stærsta kríuvarp landsins í landi föður míns og hann vaktaði kríuna alltaf og hugsaði um hana.“ Þegar svokölluð landshafnarlög voru samþykkt á Alþingi urðu mikl- ar breytingar á Rifi, en þar var ákveðið að byggja eina af þremur höfnum sem byggðar voru á lands- byggðinni. Þá var Jón tíu ára og man spenninginn yfir því að sveitin fyllt- ist allt í einu af fólki. „Hér komu vinnuflokkar og fóru að búa til garða og byggja upp aðstöðu. Það hafði engin höfn verið hérna á utanverðu Snæfellsnesinu, svo þetta voru gífurleg viðbrigði. Það er þó ekki fyrr en 1956 sem það er raunveru- lega hægt að lenda hérna með báta.“ Árið 1958 er kominn þorpsbragur á Rif og fleiri íbúðarhús að rísa. „Ég fór að vinna við hafnargerðina sem unglingur, en það þótti sjálfsagt að hjálpa til eftir skólann. Þá gekk ég í Grunnskóla Hellissands og maður gekk 3,5 kílómetra á morgnana í skólann og svo aftur heim. Einn vet- urinn bjó ég samt hjá systur minni sem hafði flutt út á Hellissand, en fór heim um helgar.“ Hann var far- inn að stunda sjóinn 16 ára gamall og tók þátt í kaupum á 56 tonna bát með föður sínum og bróður. „Maður var nú sjóveikur svona fyrst, en það vandist af manni. Pabbi hvatti okkur og sagði: „Nú er ríkið að byggja höfn fyrir okkur hérna á Rifi og þið fáið ykkur bát og farið að fiska hérna.“ Þegar Kristinn Jón var rétt rúm- lega tvítugur fór hann í Stýrimanna- skólann í Reykjavík og bjó hjá skyldmennum í bænum. Hann lauk prófi 1964 og þá hófst skipstjórafer- ill hans á þessum 56 tonna bát eftir Sjómannaskólann. „Ég gifti mig um vorið þegar ég kom úr skólanum og hóf síðan mína eigin útgerð árið 1974 þegar við keyptum útgerðarfélag fiskvinnsla í dag. „Það var ónotað hús hérna sem hafði farið í gjaldþrot nokkrum árum áður og við keyptum það og settum það í vinnslu. Tveir synir mínir hafa tekið við keflinu síð- ustu árin og dóttir mín starfaði með okkur um árabil. Við erum með tvo báta núna en vorum með fleiri á tímabili.“ Nonni hefur brennandi áhuga á öllu sem við kemur sjávarútveg- inum. „Ég var stuðningsmaður setn- ingar kvótakerfisins til að koma í veg fyrir ofveiði á fiskistofnunum. Það sem hefur gerst er að stóru að- ilarnir eru að kaupa upp alla einyrkj- ana, sem eiga nú undir högg að sækja. Það þarf að passa að þetta verði ekki fákeppnismarkaður.“ Nonni hefur gaman af því að ferðast og segir að gamli hópurinn hans úr Sjómannaskólanum hittist árlega einhvers staðar á landinu í endaðan júní. „Þetta er gífurlega skemmtilegur hópur og við höfum líka farið utan og siglt með skemmti- ferðarskipum, en það er aðeins farið að heltast úr lestinni, enda við orðnir gamlir menn.“ Þá hefur hann gaman af tónlist- inni, en fór ekki í kirkjukórinn fyrr en hann hætti á sjónum. „Fyrst og fremst hef ég áhuga á uppgangi og velgengni Rifs. En svo hef ég líka mjög gaman af gömlum bátum og traktorum. Ég á enn þá fyrsta trak- torinn sem kom til Rifs, Farmal, Kristinn Jón Friðþjófsson útgerðarmaður – 80 ára Skipstjórinn Kristinn Jón í brúnni á skipi sínu Hamri sem hefur reynst honum vel. „Þið fáið ykkur bát og farið að fiska“ Fjölskyldan Það er fjör þegar fjölskyldan hittist. F.v.: Kristjana, Halldór, Bergþóra, Alexander, Kristinn Jón, Þorbjörg eiginkona hans og Erla. Gaman með afa Nonni með barnabörn í Farmal-traktor, módeli 44, sem var fyrsti traktorinn sem kom á Rif og hann gerði upp. Til hamingju með daginn Helga rútgá fanEinar bárða - anna magg a - yn gvi ey stein s Alla l augar daga frá k l 9-12

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.