Morgunblaðið - 27.07.2021, Page 2

Morgunblaðið - 27.07.2021, Page 2
2 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. JÚLÍ 2021 Vetrarsól er umboðsaðili Sláttuvélar & sláttuorf Snjóblásarar Askalind 4 | Kópavogi | Sími 564 1864 | vetrarsol.is Gulltryggð gæði 40 ár á Íslandi Sláttutraktorar Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Ari Páll Karlsson Lilja Hrund Ava Lúðvíksdóttir Þóra Birna Ingvarsdóttir Talið er að lík Johns Snorra Sig- urjónssonar og samferðamanna hans, Juan Pablo Mohr og Ali Sadpara, hafi fundist í gær, tæpu hálfu ári eftir að þeirra var saknað á fjallinu K2, þann 5. febrúar sl. Þrjú lík fundust í gær um 400 metra fyrir ofan fjórðu búðir fjalls- ins, rétt fyrir neðan „flöskuháls- inn“ svokallaða, en það er um 200 metra hár ísveggur í um 8.200 metra hæð en fjallið er 8.611 metra hátt. Reglulega hrynur úr veggnum og því liggur mikið undir þegar göngumenn reyna við þann kafla. Að sögn Garretts Madisons, sem nú er staddur í þriðju búðum fjalls- ins, fann hópur sjerpa líkin þegar teymið vann að festingu reipis fyrir ofan fjórðu búðirnar, rétt fyrir neðan flöskuhálsinn. Fyrsta líkið sem kennsl voru borin á var af Ali Sadpara, félaga Johns Snorra, en sonur hans, Sajid Sadpara, hefur síðustu daga leitað þremenninganna á fjallinu. Sajid jarðaði föður sinn Talið er að lík Johns Snorra hafi fundist þar á eftir og það þriðja hafi verið af Juan Pablo Mohr en það hefur ekki enn verið staðfest. Sajid komst í gær, ásamt fé- lögum sínum, að fjórðu búðum K2 en það er í fyrsta skipti sem nokk- ur maður kemst ofar þriðju búð- unum síðan John Snorri og félagar hurfu. Sajid hefur nú jarðað föður sinn rétt fyrir ofan flöskuhálsinn. John Snorri freistaði þess að verða einn þeirra fyrstu í sögunni til að klífa tind fjallsins að vetri til, en hann var fyrsti Íslendingurinn til að komast á topp fjallsins. Þrjú lík fundust á K2 - Kennsl borin á samferðamann Johns Snorra Fjallgöngumenn John Snorri ásamt feðgunum Sajid og Ali Sadpara. Sa- jid hefur leitað föður síns og Johns. Framboðslisti Miðflokksins í Reykjavík suður var var sam- þykktur á fé- lagsfundi Mið- flokksfélags Reykjavíkur í gærkvöldi. List- inn fékk sam- þykki 74%. Fjóla Hrund Björns- dóttir leiðir listann. Þetta kemur fram í tilkynningu frá flokknum. Í öðru sæti listans er Danith Chan lögfræðingur. Snorri Þor- valdsson, eldri borgari, skipar þriðja sæti listans. Tveir fram- kvæmdastjórar fylgja svo í kjöl- farið, Ómar Már Jónsson í fjórða og Anna Björg Hjartardóttir. Patience Adjahoe Karlsson kenn- ari er svo í sjötta sæti listans. Fjóla hafði áður skákað sitjandi oddvita, Þorsteini Sæmundssyni, í oddvitakjöri. Fjóla leiðir listann í Reykjavík suður Fjóla Hrund Björnsdóttir Góður gangur hefur verið í vinnu við uppsteypu nýrrar fimm hæða skrif- stofubyggingar á alþingisreitnum. Fyrsta steypan rann í grunninn 11. des- ember í fyrra og nú er svo komið að byggingin er komin upp fyrir yfirborð jarðar. Gert er ráð fyrir að samtals þurfi 4.485 rúmmetra af steypu í bygg- inguna svo enn er mikið verk fyrir höndum. Starfsmenn ÞG verktaka vinna verkið. Húsið á að verða tilbúið til notkunar í lok apríl 2023. sisi@mbl.is Morgunblaðið/Steinþór Guðbjartsson Smíði skrifstofubyggingar Alþingis miðar vel Guðni Einarsson gudni@mbl.is Jarðfræðingar fóru í rannsókn- arleiðangur til Surtseyjar 15. – 18. júlí. Jarðfræðingar hafa farið í eyna annað hvert ár. Nú unnu þeir að landmælingum og loftmynda- töku, mældu hitaútstreymi, tóku sýni og undirbjuggu sýnatöku vegna langtímarannsókna á borhol- um. Einnig var gerð ný rannsókn á stórum og smáum fótsporum sem hafa varðveist í móberginu. Stein- gervingafræðingur mun rannsaka sporin. Náttúrufræðistofnun (ni.is) greindi frá leiðangrinum. Loftmyndirnar verða notaðar til að útbúa nýtt þrívíddarlíkan af eynni. Þannig verður hægt að sjá breytingar sem orðið hafa vegna sjávarrofs og setflutninga. Greini- leg ummerki voru um rof, sér- staklega við hlíðar Austurbunkans þar sem gil höfðu víkkað talsvert í vatnsveðrum. Lovísa Guðrún Ásbjörnsdóttir jarðfræðingur var leiðangursstjóri. Hún sagði í samtali að lausagjóska sem enn er til staðar sé öll að hverfa vegna vatns- og vindrofs. Móbergið situr þá eftir. Svo er stöð- ugt sjávarrof við ströndina. Enn mælist jarðhiti í Surtsey þótt 54 ár séu síðan eldgosinu lauk. Reglulega hefur verið fylgst með þróun jarðhitakerfisins allt frá 1968 og hitaútstreymi í sprungum á gjóskubunkunum tveimur mælt. Enn mælist 80-90°C hiti á all- mörgum stöðum. Hæsti hitinn í Vesturbunka var 94,8°C. Djúpar holur voru boraðar 2017 og eru gerðar spennandi rann- sóknir á þeim, að sögn Lovísu. Vatnssýni eru tekin á mismunandi dýpi og efnahvörf milli bergs og vatns við mismunandi hita og þrýst- ing könnuð. Eins er fylgst með virkni og vexti örvera og kannað hvernig örverulíf þrífst við þessar ólífvænlegu aðstæður. Gömul fótspor varðveittust í móberginu - Jarðfræðingar fylgjast með þróun Surtseyjar - Enn mælist 80-90°C hitaútstreymi í eynni Ljósmynd/Birgir Vilhelm Óskarsson Surtsey Fótspor sem stigin voru í gjósku eru nú orðin að fari í móbergi. Rúmenski maðurinn, sem grunaður er um að hafa orðið Daníel Eiríks- syni að bana, kom af sjálfsdáðum til landsins í kjölfar þess að lögregla náði sambandi við manninn. Þetta staðfestir Grímur Grímsson, yfir- lögregluþjónn miðlægrar rann- sóknardeildar lögreglunnar, í sam- tali við Morgunblaðið Spurður hvort maðurinn sé nú í gæsluvarðhaldi sökum þess að hann hafi brotið farbann segir Grímur: „Nei, það var ákveðið að gera það ekki, það er að fara fram á kröfu um gæsluvarðhald að nýju. Hann sætir því enn bara farbanni og gerir sér vonandi bara betur grein fyrir því hvað það þýðir.“ Rúmenski maðurinn settur í farbann á ný

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.