Morgunblaðið - 24.07.2021, Síða 32
32 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. JÚLÍ 2021
Lengjudeild karla
ÍBV – Grindavík ....................................... 4:1
Þór – Grótta .............................................. 4:2
Kórdrengir – Afturelding ............... Frestað
Staðan:
Fram 12 10 2 0 34:10 32
ÍBV 13 8 2 3 25:13 26
Kórdrengir 12 6 4 2 19:14 22
Fjölnir 13 6 2 5 17:15 20
Grindavík 13 5 5 3 25:26 20
Þór 13 5 4 4 29:22 19
Vestri 12 6 1 5 18:22 19
Grótta 13 5 2 6 25:24 17
Afturelding 12 4 4 4 27:24 16
Selfoss 12 2 3 7 19:28 9
Þróttur R. 13 2 1 10 22:33 7
Víkingur Ó. 12 0 2 10 15:44 2
2. deild karla
Völsungur – Fjarðabyggð ....................... 4:0
Staðan:
Þróttur V. 13 8 4 1 29:11 28
Völsungur 13 7 2 4 29:24 23
Njarðvík 13 5 7 1 27:13 22
KV 12 6 4 2 24:16 22
KF 12 6 2 4 23:17 20
Haukar 13 5 4 4 28:24 19
ÍR 12 4 4 4 23:21 16
Reynir S. 13 4 4 5 22:24 16
Magni 12 3 5 4 22:25 14
Leiknir F. 12 4 0 8 17:30 12
Kári 12 1 3 8 15:28 6
Fjarðabyggð 13 0 5 8 6:32 5
Þýskaland
B-deild:
Schalke – Hamburger SV....................... 1:3
- Guðlaugur Victor Pálsson lék allan leik-
inn með Schalke.
Danmörk
B-deild:
Horsens – HB Köge ................................. 0:2
- Ágúst Eðvald Hlynsson lék fyrri hálf-
leikinn með Horsens.
Pólland
Lech Poznan – Radomiak Radom ......... 0:0
- Aron Jóhannsson lék ekki með Lech
Poznan vegna meiðsla.
50$99(/:+0$
Norðurlandamót U20 karla
Leikur um 3. sætið í Tallinn:
Finnland – Ísland ................................. 80:82
Norðurlandamót U20 kvenna
Svíþjóð – Ísland .................................... 61:71
57+36!)49,
_ Eiður Smári Guðjohnsen, aðstoð-
arþjálfari íslenska karlalandsliðsins í
fótbolta, hefur verið orðaður við
stjórastöðuna hjá velska liðinu Swan-
sea sem leikur í ensku B-deildinni.
Steve Cooper sagði starfi sínu lausu
hjá Swansea í vikunni.
_ Kristófer Jónsson, átján ára gamall
knattspyrnumaður úr Val, hefur verið
lánaður í eitt ár til ítalska félagsins Ve-
nezia. Kristófer hefur aðeins verið í Val
í hálft ár en hann kom til félagsins frá
Haukum fyrir þetta tímabil.
_ Ítalska knattspyrnufélagið Spezia
sem leikur í A-deildinni vill kaupa hinn
18 ára gamla Mikael Egil Ellertsson af
B-deildarfélaginu SPAL, samkvæmt
ítölskum fjölmiðlum. Mikael hefur ver-
ið í röðum SPAL í þrjú ár.
_ Knattspyrnudeild Selfoss hefur
samið við varnarmanninn Susanna
Friedrichs og gildir samningurinn út
leiktíðina 2022.
_ Afturelding hefur fengið til sín
Hamza Kablouti, 26 ára handbolta-
mann frá Túnis. Kablouti er rétthent
skytta og 194 sentímetrar. Hand-
bolti.is greindi frá.
