Morgunblaðið - 27.07.2021, Page 1
Ljósmynd/Ómar Óskarsson
Nokkuð stöðugur straumur ferðamanna hefur komið til
landsins að undanförnu. Á miðnætti tóku gildi nýjar reglur á
landamærum vegna Covid-19. Nú þurfa allir bólusettir far-
um borð í flugvélina á leið til landsins. Bæði er tekið við PCR-
prófum og svokölluðum antigen-prófum. Síðarnefnd próf eru
þá gjarnan kölluð hraðpróf. »4
þegar og farþegar með staðfesta fyrri sýkingu að sýna fram á
neikvætt Covid-próf sem tekið var innan við 72 tímum áður en
komið er til landsins. Prófinu er þá framvísað áður en farið er
Þ R I Ð J U D A G U R 2 7. J Ú L Í 2 0 2 1
.Stofnað 1913 . 174. tölublað . 109. árgangur .
MIKAEL
MÁNI MEÐ
NÝJA PLÖTU
TITRINGUR
HJÁ TÓNLEIKA-
HÖLDURUM
STÓRA
STUNDIN HJÁ
ANTONI Í DAG
ÓVISSA MEÐ MARGA VIÐBURÐI 14 ÆTLAR SÉR VERÐLAUN 27NOSTALGÍUVÉLIN 28
Baldur Arnarson
Guðni Einarsson
Gylfi Zoega, prófessor í hagfræði við
Háskóla Íslands og nefndarmaður í
peningastefnunefnd Seðlabankans,
segir það ekki hlutverk nefndarinnar
að taka afstöðu til þess hvaða áhrif
vaxtalækkanir hafi á fasteignaverð.
Tilefnið er gagnrýni Ragnars Þórs
Ingólfssonar, formanns VR, á stjórn-
völd í Morgunblaðinu í gær. Taldi
hann þau hafa sýnt andvaraleysi
með því að bregðast ekki við áhrifum
lægri vaxta á fasteignaverð, enda
væri hækkun þess áhyggjuefni.
Hefur ekki verið leiðrétt
Gylfi segir vaxtalækkanirnar hafa
leitt til hækkandi eignaverðs að
undanförnu. Það birtist í íbúðaverði
og verði hlutabréfa og fyrir vikið
hagnist efnafólk meira en aðrir.
„Þetta er hálfgerð tímasprengja af
því stjórnvöld á [Vesturlöndum] hafa
ekki leiðrétt eignaskiptinguna, eink-
um vegna óvissu um þróun farsóttar
og væntanlega einnig af pólitískum
ástæðum. Það er mikil óvissa um
framtíðina og stjórnvöld eiga fullt í
fangi með önnur mál,“ segir Gylfi.
Telur hann stjórnvöld geta sporn-
að við þessum áhrifum á íbúðaverðið
með því að stuðla að uppbyggingu á
ódýru húsnæði.
Drífa Snædal, forseti ASÍ, segir
húsnæðismálin verða fyrirferðar-
mikil í komandi kjaraviðræðum en
lífskjarasamningurinn rennur sitt
skeið á komandi ári. „Það er hægt að
tryggja kaupmáttinn með launa-
hækkunum, með því að stemma
stigu við vaxtahækkunum eða með
því að halda vöxtum lágum. Húsnæð-
iskostnaðurinn kemur einnig mjög
sterkt inn,“ segir Drífa sem tekur
undir með Ragnari Þór að í komandi
kjaraviðræðum verði barist fyrir enn
frekari styttingu vinnuvikunnar.
Horft til vaxta og húsnæðis
Drífa segir að kjarasamningar
komi til endurskoðunar í september.
Staðan verði rædd innan verkalýðs-
hreyfingarinnar í ágúst.
„Barátta verkalýðshreyfingarinn-
ar snýst um aukin lífsgæði og aukinn
kaupmátt,“ segir Drífa. Í því sam-
bandi skipti til dæmis vextir og hús-
næðiskostnaður máli.
Aðalsteinn Á. Baldursson, formað-
ur Framsýnar – stéttarfélags, telur
tímabært að taka inn í kjaraviðræð-
ur þá miklu mismunun sem íbúar
landsbyggðarinnar búa við varðandi
ýmsa opinbera þjónustu samanborið
við íbúa þéttbýlustu svæðanna. Það
eigi til dæmis við um læknisþjónustu
og háskólanám.
Eignatilfærsla sem
tifandi tímasprengja
- Prófessor segir vaxtalækkanir hafa áhrif á eignaskiptingu
MKjaramál »10 og 12
Morgunblaðið/Golli
Á uppleið Lægri vextir hafa leitt til
hærra eignaverðs í faraldrinum.
Sjúkraflutningum vegna Covid-19
hefur fjölgað umtalsvert und-
anfarna daga. Sinnir Slökkvilið höf-
uðborgarsvæðisins nú að meðaltali
25 flutningum á dag vegna veir-
unnar. „Sumir koma jafnvel á eigin
vegum en aðrir þurfa aðstoð við að
komast á göngudeildina og þá höf-
um við verið að flytja viðkomandi,“
segir Jón Viðar Matthíasson
slökkviliðsstjóri. Jón segir einnig
fjölda sjúkraflutninga hafa aukist
almennt undanfarin misseri og Co-
vid hafi bæst ofan á það. Fjölgunin
sé í takt við aukið álag á heilbrigð-
iskerfið. Í langflestum tilfellum
þarf að þrífa bílana mjög vel á milli
flutninga og getur það tekið nokk-
urn tíma. Jón segir þá slökkviliðið
fylgjast grannt með þróun mála er
hann var spurður hvort fjölga þurfi
fólki vegna álags. Hann segir
slökkviliðið líkt og aðra máta sig
inn í stöðuna hverju sinni. »6
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Annir Þessi sjúkrabíll var sótthreinsaður eftir Covid-19-flutning í gær.
Álag í flutningum
vegna Covid-19
- 25 flutningar að meðaltali á dag