Eitt
ogannað
Kaup enska knattspyrnufélagsins
Everton á landsliðsmarkverðinum
unga, Cecilíu Rán Rúnarsdóttur, er
í uppnámi vegna reglugerðar sem
sett var á er Bretar sögðu sig úr
Evrópusambandinu. Félagið vildi
kaupa Cecilíu í þessum mánuði en
þarf þess í stað að bíða þangað til
að minnsta kosti til janúar á næsta
ári. Everton er ekki eina félagið
sem hefur áhuga á Cecilíu því West
Ham, Sassuolo og Benfica eru einn-
ig áhugasöm samkvæmt heimildum
Goal. Nánar er fjallað um málið á
mbl.is/sport
Kaup Everton á
Cecilíu í uppnámi
Morgunblaðið/Hari
Efnileg Cecilía Rán Rúnarsdóttir er
gríðarlega efnilegur markvörður.
Jadon Sancho varð í gær næstdýr-
asti knattspyrnumaður Englands
þegar Manchester United gekk frá
kaupum á honum frá Borussia
Dortmund fyrir 73 milljónir punda
og samdi við hann til fimm ára. Að-
eins liðsfélagi hans Harry Maguire
hefur kostað meira en United
greiddi Leicester 74,5 milljónir
punda fyrir hann. Sancho er 21 árs
gamall kantmaður, uppalinn hjá
Watford og lék með Manchester
City frá 15 til 17 ára aldurs, en hef-
ur frá þeim tíma gert það gott með
Dortmund í Þýskalandi.
Sancho er sá
næstdýrasti
AFP
Drjúgur Jadon Sancho skoraði 50
mörk í 137 mótsleikjum Dortmund.
ÍBV minnkaði forskot Fram á toppi
Lengjudeildar karla í fótbolta niður
í sex stig með sterkum 4:1-sigri á
Grindavík á heimavelli í gærkvöldi.
José Sito, Guðjón Pétur Lýðsson,
Stefán Ingi Sigurðarson og Tómas
Bent Magnússon skoruðu allir fyrir
ÍBV í seinni hálfleik eftir að Dion
Acoff hafði komið Grindavík yfir í
fyrri hálfleik.Topplið Fram lék
ekki við Víking frá Ólafvík í gær-
kvöldi þar sem leikmaður Víkinga
greindist með kórónuveiruna.
Það vantaði heldur ekki mörkin á
Akureyri þar sem Ásgeir Marino
Baldvinsson skoraði tvö mörk fyrir
Þór og Jóhann Helgi Hannesson og
Fannar Daði Malmquist sitt markið
hvor í 4:2-sigri á Gróttu. Kjartan
Kári Halldórsson og Pétur Theódór
Árnason gerðu mörk Gróttu. Þór er
nú í sjötta sæti en Grótta í áttunda.
ÍBV minnkaði forskot
Framara á toppnum
Ljósmynd/Sigfús Gunnar
Vippa Guðjón Pétur Lýðsson skorar annað mark ÍBV með snyrtilegri vippu.
Japanska tennisstjarnan Naomi
Osaka tendraði ólympíueldinn í lok
litríkrar setningarhátíðar á Ólymp-
íuleikvanginum í Tókýó í gær. Þar
með voru leikarnir formlega settir
en keppni fór síðan af stað af full-
um krafti laust eftir miðnættið í
nótt að íslenskum tíma, á laugar-
dagsmorgni í Japan. Þar átti Ás-
geir Sigurgeirsson að hefja keppni
fyrstur Íslendinga í skotfimi með 10
m loftskammbyssu um klukkan
fjögur í nótt. Fréttir af honum er að
finna á mbl.is/sport.
Osaka tendraði eldinn
AFP
Eldurinn Naomi Osaka fyrir framan skálina með ólympíueldinum sem mun
loga þar til leikunum lýkur eftir rúmar tvær vikur, sunnudaginn 8. ágúst.
SAMBANDSDEILDIN
Jóhann Ingi Hafþórsson
johanningi@mbl.is
„Ég er sérstaklega ánægður með
spilamennsku minna manna. Hún var
virkilega góð og auðvitað gleðilegt að
úrslitin hafi fylgt með,“ sagði Óskar
Hrafn Þorvaldsson, þjálfari Breiða-
bliks, í samtali við Morgunblaðið.
Lærisveinar hans náðu góðum úr-
slitum í fyrri leik liðsins við Austria
Vín í 2. umferð Sambandsdeild-
arinnar í fótbolta þegar liðin gerðu
1:1-jafntefli í Austurríki á fimmtu-
daginn var. Spilamennska Breiða-
bliks vakti athygli en liðið spilaði
skemmtilegan sóknarbolta og var
mun meira með boltann en austur-
ríska liðið.
„Menn verða að vita hvernig þeir
ætla að nálgast leikinn og hafa trú á
verkefninu. Þeir verða að vera klárir
að hlaupa þegar þeir eru ekki með
boltann og vera hugrakkir til að spila
boltanum. Þeir verða að vera nógu
hugaðir til að þora að mistakast, þótt
sviðið sé aðeins stærra. Leikmenn-
irnir höfðu trú á því sem þeir voru að
gera og treystu sjálfum sér og liðs-
félögum sínum og úr varð góð
frammistaða og góð úrslit,“ sagði
Óskar um spilamennsku síns liðs.
Fengum skerf af gagnrýni
Breiðablik tapaði 2:4 fyrir Rosen-
borg frá Noregi í fyrra í leik sem
Óskar lagði upp á svipaðan hátt.
Þrátt fyrir að það hafi ekki gengið
upp, hikaði hann ekki við að gera slíkt
hið sama í Austurríki.
„Við spiluðum við Rosenborg í
fyrra og þá nálguðumst við leikinn á
sama hátt. Við gerðum okkar allra
besta til að spila út þegar það var
kostur. Við fengum okkar skerf af
gagnrýni fyrir þá nálgun, enda töp-
uðum við 4:2. Þessi leikur var samt
áframhald af því, ásamt leikjunum við
Racing. Við höfum ekki verið mikið í
því að falla til baka þótt góð lið á Ís-
landi hafi stundum náð að ýta okkur
niður þar sem við þurftum að verjast
með kjafti og klóm, en það er ekki
mikið um það. Við vildum passa að
það sem við stöndum fyrir myndi
skína í gegn. Við hefðum orðið fúlir út
í sjálfa okkur ef við hefðum verið ein-
hverjir aðrir og það hefði ekki gengið
upp. Það er gaman þegar hlutirnir
ganga upp eins og þeir gerðu í þess-
um leik. Þetta gekk upp út af gríð-
arlegum dugnaði leikmannanna
minna.“
Pressan er á þeim
Mikil stemning var í stúkunni í Vín-
arborg, enda í fyrsta skipti í meira en
ár sem áhorfendur voru leyfðir hjá lið-
inu vegna sóttvarnartakmarkana.
„Það var mjög góð stemning. Þetta
var í fyrsta skipti sem áhorfendum
var hleypt inn í Austurríki eftir tak-
markanir. Þeir voru glaðir að fá að
mæta á völlinn aftur og það voru
sennilega 7.500-8.000 manns á vellin-
um. Þeir bjuggu til góða stemningu og
það var góð orka á vellinum. Þetta var
frábært ferðalag frá byrjun til enda.“
Breiðablik er í fínni stöðu fyrir
seinni leikinn á heimavelli og Óskar
segir pressuna vera á austurríska lið-
inu. Breiðablik verður hins vegar að
spila afar vel til að fara áfram.
„Ég met það þannig að pressan sé
á þeim. Þeir voru byrjaðir að tala um
hvað þeir fengju mikið fyrir að fara í
riðlakeppnina. Ef allt er eðlilegt eiga
þeir að vera sigurstranglegri í þessu
einvígi. Möguleikar okkar eru samt
töluverðir, en við verðum að hitta á
dag þar sem allt gengur upp. Við
þurfum að passa vel upp á boltann
þegar við tökum ákvarðanir og vera
hugrakkir með hann. Við þurfum líka
að vera fljótir að pressa þegar við
töpum boltanum og hafa næga orku.
Hugarfarið þarf að vera rétt og við
megum ekki fara í þennan leik til að
verja eitthvað sem við eigum, heldur
sækja það sem við eigum ekki og sjá
hverju það skilar okkur,“ sagði Ósk-
ar.
Sérstaklega
ánægður
- Blikar stjórnuðu leiknum í Austurríki
Morgunblaðið/Eggert
Sáttur Óskar Hrafn var ánægður með spilamennskuna í Austurríki.